Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.12. 2018
HEILSA
Ég sat á spænskri strönd síðastliðið sumarog velti fyrir mér hvort nú væri ekkikominn tími á að taka til í eigin ranni.
Fáum vikum síðar var ég búinn að skuldbinda
mig til að skrifa 26 pistla um hálfs árs vegferð
til betri heilsu. Og ég ákvað strax að ég myndi
birta árangurinn í tölum og tali. Hér að ofan
sér þess stað að nokkru marki. Í september
voru kílóin 92,9 og vikurnar og mánuðina á
undan var ég kannski að lufsast einu sinni í
viku í einhverskonar rækt – oft með hangandi
hendi.
Og nú er tíminn sem ég úthlutaði mér í þetta
verkefni hálfnaður. 13 vikur að baki og 13 vik-
ur framundan. Markmiðið í fyrstu aðeins eitt,
að fækka kílóunum um 10 á þessum tíma en
því var einnig fljótlega lýst yfir að eftir því sem
þessu myndi vinda fram kæmu kannski fleiri
markmið við sögu.
74% markmiðsins í höfn nú þegar
Tíminn er hálfnaður og 7,4 kg fokin út í veður
og vind. 50% tímans og 74% verkefnisins í höfn
(en það er hægt að glutra því hratt niður). Og
þegar þessar tölur eru festar á blað minni ég
mig á að þær virka mér hagstæðar og engu lík-
ara en að ég stefni hraðbyri að því að ná mark-
miðinu löngu áður en sett tímamörk berja að
dyrum. En það er ekki endilega svo. Fyrstu
vikurnar fór að jafnaði 1 kg af skrokknum á
viku en verulega hefur hægt á í þeim efnum.
Annars væru þau orðin jafn mörg jólasvein-
unum. Þegar ég gerði upp aðra vikuna á þess-
ari vegferð var ég enn dálítið þungur á mér –
þótt ekki ætli ég að lýsa mér eins og manni í
mikilli yfirþyngd því sú skilgreining átti ekki
við – benti ég á að verkefnið framundan væri
þess eðlis að gott væri að brjóta það niður í
smærri einingar, skref sem hægt væri að
gleðjast yfir þegar þeim væri náð. Og eitt af
því sem ég benti á í því sambandi var sú stað-
reynd að til þess að ná markmiðinu þyrfti ég
aðeins að missa 71,4 grömm á dag. Annað væri
það ekki. Þegar ég leik mér með reiknistokk-
inn sé ég svo núna að meðaltals þyngdartapið á
hverjum einasta degi, frá því að lagt var af
stað, fyrir 91 degi, hefur grömmunum fækkað
um 81,3 að jafnaði á degi hverjum. Það er bara
þónokkuð.
Færri kíló en líka meiri vitneskja
Sannarlega er ástæða til að gleðjast yfir þess-
um áfangasigrum og þeir gefa fyrirheit um að
ef ég held rétt á spilunum muni ég standa uppi
á nýju ári, 26 vikum frá upphafspunktinum
sjálfum, 10 kílóum léttari og sæll með að hafa
náð því sem stefnt var að. En það er miklu
fleira sem fæst með því að setja sér markmið á
þessa lund og dröslast áfram eftir veginum í
von um að ná því.
Eitt af því sem ég stend uppi með að þessum
vikum liðnum er meiri þekking, ekki bara á
sjálfum mér og því sem ég hef séð til mín í
strögglinu. Heldur þekking á mataræði og
mikilvægi þess, fjölda æfinga sem þjálfarinn
góði, Ívar Guðmundsson, hefur teymt mig út í
og svo allt það ágæta fólk sem hefur að eigin
frumkvæði en einnig mínu, frætt mig um hinar
ýmsu hliðar líkamsræktar og þær fjölmörgu
leiðir sem hægt er að fara í átt að betri heilsu.
Allt er þetta veganesti sem skiptir miklu máli
og getur virkað eins og verkfærakista fyrir
mig þegar ég þarf á tilbreytingu að halda eða
lendi í mótbyr með þá leið sem ég hef valið á
hverjum tíma.
