Morgunblaðið - 18.01.2019, Side 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019
✝ Ingibjörg EthelDaníelsdóttir
fæddist í Reykjavík
31. desember 1943.
Hún lést á líknar-
deild Landspítalans
9. janúar 2019. For-
eldrar hennar voru
hjónin Guðrún B.
Egilsdóttir frá
Hlíðarhúsum á
Snæfjallaströnd, f.
11. maí 1920, d. 19.
maí 1988, og Daníel Níelsson frá
Öravík í Færeyjum, f. 31. ágúst
1922, d. 31. október 1995. Ingi-
björg var elst fimm systkina en
systkini hennar voru Elsabet
Daníelsdóttir, f. 1949, Guðrún
Jóhanna Gunnarsdóttir, f. 1960,
og eiga þau Ingibjörgu Aldísi
Hilmisdóttir, f. 1992, og Guð-
rúnu Maríu Magnúsdóttur, f.
1985. 2) Sigurður Reynisson, f.
1963, giftur Hildi Kristínu Frið-
riksdóttir, f. 1968, og eiga þau
Rakel Sigurðardóttur, f. 1989,
Hilmi Júlíus Sigurðsson, f. 1997,
Ethel Sigurðardóttur, f. 2000, og
Ísak Sigurðsson, f. 2002. 3) Daní-
el Reynisson, f. 1970, giftur Sól-
rúnu Rúnarsdóttir, f. 1974, og
eiga þau Rúnar Inga Daníelsson,
f. 2004, Sölva Þór Daníelsson, f.
2008, og Guðrúnu Klöru Daníels-
dóttur, f. 2011. 4) Egill Rúnar
Reynisson, f .1976, giftur Ingu
Birnu Traustadóttur, f. 1975, og
eiga þau Viktoríu Egilsdóttur og
Franklín Egilsson, f. 2009.
Útförin fer fram frá Áskirkju
í Reykjavík í dag, 18. janúar
2019, klukkan 13. Jarðsett verð-
ur í Lindakirkjugarði í Kópa-
vogi.
Árný, f. 1950, d.
1951, Guðrún Rann-
veig Daníelsdóttir,
f. 1954, maki Björn
Jóhannsson, f. 1950,
og Níels Egill Daní-
elsson, f. 1956, maki
Auður J. Stefáns-
dóttir, f. 1956.
Hún giftist Reyni
Sigurðssyni árið
1962. Þau skildu ár-
ið 1981. Ingibjörg
hóf árið 1981 sambúð með Jóni
Sigurðssyni, f. 1953, þau giftu
sig árið 2000.
Synir Ingibjargar og Reynis
eru 1) Hilmir Reynisson, f. 1961,
d. 1995. Sambýliskona hans er
Aðfaranótt miðvikudagsins 9.
janúar kvaddi tengdamóðir mín
þessa jarðvist.
Ég man eins og gerst hafi í
gær þegar ég kom í fyrsta sinn á
Hjaltabakkann með Daníel mín-
um fyrir rúmum 25 árum og var
enn varla komin af unglingsaldri.
Ég varð eftir heima meðan hann
sinnti hugðarefnum sem ég man
ekki lengur hver voru, en þau
tóku allan daginn. Þið Nonni
gerðuð ykkar besta til ræða við
þessa ungu feimnu sveitastelpu
sem sat og las Sjálfstætt fólk og
ég man að Nonni hafði sérstakar
áhyggjur af því hvað ég vildi lítið
borða. Ég fann þó strax fyrir
þeirri ótrúlegu hlýju sem þú
bjóst yfir.
Þegar við svo síðar fluttum til
Reykjavíkur tókstu á móti okkur
á heimili þínu á meðan við biðum
eftir íbúð sem við höfðum keypt í
borginni. Það var ómetanlegt og
þú studdir mig og varðst sem
mín önnur móðir þegar mér
fannst höfuðborgin stór og yfir-
þyrmandi. Ég man að ég var bú-
in að ráða mig í vinnu við umönn-
un á barnadeild á Kópavogshæli.
