Morgunblaðið - 18.01.2019, Qupperneq 33
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert ástfangin/n upp fyrir haus.
Bættu sambandið við eina manneskju, ein-
beittu þér að einu verkefni, eða hringdu eitt
símtal.
20. apríl - 20. maí
Naut Dragðu úr væntingum til annarra og
þiggðu með þökkum það sem að þér er rétt.
Vendu þig á þakklæti. Þú ert í startholunum
með nýtt verkefni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur kjarkinn sem þarf til þess
að taka að þér risastórt verkefni. Reyndu að
sætta þig við truflanir og sýna þolinmæði.
Vertu glöð/glaður með þitt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ættir að leggja þig fram um að
bæta samskiptin við ættingja í dag. Munið að
fljótfærni er slæm og að dramb er falli næst.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Mikil spenna er til staðar á heimilinu.
Reyndu að sigla milli skers og báru á meðan
það versta gengur yfir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur látið aðra ganga fyrir og nú
er kominn tími til þess að þú sinnir sjálfri/
sjálfum þér. Taktu engu í lífinu sem gefnum
hlut. Þú ert blinduð/blindaður af ást.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að gera hreint fyrir þínum dyr-
um svo þínir nánustu séu ekki að velkjast í
vafa um afstöðu þína. Stattu ávallt fast á
þínu og farðu þínar leiðir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það má vera að þú hafir ekki
mikið milli handanna nú um stundir en á því
verður umbreyting fljótlega. Gættu þess bara
að ofmetnast ekki þó að þú fáir hrós.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Einhver vinnur gegn hagsmunum
þínum. Mundu að það kemur upp neikvæðni í
öllum fjölskyldum og það skiptir öllu hvernig
unnið er úr henni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af
því hvernig fólk sér þig. Gakktu í það að
koma öllum málum á hreint svo þú getir snú-
ið þér að framtíðinni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur kannski fengið léleg spil
upp á síðkastið en það er óhjákvæmilegt að
gengi manns í lífinu sé upp og ofan. Innst
inni óskarðu þess að þú getir flatmagað á
sólarströnd, hver veit nema það rætist fljótt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Mundu að ekki eru allir viðhlæjendur
vinir og þess vegna óþarfi að hlaupa eftir
öllu, sem við þig er sagt. Haltu partí eða tal-
aðu við einhvern sem er á sömu bylgjulengd
og þú.
Víkverja fellur sjaldan verk úr hendienda skipulagður með eindæmum
og eyðir ekki tíma sínum í óþarfa.
Það kemur þó fyrir að Víkverji
ákveði að gera ekki neitt eins og sagt
er.
x x x
En er hægt að gera ekki neitt? Vík-verji með sína fróðleiksfýsn leitaði
á vísindavef HÍ og fann svar við
spurningunni en veit ekki hvort svarið
er svar eða ekki. Víkverji lætur les-
endum eftir að dæma. Svarið á Vís-
indavefnum hefst svona:
x x x
Áður en við getum tekist á við þessaspurningu þurfum við að taka af-
stöðu til þess hvort það að gera ekki
neitt megi leggja að jöfnu við að vera
ekki að gera neitt. Á svipaðan hátt
gætum við spurt hvort það að segja
ekki neitt sé það sama og ekki að segja
neitt. Sá sem þegir, hann er ekki að
segja neitt. En er líka rétt að hann sé
að segja ekki neitt? Er „ekki neitt“
það sem hinn þegjandi segir? Og þá
„ekki neitt“ það sem hinn fullkomlega
aðgerðalausi gerir? En „ekki neitt“ er
ekki neitt, og það sem er ekki neitt
getur því ekki verið eitthvað sem mað-
ur ýmist segir eða gerir. Í þessum
skilningi er ekki hægt að gera ekki
neitt. En þá stendur eftir hvort hægt
sé að gera ekki neitt í þeim skilningi
að vera fullkomlega aðgerðalaus. Í
fljótu bragði virðist ekki erfitt að gera
ekki neitt: Sá sem vill ekki gera neitt
hættir bara að gera það sem hann er
að gera þá stundina. Að vísu er maður
oft að gera ansi margt í einu: ganga,
hugsa um hvað verði í kvöldmat, virða
fyrir sér útsýnið, rjátla við smámynt í
buxnavasanum, efna áramótaheit og
svo framvegis. En þetta er endanlega
margt og öllu þessu má hætta. Og
þegar öllu þessu hefur verið hætt, má
þá ekki ætla að maður sé ekki að gera
neitt?
