Morgunblaðið - 18.01.2019, Side 16

Morgunblaðið - 18.01.2019, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019 Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is Skipulagsyfirvöld í Reykjavík hafa auglýst nýtt deiliskipulag fyrir þróunarsvæðið Stekkjarbakki Þ73. Hugmyndir eru um gróðurhvelf- ingar. Skilmálar eiga að tryggja að ljósmengun frá starfsemi á svæðinu verði innan marka. „Búið er að mæla núverandi ljósmengun á svæðinu sem er í dag töluverð og ólíklegt að hún aukist mikið,“ segir í kynningu. Deilist niður í fimm lóðir Þar segir að fimm lóðir séu á svæðinu. Lóð 1 er um 19.435 fer- metrar en þar er ekki gert ráð fyrir byggingarreitum. Uppbygging er háð breytingum á deiliskipulagi. Lóð 2 er 1.945 fermetrar. Þar er heimilt að byggja 5-15 þjónustu- íbúðir, t.d. sambýli eða álíka hús. Lóð 3 er um 12 þús. fermetrar og skiptist í þrjá byggingarreiti. Á reit- um 1 og 2 er heimilt að byggja léttar byggingar, svo sem gróðurhvelf- ingar. Hámarkshæð hvelfinga frá aðkomuhæð við Stekkjarbakka er 9 metrar en einnig verður heimilt að grafa byggingarnar niður og hafa botnplötu allt að 11,3 metra undir aðkomuhæð við Stekkjarbakka. Alls eru þessir 20 metrar á við 6 hæða blokk. Á reit 3 verður heimilt að reisa tengibyggingu milli hvelfinga. Lóð 4 er 5.418 fermetrar. Þar verður heimilt að byggja allt að 500 fermetra samkomu- og skrifstofu- hús, auk 300 fermetra gróðurhúss. Lóð 5 er 4.432 fermetrar. Það er lóð fyrir sameiginleg bílastæði fyrir lóðir 3 og 4. baldura@mbl.is Teikningar/Landslag Uppdráttur Um er að ræða nýtt skipulag á svæðinu norðan Stekkjarbakka. Þar er skilgreint opið svæði/þróunarsvæði skv. aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, að því er segir í skipulagslýsingu. Nýtt borgarlandslag Þessi skýringarmynd sýnir hvernig mannvirki á lóð 3 gætu litið út, séð úr Elliðaárdalnum, eftir að gróðurhvelfingarnar hafa verið byggðar. Svæðið er nú skógi vaxið. Hvelfingar Horft í átt að lóð 3 frá Hamrastekk eftir að fyrirhugaðar gróðurhvelfingar hafa risið. Gróðurhvelfingar rísi í Elliðaárdal  Reykjavíkurborg kynnir hugmyndir Gönguleið Hvelfingarnar verða áberandi frá göngustígnum austur að stíflunni. Hjólastígurinn er sunnar. Úthlutun styrkja menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs og útnefn- ing Listhóps Reykjavíkur 2019 fór fram í Iðnó í gær. Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð hafði 60.888.000 kr. til úthlutunar til styrkja á sviði menningarmála árið 2019 og veitti vilyrði fyrir 75 styrkj- um og samstarfssamningum fyrir þá upphæð. En fyrir eru 23 hópar með eldri samninga í gildi. Alls var 161 umsókn til meðferðar þar sem sótt var um samtals 209.030.750 krónur. Pawel Bartoszek, formaður ráðsins, gerði grein fyrir úthlutuninni og öðru framlagi borg- arinnar til menningarmála. Hæsta árlega styrkinn hlutu Lókal leiklistarhátíð með þriggja milljóna króna styrk, Pera Óperukollektív og Sýningin Hjólið II sem Myndhöggv- arafélag Reykjavíkur framkvæmir með tveggja milljóna króna styrk og félagið Íslensk grafík með eina og hálfa milljón. Aðrir styrkir nema hæst 1 milljón króna. Um 61 millj- ón í styrki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.