Það óx mér í augum að þurfa að
taka strætó alein alla leið úr
Breiðholtinu og út á Kársnes.
Þetta skildir þú mætavel, lánaðir
mér bílinn þinn og hjálpaðir mér
í fyrstu ökuferðunum en ég var
alls óvön að keyra á stórum göt-
um borgarinnar. Með þolinmæði
og hvatningu tókst þetta allt
saman þó að ég hafi nú drepið
nokkrum sinnum á bílnum upp
brekkuna á Bústaðaveginum.
Þegar svo von var á frumburð-
inum okkar höfðum við fest kaup
á stærri íbúð sem hentaði betur.
Það fór þó þannig að við þurftum
að afhenda íbúðina á þeim tíma
sem barnið átti að fæðast og
fengum ekki nýju íbúðina af-
henta fyrr en nokkrum vikum
eftir að hann fæddist. Þá lagðir
þú til að við yrðum hjá ykkur
Nonna á meðan. Drengurinn lét
bíða eftir sér og þá var yndislegt
að fá að njóta hlýju þinnar og
nærveru. Ég var bæði kvíðin og
spennt, það skildir þú vel og
hvattir mig og hughreystir. Þeg-
ar hann var fæddur var stuðn-
ingurinn ómetanlegur. Við for-
eldrarnir í nýju hlutverki og þá
var gott að leita í viskubrunn
þinn. Það var líka yndislegt að
fylgjast með Nonna þennan
tíma, sem hafði aldrei umgengist
ungbarn fyrr og sjá hvað hann
naut þess að hafa krílið hjá sér. Í
dag eiga þeir Nonni og Rúnar
Ingi líka einstaklega sterkt og
fallegt samband.
Það var alltaf gott að koma til
þín og þú tókst alltaf hlýlega á
móti manni með faðmlagi og
kossi. Þér var mikið í mun að
reynast okkur tengdadætrum
þínum ekki afskiptasöm. Þú vild-
ir þó leiðbeina og með nærgætni
þinni ráðlagðir þú okkur sem
ávallt var kærkomið og ég held
að við hefðum ekki getað verið
heppnari með tengdamóður. Þú
varst einstaklega góð við barna-
börnin þín og þau hændust að
þér á hvaða aldri sem þau voru.
Eftir að þú veiktist fyrir tæp-
um tveimur árum fylgdi ég þér
oft ýmist á bráðamóttökuna eða
annað sem þurfti vegna veikind-
anna. Þú sýndir ótrúlega yfir-
vegun og styrk í þeim verkefnum
sem voru lögð á þig í því ferli og
lagðir þig fram um að njóta
hverrar stundar til hins ýtrasta.
Nú síðast um jól og áramót þeg-
ar við héldum upp á 75 ára af-
mælið þitt öll saman heima í Ár-
sölunum. Minningarnar um það
eru okkur aðstandendunum
ómetanlegar.
Sagt er að sorgin sé gríma
gleðinnar. Það eru orð að sönnu,
við syrgjum vegna þess að við
höfum glaðst. Og gleðistundirnar
sem við geymum í hjarta okkar
og minnumst af þakklæti eru ótal
margar og efst í huga mér er
þakklæti fyrir allt.
Guð fylgi þér.
Þín tengdadóttir,
Sólrún.
Margar af bestu minningum
mínum úr barnæsku eru síðan ég
var hjá ömmu á Hjaltabakkanum
og fékk að kúra hjá henni í stóra
hjónarúminu með bollann minn
sem enn er til, og við horfðum
saman á uppáhaldsbarnaefni
mitt sem hún hafði auðvitað tekið
upp á spólu svo við gætum horft
á það aftur og aftur. Við fengum
okkur „fitubollukók“ (Coke
light), og ég fékk að narta í þurr-
ar brauðsneiðar sem hún geymdi
í ofninum, til að búa til sitt eigið
rasp.
Það var alltaf svo hlýtt og gott
hjá ömmu og við skemmtum okk-
ur alltaf konunglega.
