Morgunblaðið - 18.01.2019, Page 31
Fjarðabyggð. Ég settist í bæjar-
stjórn í framhaldinu og sat þar
næstu tvö árin.“ Sama ár hóf Helgi
að starfa sem blaðamaður á héraðs-
fréttablaðinu Austurglugganum og
starfaði þar um tveggja ára skeið.
Hann flutti þá til Reykjavíkur og
byrjaði á DV 2004 og fór þaðan á
Talstöðina, NFS og Stöð 2 þar sem
hann starfaði sem fréttamaður í Ís-
landi í dag. „Ég hóf störf í Kastljósi
RÚV 2006 þar sem ég starfaði til
2017 að ég flutti mig um set yfir í
nýjan fréttaskýringaþátt, Kveik.
Hef auk þess stundað sjómennsku
flest sumur frá árinu 2008, róið á
Aðalsteini Jónssyni SU, Faxa RE
og nú síðast Ljósafelli SU. Ég lít
alltaf á mig sem sjómann í stuttu
fríi í fjölmiðlum. Hversu raunsætt
það er veit ég ekki. En ég ætlaði
mér aldrei að verða blaðamaður.“
Helgi hefur sex sinnum verið til-
nefndur og tvívegis fengið blaða-
mannaverðlaun og var tvö ár í röð
útnefndur sjónvarpsmaður ársins á
Edduverðlaunum auk þess sem
Kastljósið og Kveikur hafa fengið
sömu verðlaun samtals fjórum sinn-
um í flokki frétta- og viðtalsþátta.
„Helstu áhugamál mín hafa
lengst af tengst vinnunni, sem ku
ekki það sniðugasta. Af þeim sökum
hef ég reynt ýmislegt til að ná mér í
önnur áhugamál. Stangveiði, skíða-
iðkun og svo siglingar eru þar ofar-
lega á lista. Sjómennskan blundar
alltaf í mér. Er með skipstjórnar-
réttindi sem mig hefur dreymt um
að bæta við mig. Sömuleiðis er það
á stefnuskránni að eignast báts-
horn.“
Fjölskylda
Eiginkona Helga er Katrín Rut
Bessadóttir, 30.7. 1981, félags-
fræðingur og verkefnastjóri við Há-
skólann í Reykjavík. Foreldrar
hennar eru hjónin Indíana Margrét
Ásmundsdóttir, f. 1960, og Bessi
Gunnarsson, f. 1960, bús. á Akur-
eyri.
Börn Helga og Katrínar eru Ind-
íana Karítas, f. 15.12. 2007, og Ylfa
Matthildur, f. 11.10. 2010. „Ég bý
með þremur ungum konum og kann
því vel. Við erum gott teymi. Bráð-
um fjölgar okkur í fimm. Ég veit
ekki hvort það er stelpa eða strák-
ur. Við köllum barnið því þriðja
orkupakkann, svona ófætt alla
vega.“
Bróðir Helga er Hákon Unnar, f.
8.10. 1986, vélstjóri í Vestmanna-
eyjum, í sambúð með Þórdísi Guð-
mundsdóttur hjúkrunarfræðingi.
Foreldrar Helga eru hjónin Jó-
hann Sæberg Helgason, f. 11.10.
1957, vélvirkjameistari og verk-
stjóri á Reyðarfirði, og Ingunn Kar-
ítas Indriðadóttir, f. 28.10. 1959,
bankamaður á Reyðarfirði.
Helgi Seljan
Jóhannsson
Karítas Elísabet Bjarnadóttir
húsfreyja í Flatey
Hákon Einarsson
útvegsbóndi í Flatey
Steinunn Unnur Hákonardóttir
heilbrigðisstarfsmaður í Kópavogi
Ingunn Karítas Indriðadóttir
bankamaður á Reyðarfirði
Þorlákur Friðriksson b. á Skorrastað í NorðfirðiÁgúst Ármann Þorlákssonorganisti í Neskaupstað
Þorvaldur Friðriksson sjóm.
og verkam. á FáskrúðsfirðiEllert Borgar Þorvaldsson fv. skólastjóri
Kristinn Friðriksson frystihússtj. í StykkishólmiFriðrik S. Kristinsson
stjórnandi Karlakórs Rvíkur
Margrét Friðriksdóttir
póstfulltrúi í Keflavík
Hannes Baldursson
tónmenntakennari í Kópavogi
Sigurður Hannesson
frkvstj. Samtaka
iðnaðarins
Þóroddur Helgason
fræðslustjóri Fjarðabyggðar
Magnús Hilmar Helgason
frkvstj. Launafls á Reyðarfirði
Indriði Indriðason fv.
