Morgunblaðið - 18.01.2019, Síða 24

Morgunblaðið - 18.01.2019, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019 ✝ Þórir FinnurHelgason fæddist á Geirólfs- stöðum í Skriðdal 27. júní 1926. Hann lést á Landspítal- anum í Fossvogi 4. janúar 2019. Foreldrar hans voru Helgi Finns- son frá Geirólfs- stöðum í Skriðdal og Jónína Bene- diktsdóttur frá Þorvaldsstöðum í Skriðdal. Þórir átti tvær syst- ur; Valborgu sem lést 2015 og Guðrúnu Benediktu sem lést 2018. Þórir kvæntist Sigurbjörtu Vigdísi Björnsdóttur á gamlárs- dag 1953. Foreldrar hennar voru Ingibjörg Þórarna Dag- bjartsdóttir frá Gröf á Rauða- sandi og Björn Erlendsson frá Breiðabólsstöðum á Álftanesi. Börn þeirra eru: 1) Ingibjörg Halla, fædd 1953, maki Bárður dóttir. Börn: a) Ingvar Þór, son- ur Guðjóns Guðmundssonar, maki Ásdís Petra Oddsdóttir, börn þeirra eru: Andri Steinn, Thelma Kristín og Dagur Logi, b) Reynir Örn, maki Tanja Dögg Arnardóttir. Börn þeirra eru: Styrkár Vatnar, Kjalvör Brák og Skjöldur Vindar. Þórir flutti til Reykjavíkur 1949 og vann ýmsa verka- mannavinnu þar til hann hóf tré- smíðanám. Hann útskrifaðist 1955 og lauk meistaranámi í húsasmíði 1966. Rak hann ásamt Magnúsi Kristjánssyni trésmíða- verkstæði, fyrst í Skipholti 7 og síðan Ármúla 38. Frá árinu 1978 starfrækti hann eigið trésmíða- verkstæði að Kópavogsbraut 106. Hann bjó frá árinu 1956 í Kópavogi, þar sem hann byggði ásamt eiginkonu sinni íbúðarhús að Fífuhvammsvegi 33 og síðar að Iðalind 3. Einnig smíðaði hann sér skemmtibát og báta- skýli á Álftanesi. Hann þótti ein- stakur hagleiksmaður. Þórir var félagi í Meistarafélagi húsa- smiða. Útför Þóris fer fram frá Lindakirkju í dag, 18. janúar 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. A. Sveinbjörnsson. Börn: a) Þórir, maki Erla Björk Sigmundardóttir, synir: Sölvi Már og Tristan, b) Örvar Atli, maki Kanya Hanklang, sonur: Jakob Snær, c) Gunnlaugur, dóttir: Elín Inga, móðir hennar er Stella María Blöndal. Þórir, Örvar Atli og Gunnlaugur eru synir Þorgeirs Gunnlaugs- sonar, d) Berglind Ósk, maki Einar Jónsson, synir: Jón Pálmi og Arnar og synir Einars, Bjart- ur Kári og Nói Már. 2) Helgi, fæddur 1955, maki Sigríður Pálsdóttir. a) Helga Rún, maki Rob Kamsma, synir: Thomas Helgi, Elías Kári og Yngvi Már. b) Vigdís Ósk, maki Lýður Gunnarsson, synir: Arnar Freyr og Heiðar Ingi. 3) Björn, fæddur 1957, maki Kristín Garðars- Í dag kveðjum við föður minn, sem lést eftir langa og gifturíka ævi. Hann fæddist á Geirólfsstöðum í Skriðdal en flutti ungur að árum til Reykja- víkur og lærði trésmíðar hjá Helga Hóseassyni. Árið 1953 var viðburðaríkt í lífi foreldra minna. Þau eign- uðust fyrsta barn sitt og byrj- uðu að koma sér þaki yfir höfuðið og byggðu hús á Fífu- hvammsvegi 33 í Kópavogi og árið endaði á því að þau giftu sig 31. desember. Á næstu þremur árum stækkaði barna- hópurinn og við bræður komum til. Þar bjuggu þau allt fram undir 1998 er þau á gamalsaldri byggðu sér hús í Iðalind 3. Á unglingsárum mínum þurftu foreldrar mínir að hafa mikið fyrir mér, það