Morgunblaðið - 04.02.2019, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2019
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
• Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré
• Mikið úrval efna, áferða og lita
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þig langar til þess að halda áfram á
svo mörgum sviðum en ófrágengin mál bíða
úrlausnar. Vertu svolítið frumleg/ur þegar
kemur að vali á málningu.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú verður að standa fast á þínu, þeg-
ar um stóran samstarfshóp er að ræða.
Gakktu hægt um gleðinnar dyr. Einhver þér
nákominn lendir í vandræðum og þú gætir
kannski hjálpað.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu óhrædd/ur við að segja hug
þinn því þá munu aðrir taka mark á þér og
hafa þig með í ráðum í framtíðinni. Talaðu
við fólk sem sér lífið í sama ljósi og þú.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er engin ástæða til að týna sér
í sjálfsvorkunn. Eftir langa bið er röðin kom-
in að þér að njóta lífsins. Hvers kyns ævin-
týraferðir heilla þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Stundum skjóta gamlir draugar upp
kollinum og hafa áhrif á okkur. Mundu samt
að taka öllu með fyrirvara og treystu að þú
veljir rétt á endanum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Punktaðu stöðuna hjá þér, innan tíð-
ar verður þú langt frá núverandi aðstæðum
og snýrð ekki aftur, nema kannski í hug-
anum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér finnst eins og einhver sé að leggja
stein í götu þína. Yngra fólk tekur þig til
fyrirmyndar, stattu því undir væntingum
þeirra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur í svo mörg horn að
líta að þér finnst annríkið ganga of nærri
persónulegu frelsi þínu. Hinn gullni með-
alvegur er bestur í öllu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú átt gott samtal við einhvern
sem þér þykir mjög vænt um. Finndu þér
leið til að ljúka deilumáli þar sem allir
vinna.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Atlaga frá vini setur þig úr jafn-
vægi í dag. Aðgát skal alltaf höfð í nærveru
sálar. Gamalt mál úr fortíðinni lifnar við og
kemur þér á óvart.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það ríður á að þú dreifir ekki
kröftum þínum um of. Mundu að öllu gamni
fylgir nokkur alvara. Hugsaðu alvarlega um
að skipta um starfsvettvang.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einhver sem stærir sig af mætti sín-
um efast um hann innst inni. Gerðu þér far
um að halda jafnvæginu milli persónulegra
markmiða og vinnutengdra.
Helgi R. Einarsson er nýkominnheim frá Grænhöfðaeyjum
þar sem þeir Bragi bóndi á Burst-
arfelli settust í nuddpott á hót-
elinu. Síðan segist Helga svo frá:
„Birtust þá ekki tvær þær fjall-
myndarlegustu dömur, sem ég hef
augum litið og settust í pottinn, á
móti okkur. Þá varð mér að orði:
Þær eru svartar og sverar
og minna á fylfullar merar.
„Til lítils ég væri,
vinur minn kæri,
ef veittust þær að mér berar.““
Bragi svaraði: „Segjum tveir.“
Hér er önnur limra frá Græn-
höfðaeyjum – „Morgunverkin“:
Jónmundur ánægður er,
út úr rúminu fer
í brauðið sitt bítur
og blaðsins svo nýtur
með kaffinu’ og klórar sér.
Þessar vísur voru mér sendar,
sem birtust á Boðnarmiði. Jón
Ingvar Jónsson orti:
Vetur eru vorri þjóð
vissulega kaldir.
Þetta snotra, litla ljóð
lifir þúsund aldir.
Höskuldur Búi Sveinsson brást
við:
Vetrarfönnin vekur þjóð,
varla sést í stiku.
Þessi staka, glögg og góð,
gleymist eftir viku.
Jón Atli Játvarðsson orti að
morgni 27. janúar 2019:
Kuldabylgjan kostulig,
kannski þetta batni.
En ég taldi átján stig
út á Hreðavatni.
Gunnar J. Straumland:
Það er kalt á þessum stað,
þorrinn færir kul og eymd.
Vafalítið virðist að
vísa þessi fæðist gleymd.