Eftir að við fluttum til Dan-
merkur töluðum við amma oft
saman í síma og því man ég enn
heimanúmerið hennar sem ég
mun seint gleyma. Árið 2016
kom amma og dvaldi hjá mér í
Vejle, og hér skemmtum við okk-
ur líka eins og enginn tími hefði
liðið. Við fórum á tónlistarhátíð
þar sem hún dansaði eins og
væri hún tvítug, fórum að versla,
settum á okkur andlitsmaska og
hlógum þangað til okkur verkjaði
í magann.
Amma eltist eiginlega aldrei
og var alltaf svo hress, alveg
þangað til hún veiktist. Fáir eiga
ömmu sem bæði orti fallegustu
ljóðin, bjó til sínar eigin bækur
og hafði allar ljóðabækurnar sín-
ar á sinni eigin heimasíðu á net-
inu. Hún var alveg frábær kona
og ég lít svo upp til hennar og
mun alltaf gera.
Amma Ingibjörg var ein besta
vinkona sem ég hef átt og ég
mun sakna hennar sárlega. Það
var hægt að tala við hana um allt
án þess að mæta nokkrum for-
dómum og alltaf gaf hún manni
góð ráð. Ég á ekkert nema góðar
minningar um þessa frábæru
konu sem var svo umhyggjusöm,
kærleiksrík og skemmtileg.
Þegar amma veiktist kom ég
oftar og heimsótti hana, síðast í
september 2018. Þá eyddum við
heilum degi í dekur þar sem við
hlustuðum á tónlist og ég lagaði
á henni neglurnar sem voru allt-
af svo fínar. Þar sem við kom-
umst ekki út að versla var það
gert á ipadinum í staðinn og á
meðan töluðum við um næstu
ferð hennar til útlanda þar sem
við myndum njóta sólarinnar
saman og fá okkur mojito, sem
henni fannst hljóma svo girni-
lega. Þetta voru indælir dagar
sem við áttum saman og minn-
inguna um þá mun ég geyma í
huga mér meðan ég lifi.
Amma var hörkukona sem
ætlaði sér að verða 75 ára þrátt
fyrir veikindin, og auðvitað náði
hún því markmiði, því hún náði
yfirleitt öllum þeim markmiðum
sem hún setti sér. Ég talaði við
hana í síðasta sinn á 75 ára af-
mælisdaginn hennar, 31. desem-
ber. Þá sagðist hún vona að 2019
yrði betra ár fyrir okkur báðar
og hló. Svo bætti hún við að nýja
árið yrði nú sennilega ekki betra
fyrir hana, en það yrði þá bara
tvöfalt betra fyrir mig.
Amma mín var húmoristi til
síðasta dags og fannst að við
mættum aldrei missa húmorinn.
Ég hugsa til hennar með bros á
vör og hjartað fullt af kærleika.
Nú flyt ég í burtu, á fjarlægan stað,
fagnandi, en horfi yfir jarðlíf og haf
á englanna vængjum sem veita mér
fró,
vernduð af almætti í alheimsins ró.
(Úr „Vistaskiptum“ eftir ömmu Ingi-
björgu)
Tveimur dögum eftir að amma
lést dreymdi mig að við værum
komnar á sólarströnd og værum
að fá okkur mojito.
Blessuð sé minning elsku
ömmu Ingibjargar.
Rakel H. Sigurðardóttir.
Ingibjörg, Inga, Búgga,
Didda. Þetta eru nöfnin hennar
systur minnar svona eftir því
hver notar þau. Við nánasta fjöl-
skylda, vinir og vinnufélagar
seinni ára kölluðum hana Diddu.
Vinahópar frá unglingstíma-
bilinu og árunum þar um kring
notar Búggu-nafnið. Færeysku
ættmennin nota eingöngu Ingi-
bjargar-nafnið og svo blandast
þetta allt saman og Ingu nafnið
heyrist notað hér og þar. Hún
Didda sagði eitt sinn við mig að
það væri orðið erfitt að senda
jólakortin þar sem hún vissi
varla hvaða nafn hún ætti að
setja undir hvert kort.
