Morgunblaðið - 16.01.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10,1 kg
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Heitar umræður urðu um bragga-
málið á fundi borgarstjórnar
Reykjavíkur í gær. Umræða um
skýrslu innri endurskoðunar vegna
framkvæmda við Nauthólsveg 100
var annar liður á dagskrá. Borgar-
fulltrúar meirihlutans óskuðu eftir
umræðunni.
Við upphaf fundarins lögðu Vigdís
Hauksdóttir, borgarfulltrúi Mið-
flokksins, og Kolbrún Baldursdóttir,
borgarfulltrúi Flokks fólksins, fram
breytingartillögu við framlagða til-
lögu sína um að vísa skýrslu innri
endurskoðunar um Nauthólsveg 100
til héraðssaksóknara. Í breytingar-
tillögunni fólst að embætti borgar-
lögmanns yrði falið að vísa skýrsl-
unni til „þar til bærra yfirvalda til
yfirferðar og rannsóknar“. Einnig
yrði borgarlögmanni falið að senda
niðurstöður Borgarskjalasafns um
skjalamál vegna þessa sama máls
áfram. Tillagan var felld með 13 at-
kvæðum gegn átta, tveir sátu hjá.
Borgarstjóri brást hart við
„Þegar framúrkeyrslan kom í ljós
var kallað eftir skýringum og síðan
málið sett í réttan farveg hjá innri
endurskoðun. Nú þegar þessi ítar-
lega og vandaða skýrsla með þessum
fjölmörgu ábendingum liggur fyrir,
þá er það okkar skylda og verkefni
að vinna þær úrbætur sem nauðsyn-
legar eru,“ sagði Dagur B. Eggerts-
son borgarstjóri við upphaf umræð-
unnar. Hann sagði meirihluta
borgarstjórnar ætla að láta hendur
standa fram úr ermum við það verk-
efni. Sagðist hann ekki ætla að gera
umræðu kjörinna fulltrúa um málið
að miklu umtalsefni sínu, en gagn-
rýndi svo sjálfur harðlega þá borg-
arfulltrúa sem vilja að skýrslunni
verði vísað til héraðssóknara.
Skortur á auðmýkt
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæð-
isflokks, sagðist hafa orðið fyrir von-
brigðum með ræðu borgarstjóra.
„Ég átti von á málefnalegri umræðu
hér um þessa kolsvörtu skýrslu sem
við höfum öll fengið, en í staðinn
sjáum við að borgarstjóri, sem hér
var frummælandi, æsir sig upp og
sýnir algjöran skort á auðmýkt
gagnvart verkefninu.
Hann sýnir enga auðmýkt gagn-
vart því sem aflaga fór, enga auð-
mýkt gagnvart framúrkeyrslu,
enga auðmýkt gagnvart ólöglegum
greiðslum, enga auðmýkt sem
framkvæmdastjóri þegar reglur
um útboð borgarinnar sjálfrar
voru brotnar, enga auðmýkt gagn-
vart því að engir samningar voru
gerðir utan þess eina sem hann
gerði sjálfur. Auðmýkt borgar-
stjóra gagnvart brotum á sveitar-
stjórnarlögum var ekki að finna.
Ekki gagnvart því að skjöl finnast
ekki, ekki gagnvart því að tölvu-
póstum var eytt og ekki var hægt
að fullrannsaka málið, ekki gagn-
vart því að lög um skjalavörslu
voru brotin, sem hafa hörð viður-
lög. Ég sakna auðmýktar borgar-
stjóra gagnvart hörmulegri með-
ferð opinberra fjármuna,“ sagði
Eyþór.
Morgunblaðið/Hari
Borgarstjórnarfundur Vigdís Hauksdóttir og Kolbrún Baldursdóttur lögðu fram tillögu um að embætti borgarlög-
manns vísaði braggaskýrslunni áfram til rannsóknar. Borgarstjórn felldi tillöguna á fundi sínum í gær.
Tillaga um rannsókn á
braggaskýrslunni felld
Hart var tekist á um braggamálið á borgarstjórnarfundi
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Samtök iðnaðarins og Samtök at-
vinnulífsins telja að vinna þurfi hrað-
ar að því leggja nýjan sæstreng til
gagnaflutninga til Evrópu en gert er
ráð fyrir í tillögum til þingsályktunar
um fjarskiptaáætlanir. Líkur séu á
því að bilanatíðni núverandi gagna-
strengja aukist eftir örfá ár og því er
hvatt til þess að stjórnvöld hafi for-
ystu um að tryggja lagningu þriðja
sæstrengsins á tíma fimm ára áætl-
unar í fjarskiptum.
Kemur þetta fram í sameiginlegri
umsögn samtakanna um tillögu að
fjarskiptaáætlun sem er til umfjöll-
unar í umhverfis- og samgöngunefnd
Alþingis.
