Morgunblaðið - 29.12.2018, Page 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018
Gerplustræti 31 - 270 Mosfellsbær *Laust strax*
Sölkugata 1 og 3
- 270 Mosfellsbær
Lofnarbrunnur 24
- 113 Reykjavík *Laust strax*
Nýjar íbúðir ásamt bílastæði í bílageymslu í lyftuhúsi.
Íbúð 204 - 125,4 m2,
5 herbergja íbúð. V. 53,9 m.
Íbúð 401 - 113,1 m2,
4ra herbergja endaíbúð. V. 51,1 m.
Falleg 213,7 m2 parhús á einni hæð með bílskúr á
fallegum stað í útjaðri byggðar. Eignin skilast fullbúin að
utan og tilbúin til innréttinga að innan með grófjafnaðri
lóð. Fjögur svefnherbergi. Tvö baðherbergi. V. 73,9 m.
154,4 m2 raðhús á tveimur hæðum með bílskúr í bygg-
ingu við Lofnarbrunn 24 í Reykjavík. Eignin er afhend á
byggingarstigi 4 samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Húsið er
steypt með steyptum stiga á milli hæða. Góð staðsetning
rétt við skóla. V. 54,9 m.
Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali
Þverholti 2 // Mosfellsbæ // Sími 586 8080
fastmos.is // fastmos@fastmos.is
Svanþór Einarsson
Löggiltur fasteignasali
S. 698 8555
Sigurður Gunnarsson
Löggiltur fasteignasali
S. 899 1987
Hringdu og bókaðu skoðun
Öldur eilífðarinnar
Crescendo í Tjarnarbíói bbbbn
Danshöfundur: Katrín Gunnars-
dóttir. Dansarar: Heba Eir Kjeld,
Snædís Lilja Ingadóttir og Védís
Kjartansdóttir.
„Það er ferskur andvari fyrir
sviðslistasenuna að fá verk þar sem
fegurð og blíða ríkir með list dans-
arans, og gott að sjá líkamlegan dans
í svona ljóðrænni framsetningu.
Kannski er það hin nýja róttækni að
taka burt allt skraut og fara aftur í
kjarnann, það virkar allavega vel
hér. Crescendo er tregafullt, sæt-
súrt, einlægt, sárt og blítt – allur
skalinn, eins og manneskjan.“
Að elska jörðina
og eyðileggja hana
The Lover á Listahátíð í Reykja-
vík í Tjarnarbíói bbbbn
Dansari og danshöfundur: Bára
Sigfúsdóttir.
„The Lover er sjónrænt dansverk,
hugleiðing um samband manns og
náttúru […] Bára hefur þróað þenn-
an einstaka hreyfistíl til að miðla
hugmyndum sínum en það sem við
sjáum er mjög opið fyrir túlkun
áhorfandans.
[Hún] er verulega spennandi dans-
höfundur sem kafar á dýptina og
kann að skapa áleitin verk sem krefj-
ast þess að við tökum afstöðu.“
Um tilgang, kraft og ofbeldi
Verk nr. 1. Íslenski dansflokkur-
inn í Borgarleikhúsinu bbbbn
Eftir Steinunni Ketilsdóttur í sam-
vinnu við dansara Íslenska dans-
flokksins. Frumsýnt á alþjóðlegu
sviðslistahátíðinni Spectacular.
„Verkið er kröftugt, flókið,
skemmtilegt og tilefni til mikilla
heilabrota. Unnið er með margar
hugmyndir, margra spurninga
spurt, og klisjur eru afbyggðar og
settar í ný samhengi. Framsetningin
gefur tilefni til ólíkra túlkana en þó
má segja að þetta sé dansverk um
dans, um hlutverk dansarans, sem og
dansverk um afstöðu og viðmót
áhorfandans.“
Gefa feðraveldinu fingurinn
Únglingurinn í Reykjavík, dans-
og sviðslistahátíð – Hlustunarpartý
eftir Ásrúnu Magnúsdóttur og hóp-
inn og Les Coquettes eftir Les Coq-
uettes.
Hátíðin var haldin af Reykjavík
Dance Festival og þróuð í samvinnu
við listrænt teymi ungmenna á aldr-
inum 16-25 ára. Fjölbreyttir við-
burðir voru í boði.
„Tónlist opnar dyr beint að hjart-
anu og þegar við bætist orka þrjátíu
unglinga hrífur „Hlustunarpartý“
áhorfandann sannarlega með sér í
dansi, söng og stuði. Mörkin þurrk-
ast út milli tónlistar og sviðslistar,
leikara og unglings að vera hann
sjálfur á sviði, skáldskapar og raun-
veruleika. Það dregur fram sam-
kennd og lætur okkur hugsa um hina
innstu mannlegu þörf – að tilheyra…
Í [Les Coquettes] velta stelpurnar
upp spurningum um kynþokka
kvenna og bjóða áhorfendum að fara
í sjálfsskoðun á eigin fordómum.
Þær sviðsetja atriði úr kvikmynd þar
sem konur heilla karlmenn, endur-
taka og ýkja, og brátt verður það
sem þótti eðlilegt í kvikmynd óþægi-
legt á sviði. Þessar stelpur eru komn-
ar til að taka pláss, vera eins og þær
vilja, vera druslur ef þær vilja og
dansa eins og þær vilja. Þær lýsa yfir
heilögu systralagi og gefa feðra-
veldinu fingurinn.“
Innsýn í líf ókunnugra
Asparfell eftir Ásrúnu Magnús-
dóttur og Alexander Roberts, í sam-
vinnu við íbúa við Asparfell í Breið-
holti. Samstarfsverkefni Lista-
hátíðar í Reykjavík og Breiðholt
Festival.
