Morgunblaðið - 16.01.2019, Side 11

Morgunblaðið - 16.01.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin ÚTSALA 30-50%afsláttur Jakkar • Peysur • Vesti • Bolir • Kjólar • Buxur 30% afsláttur af töskum Söfnum í neyðarmatarsjóð til matarkaupa hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp slands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Neyðarsöfnun í matarsjóðinn Guð blessi ykkur öll Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Skráð atvinnuleysi í desember sl. var 2,7% og jókst um 0,2 prósentustig frá nóvember. Þá voru í desember 930 fleiri á atvinnuleysisskrá en í sama mánuði fyrir ári síðan en þá mældist skráð atvinnuleysi 2,2%. Þetta kemur fram í nýbirtu yfirliti Vinnumálastofn- unar yfir stöðuna á vinnumarkaðin- um. Atvinnuleysi hefur ekki mælst meira í einum mánuði í tvö undanfarin ár eða frá í janúar og febrúar árið 2017 þegar það jókst mikið tímabund- ið vegna áhrifa sjómannaverkfallsins en síðan fækkaði hratt á atvinnuleys- isskrá eftir að verkfallinu lauk. Ef at- vinnuleysið í tengslum við sjómanna- verkfallið er frátalið hefur ekki mælst hlutfallslega hærra atvinnuleysi frá því í mars árið 2016. Spáð er að atvinnuleysi gæti orðið 2,8 til 3% í janúarmánuði Sérfræðingar Vinnumálastofnunar gera ráð fyrir að atvinnuleysi muni aukast í takt við árstíðasveiflu í yf- irstandandi mánuði og verða á bilinu 2,8% til 3%. Í seinasta mánuði nýliðins árs voru að jafnaði 4.846 einstaklingar á at- vinnuleysisskrá. Atvinnuleysi var mest á Suðurnesjum í desember eða 4,3% og 2,7% á höfuðborgarsvæðinu og á Norðurlandi eystra en minnst á Norðurlandi vestra 1,4%. Fram kemur í skýrslu Vinnumála- stofnunar að atvinnulausum ung- mennum hefur fjölgað um 116 frá des- ember 2017 þegar fjöldi atvinnulausra á þessu aldursbili var 490. Þá hefur einnig fjölgað einstaklingum í hópi langtímaatvinnulausra. Alls höfðu 977 verið án atvinnu í meira en 12 mánuði í lok desember en þeir voru 869 í des- emberlok fyrir ári síðan. Hefur þeim því fjölgað um 108 milli ára. Hlutfall langtímaatvinnulausra var um 18% af öllum á atvinnuleysisskrá í desember sl. en um 20% í desember í fyrra. „Atvinnulausum fjölgaði í flestum atvinnugreinum í desember 2018 frá desember 2017 nema í landbúnaði og lítil breyting var á fjölda atvinnu- lausra í heilbrigðis- og félagsþjónustu, svo og í upplýsinga- og fjarskipta- starfsemi. Mesta fjölgun atvinnu- lausra var í ýmiss konar sérhæfðri þjónustu, gistingu- og veitingagrein- um, iðnaði svo og í flutningastarfsemi milli ára,“ segir í greinargerð Vinnu- málastofnunar. Í ljós kemur í skráningu Vinnu- málastofnunar að erlendum ríkisborg- urum sem eru án atvinnu hefur fjölg- að umtalsvert. Alls voru 1.876 erlendir ríkisborgarar án atvinnu um seinustu áramót eða 35% allra atvinnulausra. Í lok desembermánaðar fyrir ári síðan var þetta hlutfall hins vegar 28% allra atvinnulausra og samsvarar þessi fjöldi því að atvinnuleysi meðal er- lendra ríkisborgara sé 5,7% um þess- ar mundir. Fækkun atvinnuleyfa „Í desember gaf Vinnumálastofnun út 81 atvinnuleyfi til útlendinga til að starfa hér á landi. Er þetta töluverð fækkun frá fyrri mánuði þegar gefin voru út 213 atvinnuleyfi. Samtals voru gefin út 2.064 atvinnuleyfi árið 2018. Af útgefnum leyfum í desember voru 30 til nýrra útlendinga á íslenskum vinnumarkaði og 51 framlengt leyfi,“ segir í skýrslunni. Á öllu síðasta ári voru 115 erlend fyrirtæki starfandi á íslenskum vinnu- markaði með alls 1.107 starfsmenn skv. skráningu til Vinnumálastofnun- ar. Starfsmenn starfsmannaleiga, inn- lendra og erlendra, hér á landi voru alls 1.360 í desember á vegum 27 starfsmannaleiga. Samtals störfuðu 3.582 einstaklingar á vegum 41 starfs- mannaleigu á íslenskum vinnumark- aði á nýliðnu ári. Hæsta hlutfall fólks án atvinnu í tvö ár Skráð atvinnuleysi frá okt. 2016 til des. 2018 3,5% 3,0% 2,5% 2,0% 1,5% 1,0% 0,5% 0% Heimild: Vinnumálastofnun 2016 2017 2018 okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. 