Morgunblaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 47
Nú geta aðdáendur Nespresso sem gremst einnota hylkjanotkunin tekið gleði
sína því WayCap eru margnota og áfyllanleg kaffihylki fyrir Nespresso-
kaffivélar. Þau eru úr ryðfríu stáli og því hægt að fylla á þau og nota um
ókomna tíð og þú velur þitt uppáhaldskaffi í uppáhellinguna.
WayCap Nespresso-kaffihylkið dugar ævilangt og þú getur notað það til að
hella þér upp á fyllra og betur ilmandi kaffi það sem eftir er.
Hylkið virkar eins og einnota hylkin um leið og þú hefur náð tökum á því og
ert komin/n upp á lag með að hella upp á þitt uppáhaldskaffi.
Í kaffihylkjunum er sérhannað rennsliskerfi bæði þegar vatnið rennur í
hylkið og úr því. Tilgangurinn með því er að ná fram bestu mögulegu gæð-
unum í kaffinu sem þú kaupir, hvort sem þú kaupir malað í poka í mat-
vöruverslunum eða baunir frá kaffiframleiðendum.
Það tók WayCap tvö ár að prófa mismunandi fyrirkomulag á inn- og út-
rennslisspjöldunum til að finna besta flæðið og ná þannig fram besta espres-
sóinu. Markmiðið var að hella upp á gæðakaffi, hvaðan sem það kæmi og í leið-
inni gera þér kleift að hella upp á með fallegri og betur hannaðri vöru.
Hylkin eru úr ryðfríu stáli, áreiðanlegu og sterku efni. Þéttihringurinn und-
ir lokinu er úr sílikoni samþykktu fyrir matvæli. Hráefnin sem notuð eru í
kaffihylkin eru öll samþykkt fyrir matvæli.
Hægt er að panta hylkin á mistur.is og kostar pakki með tveimur hylkjum
7.390 krónur.
Margnota hylki fyrir Nespresso
Umhverfisvænt
Margir aðdá-
endur Nespressó
hafa beðið hylkj-
anna með mikilli
eftirvæntingu.
Fallegar marensrósir gera ótrúlega mikið fyrir
veisluborðið enda njóta þær mikilla vinsælda á
veisluborðum fagurkera og kökunagga. Hér er
það meistari Berglind Hreiðarsdóttir á Gotterí &
gersemum sem kennir lesendum hvernig á að bera
sig að við að búa til hina fullkomnu púðursyk-
ursrós. Eins og sjá má eru þetta í raun litlar sam-
lokur með rjóma á milli og hér má leyfa ímynd-
unaraflinu að leika lausum hala og setja alls kyns
dásemdir á milli eða bragðbæta rjómann.
Púðursykursrósir
3 eggjahvítur
3 dl púðursykur
rjómi á milli
Aðferð:
Þeytið eggjahvítur og sykur þar til stífþeytt og
topparnir halda sér vel.
Setjið í stóran sprautupoka með 2D-stút frá Wil-
ton.
Sprautið rósum á bökunarplötu íklædda bök-
unarpappír og bakið við 120°C í um 40 mínútur.
Slökkvið þá á ofninum og leyfið marensinum að
kólna þar inni. Ég baka marens oft að kvöldi til og
leyfi honum að vera í ofninum yfir nótt.
Þegar marensinn hefur kólnað má sprauta
rjóma á milli og klemma saman í rósasamloku.
thora@mbl.is
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Púðursykursrósir
á veisluborðið
Einfaldar en áhrifaríkar
Púðursykursrósirnar eru
fremur einfaldar í fram-
kvæmd en alveg óskap-
lega bragðgóðar.
Út er komin bókin Hagnýta
pottaplöntubókin sem verður eft-
irleiðis kölluð biblía áhugafólks um
hvernig á að halda plöntum á lífi. Í
bókinni er því lýst á einfaldan og
skýran hátt, skref fyrir skref,
hvernig hægt er að rækta blómleg-
ar og heilbrigðar pottaplöntur og
tryggja að þær dafni sem best allan
ársins hring. Langt er síðan slík
bók hefur komið út á íslensku og
má búast við að hún geti hjálpað
öllum þeim sem langar að lífga upp
á heimilið með gróskumiklum og
fallegum plöntum.
Fjallað er um 175 tegundir og
góð ráð gefin um umhirðu, meðal
annars hvaða birtu- og rakastig
þær þurfa og hvaða næring er best
fyrir þær. Ýmsar hugmyndir eru í
bókinni að frumlegri uppstillingu
plantnanna og sýnt hvernig má út-
búa skilrúm með klifurplöntum og
blómahengi og blómakrans úr
þykkblöðungum svo fátt eitt sé
nefnt. Ljóst er að bókin er mikill
fengur fyrir íslensk heimili þar sem
það er afskaplega móðins þessi
dægrin að fylla heimilið af blómum.
Hagnýta
potta-
plöntubókin
komin út
Allt er vænt sem vel er grænt Nú
verður hægðarleikur að halda lífi í
heimilisplöntunum.
Hér er eitthvað sem við bjugg-
umst alls ekki við að sjá, bara
aldrei nokkurn tíman. Tóm-
atsósuframleiðandinn Heinz
kynnti á dögunum tómatsósu-
kavíar í tilefni Valentínusardags-
ins sem nálgast óðfluga eins og
flestir rómantískir einstaklingar
vita.
Varan verður þó ekki fáanleg í
verslunum því Heinz setti fram
leik á Twitter með einungis 150
krukkum sem þeir vildu gefa í
tilefni að Valen-HEINZ deginum.
Einhver mamman á Twitter var
ekki par hrifin af þessari nýjung
og gat varla ímyndað sér hvernig
borðhaldið myndi enda með þess-
um belgjum við krakkaborðið, á
meðan aðrir veltu fyrir sér fínna
borðhaldi með hníf og gaffli,
frönskum og tómatsósubelgjum.
Lúxus tómatsósukavíar frá Heinz
Hver getur staðist svona huggu-
legheit? Aðdáendur tómatsósu
munu væntanlega slást um krukk-
urnar 150 sem í boði eru.
Hvern hefði grunað?
Þessi líka lekkeri kavíar
er bara tómatsósa.
Hamraborg 10, Kópavogi
Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18
VERIÐ VELKOMIN
Í SJÓNMÆLINGU
———