Morgunblaðið - 22.01.2019, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2019
Ylströndin Nauthólsvík
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Mánudagar – Föstudagar
11-14 og 17-20
Laugardagar
11-16
Lengri
afgreiðslutími
á ylströnd
Verið velkomin í Nauthólsvík
Sigríður Margrét Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á Akureyri, á50 ára afmæli í dag. Hún var á leið út í flugvél þegar blaða-maður hafði samband við hana í gær.
„Við erum að skipta um húsnæði og ætlum því að halda upp á af-
mælið erlendis. Maðurinn minn er að fara í vinnuferð til Toronto og
ég ákvað að fara með honum, hann verður sem sagt í vinnuferð og ég
í dekurferð.“
Eiginmaður Sigríðar, Karl Jónsson, er flugstjóri hjá Air Iceland
Connect og fer með flugmenn í hæfnispróf og nýþjálfanir til Toronto.
„Ég hef farið nokkrum sinnum með honum þangað. Mér finnst
Toronto mjög skemmtileg, það er reyndar mjög kalt þarna núna en
maður er nú vanur ýmsu.“
Sigríður er Akureyringur í húð og hár og hefur alla tíð búið á
Akureyri fyrir utan eitt ár þegar maðurinn hennar var í námi. Hún
vinnur á almennu göngudeildinni á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Áhugamál Sigríðar eru fjölskyldan, söngur og svo eru gönguferðir
að koma sterkt inn hjá henni. „Ég er í Kór Akureyrarkirkju, búin að
vera síðustu þrjú til fjögur árin þar en var líka í kórnum áður en börn-
in mín fæddust. Svo höfum við hjónin tvö síðustu sumur farið á Horn-
strandir og það var mjög spennandi og mig langar að gera meira af
því í framtíðinni.“
Börn Sigríðar og Karls eru Fanney Margrét, f. 1991, Jón Emil, f.
1996, og Kristjana Elva, f. 1997.
Í Lech Sigríður á ferðalagi í Austurríki með eiginmanninum 2014.
Hjónin í dekurferð
og vinnuferð
Sigríður Margrét Jónsdóttir er fimmtug
G
ísli Heimir Sigurðsson
fæddist 22. janúar 1949
á Akureyri. Þar ólst
hann upp og gekk í
barnaskólann á Brekk-
unni, sem hét þá Barnaskóli Íslands.
Síðan lá leiðin í Gagnfræðaskóla
Akureyrar og þaðan í Menntaskólann
á Akureyri. Hann tók stúdentspróf
þaðan 1969.
Eftir eitt ár í Bandaríkjunum við
nám í efnafræði settist Gísli í lækna-
deild við Háskóla Íslands og útskrif-
aðist þaðan 1976. Eftir kandidatsár á
Íslandi hélt hann til Svíþjóðar í sér-
nám í svæfinga- og gjörgæslulækn-
ingum við Háskólann í Lundi. Hann
lauk sérnámi 1982 og doktorsnámi
1983.
Gísli var aðstoðaryfirlæknir á Há-
skólasjúkrahúsinu í Lundi 1984-1985,
yfirlæknir og prófessor á Háskóla-
sjúkrahúsinu Kúveit 1985-1990, og
Gísli H. Sigurðsson, prófessor og yfirlæknir – 70 ára
Fjölskyldan Í aftari röð eru feðgarnir, frá vinstri: Halldór, Hjalti og Gísli. Í fremri röð eru Theodór, Brynjar, Birna,
Birna með Nikulás og Þorbjörg með Búbbólínu sem gægist bak við runna. Á myndina vantar tengdadæturnar og
Martein Sebastían sem var rétt ófæddur þegar myndin var tekin árið 2017.
Læknir með alþjóðlega
reynslu og tengsl
Hjónin Birna og Gísli á góðri stundu, en þau gengu í hjónaband 3. júlí 1971.
Ólafsfjörður Rúrik Óli Hilmars-
son fæddist 15. maí 2018 kl.
22.20. Hann vó 3.890 g og var 51
cm langur. Foreldrar hans eru
Adda María Ólafsdóttir og Hilmar
Símonarson.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is