Það var sárt að fylgjast með
því hvernig Didda mín, þessi
hörkuduglega og hressa kona,
missti þrek og kraft og varð að
lokum að láta í minni pokann fyr-
ir krabbanum. Hún tók veikind-
um sínum af miklu æðruleysi og
var mjög þakklát öllum ættingj-
um og vinum sem af veikum
mætti reyndu að létta henni
róðurinn.
Hún var búin að segja það í
haust að hún ætlaði ekki að fara
fyrr en eftir 75 ára afmælið sitt
sem var á gamlársdag og hún
náði að skapa ógleymanlegar
minningar með fjölskyldu og vin-
um um jól og áramót.
Didda var mjög stolt af hópn-
um sínum enda hafði hún vel efni
á því. Þau eru hvert öðru ynd-
islegra og Nonni minn, þú hefur
svo sannarlega sinnt þinni konu
af mikilli umhyggju og alúð sem
hún mat mikils.
Didda átti mjög auðvelt með
að setja saman ljóð og við ætt-
ingjar og vinir eigum nokkur
ljóðahefti sem hún sendi okkur
sem jólakveðju í gegnum árin.
Ég kveð mína elskulegu syst-
ur með þökk fyrir allt og allt og
læt fylgja með eitt af ljóðum
hennar, Ferðin til ljóssins, frá
2014:
Í himinsins hásal er áfanga náð
þar hamingja ríkir með lausnir og ráð
að lífsdegi loknum og sálin þreytt
lausnarans máttur fær öllu breytt.
Heilög er trú frá barnsins hjarta
um hjálpræði engla og ljósið bjarta.
Elsku Nonni, Siggi, Danni,
Egill, Hanna og fjölskyldur.
Innileg samúðarkveðja til
ykkar allra og við biðjum Guð að
blessa minningu dásamlegrar
konu og að hann gefi að ljúfar
minningar, mildi sárustu sorgina
og söknuðinn.
Guðrún Rannveig
Daníelsdóttir,
Björn Jóhannsson.
Elsku Didda frænka mín.
Óboðinn vágestur bankaði á
dyr þínar á vormánuðum 2017 og
sat sem fastast þrátt fyrir hetju-
lega baráttu. Þótt það sé óendan-
lega sárt að þú sért farin er ekki
annað hægt en að vera þakklát
fyrir að þú sért laus undan þeim
þjáningum sem sjúkdómnum
fylgdu.
Á stundum sem þessum er
óhjákvæmilegt að sitja og hugsa
til baka um allar góðu minning-
arnar og stundirnar sem verða í
hjartanu um ókomin ár.
Didda var systir mömmu og
var ég fyrsta stelpan sem fædd-
ist í hóp barnabarna afa og
ömmu á eftir fimm strákum.
Diddu fannst ekki leiðinlegt að
sitja og fá að dúlla við stelpuhár
og þó að ég muni ekki eftir því er
til mynd af mér sitjandi á háum
stól við spegilinn á Grensásveg-
inum hjá afa og ömmu og Didda
að dúlla við hárið á mér, örugg-
lega hvorki í fyrsta né síðasta
sinn.
Nú á seinni árum og eftir að
ég eignaðist börnin mín var ég
dugleg að senda Diddu myndir
þegar ekki voru tök á að fara í
heimsókn og veit ég að hún hafði
einstaklega gaman af því.
Ljóðabækurnar hennar eru nú
enn dýrmætari fjársjóður að eiga
og verða þær vel varðveittar.
Elsku Didda mín, hafðu það
gott á nýjum stað sem ég trúi að
sé laus við allar þjáningar og
sjúkdóma. Himmi, amma, afi og
aðrir farnir ástvinir hafa án efa
tekið vel á móti þér.
Elsku Nonni og fjölskyldan
öll, okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Kristveig og fjölskylda.
Ég man það eins og gerst hafi
í gær þegar Nonni vinur minn
mátti heimsækja Diddu fyrst.