Ekkert bullað í köldu vatni
Vænst þykir mér þó um að hafa fengið að
heyra sögur fjölda fólks sem hefur staðið í
sömu eða svipuðum sporum og tekist á við
áskoranirnar. Ein sú eftirminnilegasta er
sannarlega sú sem Guðni Ágústsson sagði mér
og ég fjallaði um á þessum vettvangi fyrir
skemmstu. En svo eru það umræðurnar, m.a.
við þann fjölda fólks sem ég hef um lengri eða
skemmri tíma setið við hliðina á í köldu pott-
unum. Þótt það taki á þá er ótrúlega oft sem
þar eiga sér stað innihaldsríkar og áhugaverð-
ar umræður. Þar er kannski bara of kalt til
þess að bulla eða tala einhvern óþarfa.
Í september var stefnan sett á tiltekið markmið og ætlunin
að ná því á hálfu ári. Nú er leiðin að markinu hálfnuð, hið
minnsta í dögum talið. Og tímamótin gefa tækifæri til
endurmats og þá er hægt að rétta kúrsinn.
Að bæta heilsuna og draga úr óhollustu er stundum eins og að klífa fjall. Maður er alveg við það að
gefast upp og snúa við. En það er toppurinn sem togar í mann og hann er þarna einhvers staðar.
Getty Images/iStockphoto
Hálfnað er verkið og létt undir fæti
Á einum stað segir að markmið
án áætlunar sé aðeins draum-
sýn. Með því er undirstrikað að
maður verður að ganga skipu-
lega til verks til að verða eitt-
hvað úr verki sem muni um.
Það hef ég sannreynt síðustu
þrjá mánuði. Þar hefur mestu
skipt að hafa fest, strax í upp-
hafi, tvær æfingar í viku hverri
þar sem lóðum er lyft í 45 mín-
útur í senn. Þessar æfingar setja
ramma um allt annað sem á
eftir kemur.
Svo hefur róðrarvélin nýja
komið sér vel. Hún leysir þann
vanda að maður getur ekki allt-
af komist frá enda ýmsar skyld-
ur sem hvíla sem betur fer á
manni heima fyrir.
En núna hyggst ég beina
markmiðinu að fjölbreyttari æf-
ingum – eins og raunar var lagt
upp með í upphafi. Það kallar á
fleiri æfingatíma í viku og þar
þarf að sýna útsjónarsemi. En
núna verða einhverjir tímar
sóttir þar sem farið verður enn
frekar út fyrir þægindaramm-
ann. Það munar mikið um slíka
tímasókn. Góð klukkutíma
brennsla er mögulega 1.000
hitaeiningar. Það sker niður
orkuforða líkamans á viku-
grundvelli um tæp 8% og getur
um leið aukið þol og styrk.
Í því sambandi ætla ég m.a.
að standa við það loforð sem ég
hef gefið mér að synda meira
og feta þar í „sundtök“ eigin-
konunnar sem alltaf hefur verið
liðtæk í þeim efnum. En svo eru
það hlaupin. Bakið er orðið
miklu betra en þegar ég byrjaði
að lyfta. Það gefur vonandi
fyrirheit um að ég geti aukið
vegalengdirnar í hlaupunum.
Það væri frábært.
RÓÐUR, SUND OG STYRKUR
Áfram gakk
Meiri hreyfing er svarið. Það er
markmið sem vert er að standa við.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Pistill
Stefán Einar
Stefánsson
ses@mbl.is
ÞYNGD SKREFAFJÖLDI MATARÆÐI ÆFINGAR
92,9 kg
84,4 kg
85,5 kg
Upphaf:
Vika 12:
Vika 13:
31.528
27.315
13.529
14.925
2 klst.
4 klst.
HITAEININGAR
Prótein
23,3%
Kolvetni
36,5%
Fita
40,2%
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Í blaðinu verður
kynnt fullt af þeim
möguleikum sem í
boði eru fyrir þá sem
stefna á heilsuátak
og bættan lífsstíl.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir fimmtudaginn 20. desember
fylgir Morgunblaðinu
miðvikudaginn 2. janúar 2019
Heilsa& lífsstíll