Morgunblaðið - 04.02.2019, Blaðsíða 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2019
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þéri i
Orkusparnaður
með Nergeco
hraðopnandi
iðnaðarhurðum
Nergeco
• Opnast hratt & örugglega
• Eru orkusparandi
• Þola mikið vindálag
• Eru öruggar & áreiðanlegar
• Henta við allar aðstæður
• 17 ára reynsla við íslen-
skar aðstæður & yfir 150
hurðir á Íslandi
Með hraðri opnun & lokun sem & mikilli einangrun
má minnka varmaskipti þar sem loftskipti verða minni
Intelligent curtain sem
veitir aukið öryggi
» Leikritin Tölvuvírusinn eftir Iðunni Ólöfu Berndsen, 11 ára, og Friðþjófurá geimflakki eftir Sunnu Stellu Stefánsdóttur, sjö ára, voru sýnd saman á
Litla sviði Borgarleikhússins um helgina en þær Iðunn og Sunna unnu leik-
ritasamkeppnina Krakkar skrifa sem Borgarleikhúsið stóð að í samstarfi við
RÚV og KrakkaRÚV.
Leikrit eftir barnung leikskáld sýnd á Litla sviði Borgarleikhússins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kátir krakkar Nemendur í öðrum bekk Grunnskólans á Hellu mættu í Borgarleikhúsið til þess að sjá verk Sunnu
Stellu Stefánsdóttur, bekkjarsystur sinnar, en hún er höfundur Friðþjófs á geimflakki.
Þó margt í uppbyggingu LHÍ hafi
heppnast mjög vel á þessum tveimur
áratugum þá er m.a. enn eftir að
finna ásættanlega lausn á lang-
tímavanda sem fylgt hefur stofn-
uninni allt frá upphafi: húsnæðismál-
unum. „Framtíðarmarkmið
háskólans grundvallast öll á því að
okkur takist að koma starfseminni
undir eitt þak: Að ná fram því þver-
faglega námi og rannsóknum sem við
stefnum að er óvinnandi öðruvísi en
að við séum öll á sömu torfunni. Að
dreifast á fjórar byggingar þvers og
kruss um borgina er ekki bara óhag-
ræði, heldur hugmyndafræðilegt tap,
því nemendur og starfsfólk þekkja
kröfur samtímans um skörun og sam-
legðina í því að vinna þvert á allar
greinar,“ segir Fríða og bendir á að
LHÍ keppi um nemendur við erlenda
skóla sem flestir hafa haft áratugi eða
jafnvel aldir til að byggja upp sína
faglegu aðstöðu. „Gott húsnæði fyrir
listaháskóla er líkast til eina lykil-
byggingin sem ennþá vantar í ís-
lenskt samfélag til að við getum sagst
hafa lokið þeirri menningaruppbygg-
ingu sem hófst á síðustu öld þegar við
fórum að líta á okkur sem sjálfstæða
þjóð og hófum að reka okkar eigin
menningarstofnanir á okkar eigin
forsendum.“
Þrjár lausnir í boði
En hvar á Listaháskólinn að vera?
Eins og lesendur muna voru uppi
hugmyndir um að LHÍ myndi eignast
glæsilega byggingu í miðbænum, á
reit á milli Laugavegar og Hverfis-
götu. Þau áform runnu út í sandinn í
hruninu: „Ef ég man rétt voru teikn-
ingar kynntar í september og hrunið
kom síðan í október,“ segir Fríða.
