Mosfellingur - 14.03.2019, Síða 26

Mosfellingur - 14.03.2019, Síða 26
 - Frítt, frjálst og óháð bæjarblað26 Föstudaginn 22. febrúar var sýningin tómir fossar opnuð í Listasal Mosfellsbæjar. tómir fossar er samsýning feðganna Björns Hauks Pálssonar og Páls Hauks Björnssonar. Björn Haukur sýnir hér í fyrsta sinn en Páll Haukur hefur verið virkur í myndlistarheiminum um þó nokkurt skeið. Þema sýningarinnar er fossar og ýmsar birtingarmyndir þeirra. Um 70 manns mættu á opnun til að gæða sér á list og léttum veitingum. Verkin á sýningunni eru fjölbreytt og „þetta hef ég aldrei séð áður“ heyrðist oftar en einu sinni á opnuninni. Sýningin er opin á afgreiðslutíma Bóka- safns Mosfellsbæjar og stendur til 22. mars. Listasalur Mosfellsbæjar Tóm gleði Sjálfstraust vísar til þess hversu mikla trú við höfum á eigin getu til að ná markmiðum og takast á við áskoranir daglegs lífs. Sjálfstraust er ekki eitthvað sem við höfum eða höfum ekki, heldur getur einstaklingur ver- ið með gott sjálfstraust í einum aðstæðum en ekki öðrum. Sem dæmi getur barn verið öruggt í íþróttum en með lítið sjálfstraust í félagslegum samskiptum. Lítið sjálfstraust getur hamlað börn- um og haldið aftur af þeim. Þá efast þau um eigin getu og treysta sér ekki til að gera hluti þrátt fyrir að búa yfir nauðsynlegri færni og þekkingu til verksins. Þau þora oft ekki að taka áskorunum eða prófa nýja hluti því þau eru gagnrýnin og hugsa neikvætt í sinn garð. Það er því ljóst að gott sjálfstraust er afar dýrmætt vega- nesti út í lífið. Almennt má segja að sjálfstraust á eigin getu sé markvisst byggt upp með umhyggju, hvatn- ingu og hrósi svo einhver dæmi séu nefnd. Hrós og hvatningu ætti því að nota alltaf þegar tækifæri gefst. Sem foreldrar ættum við að reyna að bera árangur barnsins saman við fyrri árangur þess sjálfs og forðast að bera það saman við önnur börn. Einnig er gott að hrósa fyrir viðleitni í stað árangurs því ekki er hægt að ætlast til meira af barninu en að það geri sitt besta. Munum að hafa oftar orð á því sem gengur vel í stað þess sem vantar upp á og leggja þannig áherslu á styrkleika barnsins svo þeir fái að njóta sín. Mikilvægt er að börn fái hvatningu og tækifæri til að leysa hin ýmsu vandamál, foreldrar ættu að leiðbeina í stað þess að leysa vandamálin fyrir börnin. Ef for- eldar stýra of mikið er hætta á að börnin treysti sér ekki sjálf til að ráða við aðstæður næst þegar þau standa frammi fyrir áskorun. Arnar Ingi Friðriksson, sálfræðingur fræðslu- og frístundasviðs Mosfellsbæjar og foreldri. Sjálfstraust barna og unglinga fræðsluskrifstofa mosfellsbæjar skóla hornið Bókasafnið býður börnum að koma í safnið og lesa sér til ánægju fyrir sérþjálfaða hunda. Tveir hundar verða á staðnum og komast sex börn að. Athugið að panta þarf tíma. Pantanir skulu sendar á netfangið asdisg@mos.is. Tímar sem eru í boði: 12.30, 12.50 og 13.10. Gott er að barnið hafi valið sér texta að lesa áður en tíminn hefst. Laugardaginn 30. mars 2019 Nú líður að hinu árlega Menningarvori í Mosfellsbæ 2019. Viðburðir verða tveir, þriðjudaginn 2. apríl og þriðjudaginn 9. apríl. Dagskrá fer fram í Bókasafni Mosfellsbæjar og hefst kl. 20.00 bæði kvöldin. Dagskrá 2. apríl verður á þessa leið: Tunglið og Ég Djasstónleikar með Heiðu Árnadóttur söngkonu og Gunnari Gunnarssyni pían- ista. Þau flytja lög eftir franska djasstón- skáldið Michel Legrand (1932-2019), en hann er helst þekktur fyrir söngleikja- og kvikmyndatónlist. Dóra Wild talar um tónskáldið og skapar stemningu milli laga. Léttar veitingar í boði og ókeypis aðgangur. Þann 9. apríl verður finnskt þema sem mun einkennast af tónlist og uppákomum. Nánar auglýst síðar. Bókasafn Mosfellsbæjar Menningarvor í Mosfellsbæ

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.