Morgunblaðið - 16.01.2019, Side 33

Morgunblaðið - 16.01.2019, Side 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019 ICQC 2018-20 VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Nýliðið ár var tónlistarkonunni Guð- rúnu Ýr Eyfjörð, eða GDRN eins og hún kallar sig, afar gjöfult. Hún átti eftirminnilega innkomu í lokalagi Áramótaskaupsins með rapptvíeyk- inu JóaPé og Króla og rapparanum SZK, hlaut Kraumsverðlaunin fyrir fyrstu breiðskífu sína, Hvað ef, og var skífan einnig valin plata ársins af götublaðinu Grapevine. Voru enda margir á því að platan væri ein sú allra besta sem kom út á nýliðnu ári og var hún víða ausin lofi, m.a. af poppdoktornum Arnari Eggerti Thoroddsen. Guðrún er nýorðin 23 ára og hóf að koma fram undir nafninu GDRN árið 2017 en platan kom út 17. ágúst í fyrra. Þá hafði Guðrún gefið út þrjár smá- skífur, m.a. með rappar- anum Flóna og eru lögin þrjú á meðal þeirra 11 sem finna má á plötunni. Af öðrum sam- starfsmönnum Guðrúnar á plötunni má nefna hryntvíeykið Ra:tio, Matt- hías Eyfjörð og Auði. Og Guðrún hefur komið að lögum fleiri tónlist- armanna, m.a. sungið með Auði (Auður er listamannsnafn Auðuns Lútherssonar), Loga Pedro og JóaPé og Króla. Svar við ákveðnum skorti Guðrún er spurð að því hvort byrj- unin á tónlistarferli hennar hafi ekki verið algjör draumabyrjun. „Jú, al- gjörlega,“ svarar hún. „Meðbyrinn sem ég fann fyrir var mikill en ég held að ég hafi líka verið að hoppa inn um einhvern glugga sem var dá- lítil vöntun á, bæði tónlistarlega séð og líka af því að ég er ung kona að koma mér á framfæri. Ungir rapp- strákar hafa verið áberandi þannig að þetta er kannski ferskur blær inn í tónlistarlífið, að fá eitthvað sem er dálítið öðruvísi. Um leið og ég var að hoppa inn í þetta komu svolítið margar, annað hvort á sama tíma eða aðeins á eftir mér, tónlistar- konur eins og Bríet og Matthildur. Það hafa margar flottar, ungar kon- ur verið að hoppa inn um þennan sama glugga,“ segir Guðrún. Vissulega hefur rapp verið mjög áberandi undanfarin ár í íslensku tónlistarlífi og karlar þar fjölmenn- ari en konur, eins og Guðrún bendir á, þótt ungar rappkonur hafi vitan- lega látið að sér kveða líka, Reykja- víkurdætur og fleiri. Tónlist Guð- rúnar er af öðrum toga, djassmiðað R&B-popp eins og Guðrún lýsir henni sjálf. „Það er svolítið nýtt og ég held að fólk hafi ef til vill verið að leita að því. Það er glugginn sem ég er að tala um, fólk hefur verið að leita að þessari tónlist, hún hefur verið að komast meira í tísku.“ Áhrifin koma víða að – Arnar Eggert var að fjalla um plötuna þína og segir nokkurn veg- inn það sama og þú varst að segja, að þarna hafi verið ákveðinn skortur og því hafi fólk tekið þér svo fagnandi. Hann tengir þig líka við norrænar söngkonur á borð við MØ, Sigrid, Lykke Li og fleiri. Hefurðu hlustað mikið á þessar tónlistarkonur? „Já og nei, ég hlusta svona af og til á þær en á mér ekki neina sérstaka fyrirmynd og það er kannski líka að vinna með mér. Mér finnst gaman að hlusta á alls konar tónlist, ég er öll í rokkinu og rappinu og svo fíla ég klassíkina líka,“ svarar Guðrún. Áhrifin komi því víða að og úr ólíkum áttum. Guðrún hóf nám í klassískum fiðluleik á barnsaldri og lærði á fiðlu í tíu ár. Síðar sneri hún sér að djass- söng og -píanóleik. „Þannig að ég er með svolítið góðan grunn í tónlist- inni, bæði úr djassinum og klass- íkinni,“ segir hún. Söngnámið hóf hún í Mosfellsbæ og fór síðar í Tón- listarskóla FÍH og og áhrifanna úr djassinum gætir greinilega á plöt- unni hennar. Var hikandi við að syngja Guðrún er stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík og blaðamanni leikur forvitni á því hvort hún hafi byrjað að syngja á menntaskóla- árunum. „Já, ég tók þátt í einhverj- um söngkeppnum og var bakrödd hjá stelpu sem heitir Karólína og vann Söngkeppni framhaldsskól- anna árið 2015,“ svarar Guðrún. – Ég las einhvers staðar að þú hefðir verið hikandi við að syngja, ekki þorað það sem er dálítið skond- ið núna þegar þú ert orðin eftirsótt og vinsæl söngkona. „Já, það er rétt, ég söng aldrei og fannst það ekki vera mitt, alla vega ekki fyrir framan aðra,“ segir Guð- rún kímin. Hún hafi hins vegar haft mikinn áhuga á því að læra að syngja og mamma hennar svaraði kallinu og skráði stelpuna í söng- nám. „Þá ákvað ég að fara í prufur þannig að ég verð eiginlega að þakka mömmu fyrir þennan feril,“ segir Guðrún kímin. Gaman að enda árið í Skaupinu