x x x
Svar Vísindavefsins er lengra enVíkverji leggur það ekki á les-
endur að birta meira af því. Áhuga-
samir geta farið á Vísindavefinn og
lesið meira þar. Víkverja er það til efs
að það sé til svar við því hvort það sé
hægt að gera ekki neitt.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Trúr er Guð sem hefur kallað ykkur til
samfélags við son sinn Jesú Krist,
Drottin vorn.
(Fyrra Korintubréf 1.9)
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu
Indriði á Skjaldfönn yrkir„Braggablús“ á Boðnarmiði:
Dagur er kominn að kveldi,
hverfur í myrkur og sagga.
Vont er nú þegar veldi,
veltur á einum bragga.
Því er harmur í höllu
horfa tárvot á náinn.
Þó er alverst af öllu
andskotans dönsku stráin.
Á sunnudaginn lýsti Indriði því
sem fyrir augu bar: „Þegar hríðar-
kastið var gengið niður í morgun
og farið að birta, fylgdist ég með
svartþrestinum mínum sem settist
að í trjágarðinum í haust, hamast
við að hakka í sig kjötafskurð í
hlaðvarpanum, ætlaðan honum og
tófunum og datt þá í hug að þessi
vaski fugl ætti nú alveg skilið eina
vísu:“
Litli svarti kjánakarl
kvikur um sig ber.
Þrauka vill sá vinur snjall
veturinn hjá mér.
Og hér yrkir Indriði um niður-
stöður Reykhólafundar:
Teigsskógi gerður var greiði,
í gegnum hann ágætis leiði,
en fara svo kann
og það hryggir mann
að Reykhólar leggist í eyði.
Það er margt „skyldustarfið“.
Helgi R. Einarsson yrkir:
Best reynist þá að brosa,
um beltissylgjuna losa,
sig niður að beygja,
baráttu heyja
og buxurnar síðan upp tosa.
Ingólfur Ómar sendi mér línu á
miðvikudag, sagði að himinninn
væri svo einstaklega fallegur og
skýin gulli ofin enda veðrið fallegt
þó að kalt sé:
Glitrar árdags geislaflóð
glæður himins bála.
Þessa skæru skýjaslóð
skaparinn var að mála.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir á
Boðnarmiði og kallar „Rof“:
Horfin æskuárin blíð,
allir vegir hálir,
kveða ljóð um liðna tíð
löngu dauðar sálir.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fía
á Sandi, brást vel við:
Þegar hinsti dagur dvín
í dökkum éljaskugga
mun ég kveða kvæðin mín
kát sem vofa á glugga.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enn um braggann; svart-
þröstur og Teigsskógur
Í klípu
„ég sakna þess aÐ senda sms. ”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„brúÐguminn er seinn.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... hvernig hún hlær.
ÞÚ ERT BARA HÁLFT EINS FRÁBÆR
OG ÞÚ HELDUR SJÁLFUR
HÆGAN … ÞAÐ ER SAMT
SKRAMBI GOTT
ÉG ER FARIN
ÚT AÐ PLÆGJA
AKURINN FRAM
AÐ SÓLSETRI!
STOPP! ÉG GET EKKI
LEYFT ÞÉR AÐ GERA ÞAÐ!
ÞÁ YRÐI KVÖLDMATURINN
SEINN!