Morgunblaðið - 04.02.2019, Síða 15

Morgunblaðið - 04.02.2019, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2019 Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að hernaðarleg íhlutun í Vene- súela sé valkostur, en vesturveldin hafa aukið þrýsting sinn á að sósíal- istaleiðtoginn Nicolas Maduro afsali sér forsetavaldinu. Rússar brugðust við yfirlýsingu hans í gær með því að vara Trump við „skaðlegri afskipta- semi“ í Venesúela. Bandaríkin, Kanada og nokkur ríki Rómönsku Ameríku hafa svarið Maduro af sér eftir umdeilt endur- kjör hans í fyrra og viðurkennt Juan Guaido sem hefur lýst sig réttmætan forseta. Frakkar og Austurríkis- menn sögðust í gær myndu einnig viðurkenna Guaido sem forseta hafn- aði Maduro kröfum um frjálsar og réttlátar kosningar. Í stjórnartíð Maduro hefur efna- hagur Venesúela hrunið og milljónir íbúa landsins hafa yfirgefið landið. Hann hefur hafnað tillögum um afsal valda til Guaido. Nýtur hann stuðn- ings Rússa, Kínverja og Tyrkja og – það sem skiptir mestu máli – stuðn- ings heraflans. Í samtali við CBS-stöðina í gær, sunnudag, sagði Trump hernaðar- íhlutun í Venesúela til skoðunar. „Vissulega, það er eitthvað sem er í spilunum, það er valkostur,“ sagði Trump. Hann sagði Maduro hafa far- ið fram á fund með sér fyrir nokkrum mánuðum. „Ég hafnaði því, það var of seint,“ sagði Trump. Stjórn hans greip í síðustu viku til refsiaðgerða gagnvart ríkisolíufélaginu PDVSA sem öðrum fyrirtækjum fremur hef- ur aflað Venesúela gjaldeyristekna. „Alþjóðasamfélagið ætti að koma Venesúela til hjálpar án skaðlegrar afskiptasemi erlendis frá,“ sagði Al- exander Stsjetínín, deildarstjóri í rússneska utanríkisráðuneytinu, við Interfax-fréttastofuna í gær. Bandaríska hjálparstofnunin USAID undirbýr umfangsmikla matvælaaðstoð við Venesúela. Óljóst er hvort samtökin fá að koma til landsins þar sem Maduro og ríkis- stjórn hans neita því að mannúðar- kreppa sé í landinu og óvíst er að stjórnin hleypi nokkurri erlendri neyðaraðstoð inn í landið. Ýmsir embættismenn hafa gengið Guaido á hönd, síðastur þeirra Jo- nathan Velasco, sendiherra Vene- súela í Írak, í gær. Flughershöfðing- inn Francisco Yanez hvatti einnig liðsmenn heraflans í myndbandi til að snúa baki við Maduro. Engin merki sjást þó um liðhlaup. agas@mbl.is Trump útilokar ekki íhlutun  Maduro neitar að afsala sér völdum  Viðurkenna ekki neyðina og hafna hjálp- argögnum  Hershöfðingi hvatti liðsmenn heraflans til að snúa baki við Maduro Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, segist „vopnuð nýju um- boði“ er hún heldur til samninga- viðræðna við ráðamenn Evrópu- sambandsins (ESB) um breytingar á fyrra samkomulagi um útgöngu Breta úr ESB, Brexit. May sagðist einnig með nýjar hugmyndir í farteskinu sem hún sagðist binda vonir við að mættu skilningi hjá samningamönnum ESB. Þeir hafa aftur á móti sagst undanfarið ekki vilja taka sam- komulagið upp og endursemja. Í grein sem May skrifaði í Sunday Telegraph í gær kvaðst hún „ætla að berjast fyrir Bretland og Norð- ur-Írland“ til að fá breytt atriðum í Brexit-samkomulaginu sem breska þingið hefur hafnað, ekki síst sem varða framtíð landamæra Norður- Írlands. „Stöndum við saman og töl- um einni röddu tel ég að við getum fundið leið til árangurs,“ sagði May. agas@mbl.is BRETLAND AFP Bjartsýn Theresa May fer