Morgunblaðið - 18.01.2019, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 18.01.2019, Qupperneq 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Það eru lágmyndir á veggjum og óvenjulegir gluggarammar að auki, skúlptúrar á upplýstu borði og á gólfi meginrýmisins tveir léttir en margræðir tréskúlptúrar; annar teygist upp undir loft en hinn liggur. Medium of Matter kallar skúlptúr- istinn Rósa Gísladóttir athyglis- verða sýninguna sem verður opnuð með verkum hennar í galleríinu BERG Contemporary á Klapparstíg 16 á morgun, laugardag, klukkan 17. Þegar Rósa gerir hlé á uppsetn- ingu verkanna og gengur um salina með blaðamanni segir hún háa tré- skúlptúrinn gerðan með frægan turn rússneska framúrstefnu- listamannins og konstrúktívistans Vladimirs Tatlins (1885-1951) í huga. Tatlin gerði módel að turn- inum fyrir sléttri öld. Hann er einn frægasti skúlptúr liðinnar aldar og var í raun módel að risavaxinni skrifstofubyggingu úr stáli og gleri sem aldrei reis. „Ég gerði módel fyrst að þessu verki árið 2011,“ segir Rósa. „Þetta var eftir hrun og í kringum mig stóðu margir kranar sem biðu bara eftir því að eitthvað færi að gerast að nýju. Þetta verk spratt einhvern veginn út frá því. Sjáðu, hér er ein- hvers konar krani,“ segir hún og bendir inn í kjarna verksins. „Ég var þá líka að skoða verk konstrúk- tívistanna og heillaðist af turninum sem Tatlin gerði fyrir hundrað ár- um. Þetta verk er eins konar óður til hans. Frá honum kemur hugmyndin um spíralinn utan um kranann en auðvitað er þetta hér gert úr viði en Tatlin vann með stál og gler.“ Rósa segist hafa unnið að þessum verkum með góðum trésmið enda séu þessi tréverk mikil völundar- smíð sem hafi tekið langan tíma að setja saman. „Í hinu verkinu miðju er líka svona „krani“ en ég hef snúið hon- um við og nú liggur verkið bara. Það passar líka við hugsunina um turn- inn hans Tatlins sem var aldrei byggður. Og það hefur ýmislegt breyst á þessari öld síðan hann setti saman þetta áhrifamikla verk sem margir hafa unnið út frá. Turninn átti að verða miklu hærri en Eiffel- turninn og í honum átti opinber stjórnsýsla Sovétríkjanna að vera. En mínir turnar hér hafa ekki síkt notagildi,“ segir Rósa, brosir en segir sýninguna hverfast um þá. Frá Tatlin beindust sjónir hennar síðan að öðrum konstrúktívista, arkitektinum og málaranum Konst- antin Melnikov (1890-1974), og kveðst Rósa hafa heillast af íbúðar- húsinu sem hann teiknaði og reisti fyrir sjálfan sig í Moskvu árið 1929. Það er eins og tveir sívalningar með sexhyrndum gluggum. „Þessi tré- verk sem eru að fara hér á vegginn eru í raun byggð á gluggum Melni- kovs. Ég kalla verkin „Afbyggt út- sýni“. Og ég fékk hjálp við að gera þetta allt rétt, þótt ég fari síðan mína leið að því,“ segir hún og sýnir blaðamanni upprunalegar teikn- ingar arkitektsins að gluggunum. „Þetta var gríðarlega heillandi tíma- bil í Rússlandi,“ bætir hún við. Á tveimur veggjum eru nýjar lág- myndir úr gifsi sem Rósa gerði eftir teikningum sínum og módelum sem hún gerði fyrir mörgum árum, ein- um 30 árum, mjúk og hvöss form kallast þar á, með tilvísun í vélar og til að mynda tannhjól. Henni þóttu þessi verk passa með þeim arkitekt- úrísku pælingum sem birtast í nýju viðarverkunum. „Þetta eru síðan alls kyns hlutir, allt verk sem ég hef ekki sýnt áður hér á landi og kalla „Fragments of Memory“,“ segir Rósa að lokum um skúlptúrana sem standa á borði í innri salnum. „Þau eru úr gifsi, leir og öðrum efnum sem ég móta og vísa í alls kyns form úr söguni, til að mynda frá Pompeii eða endurreisn- inni. Ég hef svo mikinn áhuga á formfræði og gömlum munum og það mætist hér í hlutum sem ég nýt þess að móta með höndunum.