Morgunblaðið - 16.01.2019, Side 27

Morgunblaðið - 16.01.2019, Side 27
sveit Jótlands í Árósum. Honum hefur sömuleiðis verið boðið að halda tónleika í hátíðarsal Óslóarháskóla og hljómleikasal Síbelíusar- akademíunnar í Helsinki. Sumrin 1999 og 2000 var honum einnig boðið að kenna og leika á tónlistarhátíð í Grikklandi. Í desember 2001 var honum boðið að koma fram ásamt Hauki Guðlaugssyni organista á sér- stökum hátíðartónleikun í Vendrell á Spáni, fæðingarbæ Pau Casals. Þann dag voru 125 ár liðin frá fæð- ingu meistarans. Gunnar er prófessor emeritus í sellóleik og kammermúsík við Listaháskóla Íslands en hann hefur einnig kennt sellóleik við Tónlistar- skólann í Reykjavík í nærri aldar- fjórðung og var um tíma yfirmaður strengjadeildar sama skóla. Þá hef- ur hann einnig kennt við Tónskóla Sigursveins í mörg ár. Gunnar hlaut verðlaun úr sjóði dr. Gunnars Thoroddsens árið 1990 fyr- ir tónlistarstörf og var valinn bæj- arlistamaður Seltjarnarness árið 1996. Gunnar var sæmdur hinni ís- lensku fálkaorðu árið 2006 fyrir störf sín í þágu menningar- og mann- úðarmála. Áhugamál Gunnars eru listir al- mennt, andleg málefni og mann- úðarmál, en hann stofnaði tónleika- röð sem heitir Töframáttur tónlistar. „Þetta var gert til þess að rjúfa ein- angrun fólks hvort sem það er vegna andlegra veikinda, fötlunar eða hás aldurs og er mér mikið hjartans mál. Tónleikaröðin hefur verið haldin síð- ustu tólf ár og er alltaf á Kjarvals- stöðum þar sem tónleikagestir hafa einnig getað skoðað myndlistina þar. Á þessum tónleikum hef ég kynnt alla helstu tónlistarmenn landsins hvort sem það er í klassíski tónlist, poppi eða djassi.“ Gunnar hefur einnig gefið út nokkra hljómdiska fyrir ýmis mál- efni og hefur setið í stjórn Vina Ind- lands. „Félagið hefur það að mark- miði að hjálpa indverskum börnum til mennta og það er afskaplega gef- andi að hafa tekið þátt í því starfi.“ Fjölskylda Kona Gunnars er Guðný Guð- mundsdóttir, f. 11.1. 1948, fiðluleik- ari. Foreldrar hennar: Hjónin Guð- mundur Matthíasson, f. 26.2. 1909, d. 17.7. 1982, organleikari, og Helga Jónsdóttir, f. 18.3. 1920, d. 14.12. 1990, kennari. Fyrri kona Gunnars: Bodil Secher Höjsgaard, f. 29.7. 1937, óperusöngkona, bús. á Norður-Sjálandi. Dóttir Gunnars og Guðnýjar: Kar- ól Kvaran, f. 17.9. 1983, arkitekt,bús. í Reykjavík. Sonur Gunnars og Bod- il: Nicholas Kvaran, f. 26.9. 1971, tónlistarmaður í Kaupmannahöfn. Hálfsystkini Gunnars, sam- mæðra: Helga Hafsteinsdóttir, f. 4.2. 1948, fv. bankastarfsmaður, bús. á Seltjarnarnesi; Guðmundur Haf- steinsson, f. 22.2. 1953, tónskáld, bús. á Seltjarnarnesi; Guðrún Haf- steinsdóttir, f. 31.5. 1955, ritari, bús. á Seltjarnarnesi. Uppeldissystir: Dröfn Hafsteinsdóttir Farestveit, f. 27.6. 1941, matreiðslumeistari, bús. í Garðabæ. Hálfsystkini Gunnars, samfeðra: Sigrún Linda Kvaran, f. 3.5. 1948, klæðskeri, bús. í Hafn- arfirði; Ævar Ragnar Kvaran, f. 18.9. 1952, trésmiður í Reykjavík; Silja Kvaran, f. 15.6. 1955, bús. í Reykjavík; Örlygur Kvaran, f. 16.6. 1959, flugvélamálari, bús. í Reykja- vík; Nína Rúna Kvaran, f. 14.4. 1978, menntaskólakennari, bús. í Reykja- vík. Foreldrar Gunnars: Ævar R. Kvaran, f. 17.5. 