„Síðan þá hefur mikið vatn runnið til
sjávar og var það loks í ráðherratíð
Kristjáns Þórs Júlíussonar að hafið
var starf við að leysa bráðahúsnæð-
isvanda skólans jafnframt því að
finna lausn til framtíðar. Lilja Dögg
Alfreðsdóttir hélt svo áfram að styðja
við þessa vinnu þegar hún tók við og
hún er núna á lokasprettinum.“
Voru sviðslista- og tónlistardeild-
irnar færðar í snatri úr húsakynnum
við Sölvhólsgötu, sem ekki fullnægðu
lengur heilbrigðiskröfum, yfir í Skip-
holtið annars vegar og Laugarnes
hins vegar og segir Fríða að þar sé
aðstaðan allt önnur en á gamla staðn-
um. „Samt sem áður er ekkert hús-
næði skólans hannað sérstaklega fyr-
ir starfsemina og margt sem ekki
mun vinnast á faglegum forsendum
fyrr en í fullhönnuðu húsi.“
Eftir ítarlega þarfagreiningu, þar
sem tekið var mið af þverfaglegu
starfi og þróun kennsluhátta á 21. öld,
var hafist handa við valkostagrein-
ingu og er þeirri vinnu senn að ljúka.
Segir Fríða að líklega verði þrír
möguleikar í myndinni: „Ein leið væri
að finna nýtt húsnæði, einhvers stað-
ar í bænum, sem eigandinn er
reiðubúinn að leigja okkur til langs
tíma og breyta þannig að það þjóni
markmiðum skólans. Annar val-
kostur væri að byggja við og bæta
húsnæði LHÍ úti á Laugarnesi, og
þriðji kosturinn að byggja sérhann-
aðan skóla frá grunni á auðri lóð.“
Þegar greiningarvinnunni lýkur
verður hægt að efna til hugmynda-
samkeppni um útfærslu og hönnun
framtíðarhúsnæðis LHÍ og loks gera
útboð að því loknu. „En til að koma
verkefninu í framkvæmd mun þurfa
pólitíska samstöðu og hugrekki til að
styðja listnám á háskólastigi í skóla
sem í senn sinnir kennslu og rann-
sóknum og er um leið mikilvægur
sem eins konar orkustöð fyrir al-
menning og hinar skapandi greinar,
með símenntun, listviðburðum og víð-
tæku samstarfi vítt og breitt um sam-
félagið; stofnun sem tæki þátt í þjóð-
félagsumræðunni með ýmsum hætti
og væri hreyfiafl inn í íslenskt þjóðlíf
rétt einsog Harpa, Þjóðleikhúsið eða
Landsbókasafnið.“
Kvikmyndanám upp
á háskólastigið
Eins og stendur eru allar list-
greinar aðrar en kvikmyndalist
kenndar í Listaháskólanum. Fríða
segir að á þessum tímamótum standi
Vantar enn gott húsnæði fyrir
Húsnæðismálin eru efst á blaði í stefnumótun LHÍ
Unnið er að því að koma á laggirnar háskólanámi í kvik-
myndalist og bráðum bætist við meistaranám í arkitektúr
Morgunblaðið/Hari
Verkefni „Til að koma verkefninu í framkvæmd mun þurfa pólitíska sam-
stöðu og hugrekki til að styðja listnám á háskólastigi í skóla sem í senn sinn-
ir kennslu og rannsóknum og er um leið mikilvægur sem eins konar orku-
stöð fyrir almenning og hinar skapandi greinar,“ segir Fríða Björk.
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Að byggja upp öflugt háskólanám á
sviði lista snýst um svo mikið meira
en að búa til nýjar kynslóðir af leik-
urum og öðru listafólki. „Nú þegar
við keyrum inn í nýja þúsöld er að
vakna betri skilningur a því hvað öll
sköpunargáfa skiptir samfélagið
miklu. Málsmetandi alþjóðastofnanir
sem ekki vinna á sviði listanna eru
farnar að benda á mikilvægi sköp-
unargáfna, í samvinnu við vísindi og
tækni, sem lykilhæfni til að leysa úr
helstu áskorunum 21. aldar. Að-
ferðafræði hinna skapandi greina er
um margt svo lausnamiðuð, auk þess
sem það liggur í eðli hennar að takast
á við áleitin efni og mæta hinu
óþekkta.“
Þetta segir Fríða Björk Ingv-
arsdóttir, rektor Listaháskóla Ís-
lands. Fríða kynnti á fimmtudag nýja
stefnu LHÍ til næstu fimm ára og er
þetta í annað sinn í tuttugu ára sögu
stofnunarinnar sem ráðist er í lang-
tímastefnumótun með þessum hætti.