Mosfellingur - 14.03.2019, Side 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna
sunnudagur 17. mars
Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11:00.
Prestur sr. Arndís Linn.
sunnudagur 24. mars
Fermingarguðsþjónustur í Lágafells-
kirkju kl. 10:30 og 13:30. Sr. Ragnheiður
Jónsdóttir og sSr. Arndís Linn.
sunnudagur 31. mars
Fermingarguðsþjónustur í Lágafells-
kirkju kl. 10:30 og 13:30. Sr. Ragnheiður
Jónsdóttir og sr. Arndís Linn.
- Fréttir úr bæjarlífinu64
542 íbúðir í byggingu
í Mosfellsbæ í dag
Fá bæjarfélög stækka jafn hratt og
Mosfellsbær þessa dagana. Rúmlega
540 íbúðir eru í byggingu í bæjar-
félaginu, þar af 186 í miðbænum.
Gera má ráð fyrir að minnst 200
þessara íbúða verði tilbúnar á þessu
ári. Samtök iðnaðarins hafa áætlað
að um 2.300 nýjar íbúðir komi á
markað á höfuðborgarsvæðinu í
ár. Verulegur hluti uppbyggingar
nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu
er því í Mosfellsbæ. Samkvæmt
fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar mun
bæjarbúum fjölga um tæplega 800
á árinu en íbúar Mosfellsbæjar eru í
dag 11.600.
Fjölbreytt dagskrá
fram undan í Hlégarði
Fram undan í Hlégarði eru fjöl-
breyttir tónleikar á næstu vikum.
Þau Unnur Birna og Björn Thorodd-
sen hafa komið víða við í tónlistinni
og leiða saman hesta sína í Hlégarði
föstudagskvöldið 15. mars. Þau
taka á helstu stílum senunnar;
djangodjass, blús, swing, latin, dass
af proggi, popp og
rokk í nýjum bún-
ingi auk frum-
saminna laga.
Þeim til halds og
trausts verða þeir
Skúli Gíslason
á trommur og
Sigurgeir Skafti
Flosason á bassa.
Laugardaginn 30. mars mun
þungarokkshljómsveitin Dimma
halda tónleika í Hlégarði í fyrsta
skipti. Það er von á góðu þegar eitt
besta rokkband landsins gengur á
svið í þessu sögufræga húsi.
Fimmtudaginn 4. apríl mun svo
Kalli Tomm halda tónleika en hann
gaf út sína aðra sólóplötu, Odda-
flug, fyrir jólin. Kalli Tomm mun fá
með sér einvalalið hljóðfæraleikara
og má búast við góðri kvöldstund.
Prjónasamvera
21. mars kl. 19:30 í safnaðarheimili.
Friðar- og Fyrirbænastundir
alla mánudag kl. 17:15 í Lágafellskirkju.
sunnudagaskólinn
verður 24. og 31. mars í safnaðar-
heimilinu 2. hæð kl. 13:00.
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6
270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
CHEROKEE LONGITUDE LUXURY
Staðalbúnaður m.a. 2.2 lítra 195 hö. díselvél, 9 gíra sjálfskipting, Jeep® Active Drive I, með 4 drifstillingum, 17” álfelgur, leðurinnrétting,
VERÐ FRÁ: 7.990.000 KR.
CHEROKEE LIMITED
Staðalbúnaður umfram Longitude m.a. Jeep®
VERÐ FRÁ: 9.590.000 KR.
KYNNUM NÝJAN JEEP® CHEROKEE
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
JEEP® RENEGADE
DÍSEL 2.0L 140/170 HÖ.
9 GÍRA SJÁLFSKIPTING,
HÁTT OG LÁGT DRIF*
JEEP® COMPASS
DÍSEL 2.0L 140 HÖ.
9 GÍRA SJÁLFSKIPTING,
HÁTT OG LÁGT DRIF*
JEEP® GRAND CHEROKEE
DÍSEL 3.0L V6 250 HÖ.
8 GÍRA SJÁLFSKIPTING,
HÁTT OG LÁGT DRIF
JEEP® CHEROKEE
DÍSEL 2.2L 195 HÖ.
9 GÍRA SJÁLFSKIPTING,
HÁTT OG LÁGT DRIF**
JEEP® WRANGLER
BENSÍN 2.0L 273 HÖ.
DÍSEL 2.2L 200 HÖ.
8 GÍRA SJÁLFSKIPTING,
HÁTT OG LÁGT DRIF
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
* Trailhawk útfærsla **Limited útfærsla
Nú stendur yfir hugmyndasöfnun vegna
Okkar Mosó 2019 sem er samráðsverkefni
íbúa og bæjarins um forgangsröðun og út-
hlutun fjármagns til smærri nýframkvæmda
og viðhaldsverkefna í Mosfellsbæ.
