Morgunblaðið - 18.01.2019, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019
Breiðumörk 1c, 810Hveragerði / www.hotelork.is / booking@hotelork.is / sími: +354 4834700 / fax: +354 4834775
Fallegt umhverfi og fjölmargir möguleikar
til afþreyingar tryggja betri fundarhlé.
Fundarfriður áHótelÖrk
ÁHótel Örk er öll aðstaða til fundahalda til fyrirmyndar. Starfsfólk okkar býr
yfir mikilli reynslu og metnaði til að aðstoða stóra og litla hópa, fyrirtæki og
félagasamtök við skipulagningu og undirbúning á fundum og ráðstefnum.
Villt þú losna við fitu á erfiðum svæðum?
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Láttu fagfólkið á Húðfegrun
sjá um þína húð á nýju ári!
Byltingarkennd húðmeðferð sem byggð er á
nýjustu tækni á sviði náttúrulegrar fitueyðingar
án skurðaðgerðar.
✓ Eyðir fitu á erfiðum svæðum
✓ Sársaukalausmeðferð
✓ Byggð á nýjustu tækni til að eyða fitu
✓Örugg og áhrifaríkmeðferð JANÚA
R
TILBOÐ
15%
AFSLÁTTU
R
Fitueyðing –ultrasound meðferð
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Í umfjöllun Morgunblaðsins 1. nóv-
ember sl. um björgunarafrekið sem
unnið var þegar þýski togarinn
Friedrich Albert strandaði á
Skeiðarársandi árið 1903, var aug-
lýst eftir demants
bjóstnælu sem
Þýskalandskeis-
ari verðlaunaði
Guðríði Jónsdótt-
ur, ljósmóður
með fyrir hennar
framlag í björg-
uninni. Ættingjar
Guðríðar sem
jafnframt eru af-
komendur Bjarna
Jenssonar, hér-
aðslæknis á Breiðabólsstað sem
einnig var sæmdur orðu frá Þýska-
landskeisara létu vita að nælan hefði
verið afhent Læknaminjasafninu en
hún væri nú í geymslu Þjóðminja-
safnsins sem og orða Bjarna læknis.
Frímann Helgason sem er barna-
barnabarn, Bjarna Jenssonar, segir
að sagan af björgunarafrekinu hafi
oft verið sögð í fjölskyldunni og ætt-
ingjarnir séu mjög stoltir af orðu og
næluhöfum.
Einar Magnús Magnússon, sem
ritar handrit sögunnar um björg-
unina á Skeiðarárstandi og vinnur
að því að gera um hana kvikmynd
segir það hafa tilfinningalegt gildi að
sjá nælu Guðríðar og orðu Bjarna
Jenssonar.
„Það var sérstök tilfinning að fá
að sjá og snerta þá hluti sem fóru um
hendur þessa fólks fyrir 116 árum.
Síkt færir mig nær raunveruleik-
anum og gerir atburðinn raunveru-
legri,“ segir Einar Magnús og bend-
ir á að margir telji undarlegt að
Sigríður Jónsdóttir, systir Guðríðar
og eiginkona Bjarna Jenssonar, hafi
ekki verið heiðruð líka. Hún breytti
heimili sínu í sjúkrahús á skömmum
tíma þar sem skipbrotsmenn voru
aflimaðir við frumstæðar aðstæður
en sluppu við ígerðir vegna smit-
varna Sigríðar. Einar Magnús segist
hugsa til þess á laugardaginn að þá
séu 116 ár frá því að skipsbrotsmenn
lögðu upp í 11 daga hrakningaferð í
leit að björgun.
Ljósmyndir/Einar Magnús Magnússon/www.emm.is
Orða Frímann Helgason, sýnir heiðursmerki Prússneska arnarins sem
langafi hans Bjarni Jónsson, var sæmdur vegna björgunarstarfa árið 1903.
Næla Guðríðar
Jónsdóttur
ljósmóður fundin
Demantsnælan á Þjóðminjasafninu
Tilfinningalegt gildi að sjá næluna
Viðurkenning Demantsskreytt
brjóstnæla Guðríðar Jónsdóttur.Guðríður
Jónsdóttir
Kanadíska fréttakonan Eva Bartlett
heldur fyrirlestur á morgun, laugar-
dag, kl. 12 í Safnahúsinu við Hverf-
isgötu undir yfirskriftinni: Frétta-
mennska sem vopn í stríði.
Hún hefur dvalið langdvölum í
Sýrlandi og Palestínu og skrifað
fréttir þaðan. Hún hefur margoft
bent á hagsmunatengdan frétta-
flutning og flett ofan af ósannindum í
fréttamennsku, að því er fram kem-
ur í tilkynningu um fyrirlesturinn.
Einnig verða þar með innlegg Jón
Karl Stefánsson, sem hefur gert út-
tekt á fréttaflutningi af árás NATO á
Líbíu, og Berta Finnbogadóttir, sem
fylgst hefur náið með gangi mála og
ekki síst misbeitingu fjölmiðla, eins
og það er orðað í tilkynningunni.
Fundarstjóri er Ögmundur Jónas-
son, fundurinn er öllum opinn og all-
ir eru boðnir velkomnir.
Fréttamennska sem vopn
Kanadíska fréttakonan Eva Bartlett
með erindi um fréttamennsku í stríði
Eva Bartlett Hún hefur m.a. dvalið
langdvölum í Sýrlandi og Palestínu.
Flugakademía Keilis hefur fest
kaup á Flugskóla Íslands, einum
elsta starfandi flugskóla landsins.
Samanlagður fjöldi nemenda í bók-
legu og verklegu námi í flugskól-
unum er á fimmta hundrað. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá Keili.
„Við erum afskaplega ánægðir
með kaupin og teljum þau styrkja
mjög flugkennslu á landinu. Flug-
akademía Keilis er ung að árum en
hefur vaxið hratt og mun sú mikla
reynsla og þekking stjórnenda og
kennara Flugskóla Íslands hafa já-
kvæð áhrif á það starf sem við höf-
um byggt upp undanfarin ár,“ er
haft eftir Rúnari Árnasyni, for-
stöðumanni Flugakademíu Keilis, í
tilkynningunni.
Fyrst um sinn verður ekki gert
ráð fyrir miklum breytingum á
starfsemi skólanna tveggja, en
verkleg flugkennsla mun áfram
fara fram á bæði alþjóðaflugvell-
inum í Keflavík og Reykjavíkur-
flugvelli.
Í tilkynningunni segir að skólinn
muni efla starfsstöðvar sínar á
landsbyggðinni líkt og unnið hafi
verið að undanfarið, meðal annars á
Selfossi og Sauðárkróki.
Flugakademía Keilis
kaupir Flugskóla Íslands
Ljósmynd/Keilir
Flugnám Flugakademía Keilis hef-
ur nú keypt Flugskóla Íslands.