Morgunblaðið - 16.01.2019, Page 12

Morgunblaðið - 16.01.2019, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Skjánotkun barna verður sí-fellt meiri, enda alast börnnúorðið upp við það að veravið skjá, því þessi tæki eru ágætis barnapíur og fólk réttir oft krökkum spjaldtölvur og síma til að hafa ofan af fyrir þeim. Það er í raun orðið norm í samfélaginu að börn séu mikið við skjái, og það getur vissulega orðið vandamál ef fólk stýrir ekki skjánotkun barna sinna. Foreldrar þurfa að setja reglur og vera vakandi fyrir því að jafnvægi sé á milli þess hjá börnunum að vera í tölvunni, læra heima, stunda íþróttir og njóta samverustunda með fjöl- skyldunni. Með öðrum orðum, að passa upp á að tölvan taki ekki yfir í lífi barnanna,“ segir Lovísa María Emilsdóttir félagsráðgjafi hjá ráð- gjafar- og fræðslufyrirtækinu Þitt virði, en hún og Guðrún Katrín Jó- hannesdóttir félagsfræðingur bjóða upp á námskeið fyrir krakka í 5.-7. bekk, þar sem markmiðið er að virkja krakkana á annan hátt en við tölvur og skjái og að þeir velji að dvelja minna við slík tæki. Í lýsingu á námskeiðinu kemur fram að krökkunum verði m.a. kennd betri samskiptafærni og að horfast í augu við eigin tilfinningar, enda getur aukin skjánotkun haft áhrif á tilfinn- ingalíf barna. „Það er þekkt að með aukinni skjánotkun barna eykst oft fé- lagsleg einangrun, en ég tek fram að þeir krakkar sem koma á námskeið til okkar eru ekki endilega með ein- hver vandamál, við hugsum þetta fyrst og fremst sem forvörn og sjálfsstyrkingu. Okkur finnst það vera mikilvægir þættir í lífi allra barna að læra að horfast í augu við eigin tilfinningar og að vera ekki hrædd við þær. Börnin þurfa að vita að það er eðlilegt að finna fyrir hin- um ólíkustu tilfinningum, okkur get- ur liðið illa og við getum verið hrædd eða kvíðin. Við erum að kenna krökkunum á þessu nám- skeiði að það sé allt í lagi að finna fyrir slíkum tilfinningum, að allar tilfinningar séu í lagi og eigi rétt á sér. Það er líka gott fyrir foreldra að hafa í huga að ala upp í börnum sín- um meðvitund um að það sé allt í lagi að finna fyrir allskonar og mis- þægilegum tilfinningum.“ „Læk“ segir ekkert um virði Lovísa segir að þær Guðrún leggi á námskeiðinu áherslu á að kenna krökkunum að vera stjórn- endur í eigin lífi. „Ekki láta til dæm- is samfélagsmiðla hafa áhrif á hvernig þau meta sig, sem við þekkjum sérstaklega hjá unglingum sem eru mikið á snappinu og In- stagram. Við komum inn á að það „læk“ sem skiptir mestu máli er þeirra eigin „læk“, en ekki hvort þau fá 300 „læk“ á einhverja mynd. Mestu máli skiptir að þeim líki vel við sjálf sig. Að ræða þetta og kenna er góð forvörn fyrir unga krakka. Að benda þeim á að þau eigi ekki að nota mælitæki samfélagsmiðla til að finna út hvers virði þau eru. Það hversu mörg „læk“ þau fá á in- stagram eða hvort þau eru vinsæl á snapchat segir ekkert um það hversu mikils virði þau eru.“ Lovísa segir að á námskeiðinu verði einnig farið yfir mörkin sem þarf að virða í netheimum. „Það þarf að ræða að það skiptir máli hvað við segjum á netinu, þetta eru öðruvísi samskipti heldur en maður á mann. Þau verða að gera sér grein fyrir að þegar þau eru leiðinleg við einhvern á netinu, þá særir það alveg jafn mikið og að segja það beint við manneskjuna í eigin persónu.