Morgunblaðið - 22.01.2019, Side 16

Morgunblaðið - 22.01.2019, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2019 BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Mikil aukning er á sölu rafbóka hjá netversluninni Heimkaup.is en fyrir- tækið hóf sókn á þann markað fyrir rúmum þremur árum. Það sem af er ári er söluaukning um 160% á raf- bókum á milli ára og búast má við því að hátt í sjö þúsund rafbækur verði seldar hjá fyrirtækinu í ár en það einblínir á sölu rafbóka fyrir há- skólanema. Þetta segir Guðmundur Magnason, framkvæmdastjóri Heimkaup.is, við Morgunblaðið. Kynslóðaskipti í háskólum „Söluaukningin er mjög sannfær- andi og við teljum að hefðbundna bókin hljóti að vera á mikilli niður- leið á sama tíma hjá námsmönnum.“ Guðmundur segir margt spila inn í þessa þróun. Ein skýring er sú að ákveðin kynslóðaskipti séu að verða innan háskólans þar sem nemendur eru orðnir vanari því að lesa náms- efni á rafrænu formi. Svo skiptir verðið miklu máli fyrir háskólanema. „Verðmunurinn spilar líka inn í. Há- skólabækur eru dýrari á prenti en þær eru ódýrari á þessu formi,“ seg- ir Guðmundur sem segir að verð- munurinn sé um 15%-60%. Hann segir að verðteygni háskóla- bóka sé afar mikil og augljóst að há- skólanemendur velji ódýrari val- kosti. Dæmi um slíkan valkost er að leigja bækur en algengt er að nem- endur leigi bækur í 90-180 daga, eða sem nemur lengd námskeiðanna sem þeir taka. Er það nýjung sem vel hef- ur verið tekið. „Við erum að ná samningum við fleiri útgefendur um að leigja bæk- urnar. Það er misjafnt á milli útgef- enda en þetta fer allt niður í 30 daga leigu og upp í ár,“ segir Guðmundur og heldur áfram. „Ég held að þetta sýni að þetta sé hópur sem er mjög næmur fyrir verði. Það er örugglega mjög freist- andi fyrir þennan hóp að velja lægsta verð.“ Fyrst inn á markaðinn Fyrirtækið hóf innrás á rafbóka- markaðinn fyrir rúmum þremur ár- um. Spurður um ástæðuna segir Guðmundur að pláss hafi verið fyrir Heimkaup.is á þeim markaði og þá er þetta einnig leið til þess að ná til fjölbreyttari hóps viðskiptavina enda selji fyrirtækið margt fleira en raf- bækur. „Það getur verið snúið að finna inngöngupunkt fyrir nýja kúnna. Hvar þeir koma inn og svo framvegis. En það var ekkert verið að sinna rafbókasölu fyrir háskóla- nema. Það var bara ekki til þegar við komum inn í þetta og við sáum því ákveðið tækifæri í því að komast fyrst inn á þann markað.“ Guðmundur bendir einnig á að meirihluti sölunnar á rafbókum fari fram utan hefðbundinna afgreiðslu- tíma. Telur hann þennan valkost því kærkomna viðbót við framboðið. Aukinheldur eru ýmiss konar við- bætur við rafbækur sem dýpka og bæta innihald bókanna að hans mati. „Hefðbundna bókin hlýtur að vera á niðurleið“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Rafbækur Heimkaup selja margt fleira en rafbækur. Segir Guðmundur þær vel til þess fallnar að ná til fleiri kúnna. Rafbækur » 160% aukning er á sölu raf- bóka það sem af er ári frá því sem var á sama tímabili í fyrra. » Fjölbreyttari og ódýrari val- kostir ásamt nýrri kynslóð há- skólanema sem vanari eru hinu rafræna formi eru á meðal þess sem skýrir auknar vin- sældir. » Meira en helmingur rafbók- anna er seldur utan hefðbund- ins afgreiðslutíma.  