Morgunblaðið - 29.12.2018, Blaðsíða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018
Elísabetar I sem er drottning sem
sprettur úr þessum jarðvegi og velur
að vera meydrottning til þess að láta
ekki myrða fyrir sér eiginmann og
afkomendur með tilheyrandi biturð
og valdaleysi. Heimsmynd þess tíma
var allt önnur en við þekkjum í dag
og möguleikar kvenna takmarkaðar
við hjónabönd og barneignir,“ segir
Brynhildur.
Fortíðin hefur framtíðinni spillt
Eruð þið að kinka kolli til Elísa-
betar I með því að láta Elísabetu
yngri í verkinu taka við kórónu Rík-
harðs að honum látnum og fara með
svohljóðandi lokaorð verksins sem
skáldið leggur upprunalega í munn
Ríkmonds: „Látum aldrei landinu
framar stjórna þá sem í eigin þágu
hag þess fórna“?
„Við erum enn ekki kominn að
niðurstöðu um það hvort hún haldi
aðeins á kórónunni eða setja hana á
höfuð sitt. Draumur okkar er að geta
leyft okkur að snúa aðeins upp á
mannkynssöguna. Allt sem við ger-
um er að búa til framtíð fyrir börnin
okkar. Elísabet eldri segir á einum
stað við Ríkharð: „Þín fortíð hefur
framtíðinni spillt“. Fyrir mér er hún
þar að tala um dóttur sína. Mér
fannst galið að Elísabet yngri hefði
ekki rödd í verkinu í ljósi þess hversu
mikið talað er um hana, en á einum
stað segist Ríkharður vilja greftra
dána bræður hennar í legi hennar.
Elísabet yngri táknar vonina. Hún er
óskin um það að við hættum að
hleypa illmennum til valda. Eftir sem
áður verður hún með foreldra sína,
barnunga myrta bræður sína, Rík-
harð frænda sinn og alla hina ætt-
ingjana á bakinu.
Við ráðum hvað við setjum í bak-
pokann hjá börnum okkar og sendum
þau út í framtíðina og lífið með. Eins
og málin standa núna erum við bara
að bjóða þeim upp á eyðimörk. Við
erum að bjóða þeim upp á ónýtan
heim stútfullan af plastpokum sem
illmenni stjórna. Við erum að bjóða
börnum okkar upp á hungursneyð og
kapítalisma,“ segir Brynhildur.
Heimur verksins er ónýtur
Hvernig birtist þessi lestur ykkar
á verkinu í sjónrænni umgjörð sýn-
ingarinnar?
„Heimur verksins er allur ónýtur
og ber þess vitni þegar leikurinn
hefst að borgarastyrjöld hefur geisað
í 30 ár. Hringsviðið er á stöðugri ferð
og allir leikmunir eru myglaðir. Það
er allt ónýtt, “ segir Brynhildur, en
Ilmur Stefánsdóttir hannaði leik-
myndina. „Í búningum er Filippía [I.
Elísdóttir] að vinna með ákveðið
tímaleysi en þó með vísun í stríðsár
sem við þekkjum. Það er kalt og því
klæðast persónur pelsum,“ segir
Brynhildur og bendir á að í reynd
þurfi konur verksins helst að eiga
hlýjan pels og góð gúmmístígvél til
að komast af.
Fyrrnefnd lokaorð verksins vekja
óneitanlega ákveðin hugrenninga-
tengsl við valdhafa heimsins í dag.
„Þessi orð ættu í raun að standa í
stjórnarskrá okkar,“ segir Hjörtur.
„Já, þessi orð ættu að vera lög,“ segir
Brynhildur.
En þrátt fyrir að hafa verið skrifuð
fyrir rúmum 400 árum virðist ekki
hafa verið hlustað á þau.
„Greinilega ekki. Eða þá að sterk-
ari öfl á borð við græðgi sigra hið
góða,“ segir Brynhildur. „Það virðist
engu máli skipta hversu augljós spill-
ingin er, áfram höldum við að kjósa
valdníðinga til valda,“ segir Hjörtur.
„Þegar öllu er á botninn hvolft ræður
græðgin för. Alveg saman hvað við
blöðrum mikið um samstöðu, það
kjósa allir einstaklingshyggju þegar
upp er staðið – því miður,“ segir
Brynhildur.
Hlaupum endalaust apríl
Miðað við nálgun ykkar væri auð-
veldlega hægt að fyllast ákveðnu von-
leysi yfir því að enginn hafi hlustað á
þessi varnaðarorð sem skrifuð eru
inn í leikritið. Sjáið þið verkið sem
tækifæri til að vekja áhorfendur til
umhugsunar? Enda er varla tilviljun
að þetta leikrit er valið til uppsetn-
ingar núna hjá Borgarleikhúsinu?
„Nei, það er nóg af valdníðingum
sem við sjáum skjóta upp kollinum
víðs vegar um heiminn í dag,“ segir
Hjörtur. „Og fórnarlömb þeirra að
sama skapi. Okkur ber skylda til að
leika leikrit Shakespeare og leyfa
þessum texta að hljóma. Þetta eru
dæmisögur. Þetta eru sögur um
mannlegt eðli. Þetta eru sögur um
venjulegt, breyskt fólk og hvernig við
látum hlaupa með okkur – og hlaup-
um endalaust apríl. Þessi uppsetning
er ein leið til að segja þessa sögu,“
segir Brynhildur og bendir á að
klassíkin lifi það að vera skoðuð með
nýjum augum af hverri nýrri kyn-
slóð.
„Það er bæði merkilegt og mikil-
vægt við klassíkina hvernig hún lifir.