1916, d. 7.1. 1994, leikari, bús. í Reykjavík, og Helga Hobbs, f. 13.9. 1919, húsmóðir í Reykjavík. Stjúpfaðir: Hafsteinn Guðmundsson, f. 7.4. 1912 í Vest- mannaeyjum, d. 1.9. 1999, prent- smiðjustjóri og bókaútgefandi. Úr frændgarði Gunnars Kvaran Gunnar Kvaran Helga Hobbs húsfreyja í Rvík Clifford Laurie Hobbs fiskkaupmaður í Rvík og Liverpool Catherine Hobbs húsfreyja í Liverpool Charles Hobbs fiskkaupmaður í Liverpool Evelyn Þóra Hobbs deildarstjóri hjá Pósti og síma Hróbjartur Hróbjartsson arkitekt í Reykjavík Skúli Hróbjartsson verktaki í Hafnarfirði Geirþrúður Zoëga húsfreyja í Rvík, fædd Clausen Helgi Zoëga útgerðarmaður í Rvík Jósefína Antonína Helgadóttir Zoëga húsfreyja í Rvík og Liverpool Guðrún Skúladóttir fv. deildarstj. í iðnaðarráðuneytinu, dóttir Skúla Guðmundssonar ráðherra seinni eiginmanns Jósefínu Sigurður Arnalds stórkaup­ maður og útgefandi í Rvík Andrés Arnalds áttúrufræðingurn Ólafur Arnalds tónskáld inar Arnalds ritstjóriEÓlöf Arnalds tónlistarkona Jón Laxdal Arnalds ráðuneytisstj. og borgardómari Eyþór Arnalds borgarfull­ trúi og tónlistarmaður Bergljót Arnalds rit­ höfundur og söngkona Matthildur Kvaran kennari í Reykja­ vík og á Seyðisfirði Ragnar E. Kvaran prestur í Winnipeg og landkynnir í Rvík Gíslína Gísladóttir húsfreyja í Winnipeg og Rvík Einar H. Kvaran rithöfundur og ritstjóri í Winnipeg og Rvík Jóhanna Sigríður Þorsteinsdóttir húsfreyja í Rvík Gísli Þorbjarnarson stórkaupmaður í Rvík Sigrún Gísladóttir húsfreyja í Rvík Ævar R. Kvaran leikari í Rvík ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019 Meira til skiptanna Jón Magnússon fæddist í Múla íAðaldal, S-Þing. 16. janúar1859. Foreldrar hans voru hjónin Magnús Jónsson, prestur í Laufási, f. 1828, d. 1901, og Vilborg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1829, d. 1916. Jón lauk stúdentsprófi í Reykja- vík 1881, las lögfræði í Kaupmanna- höfn en gekk illa m.a. vegna óreglu. Hann kom heim 1884, var skrifari hjá Júlíusi Havsteen amtmanni, fór síðan aftur utan 1889, og lauk þá prófum með hárri einkunn á ótrú- lega skömmum tíma. Hann var síðan alla tíð manna skilvirkastur, iðinn og reglusamur. Jón var sýslumaður í Vestmanna- eyjum 1891-96, landshöfðingjaritari 1896-1904, skrifstofustjóri í dóms-, kirkju- og menntamálaráðuneytinu 1904-1908 og bæjarfógeti í Reykja- vík 1909-17. Jón var helsti stjórnmálaleiðtogi þjóðarinnar og formaður Heima- stjórnarflokksins á eftir Hannesi Hafstein. Hann var alþingismaður 1902-13, 1914-19 og 1922-26, varð forsætisráðherra í fyrstu sam- steypustjórninni sem mynduð var 1917 og gegndi því embætti til 1922 og aftur 1924-26. Hann var því for- sætisráðherra þegar Ísland varð fullvalda ríki. Hann var frjálslyndur íhalds- maður sem náði sínum takmörkum með þolinmæði og hægðinni. Jón var fremur fámáll en afar rökvís og yfir- vegaður og sýndi mikið jafnaðargeð við mótlæti og oft ósanngjarna gagn- rýni. Eiginkona Jóns var Þóra Jóns- dóttir, f. 17.5. 1858, d. 5.9. 