„Samtökin leggja áherslu á að ráð-
ist verði í fjárhagslega endurskipu-
lagningu á Farice og telja mikilvægt
að lagður verði grunnur að nýjum
sæstreng fyrr en gert er ráð fyrir
þar sem staða gagnatenginga við út-
lönd dregur úr samkeppnishæfni
gagnaversiðnaðar,“ segir Sigríður
Mogensen, sviðsstjóri hugverka-
sviðs Samtaka iðnaðarins. Streng-
irnir tveir, Farice-1 og Danice, eru í
ár 15 ára og 10 ára. Afkastageta
strengjanna mun duga landsmönn-
um í mörg ár enn. Þótt aldrei hafi
orðið bilun í sjó er talið að bilanatíðni
muni aukast á allra næstu árum. Það
getur leitt til gagnarofs, að því er
fram kemur í umsögn samtakanna. Í
greinargerð með fjarskiptaáætlun til
15 ára er minnt á aldur Farice og
sagt að huga þurfi að endurnýjun
hans. Fram kemur það markmið í
áætluninni að þrír virkir sæstrengir
tengi landið við Evrópu frá mismun-
andi landtökustöðum.
Rætt hefur verið um að nýr
strengur liggi frá suðurströnd lands-
ins til Írlands. Framkvæmdin er
ekki tímasett í áætluninni.
Öruggt netsamband við útlönd er
mikilvægt fyrir fyrirtæki og ein-
staklinga í nútímasamfélagi. Við
hafa bæst hagsmunir gagnavera sem
hér hafa verið að byggjast upp og
efla starfsemi sína og grundvallast á
öruggu sambandi við viðskiptavini
sína víða um heim.
Sigríður segir að fyrirtæki sem
eru að huga að uppbyggingu gagna-
vera hér á landi og fyrirtæki sem
vilja eiga viðskipti við gagnaver sem
hér eru horfi á ýmsa þætti, svo sem
legu landsins, veðurfar, aðgang að
endurnýjanlegri raforku og örugga
gagnatengingu. „Ef Íslandi er alvara
með að efla gagnaversiðnaðinn þarf
að efla gagnatengingarnar, meðal
annars með lagningu nýs sæ-
strengs,“ segir Sigríður.
Samkeppni verði aukin
Kallað hefur verið eftir samkeppni
í sölu á gagnasambandi á milli landa.
Farice, fyrirtækið sem rekur báða
sæstrengina, er bæði með heildsölu
og smásölu á tengingum. Í umsögn
Samtaka atvinnulífsins og Samtaka
iðnaðarins er hvatt til skoðunar á
frekari aðkomu einkaaðila að mark-
aði með gagnatengingar og afnáms
núverandi einokunar og hinnar tvö-
földu verðskrár á gagnatengingum.
Lagningu nýs sæstrengs verði flýtt
Gagnaver Starfsemi gagnavera er vaxandi atvinnugrein hér á landi. Þau
grundvallast á öruggum tengingum við umheiminn.
Farice-1 verður fimmtán ára á þessu ári Samtök atvinnulífsins og iðnaðarins telja að líkur aukist á
bilunum og jafnvel gagnarofi Lagning þriðja gagnastrengsins ekki tímasett í fjarskiptaáætlunum
Útgerðarfélag Reykjavíkur (ÚR)
hefur kært ákvörðun Fiskistofu frá
2. janúar sl. um að svipta togarann
Kleifaberg RE 70 veiðileyfi í tólf vik-
ur frá og með 4. febrúar næstkom-
andi. Kæran var send atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytinu og fer
ÚR fram á að ráðuneytið felli
ákvörðun Fiskistofu úr gildi.
Í kærunni segir meðal annars að
svipting veiðileyfis sé alvarleg
ákvörðun sem valda muni verulegu
tjóni. Hún sé ekki í neinu samræmi
við hin meintu brot. Tjónið sé meira
en áður hefur hlotist af stjórnvalds-
sektum og sérstaklega mikið vegna
þess að það falli á þann árstíma sem
skipið aflar að jafnaði þriðjungs
tekna sinna.
ÚR segir að ákvörðun Fiskistofu
byggist á mjög veikum lagagrunni
og meint brot séu löngu fyrnd.
„Rannsókn Fiskistofu og aðferðir
eru ámælisverðar og langt í frá full-
nægjandi en myndskeið sem ákvörð-
un byggist á eru sviðsett, sýna ekki
brottkast í skilningi laga og einnig
eru skýringar og túlkanir Fiskistofu
rangar. Þá er andmælaréttur brot-
inn og beiting Fiskistofu á sönnunar-
reglu er ólögmæt. Að síðustu er beit-
ing hámarksrefsingar brot á meðal-
hófi og óboðlegt opinberu stjórn-
valdi,“ segir í fréttatilkynningu frá
ÚR í gær.
Þar kemur einnig fram að ÚR
muni gera allt sem í þess valdi stend-
ur til að hnekkja ákvörðun Fiski-
stofu. Takist það ekki áskilji félagið
sér rétt til að sækja bætur vegna alls
þess tjóns sem félagið og/eða áhöfn
Kleifabergs verði fyrir vegna
ákvörðunarinnar.
Haft er eftir Runólfi Viðari Guð-
mundssyni, framkvæmdastjóra ÚR,
að þau séu vongóð um að ráðuneytið
felli ákvörðunina fljótt úr gildi eða
fresti réttaráhrifum hennar.
gudni@mbl.is
ÚR kærir svipt-
ingu veiðileyfis
Ákvörðun verði felld úr gildi
Kleifaberg Veiðileyfissvipting kærð.