2,4 2,7 2,3 2,5 2,32,22,12,2 2,32,42,42,42,22,1 1,91,81,91,81,81,9 2,1 2,4 2,93,0 2,3 2,1 2,0  5,7% atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga fagnaði 100 ára afmæli sínu í gær og var blásið til veislu á Hótel Hilton Nordica í Reykjavík. Ásamt skemmti- og tónlistaratriðum fluttu Guðbjörg Pálsdóttir, formaður fé- lagsins, Svandís Svavarsdóttir heil- brigðisráðherra og Alma Möller landlæknir ávörp, en á milli 800 og 900 hjúkrunarfræðingar voru skráð- ir á viðburðinn og var vel mætt. Hjúkrunarfræðingar eru sagðir bíða óþreyjufullir eftir því að losna undan gerðardómi í lok mars og stendur vinna yfir við nýja kröfu- gerð, en að sögn Guðbjargar hyggur félagið á ferðalag um landið til að heyra hljóðið í hjúkrunarfræðingum fyrir komandi viðræður. Morgunblaðið/Eggert Gleði Félagsmenn fjölmenntu. Fagna nú 100 árum „Loðnan spáir ekkert í dagsetningar, hún spáir bara í skilyrðin. Hún kemur, það er bara spurning um hvar og hve- nær,“ segir Geir Zoëga, skipstjóri á grænlenska uppsjávarskipinu Polar Amaroq, aðspurður hvort hann telji líkur á að af loðnuvertíð verði. Upp- hafskvóti hefur ekki verið gefinn út og leiðangur sem er að ljúka gefur ekki ástæðu til sérstakrar bjartsýni. Geir segir að skilyrðin í hafinu séu síbreytileg og loðnan hagi sér í sam- ræmi við það. „Sjórinn við landið er talsvert hlýrri heldur en verið hefur og þannig er sjórinn fyrir Norðurlandi um tveimur gráðum hlýrri heldur en síðustu ár. Loðnan tekur mið af þessu og kemur eins og hún hefur gert und- anfarin ár. Fyrir tveimur árum náðist ekki almennileg mæling fyrr en um miðjan febrúar og síðasta vor var hell- ingsloðna inni á Húnaflóa,“ segir Geir. Hann segist hafa fengið þær fréttir að loðna hefði hrygnt í grænlenskri lögsögu í fyrra, sem ekki hefði gerst í mörg ár. Þá hefðu Færeyingar í síldarleit séð talsvert af loðnu í græn- lenskri lögsögu í sumar. Allt þetta segi honum að talsvert af loðnu sé á ferð- inni. Linnulitlar brælur Polar Amaroq var í gær á kol- munnaveiðum syðst í færeyskri lög- sögu, en þar sem fiskveiðisamningur er ekki í gildi milli íslenskra og fær- eyskra stjórnvalda mega íslensk skip ekki veiða þar. Geir sagði að þokkaleg skot kæmu í veiðina þegar lygndi en linnulitlar brælur hefðu gert mönnum erfitt fyrir. Þeir hefðu verið fimm daga að veiðum, en tapað tveimur þeirra í ótíðinni. Aflinn var orðinn um 1300 tonn með því sem verið var að hífa. „Við náum einu holi í viðbót áður en veðrið skellur á aftur,“ sagði Geir. Miðað er við að ná um tvö þúsund tonnum í skipið áður en haldið verður til löndunar í Neskaup- stað. aij@mbl.is „Loðnan spáir bara í skilyrðin“  Hefur trú á að úr rætist með vertíðina Ljósmynd/Eyjólfur Vilbergsson Vertíð Polar Amaroq á loðnuveiðum við Reykjanes í fyrravetur. Útgáfu nýrrar bókar með ræð- um, ritum og greinum Jóns Baldvins Hanni- balssonar, sem gefa átti út í til- efni áttræðis- afmælis hans í febrúar nk., hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Þetta staðfestir Steingrímur Stein- þórsson hjá útgáfufélaginu Skruddu í samtali við mbl.is. Steingrímur segir þessa ákvörðun hafa verið tekna vegna fjölmiðla- umfjöllunar síðustu daga um meinta háttsemi Jóns Baldvins í garð kvenna. „Okkur þótti fráleitt að ætla að gefa þetta út núna,“ segir hann. Fjórar konur stigu nýverið fram og sögðu frá áreitni og ofbeldi sem þær hefðu orðið fyrir af hendi Jóns Baldvins. Fleiri konur stigu síðar fram á netinu og sögðust ýmist vera þolendur eða vitni. Fresta út- gáfu bók- arinnar  Tilefni útgáfu er 80 ára afmæli Jón Baldvin Hannibalsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.