Morgunblaðið - 18.01.2019, Side 29
Aldarafmæli
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019
Tilboð/útboð
Skútustaðahreppur
Breyting á Aðalskipulagi
Skútustaðahrepps 2011-2023
Söfnun skólps, hreinsun og nýting á Hólasandi
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps samþykkti þann 26. september 2019 að auglýsa tillögu að breytingu á
Aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011-2023 skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps leggur til að breyting verði gerð á Aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011-2023
þannig að gert verði ráð fyrir aðstöðu fyrir söfnun salernisskólps í lokaðan geymslutank á Hólasandi og nýtingu
þess til uppgræðslu á sandinum. Fyrirhuguð aðalskipulagsbreyting nær til aðstöðu fyrir
söfnunar- og geymslutank með tilheyrandi búnaði á Hólasandi.
Tillöguuppdráttur með greinargerð mun liggja frammi á skrifstofu Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatni frá
og með fimmtudeginum 10. janúar 2019 til og með fimmtudeginum 21. febrúar 2019. Þá eru upplýsingar einnig
aðgengilegar á heimasíðu Skútustaðhrepps: http://www.skutustadahreppur.is/ undir ,,Skipulagsauglýsingar“.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að
skila inn athugasemdum rennur út fimmtudaginn 21. febrúar 2019. Skila skal athugasemdum skriflega til skrifstofu
Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatni og/eða í tölvupósti á netfangið: gudjon@skutustadahreppur.is.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast henni samþykkir.
Guðjón Vésteinsson
Skipulagsfulltrúi
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Zumba Gold 60+, fram-
hald kl. 10.30. BINGÓ kl. 13.30, spjaldið kostar 250 kr. Kaffi kl.14.30-
15.20.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Botsía með Regínu kl. 10. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við
Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-
12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Velkomin. S. 535-2700.
Boðinn Vöfflukaffi kl. 14.30. Línudans kl. 16.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl. 13.45. Kaffiveitingar kl.
14.30. Allir velkomnir!
Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi
kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20,
Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni
félagsvist ef óskað er. Smiðja í Kirkjuhvoli opin kl. 13-16, velkomin.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa
með leiðbeinanda kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps
kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30 Bókband með leiðbein-
anda kl. 13-16. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist.
Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Ljósmyndarklúbbur kl.
13. Bingó kl. 13.30.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9-12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og
nýliðar velkomnir. Botsía kl. 10- 11. Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl. 13,
sýnum Börn náttúrunnar.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, bingó kl. 13.15
og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir.
Korpúlfar Sundleikfimi með Brynjólfi kl. 9 í Grafarvogssundlaug.
Brids kl. 12.30 í Borgum og hannyrðahópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borg-
um. Tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum. Allir velkomnir, góða helgi.
Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45, lesið úr blöðum kl. 10.15,
tréútskurður kl. 9-12, opin listasmiðja kl. 9-12, upplestur kl. 11-11.30.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í saln-
um á Skólabraut kl. 11. Syngjum saman í salnumá Skólabraut kl. 13.
Brids í Eiðismýri 30 kl. 13.30. Minnum á söngveislu Selkórsins nk.
miðvikudag kl. 19.30. Allir velkomnir.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó
kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Íslendingasögu-/fornsagnanámskeiðið hefst í dag kl.
13 og verður á hverjum föstudegi í tíu vikur (kl. 13–15 með kaffihléi),
opið öllum, verð 16.500 kr. Góð samvera í góðum hópi. Kennari sem
fyrr Baldur Hafstað. Dansað sunnudagskvöld 13. janúar kl. 20-23.
Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir.
Vesturgata 7 Sungið við flygilinn frá kl. 13-14 með Gylfa Gunnars-
syni. Kaffi kl. 14-14.30.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Rað- og smáauglýsingar
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Í dag, 18. jan-
úar, eru 100 ár frá
fæðingu móður
minnar Huldu
Long á Norðfirði.
Móðir hennar
var Ingibjörg Stef-
ánsdóttir, f. 18.4.
1900 í Neskaup-
stað, d. 27.12. 1968
í Reykjavík. Hún
var verkakona í
Neskaupstað en
veiktist seinna og varð að láta
dótturina frá sér. Hulda ólst
upp hjá Guðbjörgu Matthías-
dóttur móðurömmu sinni
vegna þessa.
Faðir Huldu var Gunnar
Jónsson, f. 12.3. 1904 í Norð-
firði, d. 6.12. 1995 á Hellu.
Hulda var ein fárra kvenna
sem gengu menntaveginn á
þessum tíma, fór í Samvinnu-
skólann 1935, en gat einungis
lokið einum vetri vegna fjár-
þurrðar.
Árið 1939 giftist hún Sigurði
Eiríkssyni Þórarinssyni, f.
7.11. 1915 á Akureyri, d. 29.6.
1941; fórst með Heklu þegar
skipið var skotið niður af Þjóð-
verjum. Vegna þessa fékk
mamma ekknabætur sem hún
notaði til þess að kaupa hluta
af húsinu Sólhól í Neskaup-
stað.
Þeim varð einnar dóttur
auðið, Guðbjargar Bryndísar
Sigurðardóttur, f. 15.11. 1940.
Hún eignast fimm börn með
Birgi Þór Sveinbergssyni, f.
