Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.09.2015, Page 10

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.09.2015, Page 10
10http://www.ætt.is Fréttabréf Ættfræðifélagsins í september 2015 aett@aett.is Í hallanum þar sem Lyngdalsheiðin mætir láglend- inu í austri, í landnámi Ketilbjörns gamla, raða sér nokkrir bæir, þar á meðal Neðra-Apavatn. Sjálft Apavatnið breiðir úr sér í kvosinni austan við bæinn, sneisafullt af silungi líkt og þegar Sighvatur Þórðarson, hirðskáld tveggja Noregskonunga, og einn af áhrifamestu ráðgjöfum norska konungsins, át úr því fiskinn góða með haus og sporði og hlaut við það skáldskapargáfuna. Það mun hafa verið laust eftir árið 1000 en Sighvatur var fæddur árið 995 og ólst upp á Neðra- Apavatni. Hann safnaðist til feðra sinna um 1045. 950 árum seinna hlaupa þrjú lítil börn, af sama bæ, út í kartöflugarðinn sem breiðir úr sér á hallandi flöt vestan við bæinn. Flötin kallast Stefnuvöllur. Örnefni sem fylgt hefur jörðinni mann fram af manni. Það er að koma haust og uppskeran bíður. Uppskera sem enginn hafði þó búist við. Guðfinna Ragnarsdóttir: Stefnuvöllur og Apavatnsför Hverfum aftur um tæp átta hundruð ár. Tveir voldugustu höfðingjar á Íslandi, bítast um völdin, þeir heita Sturla Sighvatsson og Gissur Þorvaldsson. Sturla er valdamestur höfðingja og etur kappi við Gissur, fyrirliða Haukdæla, sem er valdamesti maður í Árnesþingi. Gissur bjó um þess- ar mundir á Reykjum í Ölfusi. Hann var meðalmað- ur á vöxt og allra mann best á sig kominn, vel limað- ur og snareygður. Hann var frændríkur og voru allir hinir bestu bændur fyrir sunnan land og víðar vinir hans. Þeim Gissuri og Snorra Sturlusyni var einnig vel til vina. Báðir vildu þeir Gissur og Sturla ná yfirráðum yfir Íslandi með Noregskonung að bakhjarli. Yfirgangur og ofsi Sturlu var mikill. Hann óttaðist að Gissur „Þeir brugðu við hart“ segir um Apavatnsför í sam- tímalýsingu Sturlu Þórðarsonar í Sturlungu, „og brotn- uðu spjótsköft þeirra sum.“ (Ljósmynd Stofnun Árna Magnússonar) Sigurlín litla Grímsdóttir var aðeins fimm ára gömul þegar hún í kartöflugarðinum á Neðra-Apavatni rak tána í eitthvað hart, eitthvað sem gat alls ekki verið kartafla. Nánari athugun leiddi í ljós gamalt, ryðgað spjót. (Ljósmynd Þjóðminjasafn)

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.