Mosfellingur - 14.03.2019, Side 16
- Stærsti auglýsinga- og fréttamiðill í Mosfellsbæ16
Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið
2019-2020 fer fram í gegnum
Innritun í grunnskóla
Mosfellsbæjar
Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2019
fer fram frá 10. mars til 30. mars.
Innritun í frístundasel og mötuneyti 6 ára barna og nýrra
nemenda vegna skólaársins 2019-2020 verður auglýst
sérstaklega síðar.
Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til
Mosfellsbæjar skal vera lokið 1. apríl. Innritun barna og
unglinga með lögheimili í Mosfellsbæ, sem óska eftir að
sækja grunnskóla í öðrum sveitarfélögum utan lögheimilis,
skulu berast í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar fyrir 1. apríl.
Umsóknir fyrir nýtt skólaár endurnýjast ekki sjálfkrafa.
Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér reglur um skólavist
utan lögheimilis á vef Mosfellsbæjar.
Nánari upplýsingar og aðstoð varðandi innritun í grunnskóla
Mosfellsbæjar veita grunnskólarnir. Þeir sem óska eftir
aðstoð og leiðbeiningum vegna Íbúagáttarinnar geta snúið
sér til Þjónustuvers Mosfellsbæjar.
Fræðsluskrifstofa Mosfellsbæjar
VIRÐING JÁKVÆÐNI FRAMSÆKNI UMHYGGJA
Þann 4. apríl mun Kalli Tomm ásamt fjölda
frábærra listamann halda tónleika í Hlé-
garði. „Ég hlakka mikið til og lofa fallegum
tónleikum. Með mér verða listamenn sem
hafa unnið með mér við gerð beggja minna
platna og eiga það allir sameiginlegt að
vera í miklu uppáhaldi hjá mér. Frábærir
hljóðfæraleikarar og vinir.
Ég vona innilega að Mosfellingar fjöl-
menni í félagsheimilið okkar, Hlégarð, sem
er engu líkt. Fallegt og með mikla sögu.
Þaðan á ég svo margar góðar minningar.
Fyrir ca. hálfri öld vann ég þar risastóran
slökkviliðsbíl í bingói, ég tíndi þar flöskur
eftir böll og hélt þar eftirminnilega tónleika
með Gildrunni og þar héldu mamma og
pabbi brúðkaupsveisluna sína eins og svo
ótal mörg önnur brúðhjón.
Margt eftirminnilegt gerist í Hlégarði,“
sagði Kalli Tomm að lokum.
Gaf nýlega út plötuna Oddaflug • Lofar fallegum tónleikum
Stórtónleikar Kalla
Tomm í Hlégarði 4. apríl
Kalli fær með sér
flotta listamenn
Aðalmerki | Samsetning | Mosfellsbæ
Börn og umhverfi
Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti sem varða umgengni og framkomu við börn.
Rætt er um árangursrík samskipti, aga, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng.
Lögð er áhersla á umfjöllun um slysavarnir og algengar slysahættur
í umhverfinu ásamt kennslu í skyndihjálp.
Námskeiðin verða haldin í húsnæði Rauða krossins í Mosfellsbæ, Þverholti 7
1. – 4. apríl
17:00 - 20:00
nánari upplýsingar má finna á www.skyndihjalp.is,
moso@redcross.is eða í síma 898-6065.
Einnig er hægt að skrá sig á vef Rauða krossins,
raudikrossinn.is
MEÐ APPINU EÐA Á NETINU!
Þú getur flýtt fyrir og einfaldað pöntunarferlið
með því að nota appið og vefinn. Þar getur þú
pantað, greitt fyrirfram og fylgst með pöntuninni.
DOMINO’S APPDOMINOS.IS