Morgunblaðið - 18.01.2019, Side 35

Morgunblaðið - 18.01.2019, Side 35
Menning MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019 Verk eftir Sergei Prokofieff, Alfred Schnittke og Béla Bartók eru á efn- isskrá næstu tónleika Kammer- músíkklúbbsins sem haldnir verða í Norðurljósum Hörpu á sunnudag kl. 16. Flytjendur eru fiðluleikararnir Ari Þór Vilhjálmsson og Sigurbjörn Bernharðsson, sem báðir hafa starf- að erlendis um árabil, víóluleikarinn Þórunn Ósk Marinósdóttir, sellóleik- arinn Sigurgeir Agnarsson og pían- istinn Anna Guðný Guðmundsdóttir. „Fyrsta verkið á efnisskránni er sónata Prokofieffs fyrir tvær fiðlur op. 56 sem var samin í París 1932. Prokofieff sagði um tilurð verksins: „Stundum kvikna góðar hugmyndir þegar hlustað er á vonda tónlist. Ég heyrði eitt sinn lélegt verk fyrir tvær fiðlur án undirleiks og fannst að það hlyti að vera hægt að gera áhugaverðari tónsmíð fyrir þessa þó takmörkuðu hljóðfærasamsetn- ingu.“ Píanókvartett Schnittke í a- moll var saminn 1988. Verkið er byggt á 24 takta drögum að scherzó- kafla fyrir píanókvartett eftir Gust- av Mahler. Í verki Schnittke má segja að tvö tónskáld takist á, þar sem annað beitir öllum brögðum til að ná yfirhöndinni. Belgíska tón- skáldið Adrien-François Servais var talinn einn mesti sellóleikari 19. ald- ar og kallaður Paganini sellósins. Hann var lærimeistari margra þekktra sellóleikara og var fyrsti sellóleikarinn sem notaði pinna sem hljóðfærið hvíldi á. Tilbrigðin um breska þjóðsönginn samdi Servais ásamt belgíska fiðlu- leikaranum Joseph Ghys. Verkið gerir miklar kröfur til flytjenda, enda samið af tveimur hljóðfæra- virtúósum sem gjarnan vildu sýna hvað í þeim bjó. Lokaverk tónleik- anna er píanókvintett sem Béla Bar- tók samdi í byrjun síðustu aldar rúmlega tvítugur að aldri. Verkið var ekki gefið út og Bartók lýsti því yfir að hann vildi ekki að það væri leikið opinberlega. Þeirri ósk tón- skáldsins hafa tónlistarmenn þó daufheyrst við í seinni tíð, enda er kvintettinn merkilegur áfangi á þroskaferli þessa mikla meistara,“ segir í tilkynningu. Kammertónleikar í Hörpu Morgunblaðið/Eggert Listafólk Ari Þór Vilhjálmsson, Sigurbjörn Bernharðsson, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir og Sigurgeir Agnarsson.  Verk eftir Bar- tók og Prokofieff flutt á sunnudag Sænski rithöfundurinnHenning Mankell öðlaðistheimsfrægð fyrir glæpa-sögur sínar og lögreglufor- ingjann Kurt Wallander. Hér er hann hins vegar á öðrum slóðum. Fredrik Welin er læknir, sem dreg- ið hefur sig í hlé frá skarkala um- heimsins og sest hefur að á eyju í sænska skerjagarðinum. Welin er jafnframt sögumaður og strax í upphafi kemur í ljós að hann er ein- mana, þótt hann taki fram að ekki sé hann í sjálfsmorðshugleiðingum. Útlegð hans er sjálfskipuð en les- andinn verður þess brátt áskynja að hún er ekki komin til af góðu, heldur vegna afdrifaríkra mistaka í starfi. Það er hins vegar hægara sagt en gert að einangra sig með öllu. Fortíðin á það til að skjóta upp kollinum þegar minnst varir. Dag einn birtist manneskja á ísnum við eyjuna. Þar er komin manneskja sem Welin eitt sinn sveik og nú heimtar hún að hann efni gamalt loforð. Bækurnar sem hér eru til um- fjöllunar komu út á sænsku 2006 og 2015 og í íslenskri þýðingu í fyrra og hittifyrra. Sú síðari reyndist síð- asta bók Mankells, sem lést af krabbameini