sveitarstjóri á Tálknafirði
Indriði Indriðason
vélamaður í Kópavogi
Ingunn Margrét Díana Gísladóttir
húsfreyja á Sæbóli
Indriði Brynjólfsson
verkamaður á Sæbóli á Skagaströnd, síðar í Rvík
Ragnheiður Brynjólfsdóttir
hótelstýra og handavinnukennari
ið Húsmæðraskólann á Blönduósiv
Þráinn Þorvaldsson
múrarameistari,
búsettur í Kópavogi
Þorgrímur Þráinsson
rithöfundur og fv.
knattspyrnumaður
Anna Hildur Runólfsdóttir
húsfreyja í Víkurgerði
Þóroddur Magnússon
útvegsbóndi í Víkurgerði
í Fáskrúðsfirði
Jóhanna Þóroddsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Helgi Seljan
fv. skólastjóri og alþm.
Elínborg Þorláksdóttir
húsfreyja á Eskifirði
Friðrik Árnason
verkamaður og hreppstjóri á Eskifirði
Úr frændgarði Helga Seljan
Jóhann Sæberg Helgason
vélvirkjameistari og
verkstjóri á Reyðarfirði
Með dætrunum Helgi ásamt Indí-
önu Karítas og Ylfu Matthildi.
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019
Hæég er
mætt!
Kristján Vilhjálmur Briemfæddist 18. janúar 1869 áHjaltastöðum í Skagafirði.
Foreldrar hans voru hjónin Eggert
Gunnlaugsson Briem sýslumaður, f.
1811, d. 1894, og Ingibjörg Eiríks-
dóttir Sverrisen, húsfreyja, f. 1827, d.
1890. Viljálmur var næstyngstur
nítján systkina. Þrettán þessara
systkina náðu fullorðinsaldri og urðu
öll þjóðkunn. Tveir bræður hans urðu
einnig prestar, Eiríkur varð prófast-
ur og síðan alþingismaður og Halldór
þjónaði í Winnipeg.
Vilhjálmur lauk stúdentsprófi 1890
og prófi frá Prestaskólanum 1892.
Hinn 15. april 1894 vígðist Vil-
hjálmur til Goðdala í Skagafirði og
fjórum dögum seinna, á sumardaginn
fyrsta, gekk hann að eiga heitkonu
sína, Steinunni Pétursdóttur frá
Valadal, f. 3.3. 1870, d. 31.5. 1962,
húsfreyju, en hún rak síðar sauma-
verkstæði og kvenfataverslun í
Reykjavík. Börn þeirra voru Eggert
Vilhjálmur, vélaverkfræðingur, at-
vinnuflugmaður og vélahönnuður í
Pennsylvaníu, síðar í Reykjavík,
Gunnlaug Friðrika, framkvæmda-
stjóri Söfnunarsjóðs Íslands, og
Unnur, myndlistarkennari í Reykja-
vík. Fóstursonur þeirra var Sigurður
Eyjólfsson Birkis, kennari og söng-
málastjóri Þjóðkirkjunnar.
Goðdalaprestakalli þjónaði séra
Vilhjálmur til 1899, en varð þá að
sækja um lausn sakir heilsubrests og
leita sér lækningar erlendis. En árið
1901 var honum veitt Staðastað-
arprestakall á Snæfellsnesi, og þjón-
aði hann því í 10 ár og jafnframt
gerðist hann búhöldur góður og kom
sér upp stórbúi á Staðastað. En Vil-
hjálmur varð aftur að sækja um
lausn og leita sér heilsubótar og frá
1912 áttu þau hjónin heima í Reykja-
vík.
Vilhjálmur varð þá starfsmaður
Landsbankans og Söfnunarsjóðs Ís-
lands og eftir séra Eirík bróður sinn
varð hann forstöðumaður Söfnunar-
sjóðsins. Þau hjónin stofnuðu síðan
Fæðingargjafasjóð Íslands.
Vilhjálmur Briem lést 1. júní 1959.
