Morgunblaðið - 16.01.2019, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019
Skyggnst inn í miðbæ Kona á göngu í löngum vetrarskugga á mótum Skólavörðustígs og Bergstaðastrætis með kunnuglegt fjall í bakgrunni, sjálfa Esjuna, sem er engilfögur utan úr Reykjavík.
Hari
Eðlilega vekur út-
hlutun listamannalauna
nokkra athygli á hverju
ári. Engin undantekn-
ing var frá þessu þegar
tilkynnt var í síðustu
viku hvaða listamenn
fengju laun frá rík-
issjóði á þessu ári.
Mesta athygli hefur
vakið að einn vinsælasti
rithöfundur landsins er
úti í kuldanum. Minna hefur farið
fyrir umræðu um hvort regluverk
listamannalauna sé skynsamlegt.
Samkvæmt fjárlögum renna um
656 milljónir króna í launasjóð lista-
manna á þessu ári. Þessi fjárhæð er
lítill hluti af þeim fjármunum sem
varið er úr sameiginlegum sjóðum
til lista- og menningarstarfsemi. Í
heild veitir ríkissjóður yfir 12.630
milljónir króna til listastofnana,
safna og annarrar menningar-
starfsemi. Þessu til viðbótar renna
4.645 milljónir til Ríkisútvarpsins.
Alls um 17.280 milljónir. Þetta jafn-
gildir því að hver fjögurra manna
fjölskylda greiði nær 200 þúsund á
þessu ári til lista og menningar-
starfsemi, að teknu tilliti til Ríkis-
útvarpsins. Þetta eru gríðarlegir
fjármunir og því skiptir miklu að
þeim sé varið af skynsemi. Þá er
þáttur sveitarfélaga ótalinn.
Forsenda pólitísks sjálfstæðis
Sagan kennir okkur að pólitískt
sjálfstæði þjóðar byggist á sögu,
tungu og menningu. Glati þjóð arf-
leifð sinni, mun hún fyrr fremur en
síðar missa sjálfstæði sitt. Sá er
þetta skrifar er að minnsta kosti
sannfærður um að öflugt lista- og
menningarlíf sé brjóstvörn fámennr-
ar þjóðar – tryggi betur en margt
annað fullveldið.
Lífið án listarinnar yrði fá-
breytilegt – grámyglulegt amstur
þar sem hver dagur væri öðrum lík-
ur. Listin og menningin eru krydd
lífsins og andlegt fóður hvers og
eins. Á hverjum einasta degi njótum
við afraksturs listamanna; hlustum á
tónlist og lesum bækur. Við erum
umvafin myndlist, mál-
verkum og ljós-
myndum. Njótum
kvikmynda og sjón-
varpsþátta, förum í
leikhús og heillumst af
fallegri hönnun.
Á hverjum degi
sækja fyrirtæki hug-
myndir og vinnu í
smiðju listamanna.
Vörur eru hannaðar og
kynntar á markaði
með aðstoð tónlistar,
myndlistar og kvik-
myndagerðar. Leikarar og rithöf-
undar leggja sitt af mörkum. Það er
augljóst að ferðaþjónustan nýtur
beint og óbeint þess að hér er öflugt
menningar- og listalíf. Ísland án
menningar og sögu er lítt spennandi
fyrir ferðamenn – náttúran hrein og
tær dugar ekki til. Íslenskir lista-
menn hafa haslað sér völl í hörðum
alþjóðlegum heimi, eru líkt og gang-
andi auglýsingar fyrir land og þjóð.
Andleg og efnahagsleg lífsgæði
Vart verður um það deilt hve mik-
ilvægt það er að jarðvegur lista og
menningar sé frjór. Blómstrandi
lista- og menningarlíf er ekki aðeins
spurning um andleg lífsgæði heldur
einnig efnahagsleg. Hlutverk rík-
isins er að skapa skilyrði fyrir fjöl-
breytni, nýsköpun og frumkvæði í
listum og menningu ekki síður en á
öðrum sviðum. Hvernig það er best
gert er ágreiningur um.
Margir telja nauðsynlegt að hið
opinbera verji verulegum fjár-
munum til lista- og menningar-
starfsemi. Á hverju ári er ákall um
aukin framlög. Svo eru þeir til sem
telja rétt að draga úr eða jafnvel
hætta öllum opinberum stuðningi.
Deilan um hvort og þá hversu
mikið ríki og sveitarfélög eiga að
styðja við bakið á listum og menn-
ingu, verður líklega aldrei leyst. En
þó að menn nái ekki sáttum í þeim
efnum ættu allir að geta tekið hönd-
um saman um að tryggja að opinber-
um fjármunum sé varið af ráðdeild
og skynsemi – að ýtt sé undir fjöl-
breytileika og nýsköpun.