haustið 2015. Hilmar Hilmarsson þýddi bækurnar og gerði það vel. Ítalskir skór er engin glæpasaga. Hún er saga af manni, sem hefur ákveðið að koma sér fyrir á hlið- arlínunni það sem eftir er ævinnar, en kemst að því að það er ekki hægt að þurrka út þau spor, sem maður hefur markað í lífinu. Welin er ekki sérlega geðþekkur maður. Hann er hornóttur og afundinn. Hann hefur allt af verið á skjön við umhverfi sitt, frekar eins og leikari í hlutverki en þátttakandi, og á það til að hegða sér eins og drullusokk- ur. Welin er hins vegar óvitlaus og fer fram þótt hægt gangi. Kannski er það þess vegna sem hægt er að hafa samúð með honum. Þar skiptir þó kannski mestu frásagnargáfa höfundar að skapa margbrotna persónu, sem er fráhrindandi og mannleg um leið. Í Ítölskum skóm neyðist Welin til að horfast í augu við fortíð sína og fær tækifæri til að bæta upp fyr- ir syndir sínar. Inn í söguna drag- ast ýmsar persónur, margar skrautlegar á borð við ítalska skó- smiðinn, sem gerir svo magnaðan fótabúnað að auðmenn koma fljúg- andi til að fá hann til að smíða á sig skó. Í seinni bókinni, Sænskum gúmmístígvélum, er Mankell aftur kominn á slóðir glæpasögunnar. Welin vaknar upp við að húsið hans er alelda. Brennuvargur gengur laus í skerjagarðinum. Er hann utanaðkomandi eða heimamaður? Brennuvargurinn er þó síður en svo aðalatriði í bókinni. Mun nær er að líta á þessar tvær bækur sem vangaveltur um lífið. Hvað þýðir það að gera mistök á lífsleiðinni? Er hægt að bæta fyrir yfirsjónir sínar? Mankell sagði að þegar hann hefði verið ungur hefði hann óttast það mest að verða gamall, horfa yf- ir farinn veg og komast að því að hann hefði klúðrað lífi sínu. Bætti svo við að hann væri ánægður með það líf sem hann hefði átt. Sögu- maður Mankells getur ekki státað af því, en hann fær tækifæri til að bæta úr. Morgunblaðið/Þorkell Einfari Í bókum sínum um Welin segir Henning Mankell frá manni sem hef- ur brennt allar brýr að baki sér, en fær tækifæri til að ná sátt við lífið á ný. Skáldsaga Ítalskir skór bbbmn Sænsk gúmmístígvél bbb nn Höfundur: Henning Mankell. Þýðing: Hilmar Hilmarsson. Ítalskir skór kom út 2017 og er 326 bls. Sænsk gúmmístíg- vél kom út 2018 og er 439 bls. Útgef- andi Mál og menning. KARL BLÖNDAL BÆKUR Einsetumaður hrakinn úr híði sínu BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Elly (Stóra sviðið) Fös 18/1 kl. 20:00 190. s Fös 25/1 kl. 20:00 194. s Sun 3/2 kl. 20:00 198. s Lau 19/1 kl. 20:00 191. s Lau 26/1 kl. 20:00 195. s Fim 7/2 kl. 20:00 199. s Sun 20/1 kl. 20:00 192. s Fös 1/2 kl. 20:00 196. s Lau 9/2 kl. 20:00 200. s Fim 24/1 kl. 20:00 193. s Lau 2/2 kl. 20:00 197. s Sýningum lýkur í mars. Ríkharður III (Stóra sviðið) Mið 23/1 kl. 20:00 8. s Fim 31/1 kl. 20:00 10. s Sun 17/2 kl. 20:00 12. s Sun 27/1 kl. 20:00 9. s Sun 10/2 kl. 20:00 11. s 5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið Allt sem er frábært (Litla sviðið) Fös 18/1 kl. 20:00 27. s Fim 24/1 kl. 20:00 28. s Fös 1/2 kl. 20:00 29. s Sýningum lýkur 1. febrúar. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fös 18/1 kl. 20:00 aukas. Lau 26/1 kl. 20:00 25. s Lau 9/2 kl. 20:00 29. s Lau 19/1 kl. 20:00 20. s Fös 1/2 kl. 20:00 26. s Sun 10/2 kl. 20:00 30. s Sun 20/1 kl. 20:00 aukas. Lau 2/2 kl. 20:00 27. s Fim 14/2 kl. 20:00 31. s Fös 25/1 kl. 20:00 24. s Fös 8/2 kl. 20:00 28. s Sun 17/2 kl. 20:00 32. