Morgunblaðið - 07.02.2019, Side 40

Morgunblaðið - 07.02.2019, Side 40
L étt spurning: Hvenær á árunum 2004-14 liðu fæstir Íslendingar skort samkvæmt lífsgæðakönn- un? Náttúruhamfarir, hryðjuverk, hungursneyð og misskipting gæða blasa við okkur á hverjum degi. Vinir mínir í Samfylk- ingunni tala oft um sex þúsund fátæk börn í þingræðum. Skattbyrði þeirra sem lægst hafa launin á Íslandi hefur aukist. Bandaríkjaforseti sendi frá sér tíst 27. jan- úar með staðreyndum um ólöglega innflytj- endur: „Febrúar er ekki einu sinni byrjaður og kostnaðurinn í ár við ólöglega innflytjendur fram að þessu er 18.959.495.168 dalir. Kostn- aðurinn á föstudaginn var 603.331.392 dalir. Það eru að minnsta kosti 25.772.342 ólöglegir innflytjendur, ekki þessar 11.000.000 sem hefur verið talað um í mörg ár, í landinu okkar. Svo fáránlegt!“ Trump er með puttann á púlsinum, hefur kostnaðinn á hreinu upp á dollar. Tók að vísu ekki eftir því að kostn- aðurinn þennan umrædda föstudag var minni en með- alkostnaðurinn í mánuðinum, en hey, hver tekur eftir því þegar við erum að tala um 18.959.495.168 dali (2.279.500.104.048 kr.)? Ég reikna með að flestir lesendur þessa pistils, að tveimur undanskildum, hristi nú hausinn og segi: Hver tekur mark á Trump? Svar: Nærri 50 þúsund manns áframtístu staðreyndum Trumps. Í bókinni Factfulness eftir sænska lækninn Hans heit- inn Rosling er rauði þráðurinn að þrátt fyrir allar sögur af hörmungum heimsins horfi flest til betri vegar. Fólk lifir lengur, barnadauði minnkar, stærri og stærri hluti mannkyns færist úr sárri fátækt í það sem Rosling kallar millitekjur. Kannski kemur mest á óvart hve stutt er síðan okkar vestrænu samfélög voru á svipuðum stað og lönd sem við teljum fátæk núna. Við teljum flest að heimurinn sé verri en hann er. Leiðtogar í stjórnmálum og við- skiptum kolféllu á einföldum spurningum sem Rosling lagði fyrir þá um heiminn. „Apakettir hefðu náð betri árangri,“ segir hann. Apar hefðu nefnilega valið svör af handahófi, en jafnvel sérfræðingar völdu yfirleitt helst þau svör sem versta útkomu gáfu fyrir mannkynið. Íslendingar hljóta samt að rökræða út frá staðreyndum. Skattbyrði þeirra 10% sem hafa lægst laun er meiri núna en þeirra tekju- minnstu fyrir 20 árum, svo dæmi sé tekið. Skýringin er sú að laun eru almennt hærri núna en þau voru fyrir 20 árum að raungildi. Ættum við að fella niður skatta af lægstu launum, ef allir væru komnir með að minnsta kosti milljón á mánuði? Samkvæmt nýjustu lífsgæðakönnun Hagstofunnar árið 2014 líða tæplega 8% barna skort á efnislegum gæðum, ekki fjarri sex þúsund börnum. Hvenær á áratugnum þar á undan sögðust fæstir hafa það svo slæmt? Ekki árið 2007 heldur árin 2008-9. Þegar verst áraði gerðu svar- endur minnst úr erfiðleikum sínum. Staðreyndir eru mikilvægar, en samhengi hlutanna skiptir máli. Benedikt Jóhannesson Pistill Sannleikurinn versnandi fer Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. 