Morgunblaðið - 07.02.2019, Side 33

Morgunblaðið - 07.02.2019, Side 33
FRÉTTIR 33Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019 Módel: Brynja Dan Ásamt fyrirhuguðu hóteli verða veitingastaðir, 5-6 verslanir, sam- komusalir, sýningarými og 16 íbúðir á Landssímareitnum. Íbúðirnar munu snúa að Ingólfstorgi og fara í al- menna sölu eða leigu. Freyr segir að við hönnun hótels- ins sé lögð mikil áhersla á að það verði hluti af mannlífi borgarinnar. Jarðhæðin verði þannig aðgengileg frá Austurvelli og Víkurgarði og með rýmum undir sýningar og viðburði, á borð við Food & Fun og Airwaves- hátíðirnar. Þá muni listamenn geta notað rýmin fyrir listsýningar. Þau verði opin fyrir uppákomur allan dag- inn. Með því verði til segull í borginni sem laði að heimamenn, jafnt sem er- lenda ferðamenn. Leitað verði fanga í náttúru Íslands við hönnun á alrými til að skapa tilfinningu fyrir landinu. Móttaka verði innst í húsinu og þar lyftur fyrir efri hæðir og í kjallara baðhús fyrir gesti og gangandi. „Veitingahúsið við Austurvöll verð- ur hins vegar með gerólíku yfir- bragði. Þá erum við enda komin í ann- að hús. Við höfum áhuga á að flétta sögu Landssímans inn í þá innanhús- hönnun, til dæmis með því að bitar í loftum verði sýnilegir,“ segir Freyr en sæti verða fyrir 150 gesti. Á einni teikningu má sjá stóla og borð fyrir utan veitingahúsið til móts við Austurvöll. Freyr segir aðspurður að þar njóti sólar fyrri hluta dags. Mesta skjólið og sólskinið sé hins veg- ar í Víkurgarði um eftirmiðdaginn. Jarðhæðin verði gönguás sem tengi Víkurgarð og Austurvöll. Glerbygging á tveimur hæðum Á þaki hluta hótelsins sé áformað að reisa glerbyggingu á tveimur hæð- um. Gætt sé að því að hafa hana eins lítt sýnilega og kostur er. Fyrir fram- an verði þaksalir og herbergi og hugsanlega veitingastarfsemi. Freyr segir borgina vilja efna til hönnunarsamkeppni um Víkurgarð sem borgarrými og torg þar sem saga garðsins er í fyrirrúmi. „Reykjavíkurborg og borgarbúum er umhugað um að þetta verði opið torg fyrir almenning og lifandi reitur með góðri stemningu í góðu veðri. Minjastofnun leggst gegn þeim hug- myndum. Hún telur að þarna eigi að vera afgirt kirkjugarðstorg þar sem umferð gangandi vegfarenda er tak- mörkuð,“ segir Freyr. Fulltrúar Lindarvatns, félagsins sem byggir reitinn, bíða viðbragða Minjastofnunar við málamiðlun. Horft frá Kirkjustræti Áformað er að hafa verslun og þjónustu á jarðhæð. Teikningar/THG Arkitektar Horft frá Austurvelli Gamla Landssímahúsið verður gert upp og veitingahús opnað. Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hot- els, segir hótelið við Austurvöll munu styrkja stöðu Reykjavíkur sem ráðstefnuborgar. Til dæmis hafi bókunum fyrir ráðstefnugesti á Icelandair-hótelunum fjölgað um 20% milli ára. Á nýja hótelinu verði fundarými fyrir 400-500 ráðstefnu- gesti í nokkrum sölum. Þar af 300 í Sjálfstæðissalnum sem verður endurgerður í upphaflegri mynd. „Það má segja að markaðs- setning á áfangastaðnum Íslandi annars vegar og Reykjavíkurborg hins vegar sé sú sama. Helsta að- dráttarafl landsins er náttúran og það er fyrst og fremst verið að markaðssetja náttúruupplifun. Við erum mikið til að selja ferðir til borgarinnar og síðan dagsferðir út frá borg til að upplifa náttúruna. Þessu myndum við vilja breyta. Við viljum markaðssetja borgina annars hafa verið byggðir upp innviðir, hót- el, afþreying, veitingaþjónusta og margt fleira sem styrkir stöðu borgarinnar. Það má segja að við höfum nú betri veiðarfæri en áður til að sækja fram. Icelandair Group hefur haft frumkvæði að fjárfest- ingu í slíkri afþreyingu,“ segir Magnea Þórey og nefnir náttúru- sýninguna í Perlunni sem dæmi. Icelandair-hótelin eru í söluferli. Hún segir nokkra valda aðila munu leggja fram skuldbindandi tilboð á næstu vikum. Hún segir aðspurð að óvissa í ferðaþjónustu, m.a. vegna stöðu WOW air, hafi ekki dregið úr áhuga fjárfesta. Þeir séu enda að hugsa um framtíðina en ekki núið. „Ísland þykir einstakur áfanga- staður. Veitingastaðirnir í borginni hafa komið henni á matarkortið. Kolefnisspor matarins er lítið en slíkt er orðið sjaldgæft í heim- inum,“ segir Magnea Þórey. vegar og lands- byggðina hins vegar. Við viljum gera lands- byggðinni hærra undir höfði og tryggja gott að- gengi að nýrri þjónustu utan borgarmark- anna, samhliða því sem menn- ingartengdri starfsemi og við- burðum er gert hærra undir höfði sem borgarupplifun,“ segir Magnea Þórey. Hótelið við Austurvöll falli vel að þessari stefnu. Þar muni gestir geta upplifað áfangastaðinn með því að hótelið verður tengt við mannlífið og menningartengda starfsemi, t.d. listahátíðir. „Reykjavíkurborg á mikið inni á ráðstefnumarkaði. Það er lykilatriði að á vaxtarskeiði undanfarinna ára Hótelið muni styrkja stöðu Reykjavíkur FRAMKVÆMDASTJÓRI IH BENDIR Á MIKILVÆGI RÁÐSTEFNUGESTA Magnea Þórey Hjálmarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.