Morgunblaðið - 22.01.2019, Síða 31

Morgunblaðið - 22.01.2019, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2019 AF LISTUM Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Það blikka ákveðin viðvörunar-ljós þegar við finnum að fólkier misboðið við það sem við köllum klassískt myndmál. Þá finnst okkur við vera farin að færast í átt að einhverju sem gæti kallast rit- skoðun,“ sagði Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Listasafns Íslands, þegar hún var í gær spurð út í þá ákvörðun stjórnenda Seðlabanka Ís- lands að fjarlægja og setja í geymslu málverk eftir Gunnlaug Blöndal (1893-1962), einn þekktasta og vin- sælasta myndlistarmann þjóðar- innar á sinni tíð. Það spurðist út í fyrrasumar að innan Seðlabankans væri skoðað hvernig ætti að bregðast við kvörtun starfsmanns yfir málverkum eftir Gunnlaug, starfmaðurinn taldi verk- in ósæmileg og vildi að þau yrðu fjarlægð. Á föstudaginn var síðan í Fréttablaðinu greint frá þeirri ákvörðun bankans að fjarlægja um- rædd nektarmálverk listamannsins og voru þau sett í geymslu. Seðlabankinn á glæsilegt og vandað listaverkasafn sem prýðir húsakynnin og hefur verið safnað af miklum og virðingarverðum metn- aði. Á seinni árum hefur bankinn í stað þess að kaupa ný verk veitt myndarlega og mikilvæga styrki til listamanna í hinum ýmsu greinum. Meira af list á vinnustaði Skiljanlega vöktu þær umtal fréttirnar af bannfæringu módel- mynda Gunnlaugs Blöndal, einmitt þeirra verka listamannsins sem hafa til þessa dags verið hans vinsælustu. Bandalag íslenskra listamanna sendi frá sér yfirlýsingu og segir það undarlega tímaskekkju „puritan- isma“ að ritskoða list með þessum hætti. Undirritaður óskaði í gær eftir gögnum frá Seðlabankanum sem skýrðu á hvaða forsendum ákvörð- unin um að taka listaverk eftir Gunnlaug niður byggðist, og spurði jafnframt hvort leitað hefði verið til Listasafns Íslands eða sérfræðinga eftir ráðgjöf. Harpa, forstöðumaður Listasafns Íslands, sagði aðspurð að ekki hefði verið leitað eftir neinni ráðgjöf hjá safninu. Þá væri lista- verkaeign bankans safninu alveg óviðkomandi. „Seðlabankinn gengur afar vel um verk sín og það er ekkert við það að athuga að bankinn eigi listaverk, heldur er það hið besta mál. Og það ætti að kaupa meira af myndlist inn á stóra vinnustaði,“ segir hún. „Við höfum átt farsælt samstarf við bankann og höfum meira að segja fengið lánuð þaðan verk eftir Gunnlaug Blöndal á sýningar. Meðal annars umrætt málverk. Það ætti að vera staðfesting á gæðum þegar við fáum lánuð verk til að sýna. Þessi verk Gunnlaugs vöktu at- hygli og vissulega sýndist sitt hverj- um en þau voru mjög vinsæl alla tíð. Góð módelmynd eftir Gunnlaug Blöndal er eftirsótt,“ segir Harpa. Verða sýnd á Safnanótt Síðdegis í gær barst svar frá Stefáni Jóhanni Stefánssyni, rit- stjóra á skrifstofu seðlabanka- stjóra. Hann segir umræðuna um nefnd málverk eiga langan aðdrag- anda. „Starfsmenn hafa lýst þeirri skoðun sinni að ekki sé æskilegt að konur þurfi að bera upp erindi sín við karlkyns yfirmenn með málverk af berum konum fyrir framan sig,“ segir hann. „Með hliðsjón af jafnréttisstefnu, stefnu gegn einelti og áreitni var ákveðið að bregðast við þessum ábendingum, m.a. með hliðsjón af jafnréttisáætlun. Þessi ákvörðun [um að fjarlægja mál- verkin] hefur ekkert að gera með Brjóstamyndir Gunn- laugs inni í geymslu listrænt mat og felur ekki í sér neinn dóm um þessar myndir. Hér var um að ræða uppsetningu vinnuum- hverfis og þar sem myndirnar virt- ust á þessum stað hafa truflandi áhrif var sátt um að þær gætu ekki verið þar. Um er að ræða tvö verk eftir Gunnlaug Blöndal.“ Þá bætir Stefán Jóhann við að búið sé að taka ákvörðun um að sýna verkin í Seðla- bankanum á Safnanótt hinn 8. febr- úar næstkomandi – búast má við því að sú sýning veki áhuga. Sérstaða Gunnlaugs Blöndal Hér er rétt að huga aðeins að málverkum af nöktum konum eftir Gunnlaug sem augsýnilega þykja nú ekki allsstaðar við hæfi. Ítarlega er fjallað um myndsköpun og feril Gunnlaugs í Íslenskri listasögu, 2. bindi, en það var sumarið 1930 sem málverk hans af nöktum fyrirsætum og draumkenndu landslagi vöktu nokkra athygli í París. Velgengni hans þar í borg er sögð hafa verið með nokkrum ólíkindum en list Gunnlaugs spratt af franskri hefð. Þá segir: „Konumyndir Gunnlaugs hafa sérstöðu, því enginn annar ís- lenskur málari hefur gert nektina að myndefni á sama hátt og hann … Í konumyndum hans má greina sterk áhrif frá pólska listmálaranum Moise Kisling, sem hafði verið vinur Amedeos Modigliani, en hann setti sterkan svip á tímabilið með munúðarfullum stúlkumyndum, svartri randteikningu og express- jónískri litanotkun.