Morgunblaðið - 04.02.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2019
Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is
FJÖLPÓSTUR
SEM VIRKAR
*könnun Zenter apríl 2016.
61% landsmanna lesa fjölpóst
70% kvenna lesa fjölpóst
58% neytenda taka eftir tilboðum á
vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst*
Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili
MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR
EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR
Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar
Hann var sláandi vandræðagang-urinn hjá Dóru Björt Guðjóns-
dóttur, oddvita Pírata í borg-
arstjórn, þegar Björt Ólafsdóttir
spurði hana í þættinum Þingvöllum á
K100 í gærmorgun út í tölvupósta
tengda braggamáli. Dóra Björt við-
urkenndi að málið hefði dregið úr
trausti í garð stjórnmálamanna í
borginni og sagðist hafa mikinn
áhuga á að það yrði upplýst að fullu
og að ekkert yrði dregið undan.
Fram kom í umræðunum að vand-inn væri sá að tölvupóstum
hefði verið eytt úr hólfi þess sem
stýrði endurbyggingu braggans og
ekki fundist. Þetta væri eðlilegt enda
nauðsynlegt að eyða tölvupóstum
reglulega.
Nú er það svo með tölvupósta aðþað er ekki endilega auðvelt að
eyða þeim svo þeir finnist ekki aftur,
en það virðist hafa tekist þarna við
reglubundna hreinsun pósthólfs.
Annað er þó ekki síður áhugavertvið tölvupósta og það er sú stað-
reynd að þeir finnast yfirleitt í að
minnsta kosti tveimur pósthólfum,
hjá sendanda og viðtakanda. Þegar
Björt spurði Dóru Björt út í það
hvers vegna pósthólf borgarstjóra
væri ekki opnað og þannig fengið úr
því skorið hvað gerðist, varð vand-
ræðalega fátt um svör.
Það væri óskaplega flókið ogþyrfti að fara eftir faglegum
ferlum og eins og borgarbúar þekkja
hafa þeir „faglegu“ ferlar engu skil-
að enn og munu sjálfsagt aldrei gera,
enda bersýnilega rík þörf á mikilli
leynd.
Dóra Björt Guðjónsdóttir og Björt Ólafsdóttir.
Píratinn fer
undan í flæmingi
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Erlendur karlmaður fór ránshendi um sumarbú-
stað sem hann leigði og gisti í vestan í Vaðlaheiði,
gegnt Akureyri, aðfaranótt sunnudags. Hann
hafði með sér Bang & Olufsen-hátalara, ullarteppi
og vín.
Bústaðurinn er einn af bústöðum Viking Cotta-
ges og segir Benedikt Viggósson, eigandi fyrir-
tækisins, að tjónið hlaupi á 300 til 400 þúsund
krónum.
Viking Cottages gerir út fjóra sumarbústaði á
svæðinu og segir Benedikt að þetta sé í fyrsta sinn
á þremur árum sem hann lendir í þjófnaði.
„Fólk skráir sig sjálft inn og aftur út, þannig að
ég hitti viðkomandi aldrei,“ segir Benedikt en
karlmaðurinn hafði bókað bústaðinn yfir eina nótt.
Maðurinn hafði samband við Benedikt símleiðis
á laugardag eftir að ekki náðist að rukka kortið
sem maðurinn hafði gefið upp við bókunina.
„Ég hefði þá kannski getað kveikt á perunni
þegar hann hringdi úr leyninúmeri,“ segir Bene-
dikt en maðurinn þurfti að gefa upp fjögur korta-
númer áður en Benedikt tókst loks að rukka hann.
Upp komst um þjófnaðinn þegar starfsmaður
Viking Cottages mætti á svæðið á sunnudags-
morgun til þess að þrífa eftir dvöl gestsins.
Leigði bústað og stal úr honum
Tók Bang & Olufsen-
hátalara, teppi og vín
Ljósmynd/Viking Cottages
Vaðlaheiði Bústaðir Viking Cottages eru vestan
í Vaðlaheiði, gegnt Akureyri.
Lagnir í salernum við Jökulsárlón
frusu í gær þannig að gestir svæð-
isins gátu ekki gengið örna sinna á
þeim. Frá þessu var greint á Face-
book-síðu Vatnajökulsþjóðgarðs og
þar var mælt með því að fólk skipu-
legði heimsóknir sínar á svæðið í
samræmi við það.
Steinunn Hödd Harðardóttir, að-
stoðarmaður þjóðgarðsvarðar á
Suðursvæði og umsjónarmaður
með Breiðamerkursandi, sagði í
samtali við mbl.is í gær að salernin,
eða réttara sagt lagnirnar að þeim,
hefðu verið frosnar um tíma og
óvíst væri hversu lengi það ástand
myndi vara. Næstu salerni eru í 20-
30 kílómetra fjarlægð.
Salernin hafa frosið einu sinni
áður í vetur en þá varði ástandið í
tvo til þrjá daga. Hins vegar var
mun kaldara í gær. Steinunn sagði
lítið við þessu að gera, það yrði ein-
faldlega að taka mið af aðstæðum.
Frosin og ónothæf salerni við Jökulsárlón
Logi Einarsson, formaður Samfylk-
ingarinnar, segir að ákvörðun um
endurkomu Ágústs Ólafs Ágústs-
sonar, þingmanns flokksins, til
starfa á Alþingi sé algerlega í hans
eigin höndum.
Ágúst Ólafur tók sér tveggja
mánaða launalaust leyfi í kjölfar
áminningar frá trúnaðarnefnd Sam-
fylkingarinnar vegna óviðeigandi
framkomu hans í garð konu. Þing-
maðurinn ákvað jafnframt að leita
sér faglegrar aðstoðar. Hann til-
kynnti þetta 7. desember og verða
því tveir mánuðir liðnir seinni hluta
vikunnar.
Spurður hvort hann teldi rétt að
þingmaðurinn
kæmi aftur til
starfa, nú eða
síðar, vitnaði
Logi til fyrri um-
mæla sinna þess
að efnis að ef
fólk sem yrði á í
lífinu sýndi raun-
verulega iðrun
og stigi einhver
skref til að bæta
ráð sitt fyndist honum að það ætti
að fá möguleika til að ávinna sé
traust á ný. Samkvæmt upplýsing-
um Loga verður látið vita með fyr-
irvara þegar málin skýrast frekar.
Ákvörðunin er
þingmannsins sjálfs
Launalausu leyfi Ágústs Ólafs að ljúka
Ágúst Ólafur
Ágústsson