til Brussel. Theresa May komin með „nýtt“ umboð Frans páfi varð í gær fyrstur kaþ- ólskra páfa til að heimsækja Arab- íuskagann er hann kom í heim- sókn til Samein- uðu arabísku furstadæmanna (UAE). Þangað bauð honum krónprins Abu Dhabi, Mohammed bin Zayed al-Nahyan, til þátttöku í trúarráð- stefnu þar sem ólík trúarbrögð kæmu saman. Hann mun messa á morgun, þriðjudag, og er búist við að 120.000 manns muni sækja mess- una. Við brottförina frá Róm nefndi páfi stríðsástandið í Jemen sér- staklega og sagði beiðni borg- aranna um hjálp „rísa alla leið upp til Guðs. Þjóðin er þjáð eftir lang- vinn átök og börn þjást af hungri en fá ekki aðgang að matvæladreif- ingu“. Páfi hefur fordæmt stríðið í Jem- en sem furstadæmin eru aðilar að með þátttöku í aðgerðum fjöl- þjóðahers undir forystu Sádi- Arabíu. agas@mbl.is ARABÍUSKAGINN Páfi heimsækir furstadæmin Frans páfi kveður í Róm. Íbúar í og í grennd við borgina Townsville í Ástralíu hafa verið varaðir við flóðum sem munu ekki eiga sér nein fordæmi. Vegna áframhald- andi monsúnrigninga voru stíflulokur opnaðar upp á gátt í gær til að reyna að lækka í flóð- unum. Meðal annarra hafi stífla á ánni Ross Ri- ver ekki undan flaumnum. Allt að 20.000 hús voru talin í stórhættu. Hefur straumvatnið hrifið með sér flest lauslegt, þar á meðal bíla og skepn- ur. Hafa hjarðir villtra hesta drepist. Á myndinni má sjá margra metra djúpt flóðvatnið æða yfir brú á Aplins Weir-stíflunni í Townsville. AFP Fordæmalaus flóð í Ástralíu Hverfi Bretar samningslausir úr Evrópusamband- inu (ESB) og fari allt á annan endann í London er Elísabet önnur drottning tilbúin til eigin brott- ferðar – til ótilgreinds staðar. Breska stjórnin hefur dustað rykið af neyð- aráætlun um brottflutning drottningar á hættutím- um heima fyrir sem dregin var upp á tímum kalda stríðsins. Gerir hún ráð fyrir undirbúningi brott- flutnings konungsfjölskyldunnar í öruggt skjól komi til óeirða og ofbeldisaðgerða og stórfelldra líkamsmeiðinga. Greint var frá þessum áformum í dagblöðunum Sunday Times og Mail on Sunday í gær. Óttinn við róstusama útgöngu hefur aukist í Bretlandi und- anfarið í kjölfar þess að þingið samþykkti að The- resa May forsætisráðherra yrði að semja upp á nýtt um brottförina úr ESB, og fá sérstaklega fram breytingar á ákvæði um landamæri Norður- Írlands. Hvorki May né aðrir þingleiðtogar hafa lagt fram sérstaka breytingartillögu og samningamenn ESB segja engar aðrar leiðir til en áður hafi verið samið um. Leiðtogar Evrópuríkja og háttsettir embættismenn í Brussel hafa þó sagt, að samn- ingar verði ekki teknir upp án verulegra breytinga á svonefndum „rauðum línum“ Breta. Óljóst var hversu alvarlega breska ríkisstjórnin liti líkurnar á brottflutningi konungsfjölskyld- unnar, ef til uppþota kæmi í London. Bæði Times og Mail sögðu þó að embættismenn hefðu áhyggjur af vaxandi tilraunum til að draga fjöl- skylduna inn í hinar erfiðu og logandi deilur um Brexit í landinu. Drottningin hefur almennt ekki látið heift- úðlegar Brext-deilur til sín taka. Hún virtist þó gera það, að vísu á hárfínan og óræðan hátt, í ræðu nýverið þar sem hún hvatti þegna sína til að „leita að sameiginlegri afstöðu“ og missa ekki sjónar á „stærri myndinni“. agas@mbl.is Drottningin færð í öruggt skjól

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.