“ (Það er spurning hvað væri gert við myndir eftir hinn ofurvinsæla Modigliani í Seðlabankanum, en þær vektu mögulega lukku í musteri fjár- magnsins vegna verðmiðans á þeim: eitt var selt á uppboði í fyrra fyrir sextán milljarða króna. Málverk af nakinni konu.) Aftur að Gunnlaugi í Listasög- unni: „En það er kvenlíkaminn, og fyrst og fremst áherslan á hörundið, sem skapar Gunnlaugi sérstöðu. Hann notar framsætt sjónarhorn sem var dæmigert fyrir Parísarskól- ann. Þéttum formum líkamans er haldið saman með afmörkuðum en léttum útlínum … áherslan er ætíð á ljósið og með tónaspili og blæbrigð- um fær hann flötinn til að lifna við og ljóma í léttleika teikningarinnar og gegnsæi litanna. Hann lætur litina titra, lærir að setja loft í litinn eins og Auguste Renoir, hvernig á að fá hörundið til að ljóma og hvernig þunnt lag olíulita kallar fram birtu, en það er einmitt gegnsæ birtan sem verður einkenni Gunnlaugs og skap- ar honum sérstöðu …“ Poseidon fór úr Ráðhúsinu Viðlíka viðbrögð hafa vissulega komist í fréttir hér á landi áður. Eftirminnilegt er að árið 1992 var stórt málverk eftir Helga Þorgils Friðjónsson af Poseidon fjarlægt úr Ráðhúsi Reykvíkinga því það „þótti ögra skrifstofustúlkum“ í húsinu, að sögn DV á þeim tíma. Stór, nakinn sjávarguðinn starði þar á nærstadda úr verkinu og stuðaði typpið stúlk- urnar svo verkið fór úr húsinu – en hefur oft verið sýnt á öðrum vett- vangi. Vitaskuld hringja viðvörunar- bjöllur víða ef það á að fara að rit- skoða eða reyna að bæla frjálsa listsköpun. Forpokuð fordæming á sköpunarverkum framsækinna og oftast mikilvægra listamanna skýtur af og til upp kollinum – alræmdastar eru sýningar nasista á því sem þeir kölluðu úrkynjaða list en þar mátti sjá verk eftir margra helstu meist- ara þess tíma. Eins setti Jónas frá Hriflu árið 1942 upp hér svokallaða háðungarsýningu á verkum sam- tímalistamanna sem hann kunni ekki að meta. Og svo setti hann upp sýn- ingu með verkum sem hann hafði velþóknun á – þar á meðal voru verk eftir Gunnlaug nokkurn Blöndal! Fleiri nakta karla? Rök bankans um „að ekki sé æskilegt að konur þurfi að bera upp erindi sín við karlkyns yfirmenn með málverk af berum konum fyrir fram- an sig“ eru skiljanleg, að vissu leyti, og ekki síst ef karlmenn eru í meiri- hluta starfsmanna og kynjajafn- vægið mögulega óheppilegt á vinnu- staðnum. En það eru margar hliðar á málinu. Konur vilja nú frelsa geir- vörtuna og þær vilja ögra karla- veldinu með berum brjóstum eins og í sýningu Borghildar Indriðadóttur á Austurvelli á Listahátíð í fyrra. En á sama tíma vilja þær – ef þeir sem kvörtuðu í bankanum eru konur – ekki sjá málverk af nöktum brjóst- um kynsystra. Falleg verk þar sem litirnir titra, loft er í litnum og hör- undið ljómar, svo vitnað sé í Lista- söguna. Hefðu þeir sem kvörtuðu frekar átt að fara fram á að sjá jafn margar myndir af nöktum körlum? Fá Poseidon Helga Þorgils lánaðan? Því hvað er eðlilegra í myndlist en einmitt módelmyndin; mannslíkam- inn sem allir listamenn verða að spreyta sig á í námi og glíma enda- laust við að ná réttum og áhrifamikl- um – enda maðurinn í Guðs mynd sagður hápunktur sköpunarverks- ins. En, í geymsluna með brjóstin. Harpa Þórsdóttir sagði það um- hugsunarvert að fólk vildi fjarlægja verk af nöktum líkömum. „Ef þetta snýst um smekk þá er það erfiður út- gangspunktur. En það kemur aftan að okkur þegar jafn klassískt mynd- mál og módelmálverk eða módel- höggmynd á í hlut. Við þekkjum úr listasögunni að þegar svona kröfur koma fram er það oft upphaf á ákveðinni hnignun.