Morgunblaðið - 18.01.2019, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019
Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna,
verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið.
Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent
12in Wall fan Hi-line Sabre Plate
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Hreint loft og vellíðan
Það borgar sig að nota það besta
VENT–AXIA VIFTUR
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Það gengur vel með Hjört sem lauk
krabbameinsmeðferð þegar hann út-
skrifaðist frá Karólínska sjúkrahúsinu
í Svíþjóð en hann þarf enn að taka
krabbameinslyf. Hjörtur fór í jáeinda-
skanna í dag [í gær] og það kemur í
ljós næstu daga hvort hann sé læknað-
ur af krabbameininu eða hvort það
hafi tekið sig upp að nýju,“ segir Íris
Jónsdóttir móðir Hjartar Elíasar
Ágústssonar, níu ára drengs sem
dvaldi ásamt fjölskyldu sinni í Svíþjóð
vegna krabbameinsmeðferðar frá
ágúst og fram í desember á síðasta ári.
Í viðtali við Írisi í Morgunblaðinu í
nóvember kom fram að mikið álag
hefði verið á Hirti, tveimur systkinum
hans og móður sem bjuggu við ein-
angrun í íbúð nálægt Karólínska
sjúkrahúsinu. Það var fjölskyldunni
því mikið tilhlökkunarefni að fá að
fara heim í byrjun desember ef með-
ferð Hjartar gengi áfram vel. Í byrjun
nóvember varð vart við leka á baðher-
bergi heimilis þeirra á Íslandi. Í kjöl-
farið komu í ljós myglu- og raka-
skemmdir á baðherbergi sem taldar
voru hættulegar heilsu Hjartar. Haf-
in var söfnun fyrir fjölskylduna sem
gerði henni kleift, að sögn Írisar, að
komast inn á heimili sitt fyrir jól.
„Við komum heim viku fyrr en
áætlað var og framkvæmdir við bað-
herbergið drógust á langinn. Við
fluttum því til móður minnar og vor-
um þar í þrjár vikur, þar sem sofið
var í öllum hornum. Það var mikil
gleðistund þegar við loksins gátum
farið heim til okkar þremur dögum
fyrir jól,“ segir Íris sem er þakklát
fyrir féð sem safnaðist en án þess
hefði fjölskyldan ekki komist eins
fljótt heim. Hún segir söfnunarreikn-
ing Hjartar: 0115-05-010106, kt
221008-2660 enn opinn.
Íris, sem bíður nú niðurstöðu úr já-
endaskannanum, segir að það muni
miklu fyrir Hjört að geta farið í hann
á Íslandi. Það hlífi honum við ferða-
lögum til og frá Danmörku. Hjörtur
hefði átt að fara í skannann fyrir ára-
mót en myndatökum hefði verið
frestað í tvígang. Í annað skiptið hefði
skanninn verið bilaður og í hitt hefði
vantar efni til rannsóknarinnar.
Glöð að komast heim
Framundan hjá Hirti er að fara
aftur til Svíþjóðar í eftirfylgd. Þar fer
hann í mjög ítarlega skoðun þar sem
líffæri hans og annað verður skoðað
með tilliti til þess hvort og þá hvernig
krabbameinsmeðferðin hafi haft áhrif
á líkama hans.
„Það voru allir rosa glaðir að kom-
ast heim, halda jól og byrja aftur í
skóla en það var mikið átak, sér-
staklega fyrir unglinginn. Ef allt
gengur upp er stefnt að því að Hjört-
ur komist í skólann á þessu ári,“ segir
Íris sem finnst biðin eftir niður-
stöðum úr jáeindaskannanum erfið
og löng en hún segist ekki leyfa sér
annað en að vera bjartsýn á að niður-
stöðurnar verði góðar fyrir Hjört.
Meðferð Hjartar Elíasar gengur vel
Fjölskyldan komst heim þremur dögum fyrir jól Móðir Hjartar þakklát fyrir aðstoð sem fjölskyldan
fékk Erfið og löng bið eftir niðurstöðum úr jáeindaskanna Hjörtur á leið til Svíþjóðar í eftirfylgd
Hetja Hjörtur Elías Ágústsson, í jáeindaskanna, en
Hjörtur hefur staðið í ströngu í baráttu við krabbamein.
Gleði Hjörtur Elías og systir hans Sigrún skreyttu
jólatré heima eftir fjögurra mánaða útlegð í Svíþjóð.
Einkarekni unglingaskólinn NÚ-
Framsýn fagnaði því í gær að vera
kominn í nýtt húsnæði á Reykjavík-
urvegi 50 í Hafnarfirði, þar sem
Krónan var áður til húsa.
Þetta er þriðji veturinn sem skól-
inn starfar en hann býður upp á nám
í 8.-10. bekk. Fyrstu tvo veturna var
skólinn til húsa í Flatahrauni en
missti það húsnæði sl. sumar. Síðan í
haust var NÚ í bráðabirgðahúsnæði
á Völlunum á meðan verið var að
innrétta nýja húsnæðið eftir óskum
og þörfum stjórnenda skólans.
Gísli Rúnar Guðmundsson, skóla-
stjóri og annar stofnenda NÚ ásamt
Kristjáni Ómari Björnssyni, segir
ánægjulegt að komast í stærra og
rýmra húsnæði. Nemendum hefur
fjölgað jafnt og þétt; voru 35 fyrsta
veturinn, síðan 48 og eru núna um 60
talsins. Nýja húsnæðið er um 600
fermetrar, með möguleika á stækk-
un síðar meir.
Gísli Rúnar segir skólann ekki
ætla að vera með fleiri en 80-90 nem-
endur. „Við viljum meiri nánd, þar
sem allir þekkja alla,“ segir Gísli.
Starfsmenn NÚ eru níu, þar af eru
fjórir í fullu starfi. bjb@mbl.is
Ljósmynd/NÚ-Framsýn
Tímamót Frá opnunarhátíð NÚ-Framsýnar í Hafnarfirði í gær.
Unglingaskólinn NÚ
í stærra húsnæði
Nemendum hefur fjölgað úr 35 í 60