„Blokkarpartíið bauð upp á
heillandi innsýn í líf ókunnugra, og
gestir sáu hvernig persónuleiki íbú-
anna endurspeglaðist í eigum
þeirra og smekk. Verkið var sam-
félagsleikhús sem leyfði áhorf-
endum að hitta fólk í sínu umhverfi,
og heyra sögur þeirra. Heyra af
hverju þau tóku þátt, hvað þeim
liggur á hjarta, hvað hefur reynst
þeim erfitt í lífinu og hvað veitir
þeim hamingju. Konseptið á sér-
staklega vel við þema Listahátíðar í
ár, „Heima“. Það er ánægjulegt að
Listahátíð standi fyrir svona verk-
efni, að bjóða allskonar fólki í út-
hverfum borgarinnar að taka þátt í
að skapa upplifun sem byggir á
þeirra eigin „heima“.“
Ímyndunaraflinu
boðið upp í dans
Óður og Flexa: Rafmagnað ævin-
týri. Íslenski dansflokkurinn í
Borgarleikhúsinu bbbnn
Eftir Hannes Þór Egilsson og
Þyri Huld Árnadóttir. Flytjendur:
Hannes Þór Egilsson, Þyri Huld
Árnadóttir og Ernesto Camilo Al-
dazabal Valdes.
„Það er mikið gleðiefni að Ís-
lenski dansflokkurinn sé að fram-
leiða dansverk fyrir börn. Það er
mikilvægt að þau fái notið mögu-
leika dans, tækni og leikhústöfra á
unga aldri. Ævintýraveröld Óðs og
Flexu er grípandi og áhrifamikið
verk sem býður ímyndunaraflinu í
dans og er vel þess virði að sjá. En
það skortir dálítið í persónusköp-
un, innihaldi og dýpt. Verkið hefur
fallegan sjónrænan ramma en
vantar meiri kjarna til að um-
breyta því úr skemmtisjóvi fyrir
skynfærin yfir í myndræna frá-
sögn.“
Tekist á við stórar spurningar
Cock, cock... Who’s there? eftir
Samira Elagoz. Sýnt á alþjóðlegu
sviðslistahátíðinni Spectacular.
„Verkið er einlæg tilraun höfundar
til að sviðssetja ferðalag sitt í kjölfar-
ið að hafa orðið fyrir kynferðislegu
ofbeldi. […] Áhorfandinn er eina
stundina í hláturskasti og aðra í ekka-
sogum, í verki sem tekst á ögrandi
hátt við stóru spurningar okkar tíma
um samskipti kynjanna, ást, ofbeldi
og framtíðina.“
Nammibúð upplifunarleikhúss
Leitin að tilgangi lífsins. 16 elsk-
endur sýndu á Læknavaktinni fyrr-
verandi við Smáratorg.
„Verkið er eins og að fara í nammi-
búð upplifunarleikhúss og gjörninga-
listar. 16 elskendur hafa skapað sér-
sniðið ferðalag fyrir hvern þátt-
takanda til að kynnast sjálfum sér í
áskorunum, gjörðum og tilfinn-
ingum.“
Frumlegt og óútreiknanlegt
WikiHow to Start a Punk Band,
eftir Gígju Jónsdóttur. Sýning á
danshátíð Tjarnarbíós, Vorblót.
„Með hjálp áhorfenda reynir
Gígja Jónsdóttir að búa til pönk-
hljómsveit á klukkutíma með aðstoð
vefsíðunnar WikiHow. Ótrúlega
skemmtilegt, frumlegt og óútreikn-
anlegt verk sem endurvekur vonina
um að allt sé mögulegt með vilja,
einlægni og hispursleysi.“
Magnaður kraftur
Útskriftarverk sviðshöfunda
2018, sýnd í Tjarnarbíói og víða.
Alma Mjöll Ólafsdóttir: Femínísk
útópía í hversdeginum; Lóa Björk
Björnsdóttir: Tími til að segja bless;
Hallveig Kristín Eiríksdóttir: Brugð-
ið til beggja vona.
„Upprennandi sviðslistafólk, virð-
ast uppteknar af jafnrétti, um-
hverfismálum, nýfrjálshyggjunni og
hvernig þær geti bjargað heiminum.
Það er magnaður kraftur í þeim og
voru útskriftarverkin frumleg, ögr-
andi og hrífandi.“
Danssýningar ársins
Nýr dansgagnrýnandi, Nína Hjálmarsdóttir, hóf að skrifa um allrahanda dans- og gjörningasýningar fyrir lesendur Morgunblaðins
á árinu. Nú undir lok árs hefur hún valið bestu sýningarnar sem hún gagnrýndi, skrifaði pistla um eða vill geta um við áramót.
Ljósmynd/Jónatan Grétarsson
Verk nr. 1 „Verkið er kröftugt, flókið, skemmtilegt og tilefni til mikilla heilabrota,“ segir um dansverk Steinunnar.
Ljósmynd/Leifur Vilberg
Blokkarpartí „… gestir sáu hvernig persónuleiki íbú-
anna endurspeglaðist í eigum þeirra og smekk.“
Ljósmynd/Owen Fiene
Ferskur andvari „Crescendo er tregafullt, sætsúrt, ein-
lægt, sárt og blítt – allur skalinn, eins og manneskjan.“