Þess vegna ber okkur skylda til að
leika þessi leikrit, láta nýtt fólk þýða
og endurvekja textann. Ef einhver
gengur út úr leikhúsinu með nýja sýn
á verkið gæti ég ekki verið hamingju-
samari. Ég veit auðvitað að ég breyti
ekki heiminum, en dropinn holar
stein. Mín ósk er að fólk flykkist í
leikhús til að kynnast klassíkinni og
sannfærist um að texti í bundnu máli
geti bæði verið aðgengilegur,
skemmtilegur og talað beint til
okkar. Þetta er ekki þúsund ára gam-
alt ljóð sem enginn skilur og öllum
leiðist. Þetta er bara saga um breysk-
leika okkar mannanna,“ segir Bryn-
hildur að lokum.
Leikhópinn skipa auk Hjartar
Jóhanns Jónssonar sem fer með titil-
hlutverkið þau Þórunn Arna Krist-
jánsdóttir, Sólbjört Sigurðardóttir,
Edda Björg Eyjólfsdóttir, Sigrún
Edda Björnsdóttir, Valur Freyr Ein-
arsson, Kristbjörg Kjeld, Halldór
Gylfason, Jóhann Sigurðarson, Hilm-
ar Guðjónsson, Arnar Dan Krist-
jánsson og Davíð Þór Katrínarson.
í raunheiminn
Morgunblaðið/Eggert
» Við ráðum hvað við setjum í bakpokann hjábörnum okkar og sendum þau út í framtíðina og
lífið með. Eins og málin standa núna erum við bara
að bjóða þeim upp á eyðimörk. Við erum að bjóða
þeim upp á ónýtan heim stútfullan af plastpokum
sem illmenni stjórna.
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Elly (Stóra sviðið)
Sun 30/12 kl. 15:00 aukas. Lau 12/1 kl. 20:00 188. s Sun 20/1 kl. 20:00 192. s
Sun 30/12 kl. 20:00 aukas. Sun 13/1 kl. 20:00 189. s Fim 24/1 kl. 20:00 193. s
Fös 4/1 kl. 20:00 186. s Fös 18/1 kl. 20:00 190. s
Lau 5/1 kl. 20:00 187. s Lau 19/1 kl. 20:00 191. s
Stjarna er fædd.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Lau 29/12 kl. 20:00 Frums. Sun 6/1 kl. 20:00 3. s Fös 11/1 kl. 20:00 5. s
Fim 3/1 kl. 20:00 2. s Fim 10/1 kl. 20:00 4. s Mið 16/1 kl. 20:00 6. s
Ég, tveggja stafa heimsveldi
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Sun 30/12 kl. 20:00 25. s Fös 18/1 kl. 20:00 27. s
Fös 4/1 kl. 20:00 26. s Fim 24/1 kl. 20:00 28. s
Gleðileikur um depurð.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Fös 11/1 kl. 20:00 16. s Lau 26/1 kl. 20:00 25. s
Sun 30/12 kl. 20:00 14. s Lau 12/1 kl. 20:00 17. s Fös 1/2 kl. 20:00 26. s
Fös 4/1 kl. 20:00 aukas. Fös 18/1 kl. 20:00 aukas. Lau 2/2 kl. 20:00 27. s
Lau 5/1 kl. 20:00 aukas. Lau 19/1 kl. 20:00 20. s Fös 8/2 kl. 20:00 28. s
Sun 6/1 kl. 20:00 15. s Fös 25/1 kl. 20:00 24. s Lau 9/2 kl. 20:00 29. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Núna 2019 (Litla sviðið)
Fös 11/1 kl. 20:00 Frums. Lau 12/1 kl. 17:00 2. s Sun 13/1 kl. 17:00 3. s
Núna er ekki á morgun, það er NÚNA
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 5/1 kl. 20:00 1. s Fim 17/1 kl. 20:00 3. s Fös 25/1 kl. 20:00 5. s
Sun 6/1 kl. 20:00 2. s Lau 19/1 kl. 20:00 4. s Lau 26/1 kl. 20:00 6. s
Sannar en lygilegar sögur!
Ég dey (Nýja sviðið)
Fim 10/1 kl. 20:00 Frums. Mið 16/1 kl. 20:00 3. s Fim 24/1 kl. 20:00 5. s
Sun 13/1 kl. 20:00 2. s Fim 17/1 kl. 20:00 4. s Sun 27/1 kl. 20:00 6. s
Trúir þú á líf fyrir dauðann?
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Lífið er ekki nógu ávanabindandi
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Lau 26/1 kl. 13:00 Auka Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn
Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Lau 26/1 kl. 16:00 Auka Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn
Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn
Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn
Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas.
Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn
Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka
Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka
Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka
Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn
Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn
Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Lau 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn
Fös 11/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 1/2 kl. 19:30
Lau 12/1 kl. 19:30 6.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn
Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 13.sýn
Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn
Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Lau 16/3 kl. 15:00 15.sýn
Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn
Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Velkomin heim (Kassinn)
Fös 1/2 kl. 19:30 Lau 9/2 kl. 19:30 Fös 15/2 kl. 19:30
Lau 2/2 kl. 19:30 Sun 10/2 kl. 19:30
Insomnia (Kassinn)
Lau 12/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn
Brandarinn sem aldrei deyr
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Sun 6/1 kl. 20:00 Mið 23/1 kl. 20:00 Mið 6/2 kl. 20:00
Mið 16/1 kl. 20:00 Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 11/1 kl. 20:00 Lau 12/1 kl. 20:00 Fim 17/1 kl. 20:00
Fös 11/1 kl. 22:30 Lau 12/1 kl. 22:30 Fös 25/1 kl. 20:00
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Allt um sjávarútveg