Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2018, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.12. 2018
LESBÓK
TÓNLIST Tónleikaferðalag Eds Sheerans toppar
listann yfir tekjuhæstu tónleikaferðalög ársins. Tekjur
af Divide Tour eru 429 milljónir dala á árinu 2018, tæp-
lega 54 milljarðar íslenskra króna. Hann hefur þar með
slegið tekjumet hvað varðar tónleikaferðalög sólólista-
manns, að því er fram kemur í grein á billboard.com.
Tónleikarnir voru alls 99 talsins. Þetta bætist við þær
122 milljónir dala, 15 milljarða króna, sem hann hafði í
tekjur af sama tónleikaferðalagi árið 2017 en ferðalagið
hófst í Tórínó á Ítalíu í mars það ár. Sheeran heldur
tvenna tónleika á Laugardalsvelli á næsta ári en tón-
leikaferðalaginu lýkur ekki fyrr en í ágúst.
Aðrir á topp fimm lista billboard.com eru Taylor
Swift, Beyoncé og Jay-Z, Bruno Mars og Pink.
Sheeran tekjuhæstur
Ed Sheeran er vinsæll.
TÓNLIST Pete Shelley söngvari og gítarleikari
bresku pönksveitarinnar Buzzcocks er látinn.
Shelley, sem var 63 ára gamall, lést á fimmtudag í
Eistlandi, þar sem hann bjó. Talið er að banamein
hans hafi verið hjartaáfall. Hljómsveitin Buzz-
cocks er best þekkt fyrir smellinn „Ever Fallen in
Love (With Someone You Shouldn’t’ve)“.
Aðdáendur Shelley minntust hans á Twitter.
Tim Burgess, söngvari The Charlatans skrifaði:
„Pete Shelley samdi fullkomin þriggja mínútna
popplög. Þetta voru lögin sem hljómuðu þegar ég
var unglingur. Þín verður saknað, Pete, en þín
verður minnst í langan tíma fyrir þessa frábæru
tónlist.“
Söngvari Buzzcocks látinn
Shelley á sviði árið 2015.
Með úrskurði Fjölmiðlanefndar í september 2018 lagði nefndin
stjórnvaldssekt á Hringbraut fyrir sýningar á þættinum Atvinnu-
lífið þar sem fjallað var um Gjaldeyriseftirlit Seðlabankans og
málefni Aserta annars vegar og Samherja hf. hins vegar.
Hringbraut reyndi að fá niðurstöðunni hnekkt sökum vanhæfis
nefndarmanna en hafði ekki árangur sem erfiði.
Jafnframt hefur Fjölmiðlanefnd gert Hringbraut að fjarlægja
þættina af vef sínum og hefur það þegar verið gert.
Þættirnir hafa vakið mikla athygli einkum í ljósi nýlegs
úrskurðar Hæstaréttar í máli Samherja gegn Seðlabanka
Íslands.
Hringbraut-Fjölmiðlar ehf rekur samnefnda sjónvarpsrás og vefmiðil og sendir eingöngu út íslenskt sjónvarpsefni.
Bann við sýningum Hringbrautar á þáttum
um gjaldeyriseftirlit Seðlabankans
Sjónvarpsþættirnir um Gjaldeyriseftirlit
Seðlabankans verða því áfram aðgengilegir
á alþjóðlegumyndbandsrásinni YouTube
undir heitinu Sjónvarpsþátturinn Atvinnulífið.
Games og ásakar hann tölvuleikja-
framleiðandann um að hafa stolið
danssporinu sínu, „Milly Rock“, og
selt það sem „Swipe It“ í leiknum.
Mögulega er mikið í húfi því þótt
Fortnite sé ókeypis leikur græða
framleiðendurnir á honum í gegnum
sölu á m.a. þessum dönsum. Leik-
urinn státar af 200 milljón skráðum
notendum.
Í málinu, sem var höfðað í Los
Angeles á miðvikudag, er Epic Gam-
es ekki aðeins ásakað um að hafa
stolið þessum dansi án leyfis lista-
mannsins heldur er fyrirtækið ásak-
að um að hafa gert þetta margoft áð-
ur. Til dæmis er tekið dæmi um að
dans Snoop Dogg úr „Drop It Like
It’s Hot“ heiti „Tidy“ í Fortnite og
„Carlton Dance“ Alfonsos Ribeiros
úr The Fresh Prince of Bel-Air heiti
þar „Fresh“. Einnig segja lögfræð-
ingarnir að dans Donalds Faisons úr
Scrubs heiti einfaldlega „Dance
Moves“.
„Þarna virðist vera um að ræða
vanvirðingu og vanmat eða skort á
þakklæti á verkum bandarískra
listamanna af afrískum uppruna.
Þarna er verið að nýta sér frægð
þessara listamanna án nokkurrar
viðurkenningar,“ sagði David L.
Hecht, einn af lögfræðingum 2 Milly,
við Washington Post.
„Vandamálið er að þeir sem spila
leikinn gætu hugsað með sér að
þessir listamenn leyfi þetta,“ sagði
Hecht ennfremur. „Þannig er þetta
ekki. Það að þessi dansspor séu til
sölu flækir síðan málið.“
Þessi er að dansa
„Swipe It“ í vinsæla
tölvuleiknum Fort-
nite.
Stolnir dansar
í Fortnite?
Rapparinn 2 Milly hefur höfðað mál gegn Epic
Games, sem gefur út tölvuleikinn Fortnite,
á þeim forsendum að fyrirtækið hafi stolið
dansspori frá honum.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Foreldrar sem eiga börn sem spila
tölvuleikinn Fortnite hafa ábyggi-
lega séð þau taka einhverja af fjöl-
mörgum dönsum sem hægt er að
dansa í leiknum. Einn þessara dansa
heitir „Swipe It“. Nú hefur rappar-
inn 2 Milly höfðað mál gegn Epic