þekktust ekki neinar greiningar á börn- um eða unglingum. Þeir voru bara óþekkir og með vandræði. Í þessari stöðu var það hlutverk föður míns að búa til verkefni sem fangaði athygli orkumikils unglings. Þetta fólst meðal ann- ars í hjálpa mér að gera upp gamlan jeppa þegar ég var 16 ára. Það má segja að þessi hugsunarháttur hafi fylgt hon- um alla tíð, því síðar á lífsleið- inni höfum við öll systkinin not- ið þess að hafa þennan sterka og góða bakhjarl í þeim verk- efnum sem við höfum ráðist í. Þó að ég hafi ekki fetað í fót- spor föður míns og lært tré- smíðar naut ég þess í gegnum tíðina að fá leiðsögn hjá honum við smíðar og hefur það reynst mér gott veganesti út í lífið. Þá kunnáttu sem ég hef á smíðum í dag má ég þakka dyggum stuðningi hans þegar ég var að feta mig inn á þá braut að verða sjálfbjarga í smíðum. Helsta áhugamál föður míns var bátur sem hann smíðaði 1976 og fékk nafnið Sæfinnur sem er þekkt bátsnafn úr móð- urfjölskyldu minni. Þær voru ófáar ferðirnar sem foreldrar mínir fór á Sæfinni með vini og afkomendur, og barnabörnin allt frá því þau voru farin að standa í lappirnar. Ég hef notið þess að fara margar ferðir á Sæfinni til að veiða bæði fisk og fugl. Síðasta ferðin sem pabbi fór með mér var vorið 2016 þeg- ar við Hjalti félagi minn fórum út á Syðrahraun, að veiða þorsk og svartfugl. Að komast á Sæ- finni út á sjó var hans líf og yndi. Árið 1988 fékk faðir minn al- varlegt hjartaáfall sem átti eftir að gjörbreyta lífi hans. Þarna skall hurð nærri hælum. Eftir þetta fór hann að átta sig á að góð heilsa er ekki sjálfgefin. Kominn á sjötugsaldur fór hann ásamt mömmu að stunda fjall- göngur af þvílíkum krafti að aðdáunarvert var. Fóru þau með bakpoka og göngutjaldið um óbyggðir Íslands. Við konan mín fórum margar ferðir með þeim til fjalla á þessum árum. Það var ekki fyrr en hann var kominn á níræðisaldur að draga fór úr þessu. Faðir minn var heilsuhraust- ur alla tíð, eða allt til loka árs 2018 þegar kraftar tóku að þverra. Minningin um þig mun lifa í hjarta mér. Helgi Þórisson. Það er margs að minnast þegar pabbi er fallinn frá og erfitt að setja það á blað en pabbi var einn af þeim sem unnu alla tíð mikið en samt man ég eftir því að hann virtist hafa tíma til að sinna fjölskyldunni líka. Það var farið í ferðalög um landið, bíltúra á sunnudögum og skíði á einhverja hóla í ná- grenninu. Þegar ég fór að fá áhuga á bílum og þurfti aðstoð við að laga og breyta var hann alltaf nálægur. Þegar ég var 15 ára gerði hann upp jeppa með Helga og eftir það smíðaði hann sér bát og bátaskýli. Síðan þeg- ar ég var 18 ára gerði hann upp jeppa með mér þannig að það var alltaf tími til að sinna okkur. Ég lærði húsasmíði hjá pabba en vann ekki alltaf hjá honum en nokkrum árum eftir að ég kláraði námið fór ég að vinna meira á verkstæðinu með honum og var verið að sérsmíða innréttingar sem pabbi kunni best og er eftir hann mörg listasmíðin víða um bæinn. Einn sem hann smíðaði mikið fyrir segir að hann hafi ekki bara verið vandaður smiður heldur líka listamaður. Ef eitt- hvað var flókið sem þurfti að leysa var pabbi með lausnirnar á hreinu og hann hafði þá náðargáfu að sjá verkefnin fyrir sér og var jafnvel búinn að leysa vandamálin áður en smíð- in hófst og hef ég reynt að til- einka mér þetta. 