Merkir Íslendingar
Vilhjálmur
Briem
95 ára
Snorri Guðlaugsson
85 ára
Svala Marelsdóttir
Sveinbjörg Símonardóttir
80 ára
Guðmundur Valdimarsson
Kristinn Alexandersson
75 ára
Eygló Geirdal Gísladóttir
Jón R. Jóhannsson
70 ára
Ágúst Geirsson
Árni Skúli Gunnarsson
Guðrún Eyjólfsdóttir
Ólöf Ólafsdóttir
Þórarinn Dúi Gunnarsson
60 ára
Ármann Árnason
Árni Magnússon
Björk Baldursdóttir
Brynjólfur Gunnar Jónsson
Drífa Árnadóttir
Elzbieta Krainska-Drozniak
Haukur Geirmundsson
Ingunn Anna Helgadóttir
Jónína Dröfn Pálsdóttir
Krzysztofa H. Krukowska
Oddrún Hulda Einarsdóttir
Ólafur Magnússon
Sigríður Guðný Sverrisd.
50 ára
Albert I. Ingimundarson
Björn Pétur Sigurðsson
Friðrik Ámundason
Gunnar Örn Ingólfsson
Hekla Björk Guðmundsd.
Kristinn Þór Ingvason
Laufey Björk Þorsteinsd.
Páll Jóhannsson
Ragnhildur Eiríksdóttir
Sveinn Arngrímsson
Valur Þór Einarsson
40 ára
Árni Mar Haraldsson
Dariusz Dobies
Elín Gróa Guðjónsdóttir
Elín Marta Ásgeirsdóttir
Florin Lungu
Harpa Þórðardóttir
Helga Dröfn Helgadóttir
Helgi Seljan Jóhannsson
Ingemar Rodler
Jenny M. Johansson
Kári Kristjánsson
Margrét Einarsdóttir
Númi Þorkell Thomasson
Petra Vilhjálmsdóttir
Sebastian Lugowski
Sigríður Sóley Hafliðadóttir
Sverrir Haraldsson
Þóra Kristín Þórhallsdóttir
30 ára
Agnes Ýr Ingadóttir
Anðela Bugarin
Anita Brá Ingvadóttir
Attila Pál Vig
Ása Dagmar Jónsd. Norðfj.
Ástríður Anna Kristjánsd.
Bent Harðarson Rubeksen
Claudiu-Constantin Grosu
Dórótea Arnarsdóttir
Einar Örn Bergsson
Elina Gaigala
Emilian Tymosiak
Fanney Lára Sandholt
Halldór Smári Ólafsson
Harpa Snædís Hauksdóttir
Kristján Bjarni Jóhannsson
Magdalena M. Wolska
Malgorzata Paulina Deppe
Mariusz Piotr Maszota
Sunneva Ása Weisshappel
Svana Kristín Elísdóttir
Ægir Steinarsson
Til hamingju með daginn
40 ára Kári er Húsvík-
ingur og er matráður í
mötuneytinu hjá Norð-
lenska.
Maki: Sunna Jónsdóttir, f.
1982, vinnur í Húsasmiðj-
unni.
Börn: Lilja Lea, f. 2011,
Óskar Arnar, f. 2013, og
Jón Guðni, f. 2017.
Foreldrar: Kristján Páls-
son, f. 1945, rafeindavirki,
og Rannveig Benedikts-
dóttir, f. 1948, þroska-
þjálfi, bús. á Húsavík.
Kári
Kristjánsson
30 ára Dórótea er Reyk-
víkingur og er leiðbein-
andi á leikskólanum
Korpukoti.
Maki: Marteinn Örn Hall-
dórsson, f. 1991, rafvirki.
Börn: Tvíburarnir Mel-
korka Mist og Marín Rós,
f. 2014, og Ásta Sóllilja, f.
2017.
Foreldrar: Arnar Guð-
mundsson, f. 1956, prent-
smiður, og Ásta Jóns-
dóttir, f. 1959, banka-
maður, bús. í Reykjavík.
Dórótea
Arnarsdóttir
30 ára Sunneva er
Reykvíkingur og
myndlistarmaður, með
BA-próf frá Listaháskól-
anum. Hún mun opna
sýningu í Gallerí Port á
morgun og nefnist hún
Umbreyting.
Foreldrar: Friðrik Karl
Weisshappel, f. 1969,
byggingarverkfræðingur
hjá Reitum, og Jóhanna
Norðdahl, f. 1969, við-
skiptafræðingur hjá fjár-
málaráðuneytinu. Þau
eru bús. í Reykjavík.
Sunneva Ása
Weisshappel