Við vorum úti að aka, ekki þann-
ig, heldur vorum við að keyra um
á ljósbláa Dusternum sem Nonni
átti, það var kátt á hjalla í bíln-
um. Við vorum þrír saman,
Nonni, ég og Hjörtur frændi. Við
Nonni vorum að hlusta á sögur
hjá Hirti, vel skreyttar sumar og
hlógum mikið, en Nonni var
samt alltaf eitthvað annars hug-
ar og þurfti oft að koma við í
sjoppum og hringja eitthvað. Við
frændi skildum ekki öll þessi
símtöl og þennan svekkelsissvip
sem hann kom alltaf með út eftir
símtölin. Svo loksins treysti hann
okkur fyrir því að hann væri
skotinn í stelpu sem hann væri
að vinna með og hún ætlaði að
bjóða honum heim, en það væru
gestir og smá bið á að þeir færu.
Það voru miklar vangaveltur hjá
okkur hvað væri eðlilegt að láta
langan tíma líða á milli símtal-
anna, bara gamla langlínan í
boði. Við vorum mjög ánægðir
með þetta, ég og frændi, og
hvöttum hann til að hringja og
hringja. En það var kannski ekki
alveg eins gáfulegt aðeins
seinna, því að Nonni skrapp inn á
Hagamelinn, enn einu sinni til að
hringja, og þegar hann kom aft-
ur út sveif hann bókstaflega nið-
ur tröppurnar og frændi sagði,
hún er búinn að losna við gest-
ina, og það reyndist vera rétt.
Nonni var kominn í mikinn gleði-
ham eins og eðlilegt var og
keyrði út Hagamelinn, upp Hofs-
vallagötuna á öðru hundraðinu
og heyrði ekkert í okkur lengur,
fór Hringbrautina á svipuðum
hraða og áttaði sig svo á því að
við værum ennþá í bílnum og
spurði okkur hvar við vildum
fara út.
Við vorum smá ringlaðir á
þessum rosalegu breytingum,
bæði á hraða bílsins og hvað
Nonni var einbeittur og glaður,
og gátum ekki svarað nákvæm-
lega hvar við vildum enda. Þá
stoppaði hann Dusterinn og
sagði strákar, ég má ekki vera að
þessu rugli lengur. Þannig að við
frændi stóðum allt í einu úti á
víðavangi og horfðum á Duster-
inn spóla í burtu, upp í Breiðholt
til Diddu sinnar og hefur verið
þar síðan og þeim liðið vel sam-
an, sem er dásamlegt.
Elsku Nonni minn, það er erf-
itt þegar bestu vinir manns
hverfa á braut, og enginn skilur
sársaukann, sorgina og tómleik-
ann sem er innra með manni.
Guð blessi þig, styrki og varð-
veiti. Hlýja.
Karl Björnsson.
Við kveðjum í dag kæra vin-
konu.
Margs er að minnast og margs
er að sakna eftir 40 ára vináttu.
Við minnumst Diddu sem heil-
steyptrar manneskju, heiðar-
legrar, þá var hún hlý og góð og
frábær vinur.
Didda var mjög skipulögð við
allt er hún tók sér fyrir hendur
bæði í vinnu utan heimilis sem og
innan. Allt var í föstum skorðum,
snyrtimennskan allsráðandi.
Diddu kynntist ég er við unn-
um saman fyrir rúmum 40 árum
og hefur vinskapur okkar haldist
óslitinn öll þessi ár. Þó að leiðir
lægju í sitthvora átt á vinnu-
markaðnum hélst vináttan.
Báðar vorum við lausar og lið-
ugar en hófum búskap á svip-
uðum tíma, byggðum sumarbú-
staði, að vísu hvor á sínu
landshorninu en það kom ekki að
sök, hægt var að hringjast á.
Minnisstæðust er ferð sem við
fórum tvær til Ameríku. Ferð-
uðumst nánast á puttanum í
þrjár vikur, þetta var fyrir alda-
mótin er lagt var af stað til Balti-
more og komið víða við hjá ætt-
ingjum og vinum í Ohio,
Michigan, við Niagara-fossa, í
Syracuse og Lancaster í Penn-
sylvaníu. Var þetta mikið ferða-
lag, margt skoðað og upp úr stóð
hvað okkur þóttu
Niagara-fossarnir stórkostlegir.
