Minnisbók bænda : með almanaki fyrir árið 1922 - 01.11.1921, Side 33
31
Hreppskilaþing.
(Útdráttur úr lögum 1921).
Vorþing sé haldið 1.—20. júní og haustþing I.—20.
okt. Forfallalaust eiga allir, sem lögskil eiga að gera,
að sækja þingið, annars sekir um S kr.
Manntalsþing.
(Útdráttur úr lögum 1921).
Þau byrji 14., 15. eða 16. júní, og sé haldið áfram
án tafar.
Sjúkrastyrkur.
(Útdráttur úr lögum 1921).
Fari þurfalingur eftir læknisráði á sjúkrahús, annað
en holdsveikraspítala, greiðir framfærslusveitin ^ með-
lagskostnaðar — þar með lyf og læknishjálp — þó
ekki yfir 400 kr. á ári. Að öðru leyti greiðist kostnað-
urinn úr ríkissjóði, en ekki nema fyrir 4 sjúklinga á
ári úr sama sveitarfélagi. Þennan styrk má ekki skoða
sem sveitarstyrk.
Verslun með tilbúinn áburð og kjarnfóður.
(Útdráttur úr lögum I921).
Þegar keypt eru í einu 200 kg. af tilbúnum áburði
(einnar tegundar) eða 300 kg. af kjarnfóðrí, er selj-
andi skyldur að afhenda kaupanda tryggingarskjal fyrir
gæðum vörunnar.
Kaupanda er heimilt að taka sýnishorn (eins og vænt-
anieg reglugerð Stjórnarráðsins ákveður) ög láta rann-
saka. Reynist varan rýrari en ábyrgst var, greiðir selj-
andi kostnaðinn við rannsóknina, — auk skaðabóta til
kaupanda, — annars ríkissjóður að hálfu og kaupandi
að hálfu.