Morgunblaðið - 16.01.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019
Tómas Ingi Olrich hefur uppivarnaðarorð í blaðinu sl.
mánudag:
Nú hefur skotiðupp kollinum
sú hugmynd að
sníða stjórnarskrá
Íslands sérstaklega
að því regluverki
sem veitir okkur
aðgang að fjórfrels-
inu.
Regluverkið hefur með tím-anum breikkað þennan að-
gang og ríður með hverju árinu
þéttara net um það svigrúm sem
við höfum til að ráða málum okkar
sjálf.
Þessi nýja hugmynd um stjórn-arskrárbreytingu er annarleg
og ekki beinlínis til merkis um að
grundvöllur lýðræðisins sé að
styrkjast.
Uppruni regluverks EES geturekki með góðu móti flokkast
undir alþjóðasamstarf, eins og þeir
sem enn styðja aðild að ESB gjarn-
an leggja áherslu á.
Evrópusambandið er ekki al-þjóðastofnun frekar en Sov-
étríkin á sínum tíma.
ESB er fjölþjóðlegt, pólitískttollabandalag, sem dregur í
síauknum mæli til sín fullveldi
þeirra þjóða, sem sambandið
mynda.
Þessa valdaafsals hefur gætt hérá landi fyrir tilverknað EES-
samningsins. Hann hefur reynst
vera ásælinn. Þau svið, sem talin
voru skýrt afmörkuð við samn-
ingsgerðina, hafa þanist út.“
Tómas Ingi Olrich
Undarleg alþjóða-
stofnun það
STAKSTEINAR
Starfsmenn Veðurstofu Íslands fara
austur að Múlakvísl í dag og skoða
ána vegna hlaups sem kom í hana í
gær.
„Vatnshæðin virðist heldur á leið
niður og rafleiðnin er svipuð. Við
fylgjumst að sjálfsögðu áfram með
þessu. Eins og er þá er þetta lítið
hlaup,“ sagði Sigþrúður Ármanns-
dóttir, náttúruvársérfræðingur hjá
Veðurstofu Íslands, síðdegis í gær
um hlaupið. „Þetta er vissulega at-
burður en hann er ekki stór. „Þetta
verður alltaf annað slagið.“
Mælar Veðurstofunnar sýndu
vaxandi vatnshæð í Múlakvísl í gær-
morgun og náði hún hámarki um há-
degið. Rafleiðni hélst nokkuð stöð-
ug.
Jónas Erlendsson bóndi í Fagra-
dal og fréttaritari Morgunblaðsins,
sagði að yfirleitt væri ekki mikið
vatn í Múlakvísl á þessum árstíma. Í
gær var hins vegar margfalt vatn í
ánni miðað við það sem venjulega er.
„Bæði er þetta hlaupvatn og svo er
megn brennisteinslykt af henni,“
sagði Jónas. Hlaupvatnið náði ekki
að renna yfir þjóðveginn.
gudni@mbl.is, johann@mbl.is
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Múlakvísl Hlaup kom í ána í gær en það rénaði fljótt aftur. Starfsmenn
Veðurstofunnar ætla að fara austur og skoða aðstæður í dag.
Hlaup í Múlakvísl
Hlaupið var lítið og rénaði fljótt
Vatnið rann ekki yfir þjóðveginn
Ákveðið hefur verið að kosnir verði
viðbótavaraforsetar í forsætisnefnd
Alþingis sem hafa það verkefni að
fjalla um Klausturmálið svonefnda
og koma því í viðeigandi farveg.
Þetta staðfestir Steingrímur J. Sig-
fússon, forseti Alþingis.
„Eftir umfjöllun forsætisnefndar
[í fyrradag] og fund formanna þing-
flokka [í gær] er yfirgnæfandi sam-
staða um það hvaða leið verði farin,“
sagði Steingrímur í samtali við
mbl.is. „Þetta er hefðbundin leið
þegar verið er að leysa úr hæfis-
vanda,“ bætti hann við, en Stein-
grímur er, líkt og allir varaforsetar
þingsins, sjálfur vanhæfur til að
fjalla um Klausturmálið.
Hafa ekki talað
um málið sjálfir
„Viðbótarvaraforsetarnir verða
kosnir úr röðum þeirra þingmanna
sem óumdeilanlega eru hæfir til um-
fjöllunar um málið og hafa hvorki
tjáð sig um það í ræðu né riti þannig
að það orki tvímælis,“ sagði Stein-
grímur og hélt áfram: „Þeim verður
þá bætt við þannig að þeir myndi
eins konar undirforsætisnefnd og
verður þetta gert með afbrigðum frá
þingsköpum. Þessi aðferð nýtur yfir-
gnæfandi stuðnings og verður því
væntanlega fyrir valinu.“ Þeir verða
að líkindum kosnir fljótlega eftir að
þing kemur saman.
Viðbótarvaraforsetar verði kosnir
Eiga að fjalla um Klausturmálið svonefnda þar sem aðrir eru sagðir vanhæfir
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Kosnir verða varamenn.
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100
ÚTSALA!
20-50%
AFSLÁTTUR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/