Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Blaðsíða 10
VETTVANGUR 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.12. 2018 Þegar dagurinn styttist og styttist og sólin er farin að setjast stuttu fyrir kl. fjögur á daginn fagna margir birtu af snjó, sem hefur þó verið sjaldséður gestur í Reykjavík það sem af er vetri. Ríkulega hefur þó snjóað í öðrum hlutum landsins og þannig mældist snjódýpt á Ak- ureyri 75 cm um síðustu helgi, sem er mesta snjódýpt sem mælst hefur þar í nóvember- mánuði. Borgarbúar fengu að vísu sinn skerf af snjó í vikunni. Voru menn svo ýmist ósáttir við hve stutt hann staldraði við eða kvöddu hann fagnandi. Hari F ræðimennirnir Sala og Gobetfundu út í sinni rannsókn aðgóðir skákmenn og framúr- skarandi klassískir tónlistarmenn eru að meðaltali „klárari“ en almenn- ingur. Þeir bentu líka á að þeir sem stunda slíkt verða eingöngu betri á sínu sviði en verða ekki klárari á öðr- um sviðum. Það er að segja yfir- færslur frá til dæmis skák til annarra sviða eins og stærðfræði eða tungu- mála voru litlar sem engar. Þannig að Magnus Carlsen, besti skákmaður í heiminum í dag, er framúrskarandi í skák, en ef hann ætlar sér að verða góður á öðru sviði þarf hann að stunda mikla þjálfun á því sviði. Fremsti þjálfari Noregs í knatt- spyrnu, Nils Arne Eggen, sem þjálf- aði Rosenborg í tugi ára, talaði um „godfoten“, það er að segja mikilvægi þess að finna sterku hliðar hvers leik- manns. Það voru þættir sem gerðu hvern leikmenn einstakan. Nils lagði mikla áherslu á að leikmenn myndu leggja rækt við að þjálfa sinn „god- fot“ – þannig að sá einstaklingur yrði ennþá betri í því sem hann er þegar góður í. Þetta stemmir vel við það sem kallast „spesifisitet“ – sérhæfing. Þú þróar akkúrat það sem þú þjálfar. Ef maður spáir í þá færni sem fram- úrskarandi einstaklingar búa yfir þá liggur mikil þjálfun og reynsla á bak við þá færni. Eitt dæmi er Carlsen sem er búinn að æfa skák frá fimm ára aldri. Annað dæmi er músík- snillingurinn Björk Guðmundsdóttir sem er búin að vera syngjandi frá barnsaldri. Það að Gylfi Sigurðsson skori oft í fríspörkum utan teigs kem- ur ekki af sjálfu sér heldur eftir þrot- lausar æfingar. Sama má segja um þá sem fá góðar einkunnir í mismunandi fögum í skóla. Há greindarvísitala (IQ) er ekki nóg heldur þarf mikla þjálfun í þeirri færni sem maður vill bæta sig í. Í því samhengi er algjört lykilatriði að vita hvar maður stendur og hvaða þætti maður þarf að vinna með til að geta bætt sig. Eitt dæmi er með nemendur í 9. bekk sem taka stöðupróf í stærð- fræði, þau þurfa að fá að vita hvað þau þurfa að vinna með til að bæta sig, það gæti verið að einn unglingur þurfi að vinna betur með algebru og skilning á því að mínus fyrir framan sviga breytir formerkjum inni í svig- anum. Þá þarf viðkomandi aðili að æfa sig í akkúrat slíkum verkefnum. Þessi sami unglingur getur hins veg- ar haft góða kunnáttu í rúmfræði. Rannsóknir hafa sýnt fram á mikla sérhæfingu í stærðfræði. Eitt 10 ára barn getur til dæmis verið með góða færni í venjulegum plús-verkefnum eins og 5+12 en ekki haft góða færni í plús í texta. Þar getur til dæmis lestr- arfærni og lesskilningur valdið vandamálum. Þess vegna hafa fræði- menn bent á að það sé kannski ekki rétt að byrja að leggja áherslu á orða- dæmi of snemma. Alla vega ekki fyrr en börn eru vel læs. Rannsóknir sýna að 27% af börnum kunna ekki að lesa eftir 1. bekk í grunnskóla, þar af eru 70% drengir. Þannig að mikilvægt er að leggja áherslu á grunnleggjandi færni, svo sem lestur, á fyrstu stigum grunnskólans. Einnig er mikilvægt að finna áhugasvið hvers og eins og gefa einstaklingum möguleika á að vinna með sitt áhugasvið, „godfoten“. Í einu stærsta blaði Noregs, Dagbladet, var viðtal við sérfræðinga á sviði starfsþróunar og þeir bentu á mikilvægi þess að ungt fólk fyndi sitt áhugasvið og gerði starfsferil á því sviði. Ef sterk áhugahvöt er á bak við þitt val eru miklu meiri möguleikar á að þú eyðir meiri tíma í að verða góð- ur á því sviði, sem sagt, þú færð aukna orku til að vinna með það svið. Í þessu samhengi gætum við sagt að einstaklingar eigi að finna sitt áhuga- svið og rækta sínar sterku hliðar. Styrkjum „godfoten“. Hermundur Sigmundsson er prófessor í lífeðlislegri sálfræði við Háskólann í Þrándheimi og Háskólann í Reykjavík. Góði fóturinn – styrkjum sterku hliðarnar Vísindi og samfélag Hermundur Sigmundsson hermundurs@ru.is Getty Images/iStockphoto Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Jólagjöfin Herralína 1. Sturtusápa 3.695 kr. 2. Andlits-og líkamskrem 3.295 kr. 3.Olía 3.395 kr. 4.Handsápa 2.895 kr. 5. Rakbursti 5.195 kr. 6. Raksápa 1.995 kr. Lífræn olía á líkamann eða í baðið 7. 500 ml 6.889 kr. - 8. 100 ml 4.295 kr. Fótadekur 9. Fótaþjöl 1.945 kr. 10. Fótakrem 2.200 kr. 11. Vikursteinn 925 kr. 12. Rakagefandi sokkar 4.395 kr. 9 10 11 12 1 2 4 56 3 fæst í Fakó N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið Stólar Erum á facebook Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Ami Grace Manning Elton Cato Highrock Sierra Kelsey

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.