Á Leir sendi Sigmundur fann-
barða kveðju til Fíu á Sandi, –
„Var að reyna að finna út bæj-
arbraginn hjá þér,“ sagði hann,
„ort án ábyrðar eða sannsögulegra
heimilda“:
Hríðarfálan hreint óþjál
hefur málað bæinn.
Fía rjálar fim við skál
fegrar sálarhaginn.
Fía svaraði:
Ljúfur dagur leið í bláinn
lét hann fljóta hjá í sátt
settist loks við sjónvarpsskjáinn
sem nú býður dópaþátt.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Grænhöfðaeyjar,
vísan og þjóðin
„þú getur þénaÐ vel ef þér er sama
þótt þú óhreinkir hendurnar.”
„ég sagÐi hamborgara meÐ flögum.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að deila því
dýrmætasta sem þú átt
– hjartanu.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
EF ÞÚ BÝRÐ MEÐ KETTI
ERTU MJÖG HEPPINN
JAFNVEL ÞÓTT ÞÚ
VITIR ÞAÐ EKKI
HRÓLFUR! ÞÚ ERT Á VILLIGÖTUM! ÉG VEIT! ÉG ELSKA ÚTSÝNISLEIÐINA!
Akureyri á að verða barnvænt sam-félag, samkvæmt nýlegri ákvörð-
un bæjarstjórnar þar. Taka á sér-
stakt tillit til skoðana yngsta aldurs-
hópsins við ákvarðanatöku og í
þjónustu Akureyrarbæjar verður
þess sérstaklega gætt að börnin fái
sitt, svo sem í heilbrigðismálum,
strætisvagnaferðum og skólamálum.
Er þetta gert samkvæmt viðmiðum
UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna. Um þetta framtak er í
sjálfu sér allt gott að segja, en Vík-
verji vill þó almennt talað vara við því
að hagsmunir einstakra hópa séu
gerðir að forgangsmáli yfir lengri
tíma. Slíkt getur leitt óskapnað af sér;
að velgjörðin fyrir einn hóp verði á
annarra kostnað.
x x x
Árið 1979 efndu Sameinuðu þjóð-irnar til Árs barnsins og var þá
bryddað upp ýmsu. Víkverja er minn-
isstæð frásögnin af viðtölum við al-
þingismenn sem voru í barnatíma
Ríkisútvarpsins spurðir hvað þeir
ætluðu að gera í þágu barna. Vantaði
ekkert upp á lýsingar þeirra og loforð
sem voru þó misjafnlega ígrunduð og
útfærð. Það var svo Vilmundur Gylfa-
son, þingmaður Alþýðuflokksins, sem
sagði best að gera ekki neitt. Sem al-
þingismaður vildi hann stuðla að
minni verðbólgu og heilbrigðu stjórn-
arfari. Slíkt væri í þágu barna, full-
orðinna og þjóðarinnar allrar. Færi
Alþingi að reyna að hafa áhrif á alla
skapaða hluti, svo sem velferð barna í
einstökum atriðum, væri voðinn vís.
Þó að 40 ár séu síðan Vilmundur setti
þetta sjónarmið fram stendur það
enn fyrir sínu.
x x x
Sameinuðu þjóðirnar tileinka árið2019 frumbyggjaþjóðum og
tungumálum þeirra sem eru víða í út-
rýmingarhættu. Og í dag, 4. febrúar,
er alþjóðlegi krabbameinsdagurinn.
Svona mætti tiltaka fleira af alman-
akinu; merkisdaga sem eiga að skapa
umræðu og á að nota til fræðslu. Að-
gerðir umfram það eru vafasamar.
Barnastefna kallar á skýrar línur um
pólitík í þágu eldri borgara, fatlaðs
fólks, kvenna og innflytjenda og Vík-
verji er efins um ágæt þess. Best fer
að taka málið þvert á línuna; eitt sam-
félag fyrir alla. vikverji@mbl.is
Víkverji
Því að af náð eruð þið hólpin orðin
fyrir trú. Þetta er ekki ykkur að þakka.
Það er Guðs gjöf.
(Efesusbréfið 2.8)