1988 breyttist margt hjá pabba en þá fékk hann hjarta- áfall og nokkrum árum síðar gekkst hann undir stóra hjarta- aðgerð. Hann var strax staðráð- inn í að ná sér upp úr þessu; með endalausum göngutúrum, fyrst stuttum, síðan lengdust göngurnar dag frá degi og urðu loks að margra daga bakpoka- ferðum um hálendið. Einnig var farið víða um heim en við áföll í lífinu fór hann að horfa öðruvísi á lífið. Þegar við Kidda fórum að byggja 2004 var pabbi 78 ára. Þá smíðaði hann allar innrétt- ingarnar með aðstoð okkar mömmu og kom einnig að bygg- ingunni. Honum fannst hann aldrei gamall og hafði þessa endalausu þörf fyrir að gera eitthvað og naut ég góðs af því. Minningin um pabba lifir með mér. Þinn Björn (Bjössi). Elskulegur tengdafaðir minn er látinn. Margs er að minnast eftir rúmlega 40 ára kynni. Hann var einstakur þegar kom að því að hjálpa öðrum, dugleg- ur, ósérhlífinn og vandvirkur í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. Marga fallega hluti hef- ur hann smíðað fyrir okkur Bjössa í gegnum tíðina. Ekki má gleyma ferðalögunum og yndislegum samverustundum með fjölskyldunni. Ógleyman- legt er svo þegar hann kom til að borða með okkur hangikjötið á jóladag, orðinn mjög veikur. Fyrir þá stund þakka ég sér- staklega og allar aðrar góðar stundir. Guð blessi minningu Þóris Helgasonar. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Bjarni Jónsson frá Gröf) Kristín (Kidda). Elsku Þórir afi okkar, við kveðjum þig með miklum sökn- uði en einnig með þakklæti í huga fyrir að hafa fengið að njóta þess að eiga allan þennan tíma með þér. Minningarnar streyma fram þar sem við sitjum hér við eitt af þínum verkum, skrifborð sem þú smíðaðir og við fengum í fermingargjöf. Það vita það allir sem þekktu afa að hann var mikill hagleiksmaður, sem sést glöggt á þeim hlutum sem hann smíðaði. Allt var úthugsað og gert af mikilli vandvirkni. Mér er minnisstætt eitt atvik frá grunnskólaárunum, þegar ég var í smíðatíma. Ekki hafði mér tekist vel til við smíðina á klukku, svo ég fékk að taka verkið með mér heim, hugsandi gott til glóðarinnar vitandi af þeirri hjálp sem mér stóð til boða. Það var auðvelt að leita til afa um aðstoð og kunni hann ráð til að bjarga mér út úr þeim vandræðum sem ég hafði komið mér í. Eins og afa var einum lagið gerði hann gott betur en það, eftir hans lagfæringar var klukkan auðvitað mun flottari og betri en ég hefði mögulega getað gert eins míns liðs. Afi hafði mjög gaman af að fylgjast með barnabörnum sínum læra handverkið. Við erum afar þakklátar fyrir allar minningar sem hann skilur eftir sig, ferðalög erlendis sem og innanlands. Sérstaklega er minnisstæð gönguferðin sem við fórum með honum og ömmu frá Landmannalaugum til Þórs- merkur og dagsferðin sem við fórum með þeim til