“ Óður til turnsins hans Tatlins  Sýning Rósu Gísladóttur, Medium of Matter, opnuð í BERG Contemporary á morgun  Segist hafa mikinn áhuga á formfræði og gömlum munum Morgunblaðið/Einar Falur Tréturnar „Þetta var gríðarlega heillandi tímabil í Rússlandi,“ segir Rósa Gísladóttir um myndsköpun svokallaðra konstrúktívista sem voru áhrifamiklir í listalífi Sovétríkjanna fyrir um einni öld og hún vísar til í verkum sínum. Engin þriggja íslenskra nýbygg- inga sem höfðu verið tilnefndar til hinna virtu evrópsku arkitektúr- verðlauna sem kennd eru við Mies van der Rohe, komust á lista 40 bygginga sem keppa til úrslita. Harpa hreppti verðlaunin 2013. Íslensku byggingarnar þrjár sem tilnefndar voru eru hótelið The Retreat við Bláa lónið, Veröld – Hús Vigdísar við Háskóla Íslands og Marshall-húsið við Reykjavíkur- höfn. Vel lukkað Marshall-húsið var tilnefnt. Íslenskar bygg- ingar ekki áfram Iceland Noir hef- ur sagt sig frá frekara sam- starfi um Ísnál- ina, verðlaun sem veitt eru fyr- ir bestu íslensku þýðingu á er- lendum glæpa- sögum hvers árs, og munu Hið ís- lenska glæpa- félag og Bandalag þýðenda og túlka framvegis standa að verð- laununum, eins og Hið íslenska glæpafélag greindi frá í gær á Facebook. Rithöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir, Ragnar Jónasson, Lilja Sigurðardóttir og Óskar Guð- mundsson standa að alþjóðlegu glæpasagnahátíðinni Iceland Noir sem síðast var haldin í nóvember í fyrra. „Við ætlum að setja upp okk- ar eigin verðlaun hjá Iceland Noir,“ segir Ragnar, spurður hvernig á þessu standi, en hátíðin verður haldin næst á næsta ári. Verðlaun Iceland Noir verða einnig veitt fyr- ir bestu íslensku þýðingu á erlendri glæpasögu og munu tengjast hátíð- inni beint, að sögn Ragnars. Iceland Noir segir sig frá Ísnálinni Ragnar Jónasson Fyrsta sýning Þjóðminjasafns Bras- ilíu í Ríó de Janeiro, eftir stórbrun- ann sem varð í safninu 2. september í fyrra, var opnuð í fyrradag í syst- ursafni þess sem helgað er hvers konar mynt. Á sýningunni má sjá steingervinga sem fundust á Suður- skautslandinu og þá m.a. bein úr flugeðlu sem safnið segir fyrstu sönnun þess að hið stóra og fljúg- andi hryggdýr hafi dvalið í álfunni. Þjóðminjasafnið fór illa í brun- anum, brann nánast til kaldra kola. Átta steingervingum á sýningunni tókst að bjarga frá eldinum en hina munina af þeim 160 sem eru á sýn- ingunni varð safnið að fá að láni. Forstöðumaður safnsins, Alex- ander Kellner, sagði fjölmiðlamönn- um við opnun sýningarinnar að hún sýndi að safnið væri enn starfandi og á lífi, eins og hann orðaði það. Safnið er 200 ára gamalt og var talið eitt mikilvægasta safn sinnar tegundar í Rómönsku Ameríku. Það var eink- um þekkt fyrir sitt mikla safn stein- gervinga, um 26 þúsund talsins. Í safninu voru yfir 20 milljónir muna frá Egyptalandi til forna, Rómaveldi og frumbyggjamenningu Brasilíu. Um 90% af safninu eyðilögðust í eld- inum. Fyrsta sýning Þjóðminja- safns Brasilíu eftir bruna AFP Athyglisverðir Steingervingarnir myndaðir við opnun sýningarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.