14.2. 1941 á Blönduósi: Rúnar
Sigurð 1960, Ingu Láru 1961,
Huldu Jónu 1965, Birgi Þór
1971 og Sveinberg Þór 1976.
15.1. 1945 eignast Hulda
Sigrúnu Sigríði með Skúla
Norðfjörð Jónssyni, f. 6.7. 1915
á Norðfirði, d. 4.10. 1980. Sig-
rún Sigríður var með hjarta-
galla og dó 27.5. 1945.
Árið 1947 kynnist Hulda
Guðjóni Bjarnasyni, f. 6.11.
1898 á Óseyrarnesi. Guðjón
var þá landsfrægur sem fyrr-
verandi kórstjóri Sólskins-
deildarinnar, hafði séð um
barnatímann í útvarpinu og
ferðast með kórinn um allt
land. Þau hittust á Eyrarbakka
en hann vann þar við múrverk
á þessum tíma. Þau giftust
1948 og eignuðust tvö börn: 1)
Sigurð Rúnar, f. 8.8. 1949.
Hann eignast Huldu 1993 með
Hulda Long
Gunnarsdóttir
Hildi Eggertsdótt-
ur, f. 30.11. 1954 á
Kvennabrekku. 2)
Huldu Kolbrúnu, f.
21.9. 1952, sem
eignaðist Sigur-
laugu 1971 með
Siggeiri Ingólfs-
syni, f. 17.9. 1952 í
Syðra-Seli.
Guðjón og Hulda
keyptu húsið Sól-
vang á Stokkseyri
sem þau fluttu í 1949. Þar voru
þau þó ekki nema hálft annað
ár því litla vinnu var að hafa.
Þau bjuggu svo í Laugarnes-
kampi 12, bragga sem breski
herinn hafði byggt. Hann stóð í
flæðarmálinu þannig að sjórinn
gekk hálfpartinn yfir braggann
þegar þannig stóð á átt og sjáv-
arföllum. Þaðan fluttu þau um
1953 í Hólmgarð 38 í Bústaða-
hverfi og í Hæðargarð 50 í
sama hverfi árið 1966 þar sem
þau áttu heimili síðan.
Skömmu fyrir 1960 fengu
þau „frímerkjabakteríu“ sem
var í því fólgin að þau keyptu
notuð frímerki og unnu við þau
öllum stundum. Fyrir utan að
leysa af og flokka var gengið
frá merkjunum í pakka handa
útlendingum og þannig gátu
þau haft svolítið upp úr þeim.
Ég sé mömmu enn fyrir mér
þar sem hún situr bograndi við
borð þakið frímerkjum; hún á
fullu við að raða í pakka.
Það bar ekki mikið á ald-
ursmun, enda fór það svo að
mamma dó á undan pabba,
7.10. 1980, en hann dó svo
þremur árum seinna, 11.9.
1983.
Mamma var hvers manns
hugljúfi og ég minnist hennar
ætíð með hlýju. Rúnar, dótt-
ursonur hennar, skrifaði í
minningargrein á sínum tíma:
Ömmu Huldu þekkti ég ein-
göngu sem góða manneskju
sem allt vildi fyrir alla gera. Ég
þekkti hana aðeins sem ömmu-
barn, ég naut þeirrar hlýju frá
henni sem hún gaf öllum sem
vildu.
Ég tek líka undir orð systur
minnar sem skrifaði um móður
okkar fyrir réttum tveim árum:
Hún var hæfileikarík, glaðlynd,
réttsýn, skynsöm og góð móðir.
Blessuð sé minning hennar.
Meira: mbl.is/minningar
Sigurður R. Guðjónsson.
Ég vil minnast
góðs vinar með
nokkrum orðum.
Það má teljast
einsdæmi að öll systkini Guðna
hafi verið jafn mikil góðmenni,
þau voru sjö sem nú eru öll lát-
in.
Erfiðasti tími sem ég upplifði
var þegar Gvendur bróðir var
fastur inni í vélinni í togara og
sjór var að falla að. Kiddi í
Höfn var með okkur og var það
hans úrræði sem skipti máli. Þá
vantaði lensudæluna og þá
sagði Guðni: „hún er inni í skúr
hjá Gvendi bróður, lensudælan
úr togaranum“ og allt fór þetta
vel.
Guðni
Ingimundarson
✝ Guðni Ingi-mundarson
fæddist 30. desem-
ber 1923. Hann lést
16. desember 2018.
Útför Guðna fór
fram 8. janúar
2019.
Eitt sinn vorum
við að koma í land í
Keflavík á Eldeyj-
unni og ég var þá
kominn með heift-
arlega flensu. Val-
gerður systir
Guðna var ein af
fyrstu starfsmönn-
um spítalans í
Keflavík. Hún hafði
ekki verið að vinna
í nokkur ár en kom
að leysa af þegar ég veiktist.
Þegar ég hafði verið inni í þrjá
daga og var að hressast, þá
sagði hún: „Tani minn, ég er bú-
in að þvo fötin þín og þurrka.“
Oft kom ég í skúrinn til
Guðna, þá var oft sagt: „þú
verður að koma inn í kaffi
núna.“ Þá sagði Sigurjón í Lóni:
„hvort eruð þið að ræða bíla eða
báta í dag?“
Ég minnist Guðna sem sér-
staks vinar og allra hans systk-
ina og fjölskyldu.
Jónatan Stefánsson.