Guðrún er spurð að því hver hafi verið hápunktur ársins 2018 og segir hún að sér hafi þótt sérstaklega skemmtilegt að ljúka því með laginu í Áramótaskaupinu, „Næsta“, sem hún flutti með JóaPé og Króla og SZK. Það hafi líka verið ótrúlega skemmtilegt og óvænt að hljóta Kraumsverðlaunin og verðlaun Grapevine fyrir plötu ársins. „Þetta hefur verið dálítil uppskeruhátíð,“ segir hún um verðlaunatvennuna. – Og nú er bara að halda sér á jörðinni? „Jú, það er mikilvægt, þetta getur verið svolítið yfirþyrmandi,“ svarar Guðrún, „ég var að gera þetta fyrir sjálfa mig og fá góð viðbrögð og svo allt í einu fer maður að fá einhver verðlaun. Þá fer þetta að verða raun- verulegt.“ Og ekki er allt búið enn því brátt verður tilkynnt um tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna og líklegt þykir blaðamanni að GDRN verði þar á listum. Sífellt mikilvægari hluti Sjónræni hlutinn er ekki síður mikilvægur en tónlistin hjá ungum tónlistarmönnum í dag, þ.e. tónlist- armyndbönd og annað myndefni sem fylgir tónlistinni. „Hann verður sífellt mikilvægari,“ segir Guðrún um þennan hluta tónlistarinnar og er í framhaldi spurð að því hvort hún sé ein við stjórnvölinn þar eða með einhverja ráðgjafa sér við hlið. „Bæði og,“ svarar hún, „mér finnst mjög skemmtilegt að fá fólk með ákveðna sýn til að vinna með mér, fólk sem mér líst vel á. Svo finnst mér líka mjög mikilvægt þegar mað- ur er að vinna með einhverjum að leyfa honum að hafa sitt listræna frelsi þannig að það tóni við mínar hugmyndir.“ Guðrún segir að sér hafi t.d. þótt mjög gaman að vinna með Önnu Maggý sem gerði myndlistarverkin sem prýða plötuna. „Við höfðum ákveðna hugmynd um hvernig þetta ætti að vera og svo bara flæddi þetta þegar við byrjuðum að vinna saman. Hún kom með hugmyndina að þessu kóveri í byrjun.“ Skilaboðaskjóða Textar Guðrúnar við lögin á Hvað ef eru allir mjög persónulegir og til- finningaþrungnir og hún segir þá fjalla um tilfinningalíf hennar. En getur hún gefið dæmi um það sem fjallað er um? Jú, Guðrún nefnir lag sem þau Auður sömdu og flytja sam- an, titillag plötunnar. „Það snýst bara um það þegar maður er að pæla í einhverjum og veit ekki neitt, er að ofhugsa hlutina og þess háttar,“ seg- ir Guðrún og bætir við að hún sé ekki beinlínis að segja eitthvað ákveðið í textum sínum heldur gefi fólki svigrúm til túlkunar. „Ég gef mikið til kynna um hvað ég er að tala og finnst mikilvægt sem tónlistar- maður að vera ekki að predika, að vera frekar skilaboðaskjóða.“ Smella vel saman Gott samstarf Guðrúnar og Auð- uns sem kallar sig Auði hefur vakið athygli og sungu þau á plötum hvort annars, Hvað ef og Afsakanir, sem komu báðar út í fyrra. Guðrún segist hafa kynnst Auðuni á tónlistarhátíð- inni Sónar í fyrra og fyrsta lagið sem þau unnu að saman var fyrrnefnt „Hvað ef“. Guðrún söng líka og að- stoðaði Auðun við gerð Afsakana og lék m.a. á fiðlu í einu laganna. Hún segir þau Auðun hafa dáðst að verk- um hvort annars og samstarfið gengið eftir því vel. Ákveðinn sameiginlegan þráð má greina á plötum þeirra, m.a. djass- aðan gítarleik en Auðunn er lærður djassgítarleikari. „Við smellum því eflaust líka svona vel saman af því við erum með þennan djass- bakgrunn, skiljum hvað hitt er að meina með tónlistarflutningi og öðru,“ segir Guðrún. „Við ætlum að halda áfram að vinna saman, það er bókað.“ Byrjuð á þeirri næstu – Ertu byrjuð á næstu plötu? „Já, ég er búin að gera nokkur lög. Mér finnst mikilvægt að gera það sama og ég gerði með fyrstu plöt- una, ég samdi fullt af lögum, miklu fleiri en voru á plötunni og í lokin var ég búin að gera það mörg að ég gat valið þau sem mér fannst passa og vera rjóminn af þeim. Ég held ég geri það líka núna og verði trú sjálfri mér. Ef mér finnst eitthvað flott finnst öðrum það oftast líka,“ segir Guðrún. – Að lokum, hvernig tónlist hlust- ar þú á heima hjá þér á sunnudög- um? „Þá hlusta ég örugglega bara á Fleetwood Mac, Jimi Hendrix eða eitthvað svoleiðis á vínilspilaranum.“ – Þú ert bara í gamla liðinu?! „Já, ég er alveg þar,“ segir Guð- rún að lokum og hlær. Inn um gluggann  Guðrún Ýr Eyfjörð, GDRN, átti eina af bestu plötum ársins 2018, Hvað ef  GDRN naut mikilla vinsælda í fyrra og kom m.a. fram í lokaatriði Áramótaskaupsins  Djassmiðað R&B-popp Morgunblaðið/Eggert Samhljómur GDRN og Auður samstillt á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í nóvember í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.