Morgunblaðið - 07.02.2019, Síða 18

Morgunblaðið - 07.02.2019, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019 Þann 7. febrúar gefur Pósturinn út þrjú frímerki til að minnast merkisafmæla 2019. Lýðveldið Ísland 75 ára, Vestmannaeyjabær 100 ára kaupstaðarafmæli og Póstmannafélag Íslands 100 ára. Einnig koma út fjögur frímerki tileinkuð landslagsarkitektúr í útgáfuröðinni íslensk samtímahönnun. Fyrstadagsumslög fást á helstu pósthúsum. Einnig er hægt að panta þau hjá Frímerkjasölunni. Sími: 580 1050. Netfang: stamps@stamps.is Heimasíða: www.stamps.is facebook.com/icelandicstamps Safnaðu litlum listaverkum Led húsnúmer Falleg húsnúmer í öllum stærðum og gerðum · Sérsmíðum númer á öll hús og fjölbýli Best er að panta í gegnum facebooksíðuna okkar: ledhúsnúmer Einnig hægt að hringa í sími 775 6080 · Ledlýsing sem endist og eyðir litlu rafmagni · Hægt að fá í lituðu áli eða ryðfríu stáli · Verið velkomin á facebooksíðu okkar: Led húsnúmer Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Það var ættarsagan,“ segir Jó- hanna Þ. Guðmundsdóttir, sagn- fræðingur og skjalavörður á Þjóð- skjalasafninu, um ástæður þess að hún kynnti sér betur sakamál frá árinu 1903, þar sem tíu ára drengur lést, að sögn þáverandi yfirvalda úr hor og af illri meðferð, en langafi hennar, Oddur Stígsson, var á sínum tíma dæmdur í 12 mánaða betr- unarvinnu fyrir að hafa misþyrmt drengnum. Jóhanna flutti erindi um málið á fundi Ættfræðifélagsins hinn 31. janúar síðastliðinn, undir yf- irskriftinni „„Mannhundur kvelur líf úr barni með hor og pyndingum“ Sagan af Páli Hanssyni og Oddi Stígssyni langafa sem drap son hans Pál Júlíus Pálsson.“ „Ég hafði heyrt eitthvað af þessu sem barn, en það var allt óljóst,“ segir Jóhanna og bætir við að eftir að hún hafði numið sagnfræði og byrjað að vinna á Þjóðskjalasafninu hafi það legið beint við að kynna sér betur hvað væri satt og rétt í þessu máli. Leitað í dómabækur Tildrög málsins voru þau að hinn 26. mars 1903 lést Páll Júlíus Páls- son, sem þá var tíu ára niðursetn- ingur á bænum Skaftárdal í Vestur- Skaftafellssýslu. Þar sem orðrómur var um að Oddur og Margrét Eyj- ólfsdóttir kona hans hefðu farið illa með drenginn ákvað sýslumaður, Guðlaugur Guðmundsson á Kirkju- bæjarklaustri, að rannsaka málið frekar, og kom í ljós við rannsókn lækna að drengurinn þótti mjög hor- aður, auk þess sem hann var með drepsár á fæti. Þá voru áverkar á líki Páls Júl- íusar, og játaði Oddur að hafa mis- þyrmt drengnum nokkrum dögum fyrir andlátið. Lauk málinu svo eftir að því hafði verið áfrýjað til Lands- yfirréttar að Margrét var sýknuð, en hún hafði verið dæmd í undirrétti, en dómur undirréttarins yfir Oddi var staðfestur. Sagði í dómi Lands- yfirréttar að hin „grimdarfulla mis- þyrming á barninu, sármögru og veikluðu“ hefði verið helsta dán- arorsök þess. Jóhanna segir að hún hafi stuðst við dómabækur sýslumannsins í Vestur-Skaftafellssýslu í heimilda- vinnu sinni, en þær eru varðveittar á Þjóðskjalasafninu ásamt öðrum málsskjölum sem þar var að finna. „Ég skoðaði dómabækurnar ræki- lega og byggði mest á því,“ segir Jó- hanna og bætir við að dómabækur af þessu tagi séu margar til á Þjóð- skjalasafninu allt aftur til ca. síðari hluta 18. aldar, og að megnið af dómabókum 19. aldar sé enn til, þó að auðvitað hafi eitthvað glatast í aldanna rás. Sagt „voðalegt níðingsverk“ Lýsingar dagblaða þess tíma á andláti Páls eru ekki fagrar, og var meðferð Odds á honum meðal ann- ars sögð hafa verið „Voðalegt níð- ingsverk“ í Ísafold, „Fáheyrð þræl- mennska“ í Þjóðólfi, auk þess sem lýsingin í vikublaðinu Reykjavík hófst á þeim orðum að „mann- hundur“ hefði kvalið „líf úr barni með hor og pyndingum“. Jóhanna segir aðspurð að þessar lýsingar hafi verið hafðar