Morgunblaðið - 18.01.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019
Sigurður Oddsson lýsir því íBændablaðinu að „engin mat-
væli kæmust í gegnum tollinn,
nema þeim væri
smyglað. Það sann-
aðist svo á sl. ári, að
ég reyndi að senda
harðfisk til prufu-
pökkunar í Kína.
Fyrir 15 árum
seldum við notaða
prentvél til Nýja-
Sjálands. Þá kom
upp, að ekki mætti neitt ósótt-
hreinsað timbur fara inn í gám-
inn.“
Þá segir Sigurður: „Hjá okkur aftur á móti
hafa plöntur lengi verið fluttar inn
eftirlitslítið og valdið blómabænd-
um ómældum skaða. Nú er mikið
flutt inn af pakkaðri gróðurmold
frá ýmsum löndum. Til er nóg af
gróðurmold á Íslandi og gjaldeyri
væri betur varið í ýmislegt annað,
en að flytja inn mold.
Svo virðist sem EES eða ESB lögséu æðri íslenskum lögum.
Krafan um innflutning á hráu
kjöti byggist á EES samningnum.
Svo virðist sem EES eða ESB lög
séu æðri íslenskum lögum þrátt
fyrir 100 ára „fullveldið“. Þeir fé-
lagar léku illilega af sér, ef við-
skiptasamningurinn „ALLT FYRIR
EKKERT“ byggist á að taka upp
lög ESB.
Fáránlegt var að gera viðskipta-samning á þeirri forsendu að
tekin skuli upp lög þeirra landa,
sem samningurinn var gerður við.
Innflutningur á hráu kjöti er
rökstuddur með því að Íslendingar
snæði kjöt í útlöndum og verði
ekki meint af.“
Það er rétt að belgingurinn um„allt fyrir ekkert“ var í besta
falli heimskulegt sjálfshól.
Sigurður
Oddsson
„Allt fyrir ekkert“
belgingur og rugl
STAKSTEINAR
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
ÚTSALA
30-50%afsláttur
Jakkar • Peysur • Vesti • Bolir • Kjólar • Buxur
30%
afsláttur
af töskum
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Sindri Þór Stefánsson var í gær
dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í
fjögurra og hálfs árs fangelsi í
gagnamálinu svonefnda. Matthías
Jón Karlsson var dæmdur í tveggja
og hálfs árs fangelsi og Hafþór Logi
Hlynsson í tuttugu mánaða fangelsi.
Aðrir sakborningar fengu vægari
dóm. Öllum sakborningum var gert
að greiða Advania rúmar 33 millj-
ónir króna í skaðabætur, en sjö voru
ákærðir í málinu, sem snerist um
innbrot í fjögur gagnaver í desem-
ber og janúar og tilraunir til tveggja
innbrota í viðbót.
Niðurstaða héraðsdóms er sú að
Sindri Þór hafi verið höfuðpaurinn
og skipulagt öll innbrotin. Hann hafi
fengið aðra ákærða til liðs við sig
vegna málsins en ákæruvaldið telur
að skýringar Sindra, þess efnis að
einhver erlendur fjárfestir sem hann
óttist hafi lagt á ráðin með honum
um „að ræna þetta lið“, sé fjarstæða
og uppspuni. Sindri Þór sagði fyrir
dómi í desember að hann hefði ekki
skipulagt innbrotin, heldur væri
hann einungis að fylgja skipunum.
Hann gæti ekki tjáð sig um hver
hefði veitt honum skipanir af ótta við
viðkomandi.
Andvirði þýfisins var metið á 96
milljónir króna, en tjónið á 135 millj-
ónir króna. Búnaðurinn hefur ekki
fundist. Ekki er búið að taka ákvörð-
un um áfrýjun dómsins.
Sindri Þór skipulagði öll innbrotin
Þýfið í gagnamálinu sem metið er á 96 milljónir króna er enn ófundið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Dæmdur Sindri í fylgd lögreglu.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt til-
lögur Ásmundar Einars Daðasonar,
félags- og barnamálaráðherra, þess
efnis að ekki skipti lengur máli hvort
flóttafólk komi hingað til lands sem
umsækjendur um alþjóðlega vernd
eða í boði stjórnvalda. Móttökur yf-
irvalda verða þær sömu. Ásmundur
kynnti þetta á fundi í Þróunarsetri
Vestfjarða en einnig er greint frá
breytingunni á vef Stjórnarráðsins.
Með þessu munu þeir flóttamenn
sem komast hingað á eigin vegum fá
aðstoð við að koma undir sig fótun-
um, líkt og kvótaflóttamenn.
Tillögur að samræmdri móttöku
fyrir flóttafólk eru byggðar á
skýrslu nefndar sem ráðherra skip-
aði til að kortleggja stöðu þessara
mála og gera tillögur að samræmdu
móttökukerfi. Nefndin skilaði ráð-
herra skýrslu sinni nýverið en í
henni er lögð áhersla á að flóttafólk
njóti þjónustu við komuna til lands-
ins í samræmi við þær áherslur sem
koma fram í framkvæmdaáætlun í
málefnum innflytjenda og í sam-
starfssáttmála ríkisstjórnarinnar.
Munu auglýsa eftir sveitar-
félögum til þátttöku
Meðal þess sem lagt er til er að
öllu flóttafólki sem fær alþjóðlega
vernd hér á landi standi til boða að
fara til móttökusveitarfélags en það
sé jafnframt frjálst val hvers ein-
staklings hvort hann þiggur slíkt
boð. Félagsmálaráðuneytið mun
strax hefja undirbúning að innleið-
ingu samræmdrar móttöku flótta-
fólks. Meðal annars verður auglýst
eftir sveitarfélögum sem vilja taka
að sér móttöku flóttafólks og gerðir
við þau samningar þar að lútandi.
Fá sömu móttöku við
komuna til landsins
Staða flóttafólks verður nú hin sama
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Keflavíkurflugvöllur Frá komu
flóttafólks frá Albaníu til landsins.