“ Finnst asnalegt að hringja Lovísa segir að Einar Carl þjálfari frá Primal ætli líka að kenna á námskeiðinu, hann ætli að fara í leiki og gera æfingar með krökk- unum, kenna þeim að leika sér án snjalltækja. „Við ætlum að örva ímyndunaraflið, en það gerum við til dæmis með leiddri hugleiðslu í lok hvers tíma og krökkunum hefur fundist það rosa skemmtilegt. Til að styrkja sjálfsmyndina fáum við þau m. a. til að finna út hvað er jákvætt í þeirra eigin fari,“ segir Lovísa og bætir við að nauðsynlegt sé að styrkja sjálfsmynd krakka og fé- lagsfærni á meðan þau eru ung. „Unglingar hafi talað um að þau eigi auðveldara með að hafa samskipti í netheimum heldur en augliti til aug- litis, enda fara samskipti í nútíma vestrænum samfélögum mest fram á instagram, snapchat, í tölvu- póstum og á messenger. Krökkum sem eru rúmlega tvítug núna, finnst mörgum asnalegt að hringjast á. Öll þeirra samskipti fara fram í texta- formi og með tjáknum eða myndum. Einmitt þess vegna er svona nám- skeið forvörn fyrir framtíðina hjá krökkum sem eru aðeins tíu til tólf ára. Í unglingaafmælum er til dæm- is mjög algengt að allir sitji og stari í sinn síma og tali ekkert saman. Við bendum foreldrum hiklaust á að hafa körfu eða kassa við innganginn þegar afmælisgestir koma í barna- og unglingaafmæli, og þar ofan í fara allir símar. Foreldrar barnanna eru auðvitað látnir vita af þessu og bent á að hringja í heimilisráðanda ef nauðsynlega þarf að ná í barnið. Allskonar svona atriði getum við foreldrar haft í huga til að vinna gegn þessari þróun, við getum skap- að aðstæður þar sem börnin okkar og unglingarnir verða að tala sam- an, en geta ekki alltaf flúið í símann. Við ætlum á þessu námskeiði að reyna að æfa krakkana í því að þora að tala um tilfinningar og gera eitt- hvað saman, án þess að það sé tæki á milli þeirra, sími, ipad eða tölva.“ Lovísa segir að þær Guðrún ætli fljótlega að fara af stað með stuðningshópa fyrir foreldra þar sem foreldrar geta komið einu sinni í viku og fengið ráð í tengslum við skjánotkun barna. Nánar á heima- síðunni www.thittvirdi.is Að þora að tala um tilfinningar Samskipti barna og ung- linga fara mikið fram í textaformi og með tjákn- um eða myndum. Á nám- skeiði hjá Lovísu og Guð- rúnu æfa krakkar sig m.a. í því að gera eitt- hvað saman án þess að það sé tæki á milli þeirra, sími, ipad eða tölva. Morgunblaðið/Hari Í gættinni Guðrún (t.v) og Lovísa María ætla meðal annars að örva ímyndunarafl krakkanna á námskeiðinu. „Fólk réttir oft krökk- um spjaldtölvur og síma til að hafa ofan af fyrir þeim. Það er í raun orð- ið norm í samfélaginu að börn séu mikið við skjái, og það getur vissulega orðið vanda- mál ef fólk stýrir ekki skjánotkun barna sinna.“ Þitt virði: Ráðgjöf og fræðsla, býður upp á námskeið undir heitinu Frjálsir krakkar - 5.-7. bekkur, þann 17. febr- úar n.k. Þetta er fjögurra vikna nám- skeið fyrir alla krakka í 5.-7. bekk. Markmiðið er að virkja krakkana á annan hátt en við tölvur og skjái og að þeir velji að dvelja minna við slík tæki. Krakkarnir læra þetta: Heil- brigða tölvu- og skjánotkun, að örva ímyndunaraflið, betri samskipta- færni, að þora að horfast í augu við eigin tilfinningar og óttast þær ekki, að þora að gera mistök, að vera stjórnandinn í eigin lífi, að takast á við erfiðleika, að styrkja eigin sjálfs- mynd, tilfinningastjórn, hugleiðslu og öndun. Leiðbeinendur námskeiðs- ins eru Guðrún Katrín Jóhannes- dóttir félagsfræðingur og Lovísa María Emilsdóttir félagsráðgjafi. Námskeiðið er kennt í gegnum fyr- irlestra, leiki og ýmsar æfingar. Ein- ar Carl, þjálfari hjá Primal, mun kenna krökkunum skemmtilegar og nytsamar æfingar. Í lok námskeiðs gefst foreldrum kostur á að hitta fyrirlesara námskeiðsins og fá ráð til að rækta áfram með börnum sínum það sem þau hafa lært á námskeið- inu. Skráning fer fram á: thitt- virdi@thittvirdi.is Námskeiðið Frjálsir krakkar fyrir þau sem eru í 5. - 7. bekk Kennt með fyrirlestrum, leikjum og ýmsum æfingum Thinkstock Skjátími Foreldrar þurfa að hafa stjórn á skjátíma barna sinna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.