40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þeir semfylgdustmeð fréttum af kjaraviðræðum í gær hljóta að hafa fyllst efa um að þeir sem við samningaborðið sitja hafi allir fullan skilning á því í hvaða stöðu þjóðfélagið er komið. Og raunar hlýtur þessi efi að hafa skotið upp kollinum mun fyrr því að margar síðustu vikur hefur vakið furðu hve hægt gengur í kjaraviðræðum. Staðreyndin er sú að lang- varandi kjaraviðræður, ekki síst þegar inn í þær hafa bland- ast ábyrgðarlausar yfirlýsingar sem vakið hafa ótta meðal al- mennings og atvinnurekenda, hafa þegar haft mikil og nei- kvæð áhrif á efnahagslífið. Al- menningur heldur að sér hönd- um vegna þeirrar óvissu sem uppi er og afleiðingin er sú að fyrirtækin reyna eftir fremsta megni að draga úr útgjöldum. Slíkar aðgerðir bitna meðal annars á umbjóðendum þeirra sem við samningaborðið sitja. Kjarasamningar voru al- mennt lausir um áramót en nú er kominn febrúar og enn er lít- ið að frétta. Í gær var upplýst að launaliðurinn yrði ræddur í næstu viku hjá ríkissátta- semjara hjá þeim félögum sem vísuðu kjaradeilunni þangað. Talað er um að einhverjar vikur séu í að niðurstaða fáist í við- ræðurnar og því er jafnvel haldið fram að of langt sé geng- ið að segja að nú sjáist til lands. Þetta er ekki boðlegt. Kjara- viðræður eru mikið alvörumál vegna þeirrar sterku stöðu sem verka- lýðsfélögin eru í hér á landi. Allir vita að niðurstaða kjara- viðræðnanna ræður úrslitum um hvert stefnir í efnahags- málum hér á landi. Það eru all- ar forsendur til að hér sé hægt að halda áfram á góðri siglingu hagvaxtar, stöðugleika og kjarabóta en þungt högg óá- byrgra samninga gæti hæglega valdið miklu tjóni. Þetta hljóta allir sem við samningaborðið sitja að skilja og verða að haga viðræðum eft- ir því. Og yfirlýsingar um að varnaðarorð, eins og þau sem Seðlabankinn setti fram í gær, séu hótanir sem beri að hafa að engu, eru síst til þess fallnar að unnt verði að ná kjarasamn- ingum sem verði hagfelldir fyr- ir launafólk. Þeir sem sitja yfir kjara- samningum um þessar mundir verða að átta sig á að hver dag- ur sem dregst að ná skyn- samlegri niðurstöðu er tap fyrir þjóðfélagið allt, ekki síst þá sem verið er að semja fyrir. Þess vegna verður að herða róðurinn og semja um það sem nauðsynlegast er. Svo er hægt á öðrum vettvangi að halda áfram viðræðum um það sem tímafrekara reynist og leysa það síðar. Brýnasta verkefnið nú er að eyða óvissunni, forðast kollsteypu og tryggja vöxt og kjarabætur til framtíðar. Það gengur ekki að kjaraviðræður drag- ist meira en orðið er} Óboðlegt Bandarískir fjöl-miðlar segja að baráttan fyrir forsetakosning- arnar í nóvember 2020 hafi byrjað um áramótin. Tveggja ára kosn- ingabarátta er raunar reglan. Mikill fjöldi demókrata hefur þegar sagst vilja verða forseta- efni þá. Hægra megin er Trump enn einn um hituna. Aðdáun- arvert er að Bandaríkjamenn fái ekki grænar bólur yfir tveggja ára slag. Milljörðum dollara er varið í hann af hálfu stóru flokkanna og samtökum sem þeim tengjast. (FBI upp- lýsti að Rússar hafi varið tæp- lega 5.000 dollurum í að hafa áhrif á forsetakosningarnar 2016, eða um 700 þúsund krón- um. Þann austur og aðrar grun- semdir hefur Mueller saksókn- ari rannsakað síðan og til þess eltingaleiks við skottið á sér eytt dollurum sem svara til þriggja milljarða króna.) Mikil umræða stóð dögum saman í fjölmiðlum um vænt- anlega ræðu forset- ans „um stöðu og horfur