Morgunblaðið - 16.01.2019, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 16.01.2019, Blaðsíða 36
ÍS LE N SK A/ SI A. IS AI C 89 89 5 1/ 19 Bókaðu núna á airicelandconnect.is Innanlandsflug frá 7.965kr. Auður Ava Ólafsdóttir er gestur fyrsta höfundakvölds Norræna hússins þetta vorið í kvöld kl. 19.30. Sofie Hermansen Eriksdatter, verk- efnastjóri Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, stýrir umræðum sem fara fram á íslensku, skandinav- ísku og ensku. Aðgangur er ókeypis. Streymt er frá viðburðinum á vef og facebooksíðu Norræna hússins. Höfundakvöld með Auði Övu í kvöld MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 16. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Erik Hamrén, landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, þarf enn að bíða eftir að sjá sína menn vinna en í þeim átta leikjum sem hann hefur stýrt íslenska liðinu hefur því enn ekki tekist að vinna. Undir stjórn Svíans hefur íslenska liðið gert fjögur jafn- tefli í vináttuleikjum og tapað öll- um fjórum í Þjóðadeild UEFA. »2 Biðin eftir sigri lengist hjá Erik Hamrén ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM „Ég verð sáttur ef við náum góðum leik gegn Íslandi og getum veitt lið- inu einhverja keppni. Við munum hins vegar eftir síðasta leik okkar við íslenska landsliðið. Þá töpuðum við með 17 marka mun í Laugardals- höllinni. Af þeim leik má ráða að munurinn er enn talsverður á lið- unum þótt vissulega hafi mínu liði farið fram,“ segir Dagur Sigurðsson, lands- liðsþjálfari Japans, meðal annars í samtali við Morgunblaðið í dag. Ísland og Japan mætast í München í dag. »1 Minnugir stórtaps í Laugardalshöllinni Landsmótið var á Selfossi 2013 og þá var mynd eftir Martein um lands- mótin á Suðurlandi látin rúlla á skjá með tónlist. „Í framhaldi af því vildu Héraðssambandið Skarphéðinn og minjanefnd Ungmennafélags Selfoss gera meira úr þessu og báðu mig að gera mynd um landsmótin á Suður- landi eftir að Sigurður Greipsson, þá- verandi formaður HSK, endurvakti þau í Haukadal 1940,“ segir hann. Marteinn leggur áherslu á að sögu- og minjanefnd HSK hafi veitt mikinn stuðning og ráðgjöf við gerð myndar- innar. Sjálfboðastarf og menning Næsta mót var haldið á Hvanneyri 1943 og var það fyrsta mótið sem var kvikmyndað. Marteinn segist hafa nýtt sér myndir þaðan og svo koll af kolli. „Í myndinni reyni ég að fram- kalla hið mikla sjálfboðastarf sem er unnið, og sést ekki alltaf, sem og lista- og menningarlíf,“ segir hann. Í því sambandi nefnir hann að hljóm- sveitin Mánar frá Selfossi hafi fyrst komið fram opinberlega á lands- mótinu á Laugarvatni 1965 og rætt sé við Ólaf Þórarinsson, Labba í Mánum, í myndinni. „Margir sem koma fram í viðtölum eru látnir og því má segja að heimildum hafi verið bjargað.“ Skólahljómsveit Kópavogs varð 50 ára 2017 og var heimildarmyndin gerð af því tilefni. Meðal annars var rætt við eldri nemendur og hljóm- sveitinni fylgt eftir auk þess sem gamalt efni frá Sjónvarpinu var not- að. Marteinn gerði mynd um sögu Kópavogs 2005 og gat einnig notað myndskeið úr henni. „Myndin endar á glæsilegum afmælistónleikum í Eldborgarsal Hörpu,“ segir hann. Þegar Marteinn var 18 ára keypti hann 8 mm kvikmyndatökuvél. Hann var þá formaður knattspyrnudeildar Selfoss og þjálfari 5. flokks karla. „Ég var með myndavélina á lofti og myndaði keppnisferðir,“ rifjar hann upp. „Þegar ég horfi á þessar myndir blöskrar mér að sjá hvað drengirnir voru látnir spila á stórum velli, sama velli og meistaraflokkur.“ Síðar segist hann hafa látið nem- endur gera kvikmyndir frekar en skrifa ritgerðir. „Eitt verkefnið var um hitaþenslu fastra efna. Maður skilur þetta ekki og getur varla sagt það, en krakkarnir leystu málið í mynd.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Tvær heimildarmyndir eftir Martein Sigurgeirsson voru frumsýndar fyrir skömmu. Önnur er um Skóla- hljómsveit Kópavogs og hin um sögu landsmóta Ungmennafélags Íslands á Suðurlandi sem fram hafa farið þar frá 1940. „Ég vann að þessum myndum af fullum krafti undanfarin þrjú ár, eft- ir að ég fór á eftirlaun,“ segir Mar- teinn, sem var kennari í Álftamýr- arskóla í 20 ár og sá síðan um myndver grunnskólanna í Reykjavík í tvo áratugi, þar sem nemendur nýttu sér myndir og kvikmyndir til þess að dýpka efnið. Hann hefur unnið við kvikmyndagerð í frí- stundum frá 1963, m.a. gert fræðslu- myndir fyrir Námsgagnastofnun, mynd um Jón úr Vör og heimildar- myndir um Selfoss, knattspyrnuna á Selfossi og hjá Breiðabliki í Kópa- vogi. Marteinn vann fyrir UMFÍ í sam- bandi við varðveislu gamalla kvik- mynda og gerði sögulega mynd, sem var sýnd í Gerðarsafni 2007, þegar landsmótið var haldið í Kópavogi. Heldur sögunni til haga  Heimildamyndir eftir Martein Sigurgeirsson frumsýndar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Lífið eftir vinnu Marteinn Sigurgeirsson kvikmyndagerðarmaður hefur nóg að gera í heimildavinnunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.