Hlýleiki var henni í blóð borinn,
börn og dýr löðuðust að henni,
þar með talið barnabarnið mitt
Tómas, sem var ekki sáttur er
honum var sagt að hún væri dá-
inn en sættist á að englarnir
hefðu sótt hana, þeir væru góðir.
Ekki má hjá líða að nefna
ljóðagerð hennar, en þar var hún
snillingur, gaf út ljóðahefti til
handa fjölskyldu og vinum fyrir
jól til margra ára.
Um leið kveð ég í bili og þakka
fyrir allt og allt.
Þín verður sárt saknað, kæra
vinkona.
Læt ég fylgja með ljóðið þitt,
Ferðin til ljóssins:
Í himinsins hásal er áfanga náð
þar hamingja ríkir með lausnir og ráð.
Að lífsdegi loknum og sálin þreytt
lausnarans máttur fær öllu breytt.
Heilög er trú frá barnsins hjarta
um hjálpræði engla og ljósið bjarta.
Innilegar samúðarkveðjur frá
minni fjölskyldu til ykkar. Elsku
Nonni, Siggi, Daníel, Egill og
fjölskyldur. Jóhanna og dætur.
Biðjum guð og góðar vættir að
vaka yfir ykkur á þessum erfiðu
tímamótum.
Guðríður Guðbjartsdóttir.
Didda mín, komið er að leiðar-
lokum og ég kveð þig með nokkr-
um fátæklegum orðum.
Við kynntumst í gegnum einn
af mínum bestu vinum, Nonna
Sig. sem ég vann með um árabil.
Þú varst hans sterka stoð í lífinu,
bjóst honum og sonum þínum
hlýlegt heimili sem gott var að
heimsækja í kaffispjall og sam-
ræður um lífið. Ég fann fljótt að
þú hafðir sterkar skoðanir sem
voru þó alltaf rökréttar en
byggðar á manngæsku og rétt-
læti fyrir þá sem minna máttu
sín. Þú hafðir gott hjartalag, og
þannig fólk dregur alltaf til sín
það góða í lífinu.
Þú máttir líka þola harma sem
voru djúpir og sárir en gekkst í
gegnum þá með reisn og virð-
ingu.
Orð voru fátækleg þegar son-
ur þinn dó í blóma lífsins. En
þeir sem eftir lifðu sáu þó ekki
beiska manneskju, heldur dýpk-
aði reynslan þig, þú tjáðir þig í
gegnum ljóð og texta, varst
skáldmælt og orðaðir hug þinn á
góðu, fallegu og skýru máli.
Nonni átti sér uppáhalds-
hljómsveit sem var Allman
Brothers, og ekki síst fyrir þitt
tilstilli og hvatningu fórum við
okkar Bjarmalandsför 2007 til
New York til að berja goðin aug-
um. Ég á líka góðar minningar
frá sumarbústaðatímabili ykkar,
í bústaðinn var gott að koma
hvort sem ég kom einn eða með
fjölskyldu og börnum, því þú
varst barngóð og skildir vel
bernskuna og allar hennar tikt-
úrur og kenjar. Og þegar ég átti
erfiðar stundir varst þú skiln-
ingsrík og hjálpsöm, fyrir það er
ég þakklátur. Raungóð og hjálp-
söm kona sem uppskar virðingu
samferðafólks í lífinu.
Og þegar synirnir voru flognir
úr hreiðrinu léstu drauma þína
rætast, gerðist tölvusnillingur og
gafst út ljóðabækur, gast orðað
hugsun þína í ljóðum og vísum,
pundaðir líka ljóðstöfum á menn
og málefni þegar tilefni gáfu til í
hitamálum samtímans. Stofnaðir
vefsvæðið bardus.is þar sem
Ingibjörg E.
Daníelsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Minningargreinar