Grænlands. Smíðina hann afi kunni, á verkstæðinu sér vel undi, þar nú allt hljóðnað hefur, á meðan elsku afi sefur. Elsku afi, hvíldu í friði. Helga og Vigdís. Ég man eftir honum Þóri, mínum kæra mági, þegar hann kom til Breiðabólstaða með systur minni, Vigdísi, til að heimsækja foreldra okkar. Það sem vakti mesta athygli mína, 8-9 ára stráks, var að hann átti forláta Ford-rútubíl og máttum við krakkarnir fara inn í bílinn og leika okkur án þess að Þórir amaðist út af því. Þarna kom strax í ljós hvaða mann Þórir hafði að geyma enda aldrei fallið styggðaryrði til mín í þau 65 ár sem ég þekkti hann. Það verða ekki skrifaðar nokkrar línur um Þóri án þess að minnast á smíðavinnu hans. Fyrir um 40 árum smíðaði Þórir innréttingar í hús sem ég byggði í Hafnarfirði. Uppi voru hugmyndir fyrir nokkrum árum að endurnýja þessar innréttingar og fengum við fagmann til að líta á það verk með það í huga að setja eitthvað nýtískulegt í staðinn. Við fengum bara eitt svar: „Þið munuð aldrei fá svona vel smíð- aðar innréttingar og þetta tök- um við ekki niður,“ enda eru innréttingarnar enn í húsinu og verða þar áfram, enda lista- smíði. Það voru margar heimsóknir til þeirra hjóna á Fífuhvamms- veginn, alltaf vel veitt í mat og drykk, sérstakur heiður að fá að sitja Þóri til hægri handar og það einnig þegar við spil- uðum brids en hann var vel lið- tækur bridsspilari og var hann góður kennari fyrir mig í þeirri spilamennsku. Við hjónin ferðuðumst tals- vert með Þóri og Vigdísi, bæði innan lands og utan, en sterk- ust er minningin er við gistum á sveitahóteli og við Þórir sátum seinnipart dags þar úti á ver- öndinni með guðaveigar sem við dreyptum á og horfðum niður iðjagrænan hlíðarás með kjarr- beltum og búfénaði á beit. Þetta er minning sem ég ætla að geyma í hjarta mínu um minn kæra mág. Kæra Vigdís og fjölskylda, mínar hjartans samúðar- kveðjur. Dagbjartur Björnsson. Þórir Finnur Helgason var Héraðsmaður, fæddur og uppal- inn að Geirólfsstöðum í Skrið- dal. Ungur að árum hélt hann til Reykjavíkur og lærði smíðar. Við þær starfaði hann alla tíð. Hann var vinnusamur maður og vann langt fram undir nírætt. Í öllum skilningi ræktaði hann garðinn sinn vel. Um nokkurra ára skeið í kringum 1930 var faðir minn, Jón S. Einarsson, fóstraður á Geirólfsstöðum hjá foreldrum Þóris, Jónínu Benediktsdóttur og Helga Finnssyni. Þar naut hann góðs atlætis og tengslin við Geirólfsstaðafólkið rofnuðu aldrei. Sérstaklega var þó kært með þeim pabba og Þóri; pabbi leit á hann sem uppeldisbróður sinn, enda þótt árin sem þeir áttu saman væru ekki svo mörg. Það var líka kært með mömmu, Þorbjörgu Vilhjálms- dóttur, og Þóri sem og hans góðu konu, Vigdísi Björns- dóttur. Gleðistundirnar voru margar, einkum þó hér syðra á sérlega notalegu heimili þeirra Þóris og Vigdísar þar sem allt- umlykjandi gróðurinn var svo nærandi. Að mömmu og pabba gengnum hafði Þórir eitt sinn orð á því hve hann saknaði þeirra. „Þau mamma þín og pabbi voru okkar bestu vinir,“ sögðu þau við mig við fráfall pabba. Vigdísi og