eftir Páli Hanssyni, föð- ur drengsins, sem hafði lent upp á kant við sveitarstjórnina þar. „Ég vildi því kanna hvort málið hefði ver- ið svona harkalegt í raun,“ segir Jó- hanna og bætir við að kjaftasögur um meðferð Odds á drengnum hafi magnast upp við andlátið og þær hafi jafnvel átt sinn þátt í að sýslu- maður hafi tekið málið upp þegar drengurinn dó. Hún bendir einnig á að ekki sé allt útséð með dánarorsök drengsins, og vísar til Jóns Hjartarsonar, fyrrver- andi skólastjóra á Kirkjubæjar- klaustri, sem einnig flutti erindi á fundi Ættfræðifélagsins, en hann hefur rannsakað með aðstoð sára- læknis lýsingar þær á fótameinum drengsins sem gerðar voru á sínum tíma. „Og hann vill meina að það hafi verið svokallaðir hermannafætur sem séu hin eiginlega dánarorsök, en á þessum tíma hafa menn engar eiginlegar forsendur til að meta það,“ segir Jóhanna en lík drengsins var ekki krufið heldur bara skoðað útvortis, og var sú skoðun gagnrýnd af landlækni. Jóhanna segir að hún sé því ásamt Jóni kannski að veita langafa sínum svolitla uppreist æru með rannsóknum sínum, og bendir á að ekkert hafi komið fram við rann- sókn málsins sem renni undir það stoðum að drengurinn hafi verið sveltur, þó að vissulega hafi hann verið hýddur. Þagað yfir málinu í fjölskyldunni Aðspurð segir Jóhanna að þagað hafi verið algjörlega yfir þessu máli innan fjölskyldunnar. „Það eru af- komendur Odds sem eru komnir vel yfir miðjan aldur, sem varla þekkja til málsins,“ segir Jóhanna. For- vitnin hafi því eðlilega verið mikil. Hún bætir við að málið hafi reynt mikið á langömmu sína, sem hafi á þessum tíma verið nýbúin að fæða sitt fyrsta barn. „Ég hef reynt að horfa á málið út frá henni, því þetta eru erfiðar aðstæður, þetta gerist á sama tíma og hún liggur á sæng.“ Rannsókn málsins og yfirheyrslur yfir henni reyndu svo mjög á mæðg- inin að drengurinn dó, þriggja vikna gamall. Segir Jóhanna að sér þyki sem ekki hafi verið tekið nægt tillit til aðstæðna Margrétar á þessum tíma. „Stundum er tilfinningin eins og þetta hafi gerst 1803 frekar en 1903, þetta er svo forneskjulegt allt saman.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Skjalavörður Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir, sagnfræðingur og skjalavörður í Þjóðskjalasafni, kynnti sér dómsmál þar sem langafi hennar var dæmdur í 12 mánaða betrunarvinnu fyrir að hafa misþyrmt tíu ára dreng. Rýnt í syndir fortíðarinnar  Skjalavörður kynnti sér sakamál langafa síns betur Ódæðisverk Umfjöllun fjölmiðla um málið var óvægin á sínum tíma. Matvörukarfa í Reykjavík er 67% dýrari en í Helsinki í Finnlandi, þeirri höfuðborg á Norðurlöndunum þar sem vörukarfan er ódýrust, sam- kvæmt niðurstöðum nýrrar verðkönnunar verðlagseftirlits ASÍ sem gerð var í byrjun desember í leiðandi lágvöruverslunum. Vörukarfa með algengum matvörum úr helstu vöruflokkum, svo sem mjólk, osti, kjötvöru, grænmeti, ávöxtum og brauði, er mun dýrari í Reykjavík en í höfuðborgum hinna landanna á Norðurlöndum. Það land sem er næst Íslandi í vöruverði er Noregur, en vörukarfan í Ósló er samt sem áður 40% ódýrari en í Reykjavík. Vörukarfan kostaði mest í Reykjavík eða 7.878 kr. og næstmest í Nor- egi, 5.631 kr. Sambærileg vörukarfa í Kaupmannahöfn kostar 5.173 kr. og 5.011 krónur í Stokkhólmi. Ódýrasta matvörukarfan var í Helsinki þar sem hún kostaði 4.729 kr. Kíló af brauðosti kostar 1.411 kr. á Ís- landi en 556 kr. í Helsinki. Þá var 560% munur á hæsta og lægsta kíló- verði af gulrótum. Niðurstöður könnunarinnar eru í takt við sambærilega könnun frá 2006 en helsti munurinn er á verði á matvörukörfu í Reykjavík og Ósló, sem er nú 40% en var aðeins 3% árið 2006. Matvaran reyndist langdýrust á Íslandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.