Morgunblaðið - 16.01.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 16.01.2019, Qupperneq 14
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir félögin sem vísað hafa kjaradeilu til ríkissáttasemjara vera sammála um að ráðast þurfi í gagn- gera endurskoðun á sjóðsöfnunar- kerfi lífeyrissjóða á Íslandi. Kerfið sé dýrt og komi bæði niður á afkomu hjá atvinnurekendum og kaupgjaldi launþega. Umrædd félög eru VR, Efling og Verkalýðsfélag Akraness. Ragnar Þór rifjar upp að mót- framlag atvinnu- rekenda hafi hækkað um 3,5% síðustu ár í 11,5%. Iðgjald launamanns sé nú 4% og framlagið í lífeyrissjóð því alls 15,5%. Með þessari hækkun eigi lífeyris- réttindi að vera komin í 72-76% af meðallaunum miðað við 40 ára inn- greiðslutíma. Hlutfallið hafi áður verið 56%. „Hins vegar verður þessi breyting ekki komin fram að fullu fyrr en eftir 40 ár. Eftir þessa hækkun getur iðgjald til söfnunar lífeyris- réttinda orðið allt að 21,5%, að teknu tilliti til framlags í séreignarsjóði, sem getur verið allt að 6%, eða 2-4% frá launþegum og 2% frá atvinnu- rekendum,“ segir Ragnar Þór. Þessi viðbót gefi um 18,6%-28% réttindi sé reiknað á sama grunni og gert sé með samtryggingarkerfi lífeyris- sjóðanna. Allt að 104% af meðallaunum „Félagsmaður sem greiðir í skyldubundið iðgjald og í séreignar- sjóð ætti því að vinna sér inn 94,6% til 104% af meðallaunum miðað við 40 ára inngreiðslutíma,“ segir Ragnar Þór og bendir svo á að ís- lenskt launafólk sé lengur en 40 ár á vinnumarkaði, eða 48,8 ár að jafnaði. Þá séu margir lífeyrissjóðir með hærri réttindi en umsamið lágmark. „Miðað við 15,5% framlag og inn- greiðslur frá 16 til 67 ára aldurs vinnur sjóðfélagi í Lífeyrissjóði verslunarmanna sér inn 105,1% líf- eyrisréttindi af meðalævitekjum. Að viðbættri 6% séreign er ávinnslan 160,6% af meðalævitekjum,“ segir Ragnar Þór og rökstyður mál sitt. „Það má spyrja hvort iðgjöldin í lífeyrissjóðakerfið séu orðin of há ef lífeyrisréttindin eru komin yfir 100% af meðalævitekjum að meðal- tali. Sé hinn raunverulegi iðgreiðslu- tími, sem er nær 50 árum en 40, hafður til hliðsjónar og séreignar- sparnaði bætt við fást miklu hærri niðurstöður en 100%. Það má því færa rök fyrir að kerfið sé bæði offjármagnað og spyrja hvort launatengd gjöld og ið- gjaldahluti lífeyrissjóðanna séu hugsanlega farin að hafa neikvæð áhrif á lífskjör almennings til lengri tíma. Það er margt sem bendir til að kerfið sé orðið of íþyngjandi fyrir hagkerfið og fyrir lífskjör almennt.“ Óraunhæf ávöxtunarkrafa Þessi neikvæðu áhrif birtist meðal annars í „óraunhæfri ávöxtunar- kröfu“ lífeyrissjóðanna. „Sé litið á ávöxtunarkröfuna á hagkerfið út frá innlendum eignum lífeyrissjóðanna eru þær á fimmta þúsund milljarðar og hærri en landsframleiðslan. Lífeyrissjóðirnir taka því bróðurpartinn af hagvext- inum til sín í kröfu á ávöxtun sjóða- kerfisins. Það er meðal annars gert með því að halda uppi vaxtakostnaði almennings af húsnæðislánum og með því að halda uppi álagningu í smásölufyrirtækjum sem lífeyris- sjóðirnir eiga. Þetta gerist líka með því að lækka kaupgjaldið. Það er krafa um lægri vinnukostnað og hærri álagningu til að standa undir þessari kröfu. Þetta getur því haft neikvæð áhrif á kaupgjaldskröfuna.