Heimkaup gera ráð fyrir að selja hátt í 7 þúsund rafbækur á þessu ári Árið 2012 hófu 3.080 fyrirtæki starf- semi hér á landi. Fimm árum síðar var 1.271 þeirra enn virkt. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands yfir lýðfræði fyrirtækja. Töl- urnar eru teknar saman á grundvelli samræmdrar aðferðafræði Eurostat og OECD. Samkvæmt þeim veittu fyrirtækin sem enn störfuðu fimm árum eftir stofnun um 2.700 manns vinnu. Hafði þeim þá fjölgað um 69% eða úr 1.600 fyrsta árið sem þau störfuðu. Rekstrartekjur þeirra höfðu vaxið um 228% á fyrstu fimm árunum og meðalvöxtur rekstrartekna reyndist 27% á ári. Rekstrartekjur þeirra námu 18 milljörðum á fyrsta starfs- árinu en höfðu aukist um 40 millj- arða á fimm árum og stóðu í 58 millj- örðum árið 2017. Flest fyrirtæki voru stofnuð árið 2012 á sviði sér- fræðilegrar, vísindalegrar og tækni- starfsemi eða 225 en næstflest voru þau á sviði „byggingarstarfsemi, mannvirkjagerðar, námugraftar og vinnslu hráefna úr jörðu“. Þau voru 212. Árlegur meðalvöxtur yfir fimm ára tímabil varð hins vegar á sviði leigustarfsemi og ýmissar sérhæfðr- ar þjónustu. Nam hann að jafnaði 46% yfir tímabilið. Næstmestur varð vöxturinn að meðaltali í farþega- flutningum eða 45%. Svipaða sögu má lesa út úr tölunum yfir fjölda starfsfólks. Meðalvöxtur árlega reyndist 23% í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu en 20% í farþegaflutningum. Þá reyndist ár- legur meðalvöxtur starfa einnig 20% í atvinnugreinum sem flokkuðust undir framleiðslu án fiskvinnslu. Morgunblaðið/Eggert Fólksflutningar Mikill vöxtur varð hjá fyrirtækjum stofnuðum 2012. 41% enn starf- andi eftir 5 ár  Fyrirtæki sem stofnuð voru 2012 veittu 2.700 manns vinnu 5 árum síðar Hamraborg 10, Kópavogi Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU ——— 22. janúar 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 120.54 121.12 120.83 Sterlingspund 155.96 156.72 156.34 Kanadadalur 90.86 91.4 91.13 Dönsk króna 18.408 18.516 18.462 Norsk króna 14.124 14.208 14.166 Sænsk króna 13.398 13.476 13.437 Svissn. franki 121.25 121.93 121.59 Japanskt jen 1.1011 1.1075 1.1043 SDR 167.89 168.89 168.39 Evra 137.42 138.18 137.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.8668 Hrávöruverð Gull 1285.05 ($/únsa) Ál 1850.0 ($/tonn) LME Hráolía 61.33 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Persónuverndar- yfirvöld í Frakklandi (CNIL) hafa lagt 50 milljóna evra sekt, jafnvirði 6,9 millj- arða króna, á Goog- le á grundvelli nýrra laga Evrópusam- bandsins sem ætlað er að tryggja persónuvernd og rétta meðferð persónuupplýsinga. Google er með þessu, að sögn Financial Times, fyrsta bandaríska stórfyrirtækið sem sætir viðurlögum á grundvelli lagasetn- ingar. Sektin er lögð á fyrirtækið þar sem það er sagt hafa vanrækt skyldur um að upplýsa notendur búnaðar fyrir- tækisins um hvernig upplýsingar um þá yrðu hagnýttar og að fyrirtækið skortið lagaheimild til að sérsníða auglýsinga- efni að notendum tækni frá Google. Sektin er lögð á í kjölfar kvörtunar frá aðila sem einnig hefur lagt fram kvört- un vegna Youtube, Amazon, Apple, Net- flix og Spotify. Frönks stjórnvöld sekta Google um 6,9 milljarða STUTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.