1947, hús- móðir. Foreldrar hennar voru Jón Pétursson alþingismaður og seinni kona hans, Sigþrúður Friðriksdóttir Eggerz. Kjördóttir Jóns og Þóru var Þóra Guðmundsdóttir, systurdóttir Þóru, eiginkonu Jóns. Árið 1898 reisti Jón sér hús við Þingholtsstræti 29 sem hýsir nú Stofnun Árna Magnússonar. Þar bjuggu þau hjón til 1912 er þau flutt- ust að Hverfisgötu 21 sem Jón hafði einnig látið reisa og er við hliðina á Þjóðleikhúsinu. Jón lést 23. júní 1926. Merkir Íslendingar Jón Magnússon 90 ára Rósalind Sigurpálsdóttir 85 ára Helga Magnea Magnúsd. Reynir Ragnarsson Sigríður Björgvinsdóttir 80 ára Borghildur Guðjónsdóttir Haukur F. Filippusson Steinn Þór Karlsson Þuríður A. Matthíasdóttir 75 ára Elsa Jónasdóttir Guðný Jónasdóttir Matthías Óskarsson 70 ára Arnar Sigurbjörnsson Árni G. Sigurðsson Guðný Sigurðardóttir Hrafnhildur Hjartardóttir Ingimar Einarsson Jóhannes Jóhannsson Júlíus Georgsson Kjartan Kjartansson Martha E. Vest Joensen Oddur Guðmundsson Petrea Emanúelsdóttir Sif Jónasdóttir 60 ára Anna Ágústa Karlsdóttir Anna Margrét Stefánsdóttir Áslaug Ívarsdóttir Bergrós Þorgrímsdóttir Friðrik Kristjánsson Guðjón Árni Konráðsson Hólmfríður S. Kristjánsd. Ingveldur Einarsdóttir Kári Ingólfsson Kristján Jónsson Margrét Ólöf Ívarsdóttir Óskar Snæberg Gunnarss. Suchada Prathai Svala Hrönn Jónsdóttir Svanur Elí Elíasson 50 ára Agni Ásgeirsson Ása Karen Hólm Bjarnad. Ása Pálsdóttir Halldór Steinn Steinsen Ingigerður Sæmundsdóttir Lára Magnea Rogers 40 ára Arnbjörg Sveins Williams Ágúst Sigurður Björgvinss. Baldur Freyr Einarsson Birgir Stefánsson Dariusz Krynski Davíð Hallsson Dovile Didelyte Edwin Vincent Sicat Gan Finnbogi Guðmundsson Jóhannes Hleiðar Gíslason Jón Ingi Gylfason Jónína Ósk K. Færseth Kjartan J. Rubner Friðrikss. Kristján Bergmann Tómass. Margrét Kristín Hjörleifsd. Sanita Kokarevica Steinarr Lár Steinarsson Þórhallur Pálmason 30 ára Adam B. Burgess Finnsson Andri Eiríksson Ásthildur Kristín Tryggvad. Bjarki Freyr Hauksson Dariusz Gryszkiewicz Fjölnir Ásgeirsson Helgi Rúnar Heiðarsson Hjalti Snær Halldórsson Pétur Smári Pétursson Sigríður Helga Ragnarsd. Sigríður Ýr Unnarsdóttir Snævar Már Gestsson Stefán Sindri Ragnarsson Örn Clausen Ólafsson Til hamingju með daginn 40 ára Anna María er Akureyringur en býr á Sauðárkróki. Hún er ljós- móðir á Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Maki: Þorvaldur Gröndal, f. 1978, frístundastj. hjá Sveit- arfélaginu Skagafirði Börn: Benedikt Kári, f. 2003, Markús Máni, f. 2007, og Hólmar Aron, f. 2016. Foreldrar: Oddur Óskars- son, f. 1955, og Sólrún Ingi- marsdóttir, f. 1959, bús. á Akureyri. Anna María Oddsdóttir 40 ára Signý er Reykvík- ingur og markaðs- fræðingur og vinnur við markaðsmál hjá Bílaleigu Reykjavíkur. Maki: Kristrún Sigurjóns- dóttir, f. 1985, lífeinda- fræðingur hjá Alvotech. Börn: Kári, f. 2014, og Katla, f. 2018. Foreldrar: Hermann Gunnarsson, f. 1951, og Kristín Sverrisdóttir, f. 1957. Þau eru bús. í Reykjavík. Signý Her- mannsdóttir 30 ára Jóhanna er úr Ár- bænum en býr í Kópa- vogi. Hún er landfræð- ingur að mennt og er sérfræðingur hjá Skipu- lagsstofnun. Maki: Eysteinn Hjálm- arsson, f. 1988, verkfræð- ingur hjá Völku. Sonur: Baldur Breki, f. 2016. Foreldrar: Einar Freyr Hilmarsson, f. 1967, og Anna Rún Ingvarsdóttir, f. 1968, bús. í Reykjavík. Jóhanna Hrund Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.