Vandinn er sá að við erum ekki að
fara sérlega vel með þá fjármuni
sem varið er til lista og menningar-
starfsemi.
Úrelt stuðningskerfi
Ég hef lengi verið sannfærður um
að opinbert stuðningskerfi við ís-
lenska listamenn þjóni ekki mark-
miðum um fjölbreytta og öfluga
listastarfsemi. Kerfið vinnur á móti
nýjum hugmyndum og hamlar því að
nýtt blóð fái að renna um æðar lista-
heimsins. Ungir listamenn standa
höllum fæti gagnvart þeim sem sitja
fyrir á fleti. Með því er komið í veg
fyrir nýliðun og samkeppni. Afleið-
ingin er fátækari listaflóra.
Brotalamir í stuðningskerfi lista-
manna eru vissulega fyrir hendi en
eru hjóm eitt í samanburði við
hversu illa þeir fjármunir sem renna
í gegnum Ríkisútvarpið nýtast.
Ríkisútvarpið fær í sinn hlut 4.645
milljónir króna á þessu ári auk tekna
af auglýsingum (2.038 milljónir árið
2017). Árið 2010 fjallaði ég um Ríkis-
útvarpið í tímaritinu Þjóðmálum og
lagði fram róttækar hugmyndir um
uppstokkun á skipulagi og starfsemi
ríkisfjölmiðilsins. Þótt tillögurnar
séu róttækar eru þær fremur ein-
faldar. Fyrir utan að reka frétta-
stofu á Ríkisútvarpið fyrst og síðast
að vera lítil stofnun sem kaupir efni
frá sjálfstæðum framleiðendum –
þætti í útvarp og sjónvarp á öllum
sviðum; kvikmyndir, framhalds-
þætti, skemmtiþætti, umræðuþætti,
fréttaskýringaþætti, tónlist, leikrit,
heimilda- og fræðsluþætti.
Sé miðað við framlög til Ríkis-
útvarpsins á þessu ári í formi út-
varpsgjalds gæti fyrirtækið keypt
efni af innlendum kvikmynda-, dag-
skrárgerðar- og listamönnum fyrir
yfir 3.100 milljónir króna á árinu, ef
hugmyndunum væri fylgt eftir.
Ekki ónýt vítamínsprauta fyrir ís-
lenskt menningar- og listalíf.
Það er ekki fjárskortur sem hrjá-
ir lista- og menningarlífið heldur
meðferð fjármuna og úrelt stofn-
anafyrirkomulag, sem sést vel í
Efstaleiti. Frjór jarðvegur verður
ekki til með sífellt auknum ríkis-
styrkjum, heldur með uppstokkun á
úr sér gengnum stofnunum og
regluverki.
Íslenska lista- og menningar-
flóran er ótrúlega fjölbreytt en gæti
verið fjölbreyttari. Fjölmörg fyrir-
tæki styrkja á hverju ári listamenn
eða einstök verkefni. Stjórnvöld
geta ýtt enn frekar undir samþætt-
ingu atvinnulífs og menningarlífsins
með skattalegum hvötum. Traust
brú og skilningur milli listamanna
og atvinnurekenda með auknu sam-
starfi getur skilað ótrúlegum ávinn-
ingi.
Eftir Óla Björn
Kárason » Opinbert stuðnings-
kerfi þjónar ekki
markmiðum um fjöl-
breytta og öfluga lista-
starfsemi. Kerfið haml-
ar því að nýtt blóð renni
um æðar listaheimsins.
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Frjór jarðvegur lista og menningar
Framlög úr ríkissjóði til lista og menningar 2019
milljónir króna
Þjóðminjasafn Íslands 1.002
Þjóðskjalasafn Íslands 370
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn 1.084
Listasafn Einars Jónssonar 44
Listasafn Íslands 366
Kvikmyndasafn Íslands 113
Hljóðbókasafn Íslands 134
Náttúruminjasafn Íslands 84
Gljúfrasteinn - Hús skáldsins 50
Minjastofnun Íslands 235
Fornminjasjóður 45
Húsafriðunarsjóður 220
Safnasjóður 143
Samningar og styrkir til starfsemi safna 137
Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús í Reykjavík 890
Stofnkostnaður safna 304
Íslenski dansflokkurinn 187
Þjóðleikhúsið 1.373
Sinfóníuhljómsveit Íslands 1.123
Launasjóðir listamanna 656
Kvikmyndamiðstöð Íslands 1.219
Samn. og styrkir til starfsemi á sviði
lista og menningar 2.345
Ýmis fræðistörf 48
Samningar og styrkir til starfsemi
menningarstofnana 435
Stofnkostnaður menningarstofnana 30
Samtals 12.634
Ríkisútvarpið 4.645
Samtals með Ríkisútvarpinu 17.279
Óli Björn Kárason