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Núna 2019 (Litla sviðið) Sun 20/1 kl. 17:00 5. s Sun 27/1 kl. 20:00 7. s Mið 23/1 kl. 20:00 6. s Mið 30/1 kl. 20:00 8. s Núna er ekki á morgun, það er NÚNA Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Lau 19/1 kl. 20:00 4. s Lau 26/1 kl. 20:00 6. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s Fös 25/1 kl. 20:00 5. s Lau 2/2 kl. 20:00 7. s Athugið. Aðeins verða átta sýningar. Ég dey (Nýja sviðið) Fim 24/1 kl. 20:00 5. s Fim 31/1 kl. 20:00 7. s Sun 27/1 kl. 20:00 6. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s Trúir þú á líf fyrir dauðann? Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Mið 6/3 kl. 20:00 45. s Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Fim 7/3 kl. 20:00 46. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fös 8/3 kl. 20:00 47. s Lífið er ekki nógu ávanabindandi Kæra Jelena (Litla sviðið) Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s Lau 13/4 kl. 20:00 2. s Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Kvöld sem breytir lífi þínu. Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Lau 26/1 kl. 13:00 Auka Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Lau 26/1 kl. 16:00 Auka Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 28/4 kl. 13:00 Aukas. Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 28/4 kl. 16:00 Aukas. Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 5/5 kl. 13:00 Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 5/5 kl. 16:00 Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn Fös 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 9/2 kl. 19:30 12.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 Aukas. Fös 1/2 kl. 19:30 Auka Lau 16/2 kl. 19:30 13.sýn Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Fös 22/2 kl. 19:30 Frums Fös 1/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 28/2 kl. 19:30 2.sýn Fim 7/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 16/3 kl. 19:30 6.sýn Fyndinn og erótískur gamanleikur Fly Me To The Moon (Kassinn) Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn Lau 26/1 kl. 19:30 24.sýn Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Þitt eigið leikrit (Kúlan) Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 17:00 Auka Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Velkomin heim (Kassinn) Lau 2/2 kl. 19:30 Frums Lau 9/2 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/2 kl. 19:30 5.sýn Sun 3/2 kl. 19:30 2.sýn Sun 10/2 kl. 19:30 4.sýn Insomnia (Kassinn) Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn Brandarinn sem aldrei deyr Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 23/1 kl. 20:00 Mið 6/2 kl. 20:00 Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 18/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 22:30 Lau 2/2 kl. 19:30 Fös 18/1 kl. 22:30 Lau 26/1 kl. 20:00 Lau 2/2 kl. 22:00 Lau 19/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 22:30 Fim 7/2 kl. 19:30 Lau 19/1 kl. 22:30 Fim 31/1 kl. 20:00 Fös 8/2 kl. 19:30 Fim 24/1 kl. 20:00 Fös 1/2 kl. 19:30 Lau 9/2 kl. 19:30 Fös 25/1 kl. 20:00 Fös 1/2 kl. 19:30 Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 20/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 20:00 Sun 3/2 kl. 20:00 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.