Morgunblaðið - 07.02.2019, Síða 1
F I M M T U D A G U R 7. F E B R Ú A R 2 0 1 9
Stofnað 1913 32. tölublað 107. árgangur
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Wizar
HÆGINDASTÓLL
Fyrir lífsins ljúfu stundir.
Verð frá 199.900
Litir:
Efni: Leður/tau
360° snúningur | Innbyggður fótaskemill
Hallanlegt bak | Stillanlegur höfuðpúði
ATVINNUBLAÐ
MORGUN-
BLAÐSINS
BALTASAR
Á BÓLAKAF
MEÐ ELBA
LEIKJATÖLVU-
RISARNIR
Í VANDA
SÁLARTRYLLIR 58 VIÐSKIPTAMOGGINNFINNA VINNU 8 SÍÐUR
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Svikahrappar stálu nærri 40 milljón-
um króna af viðskiptavini Arctic
Trucks þegar þeir blekktu hann til
þess að greiða upphæðina inn á eigin
reikning í stað reiknings Arctic
Trucks en greiðslan var vegna ferðar
tveggja einstaklinga á suðurpólinn
með íslenska fyrirtækinu.
Herjólfur Guðbjartsson, fram-
kvæmdastjóri Arctic Trucks, segir
svikarann hafa komist í tölvupósts-
samskipti fyrirtækjanna og þannig
náð að blekkja báða aðila með því að
stofna ný lén sem líktust lénum fyr-
irtækjanna og netföng með nöfnum
þeirra sem skipst höfðu á póstum
vegna ferðarinnar.
„Einhvern tíma komast þessir
þjófar inn í tölvupóstssamskiptin og
búa til ný lén og netföng í nafni okk-
ar og viðskiptavinarins,“ segir Herj-
ólfur. „Við erum alltaf að skrifa svik-
aranum og viðskiptavinur okkar er
alltaf að skrifa svikaranum. Þeir láta
póstana fljóta áfram eins og venjuleg
samskipti ættu sér stað,“ segir Herj-
ólfur. Að endingu blekkti svikarinn
erlendan viðskiptavin Arctic Trucks
til að greiða inn á sinn reikning.
Herjólfur segir að öryggisúttekt
bendi til þess að ekki hafi verið ör-
yggisbrestur hjá Arctic Trucks en að
öllum öryggisferlum fyrirtækisins
hafi verið breytt þegar tekið er á
móti erlendum greiðslum eða þær
inntar af hendi.
Guðbjarni Guðmundsson, for-
stöðumaður kjarnalausna hjá upp-
lýsingatæknifyrirtækinu Opnum
kerfum, segir svik af þessum toga
hafa aukist umtalsvert, sérstaklega
síðasta árið, og hvetur fyrirtæki til
að nota tvöfalda auðkenningu.
Tugmilljóna greiðslu stolið
Arctic Trucks og erlendur viðskiptavinur fyrirtækisins lentu í svikum á netinu
Svikarinn tók þátt í venjulegum samskiptum áður en hann lét til skarar skríða
MViðskiptaMogginn
Blekkingar
» Þrjóturinn bjó til netföng og
lén í nafni þeirra sem áttu í
tölvupóstssamskiptum.
» Lét samskipti milli aðila líða
eðlilega á milli manna áður en
hann gaf upp rangar reiknings-
upplýsingar.
» Engin merki um öryggis-
brest hjá Arctic Trucks en öll-
um verkferlum breytt.
Hönnun 145 herbergja hágæða-
hótels við Austurvöll er langt á veg
komin og er áformað að taka á móti
fyrstu gestum haustið 2020.
Freyr Frostason, hönnunarstjóri
THG Arkitekta, segir jarðhæð hót-
elsins munu tengja Austurvöll og
Víkurgarð. Þar verði lifandi rými
með listsýningum og viðburðum af
ýmsu tagi. Þá verði baðhús í kjall-
ara opið gestum og gangandi.
Nýjar teikningar af Landssíma-
reitnum sýna hvernig starfsemin
skiptist milli húsa. »32-33
Hótel við Austurvöll
opnað haustið 2020
Teikning/THG Arkitektar
Stórhýsi endurgert Hótelið verður í
gamla Landssímahúsinu við Austurvöll.
Haldið var upp á dag leikskólans í leikskólum landsins í tólfta skiptið í gær.
Hátíðarfundur var í leikskólanum Brákarborg í Brákarsundi 1 í Reykjavík.
Þau Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri heiðruðu samkomuna með nærveru
sinni. Börnin á Brákarborg skemmtu gestunum með fallegum söng.
Seltjarnarnesbær hlaut Orðsporið 2019, hvatningarverðlaun sem veitt
eru á degi leikskólans, fyrir að hafa skarað fram úr öðrum sveitarfélögum
við að bæta starfsaðstæður og starfskjör leikskólakennara umfram kjara-
samning. Reykjavíkurborg og Hvalfjarðarsveit fylgdu fast á eftir Seltjarn-
arnesi samkvæmt könnun skólamálanefndar Félags leikskólakennara.
Degi leikskólans var fagnað á Brákarborg
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Alls eru í dag
19 íslenskar
knattspyrnukon-
ur leikmenn er-
lendra félaga og
hafa þær aldrei
verið fleiri.
Dagný Brynjars-
dóttir bættist í
hópinn að nýju
með samningi við
eitt besta og vin-
sælasta atvinnumannalið heims,
Portland Thorns, sem leikur á
25.000 manna heimavelli. Í fyrsta
sinn á Ísland nú knattspyrnukonur í
efstu deildum Hollands og Austur-
ríkis. » Íþróttir
Metfjöldi erlendis
Dagný
Brynjarsdóttir
Mörg fyrirtæki hafa sýnt Siðferð-
isgáttinni, nýrri þjónustu á vegum
ráðgjafafyrirtækisins Hagvangs,
áhuga. Ætlunin er að bjóða starfs-
mönnum fyrirtækja og stofnana sem
verða fyrir óæskilegri háttsemi á
vinnustað upp á ákveðinn farveg og
þjónustu. Mun Hagvangur starfa
sem óháður ráðgjafaraðili í þessum
málum í samstarfi við stjórnir þeirra
fyrirtækja sem nýta sér þjónustuna
sem einnig getur virkað sem ákveð-
inn gæðastimpill og vitnisburður um
að þau beri hag starfsmanna fyrir
brjósti. »ViðskiptaMogginn
Þjónusta sem tekur
á erfiðum málum