öllum ástvinum Þóris votta ég einlæga samúð mína um leið og ég þakka af al- hug fyrir vináttu og tryggð við foreldra mína. Hún var þeim og okkur afkomendum þeirra mik- ils virði. Sé Þórir kært kvaddur. Margrét Jónsdóttir. Þóri Helgasyni húsasmíða- meistara kynnist ég fyrir um 40 árum þegar hann hóf að vinna ýmis smíðaverkefni fyrir for- eldra mína. Tókst góð vinátta með þeim og hjónunum Þóri og Vigdísi. Þórir hafði þá nokkru áður komið sér upp smíðaverk- stæði við Kársnesbraut og vann þar einn, mest við smíði innrétt- inga. Fljótlega kom í ljós að við Þórir vorum fjórmenningar að frændsemi, báðir afkomendur Vilborgar Eiríksdóttur og Magnúsar Bergssonar sem á nítjándu öld var prestur í Hey- dölum um áratuga skeið. Allt sem Þórir lét frá sér var einstaklega vandað og vel gert. Hann þoldi ekki fúsk eða óvönduð vinnubrögð og taldi uppmælingu leiða af sér lélegt handverk, vildi einungis vinna tímavinnu. Þórir var afar sann- gjarn í verðlagningu, iðulega um of. Árið 1984 tók Þórir að sér að vera meistari að einbýlishúsi sem við Sigurrós byggðum í Reykjavík. Með og undir leið- sögn Þóris vann ég öllum laus- um stundum um tveggja ára skeið, bæði á byggingarstað og á verkstæðinu. Það var hrein unun og mikill lærdómur að vinna með honum að húsbygg- ingu og innréttingasmíði. Hann sá ekki bara um sinn þátt held- ur hafði vakandi auga með því sem aðrir iðnaðarmenn voru að gera og fann iðulega lausnir á vandamálum sem aðrir komu ekki auga á. Þórir var ákaflega útsjónarsamur og nýtinn; ég lærði fljótt að varla er til sú spýta sem ekki er hægt að nota til einhvers. Sóun verðamæta var honum ekki að skapi. Þegar Þórir var tæplega 62 ára fékk hann alvarlegt hjarta- áfall, fór í hjartastopp en var svo lánsamur að sjúkrabíll var kominn á staðinn og endurlífg- un tókst. Í kjölfarið fór hann í mikla kransæðaaðgerð og end- urhæfingu. Hann gjörbreytti lífsháttum sínum, fylgdi stað- fastlega reglum um mataræði og hreyfingu og gekk úti marga kílómetra dag hvern. Þórir náði heilsu og lifði í nær 31 ár til viðbótar. Á þeim árum var ég oft gestur á verk- stæði hans þar sem hann smíð- aði alls konar innréttingar fyrir okkur fram á níræðisaldur. Síð- ast gerði hann listilega vel upp fyrir okkur gamalt og mjög illa farið skrifborð úr búi langafa míns. Þórir og Vigdís bjuggu lengi við Fífuhvammsveg í Kópavogi en laust fyrir aldamótin fluttu þau í nýbyggt einbýlishús í Lindahverfi sem Þórir innrétt- aði á sinn dverghaga hátt. Þar ræktuðu þau afar fallegan blómagarð sem Vigdís annaðist af smekkvísi. Þórir var ekki bara einstakur smiður. Með honum er genginn einstakur maður sem hafði sér- lega þægilega nærveru, rólegur, kurteis og fróðleiksfús en gat verið ákveðinn og fylginn sér ef á þurfti að halda. Við Sigurrós sendum Vigdísi og fjölskyldunni okkar innileg- ustu samúðarkveðjur og hugs- um til Þóris með þakklæti og hlýju. Megi hann hvíla í friði. Ólafur G. Flóvenz. Vinur minn, Þórir Helgason húsasmíðameistari, er látinn. Vinskapur okkar byrjaði fyrir 65 árum þegar við unnu báðir í