Mosfellingur - 14.03.2019, Page 2
Í þá gömlu góðu...
héðan og þaðan
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti Mosfellingur kemur út 4. apríl
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn:
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 4.500 eintök. Dreifing: Pósturinn.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir ISSN 2547-8265
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti.
Eins og flestum er kunnugt hafa ný persónuverndarlög tekið gildi
og hefur það í för með sér ýmsar
breytingar. En hvort þær eru til góða
má svo aftur á móti spyrja
sig. Í Mosfellingi höfum
við í gegnum tíðina birt
nöfn fermingarbarna.
Mörgum þykir það
partur af komu vorsins
að rúlla yfir listann og
sjá hvort þeir þekki
ekki einhvern.
Lengi vel voru
birt heimilis-
föng og gaf
það ennþá
meira tilefni til að tengja börnin.
Þá kannski sendi maður skeyti eða
hugsaði hlýlega til viðkomandi
fjölskyldu þann daginn alla vega.
Nú er svo komið að kirkjan treystir
sér ekki til að láta þessar upplýsingar
af hendi sökum þessa nýju laga.
Það þykir mér miður og eflaust
fleirum. Erum við sem samfélag á
réttri leið með allri þessari ofverndun
og boðum og bönnum. Við hvað
erum við svona hrædd?
En jæja, við megum í það minnsta birta myndir af kirkjunni sjálfri
og hér að neðan má sjá þróun hennar
í 130 ár.
Fermingar í kyrrþey?
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
www.isfugl.is
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
Mynd 1: Líklega elsta ljósmynd sem til er
af Lágafellskirkju en vígsludagur hennar
var 24. febrúar 1889.
Mynd 2: Myndin er hluti af ljósmynd
sem Sigfús Eymundsson ljósmyndari tók
eftir guðsþjónustu 16.júní árið 1901.
Mynd 3: Um 1930 var kirkjan orðin
mjög illa farin og ráðist var í gagngerar
endurbætur, m.a.var gamli kirkjuturninn
rifinn og henni fenginn nýr. Nýtt útlit
kirkjunnar var að mestu óbreytt til ársins
1953. Ljósmyndin var tekin við brúðkaup
þeirra Freyju Norðdahl frá Úlfarsfelli og
Þórðar Guðmundssonar frá Reykjum
19. maí árið 1950.
Mynd 4: Á árunum 1953–1956 var
kirkjan lengd um eitt gluggabil og byggt
við hana skrúðhús. Mynd er frá endur-
vígsludegi kirkjunnar 29. júlí árið 1956.
Mynd 5: Lágafellskirkja 100 ára 1989.
Mynd 6: Skrúðhússalurinn
bættist við árið 1990.
Heimildir: Safnaðarbréf Lágafellssóknar.
- Frítt, frjálst og óháð bæjarblað2
LÁga-
FELLS-
KIRKJa
130 ÁRa
Nokkrar
ljósmyndir
af sögu kirkju.
1 2 3
654
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Kjarna • Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • S. 586 8080 • fax 586 8081 • www.fastmos.is • Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali