Morgunblaðið - 18.01.2019, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 18.01.2019, Qupperneq 40
*Verð miðast við WOW Basic aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró og flug bókað fram og til baka. BORGARFERÐ ÍVETUR Haltu á vit ævintýranna og skelltu þér í skemmtilega borgarferð í vetur.Hvernig hljómar kaupæði og kaldur á krananum í Dublin, vöfflur og súkkulaði í Brussel eða breskur húmor og bakaðar baunir í London? Ef ekkert af þessu er þinn tebolli,mundu þá að þú ert alltaf wilkommen í pylsur og partý í Frankfurt. Hvaða Evrópuborg talar til þín? FRANKFURT FRÁ 6.999kr.* Tímabil: janúar – maí 2019 DUBLIN FRÁ 6.999kr.* Tímabil: janúar – apríl 2019 BRUSSEL FRÁ 6.999kr.* Tímabil: janúar - apríl 2019 LONDON FRÁ 5.499kr.* Tímabil: janúar - mars 2019 Vetrarsól á Ströndum, hátíð með tónleikum, kvöldvöku, sögugöngu o.fl. hefst í dag og lýkur sunnudag 20. janúar. Flutt verða íslensk þjóð- lög og sönglög í Hólmavíkurkirkju kl. 20.30 í kvöld, Bábiljur og bögur í baðstofunni verða í Sauðfjársetrinu kl. 15 á morgun, laugardag, og þá um kvöldið spilar og skemmtir Svavar Knútur í Bragganum. Vetrarsól hátt á lofti á Ströndum um helgina FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 18. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Haukar unnu óvæntan sigur á Tindastóli í Dominos-deild karla í körfuknattleik á Ásvöllum í gær- kvöld og Sauðkrækingar hafa þar með tapað tveimur leikjum í röð. Njarðvíkingar voru í basli með Val en náðu að sigra og eru komnir með fjögurra stiga forskot. KR- ingar misstu niður gott forskot á lokakaflanum gegn Þór í Þorláks- höfn. »2 Tindastóll með annan tapleikinn í röð ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Nýtt sýningarár í Listasafni Mos- fellsbæjar hefst á ferskum nótum með FROST, fyrstu myndlistar- sýningu Steinunnar Eikar Egils- dóttur, arkitekts, kl. 16 í dag. Hún leitar í abstraktmyndlist sem mótvægi við nákvæmni og strang- leika arkitektúrsins og hefur í gegnum tilraunir sínar með akríl- málningu mótað sinn ákveðna stíl. Verk Steinunnar Eikar eru sögð einstæð og keimlík í senn, frjálsleg og öguð, stíl- hrein og ósamstæð, máluð af ár- áttu og leikgleði. Arkitekt stígur í væng- inn við myndlistina leggja mikið á sig til þess að hlut- irnir gangi upp, en eins og oft vill verða mættu fleiri vera virkir.“ Hún bætir við að reynt sé að fá krakkana með í ýmis verk og 4. flokkur karla í fótboltanum, sem æfi á laugardags- morgnum, fái til dæmis það hlut- verk að bera inn borð og stóla fyrir þorrablótið. „Svo reynum við að virkja eldri flokkana til þess að taka til eftir blótið.“ Mikill akstur forráðamanna með börnin fylgir gjarnan íþróttalífi ung- menna auk þess sem fylgja þarf börnunum á mót vítt og breitt um landið. Ása Dagný segir að þar sem synirnir séu í mismunandi greinum og spotti sé á milli svæða geti verið erfitt að koma öllu heim og saman. „Foreldrar reyna oft að samnýta aksturinn og með samvinnu gengur þetta yfirleitt upp.“ Fjölskyldan fór í vetrarfrí til út- landa í fyrsta sinn í vetur og sumar- fríin hafa yfirleitt verið skipulögð í kringum fótboltamót. „Áður fórum við reglulega í sveitina til þess að hjálpa til við heyskapinn, en eftir því sem strákarnir verða eldri gef- ast vonandi tækifæri til þess að gera eitthvað annað.“ Ása Dagný segir að ánægjan í sjálfboðastarfinu sé helsta gulrótin og umstangið sé engin kvöð. „Viður- kenningin er sönnun þess að allur tíminn sem hefur farið í þetta starf er þess virði. Hún sýnir að það sem gert er er metið.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Ása Dagný Gunnarsdóttir var út- nefnd Vinnuþjarkur Aftureldingar 2018 á uppskeruhátíð félagsins fyrir áramót. Viðurkenningin hefur verið veitt frá 2001 og segist hún vera komin í góðra manna og kvenna hóp. „Nú verð ég að fara að gera eitt- hvað,“ segir hún með bros á vör. „Í alvöru talað er alltaf gott að fá klapp á bakið og ég held áfram á meðan ég get og hef gaman af.“ Stundum er sagt að þeir sem séu önnum kafnir hafi alltaf tíma. Ása Dagný er sjúkraþjálfari í 80% starfi hjá Heilsuborg, þriggja barna móð- ir, sem er nánast hætt í fótboltanum, var í handbolta, en æfir blak þrjú kvöld í viku, hleypur reglulega, stundar golf og er á fullu í sjálfboða- starfi fyrir Ungmennafélagið Aftur- eldingu í Mosfellsbæ. Íþróttafjölskylda „Fjölskyldan er á kafi í íþróttum og ég er dugleg að skipta mér af ýmsu og hjálpa til,“ segir Ása Dagný, en hún er í barna- og ung- lingaráði knattspyrnudeildar Aftur- eldingar, í stjórn öldungablaks- deildar kvenna og í þorrablóts- nefndinni. Elsti sonurinn, sem er að verða 14 ára, er í fótbolta, 11 ára pilturinn er í fótbolta, blaki og golfi og yngsti drengurinn, sem er átta ára, er í fótbolta, handbolta og blaki, og golfi þegar hann getur. Eigin- maðurinn æfir fótbolta þrisvar í viku og er auk þess í golfi. Afturelding er með 11 deildir. Ása Dagný segir að sjálfboðastarfið hafi byrjað með þátttöku í foreldraráði og síðan hafi eitt leitt af öðru. Barna- og unglingaráðið sé skipað samhentu fólki sem vinni vel saman enda veiti ekki af. „Við erum með yf- ir 500 krakka á æfingum og að mörgu þarf að hyggja.“ Í því sam- bandi nefnir hún meðal annars að koma þurfi skráningu og greiðslu- formi í fastara form, skipuleggja þurfi starf foreldraráða, vinnu við mótin og svo framvegis. „Starfið byggist á sjálfboðaliðum og margir Ánægjan er helsta gulrót starfsins  Ása Dagný Gunnarsdóttir er Vinnuþjarkur Aftureldingar Ljósmynd/Eygerður Helgadóttir Viðurkenning Ása Dagný Gunnarsdóttir eftir útnefninguna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.