Eiðakveðja - 01.09.1928, Side 19

Eiðakveðja - 01.09.1928, Side 19
-15- erindi Bjarnar Guðnasonar um sjóðstofnun til hjálr- ar fátækim 'böraum til skólaveru og til Þess að koma upp heimavistarskólum fyrir börn. petta, sem nú hefir verið talið er alls ekki litið, Þegar litið er á tímann og aðsteður allar. En aðalverk sambandsins er Þó óunnið enn: áhrif fjelagsandans á innra lif meðlimanna, sá neisti hugsjóna,:sem hann kveikir i sál Þeirra,Það fræ- korn dygða, sem hann sáir og hlúir að, sú bjart- sýni og hlýja, sem samfundir vina hafa i för með sjer, sú trúartilfinning, sem hann vekur og nær- ir, yfirleitt áhrif hans á Þá fcetti hugarfarsins og sálarlifsins, sem Þroskast við aukið viðsýni og auðgað tilfinningalif. - Þau ykkar, sem Þannig er- uð i sveit komin, að Þið getið ekki notið Eiöamót- anna, farið að visu mikils á mis, en Þó er nokkur bót i máli að fá Eiðakveðjuna. Hún er spegill sam- bandsins. Mjer hefir auðnast að vera á einu Eiðamóti, og Það er einhver hinn fegursti timi, sem jeg hef lií að. Mótið hófst i Eiðahólma nálægt hádegi eins og venja er. Veðrið var unaðslega fagurt, Það var blæjalogn, sólin skein i heiði og jöröin var i feg ursta vorskrúði sinu. Náttúran var i djúpu samræmi við stundina, sem var að liða hjá okkur, er vorum samankomin i hólmammi. Jeg fann mátt hugsjóna Þeirra, sem bærðust meðal okkar og yl vinarhugans, sem umvafði mig, og jeg reyndi að opna sál mina og gefa henni byr undir báða vængi. Jeg vissi að fyrst um sinn myndi jeg ekki njóta slikrar stundar,-ef til vill aldrei. Jeg hugsaði til Þeirrar auðnarog tón leika, sem lá að baki og fram undan. Deginum var lokið i kirkjunni. Hún var skreytt með hrislum og blómum. í kórdyrunum stóð borð og á Það var fáninn okkar breiddur. Kvöldsólin ljek um kirkjuna. með glitrandi geisladjrrð. í huga min- um varð Þessi stund heilög. Jeg fann mátt hins ósýnilega guðdóms i nálægð minni, sem veitir hinu

x

Eiðakveðja

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eiðakveðja
https://timarit.is/publication/1329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.