“ Margt kallar á breytingar Ragnar Þór segir aðspurður að verkalýðsfélögin séu tilbúin að skoða lækkun á iðgjaldi í lífeyrissjóðina gegn hækkun launa. „Það er fyrst og fremst kominn tími til að endurskoða þetta sjóð- söfnunarkerfi og þetta fyrirkomu- lag. Það er svo margt sem kallar á slíkar breytingar. Kerfið er orðið íþyngjandi fyrir almenning og fé- lagsmenn okkar og sjóðfélaga. Það má til dæmis rekja veikingu krónunnar að undanförnu til þess að lífeyrissjóðirnir eru að flytja fjár- magn úr landi. Þeir eru að færa meira af sínum fjárfestingum sínum utan, sem er að mörgu leyti gott. Það þarf hins vegar að fara varlega í sakirnar. Ef þetta skerðir lífskjör með því að rýra kaupmátt fólks með veikingu krónunnar eru sjóðirnir enda farnir að vinna í mótsögn við sjálfa sig,“ segir Ragnar Þór. Vilja stokka upp lífeyrissjóðakerfið  Formaður VR segir kerfið vera orðið „offjármagnað“ Morgunblaðið/Golli Áhrifamiklir Íslenskir lífeyrissjóðir fjárfesta árlega fyrir háar fjárhæðir. Ragnar Þór Ingólfsson Um 4.300 milljarðar » Samkvæmt vef Seðlabank- ans voru eignir lífeyrissjóð- anna 4.324 milljarðar í lok nóvember í fyrra. » Þær voru til samanburðar 3.943 milljarðar í árslok 2017. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019 Samsung QLED is Quantum dot based TV Beint 65" 499.900,- Samsung Q9F Áður: 419.900,- Samsung Q7F Beint 65" 349.900,- April 2018 SamsungQE65Q9FNssssssQsmartQ styleQ picture Opnunartímar: Virka daga kl. 10-18 Laugardaga kl. 11-15 ormsson Netverslun lágmúla 8 | Sími 530 2800 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sigurveig H. Sigurðardóttir, dósent í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands, hefur rannsakað stöðu eldri kvenna á íslenskum vinnumarkaði. Fyrir tveimur árum gerði hún eigindlega rannsókn og tók viðtöl við íslenskar konur sem voru á aldrinum 55-75 ára og höfðu reynslu á vinnu- markaði eftir að þær urðu 40 ára. Leiddu viðtölin í ljós að konurnar mættu hindrunum í umsóknum um störf og á vinnu- markaði. „Þær fundu fyrir ákveðnum fordómum á vinnumarkaði. Þeim fannst að ef þær sóttu um vinnu og vinnu- veitendur sáu kennitöluna væru þær jafnvel ekki boðaðar í viðtöl. Þær voru kannski látnar kenna yngra fólki störfin og svo var þeim ýtt til hliðar og áttu ekki nokkra möguleika á að fá til dæmis fram- gang í starfi. Þær töldu að það væri vegna þess að þær væru eldri og væru konur. Það var þeirra upp- lifun,“ segir Sigurveig. Tölvukunnátta ekki vandamál Hún kveðst aðspurð ekki telja að skortur á tölvukunnáttu sé ástæðan. Það hafi hins vegar átt við eldri kyn- slóðir kvenna á undan. „Það hefur hvarflað að manni hvort rétt sé að vera með kennitölur og hvort það þurfi að sjást á um- sóknum að viðkomandi sé þetta gamall. Ég veit ekki hvernig hægt er að komast hjá því. Samt sem áður hvarflar að manni að þannig hafi þær jafna möguleika og yngra fólk.“ Sigurveig rifjar upp rannsókn sem hún vann árið 2006 með mark- hópum. Þar hafi komið fram mikil- vægi þess að hvetja fyrirtæki til að hafa fólk á ólíkum aldri en ekki að- eins kvóta fyrir konur og karla. Það sé hluti af samfélagslegri ábyrgð og hvetji til þess að þekkingu sé miðlað á milli kynslóða. Geta ekki skipt um vinnu Hún segir það kunna að eiga þátt í erfiðri stöðu eldri kvenna á vinnu- markaði að þær hafi horfið af vinnu- markaði vegna barneigna. „Það á við um sumar hverjar en þetta á líka jafnvel við eldri konur sem vilja skipta um vinnu en sjá sér ekki fært að gera það. Það er vegna þess að þær hafa reynslu af því að vera ekki einu sinni kallaðar í viðtöl. Manni finnst það byggt á miklum misskilningi vegna þess að konur á þessum aldri eru t.d. hættar barn- eignum og eru kannski traustari vinnukraftur en yngri konur. Þær eru samviskusamar upp til hópa,“ segir Sigurveig H. Sigurðardóttir, dósent í félagsráðgjöf við HÍ. Eldri konum oft neitað um viðtal  Dósent segir reynsluna dýrmæta Morgunblaðið/Eggert Á öllum aldri Dósent segir verðmæti fólgin í reynslu eldri kvenna. Sigurveig H. Sigurðardóttir Fjölgar hratt á öldinni » Alls voru 36.305 konur 50 ára og eldri á Íslandi um alda- mótin, skv. tölum á mann- fjöldavef Hagstofu Íslands. » Þær voru orðnar 47.356 árið 2010 og 57.066 í fyrra og hef- ur því fjölgað um 20 þúsund.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.