sama húsi í Skipholtinu. Ég bað hann að smíða fyrir mig tré- ramma 70x140 cm fyrir vegg- teppi. Hann tók mér vel og smíðaði þetta fljótt og vel. Ég taldi lítið mál að búa til fjóra lista og festa þá saman og málið leyst og að þetta myndi kosta lítilræði. Ég varð því mjög undrandi þegar hann sagði mér hvað þetta kostaði, mér fannst þetta rándýrt hjá honum. Þegar ég fór að skoða rammann betur þá sá ég að ramminn var lista- smíð og entist mér í áratugi og hann vakti athygli hjá gestum, þessi einfaldi hlutur á vegg. Þannig var Þórir, hann gat ekki smíðað annað en listaverk. Skipti ekki máli hvort verið væri að smíða heilt hús eða lít- inn ramma. Samt sem áður var alls ekki dýrt að láta Þóri smíða fyrir sig, sem dæmi vantaði mig einu sinni eldhúsinnréttingu. Á þeim tíma var farið að flytja inn tilbúnar eldhúsinnréttingar í einingum. Ég valdi mér eina og verðið á henni var mjög hag- kvæmt miðað við markaðinn hér. Ég sýndi Þóri þetta tilboð og spurði hvort hann gæti boðið betur. Hann var fljótur að svara og sagði að hann skyldi smíða innréttinguna á einfaldari hátt og setja hana upp fyrir mig fyr- ir sama pening og ég ætlað að kaupa þessa innfluttu á óupp- setta. Hann sagðist einnig vera ánægður með sinn hlut í þessu dæmi. Það gekk eftir, hann smíðaði fyrir mig innréttinguna sem var einfaldari en bæði vönduð og falleg. Eftir þetta sat Þórir uppi með mig allan sinn starfsferil. Mig grunar að flest- ir sem Þórir vann fyrir hafi ver- ið á sama báti og ég. Mínar uppáhaldsstundir voru þegar Þórir var að vinna fyrir mig verk, að fá að vera með honum á verkstæðinu og sjá hann vinna og að læra af hon- um. Hann var ótrúlega útsjón- arsamur og laginn og hvernig hann stóð að verki var kafli út af fyrir sig. Ég ræddi þetta við hann einu sinni og hann sagði að þetta stafaði líklega af því að hann vann eiginlega alltaf einn. Þegar sest var inn á kontórinn að drekka kaffi var mikið spjall- að, hann var mjög fróður um ýmis málefni og einnig fróð- leiksfús. Einn kaffitíminn fór í að útskýra fyrir honum „prin- sippið“ á bak við þotuhreyfil og var hann fljótur að skilja það. Á þessum árum voru þau hjónin mikið að ferðast bæði innanlands og utan og var gam- an að heyra hann segja sögur af hinum ýmsu ferðalögum þeirra. Þegar mikið var að gera á verkstæðinu hljóp Vigdís kona hans undir bagga og hjálpaði honum við hin ýmsu verk. Einu sinni skemmdist innihurð hjá mér. Ég bað Þóri að bjarga málinu en hann var önnum kaf- inn en sagði þó ég fæ Vigdísi til að vinna þetta. Það gekk eftir – Vigdís vann verkið, slípaði og sprautulakkaði hurðina og hún varð eins og ný. Þau hjónin unnu vel saman. Þórir var ákaf- lega greiðvikinn og þau eru orð- in mörg verkfærin, eða kerran, sem hann hefur lánað mér gegnum árin. Það er mikið lán í lífinu að eignast góðan prest, heimilis- lækni og ekki síst góðan smið í lífsins ólgusjó. Fyrir það þakka ég Þóri að leiðarlokum og votta fjölskyldu hans samúð mína. Rúnar Guðbjartsson. Þórir Finnur Helgason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.