Verkefnið byggir m.a. á þeim áherslum
sem settar eru í lýðræðisstefnu Mosfells-
bæjar um samráð og íbúakosningar þar
sem leitast skal við að hafa samráð við íbúa
og hagsmunaaðila áður en ákvarðanir eru
teknar í mikilvægum málefnum er varða
hagsmuni þeirra. Einnig er markmið verk-
efnisins að virkja almenning til þátttöku í
lýðræðislegri umræðu og ákvarðanatöku
umfram það sem gerist í hefðbundnu full-
trúalýðræði.
allt að 35 milljónir í pottinum
Okkar Mosó 2019 byggist á þeirri reynslu
sem skapaðist í sambærilegu verkefni á ár-
inu 2017 auk þess að byggja á reynslu ann-
arra borga og bæja hérlendis og erlendis.
Gert er ráð fyrir að verja allt að 35 millj-
ónum króna til framkvæmda á þeim hug-
myndum að verkefnum sem hljóta braut-
argengi í kosningum sem fara fram dagana
17.– 28. maí.
Sem fyrr verður Mosfellsbær allur eitt
svæði í hugmyndasöfnun og kosningu. Við
úrvinnslu hugmynda verður hins vegar
leitast við að tryggja að þau verkefni sem
kosið verður um séu landfræðilega dreifð
innan sveitarfélagsins.
óskað eftir frumlegum hugmyndum
Óskað er eftir hugmyndum frá íbúum
um smærri nýframkvæmda- og viðhalds-
verkefni í Mosfellsbæ til að kjósa um í
íbúakosningu. Hugmyndin verður að falla
að stefnu bæjarins og getur ekki verið háð
samráði eða samningaviðræðum við aðrar
stofnanir eða sveitarfélag.
Sérstaklega er hvatt til þess að þátttak-
endur setji fram frumlegar hugmyndir eða
nýja nálgun við þekkt viðfangsefni. Hug-
myndir geta t.d. varðað umhverfið almennt
og möguleika til útivistar og samveru, s.s.
bekkir, gróður, útilistaverk og fegrun. Bætta
lýðheilsu þ.e. aðstöðu til leikja eða afþrey-
ingar, s.s. að bæta leiksvæði og endurnýja
leiktæki. Vistvænar samgöngur þ.e. betri
aðstöðu til göngu, hjólreiða og notkun al-
menningssamgangna, s.s. stígatengingar,
lýsingu og lagfæringu gönguleiða.
greinargóð lýsing æskileg
Hugmyndir að verkefnum þurfa að mæta
eftirfarandi skilyrðum til að eiga möguleika
á að verða sett í kosningu:
• Nýtist hverfi eða íbúum bæjarins í heild.
• Vera til fjárfestinga en ekki rekstrar.
• Vera framkvæmanleg án mjög flókins
undirbúnings.
• Varða umhverfi á bæjarlandi en ekki á
landi í einkaeigu.
• Líftími fjárfestingar skal vera að
lágmarki fimm ár.
• Falla að skipulagi Mosfellsbæjar og
stefnu, sé í verkahring sveitarfélagsins og
á landi í eigu þess.
Hugmyndin þarf að vera framkvæman-
leg, skýr og lýsandi, þannig að aðrir eigi
auðvelt með að átta sig á því sem um er að
ræða. Koma þarf fram um hvað verkefnið
snýst og hvar nákvæm staðsetning er.
Greinargóð lýsing auðveldar mat og hvort
hugmynd nái athygli annarra íbúa ef hún
kemst í kosningu.
Samráðsverkefni íbúa og bæjarins • Hægt að senda inn hugmyndir til 21. mars
Hugmyndasöfnun hafin
fyrir Okkar Mosó 2019
Nánari upplýsingar um verkefnið
má finna á www.mos.is/okkarmoso
Bæta 1.000 fm við íþróttamiðstöðina Lágafelli • Nýir æfingasalir og búningsklefar
undirbúa stækkun world Class
M
yn
d:
Ú
ti
In
ni
a
rk
ite
kt
ar
Hafnar eru framkvæmdir á lóðinni
við Lágafellslaug vegna fyrirhugaðrar
stækkunar World Class.
Um er að ræða 924 fermetra hús
á tveimur hæðum þar sem verða
æfingasalir og búningsherbergi.
Nú stendur yfir færsla á fjarskipta-,
vatns- og frárennslislögnum sem er
undanfari þess að hægt verði að grafa
fyrir viðbyggingunni.
tölvugerð mynd af stækkun-
inni í átt að baugshlíð
meðal verkefna sem
hlutu kosningu 2017
fuglafræðslustígur
með fram leirvoginum
blakvöllur
á stekkjarflöt