“ Það verður spennandi að sjá málverkin á Safnanótt. » Því hvað er eðli-legra í myndlist en einmitt módelmyndin; mannslíkaminn sem allir listamenn verða að spreyta sig á … Umdeilt? Eitt málverka Gunnlaugs Blöndal, Módel með spegil, frá 1930. Verkið mun ekki vera í Seðlabankanum en var selt á uppboði árið 1992. BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Elly (Stóra sviðið) Fim 24/1 kl. 20:00 193. s Fös 1/2 kl. 20:00 196. s Fim 7/2 kl. 20:00 199. s Fös 25/1 kl. 20:00 194. s Lau 2/2 kl. 20:00 197. s Lau 9/2 kl. 20:00 200. s Lau 26/1 kl. 20:00 195. s Sun 3/2 kl. 20:00 198. s Sýningum lýkur í mars. Ríkharður III (Stóra sviðið) Mið 23/1 kl. 20:00 8. s Fim 31/1 kl. 20:00 10. s Sun 17/2 kl. 20:00 12. s Sun 27/1 kl. 20:00 9. s Sun 10/2 kl. 20:00 11. s 5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið Allt sem er frábært (Litla sviðið) Fim 24/1 kl. 20:00 28. s Fös 1/2 kl. 20:00 Lokas. Sýningum lýkur 1. febrúar. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fös 25/1 kl. 20:00 24. s Þri 5/2 kl. 20:00 aukas. Sun 10/2 kl. 20:00 30. s Lau 26/1 kl. 20:00 25. s Mið 6/2 kl. 20:00 aukas. Fim 14/2 kl. 20:00 31. s Fös 1/2 kl. 20:00 26. s Fös 8/2 kl. 20:00 28. s Sun 17/2 kl. 20:00 32. s Lau 2/2 kl. 20:00 27. s Lau 9/2 kl. 20:00 29. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Núna 2019 (Litla sviðið) Mið 23/1 kl. 20:00 6. s Sun 27/1 kl. 20:00 7. s Mið 30/1 kl. 20:00 8. s Núna er ekki á morgun, það er NÚNA Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Fös 25/1 kl. 20:00 5. s Lau 2/2 kl. 20:00 7. s Lau 26/1 kl. 20:00 6. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s Athugið. Aðeins verða átta sýningar. Ég dey (Nýja sviðið) Fim 24/1 kl. 20:00 5. s Fim 31/1 kl. 20:00 7. s Sun 27/1 kl. 20:00 6. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s Trúir þú á líf fyrir dauðann? Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Mið 6/3 kl. 20:00 45. s Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Fim 7/3 kl. 20:00 46. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fös 8/3 kl. 20:00 47. s Lífið er ekki nógu ávanabindandi Kæra Jelena (Litla sviðið) Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s Lau 13/4 kl. 20:00 2. s Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Kvöld sem breytir lífi þínu. Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Lau 26/1 kl. 13:00 Auka Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Lau 26/1 kl. 16:00 Auka Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 28/4 kl. 13:00 Aukas. Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 28/4 kl. 16:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 5/5 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 5/5 kl. 16:00 Aukas. Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn Fös 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 9/2 kl. 19:30 12.sýn Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn Fös 1/2 kl. 19:30 Auka Fös 15/2 kl. 19:30 Aukas. Fös 8/3 kl. 19:30 Aukas. Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 16/2 kl. 19:30 13.sýn Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Mið 27/2 kl. 19:30 Fors. Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn Fim 28/2 kl. 19:30 Fors. Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn Fös 1/3 kl. 19:30 Frums Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 7/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fyndinn og erótískur gamanleikur Fly Me To The Moon (Kassinn) Lau 26/1 kl. 19:30 24.sýn Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Þitt eigið leikrit (Kúlan) Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 17:00 Auka Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Velkomin heim (Kassinn) Lau 2/2 kl. 19:30 Frums Lau 9/2 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/2 kl. 19:30 5.sýn Sun 3/2 kl. 19:30 2.sýn Sun 10/2 kl. 19:30 4.sýn Insomnia (Kassinn) Sun 27/1 kl. 19:30 Lokas. Brandarinn sem aldrei deyr Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 23/1 kl. 20:00 Mið 6/2 kl. 20:00 Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 24/1 kl. 20:00 Fös 1/2 kl. 19:30 Lau 9/2 kl. 19:30 Fös 25/1 kl. 20:00 Fös 1/2 kl. 19:30 Fim 14/2 kl. 19:30 Fös 25/1 kl. 22:30 Lau 2/2 kl. 19:30 Fös 15/2 kl. 19:30 Lau 26/1 kl. 20:00 Lau 2/2 kl. 22:00 Fös 15/2 kl. 22:00 Lau 26/1 kl. 22:30 Fim 7/2 kl. 19:30 Lau 16/2 kl. 19:30 Fim 31/1 kl. 20:00 Fös 8/2 kl. 19:30 Lau 16/2 kl. 22:00 Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 27/1 kl. 20:00 Sun 3/2 kl. 20:00 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.