þjóðar- búskaparins“. Helstu sjónvarps- stöðvar og „stór- blöð“ vestra, sem hafa flest áratug- um saman stutt demókrata, telja að Pelosi, forseti Full- trúadeildar, hafi unnið útsend- inguna frá ræðu forsetans, þótt hún segði ekki orð. Nánast hver og einn rekur „sigur“ hennar til leikrænna tilburða hennar við að klappa eða ekki klappa fyrir yfirlýsingum forsetans. Annaðhvort er að þetta klapp hafi verið tær snilld og Pelosi, sem sat aftan við forsetann, hafi slegið svo út ræðu forset- ans að þeir telja óþarft að gera henni mikil skil þess vegna. Eða að fjölmiðlarnir hafi notað talpunktana sem þeir fengu frá flokknum sínum fyrir útsend- inguna af nokkru gáleysi. Í langdregnum umræðum um væntanlega ræðu minntist þó enginn á að það væri klappið sem væri málið! Umræða stóru fjöl- miðlanna vestra um ræðuna um stöðu og horfur Bandaríkj- anna er pínleg} Klappað og klárt STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Við finnum fyrir miklumstuðningi við þetta frum-varp. Þetta er að vísu ístjórnarsáttmála núver- andi ríkisstjórnar, en þar sem engin vísbending hefur enn komið fram þess efnis að ríkisstjórnin ætli sjálf að stíga þetta skref teljum við rétt að leggja frumvarpið fram og vænt- um stuðnings stjórnarflokka,“ segir Logi Einarsson, formaður Samfylk- ingarinnar, við Morgunblaðið. Vísar hann í máli sínu til frum- varps til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000. Í frumvarpinu, sem var meðal annars á dagskrá Alþingis í gær, er lagt til að fæðingarorlof verði lengt úr níu mánuðum í tólf og felur sú breyting í sér aukinn rétt beggja foreldra auk þess sem ung- börn fá meiri tíma til samvista með foreldrum sínum. „Sveitarfélög víða um land leit- ast við að brúa þann tíma þegar for- eldrar þurfa að bíða eftir dagvistun eftir að fæðingarorlofi lýkur. Ríki og vinnumarkaður þurfa að leggja sitt af mörkum til að ná því markmiði,“ segir í greinargerð frumvarpsins, en lagt er til að sjálfstæður réttur hvers foreldris verði fimm mánuðir og að sameiginlegur réttur foreldra verði tveir mánuðir. Kom fyrst fram í tíð Jóhönnu Logi segir að í árslok 2012, í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðar- dóttur, hafi verið samþykkt lög nr. 143/2012, um breytingu á lögum nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldra- orlof, þar sem kveðið var á um leng- ingu fæðingarorlofs úr samtals níu mánuðum í tólf. Horfið var frá þess- um breytingum þegar ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks tók við völdum í maí 2013. „Ef þessir tveir flokkar hefðu ekki horfið frá þessu þegar þeir komust í ríkisstjórn hefðu öll börn síðustu sex ár fengið meiri tíma með foreldrum sínum. Það hefði vafa- laust skipt þessar fjölskyldur miklu máli,“ segir Logi og heldur áfram: „Einnig held ég að þetta sé mikil- vægt innleg í kjaraviðræður, þar sem þetta er jú kjaramál. Það eru ungar barnafjölskyldur sem munu draga vagninn í okkar samfélagi næstu áratugi og því er nauðsynlegt að hlúa betur að þeim inn í framtíð- ina. Þá mun þessi breyting einnig gagnast sveitarfélögum þar sem lenging fæðingarorlofs mun hjálpa til við að brúa það bil sem myndast þegar fæðingarorlofi lýkur og barn kemst inn á leikskóla.“ Jákvæðar umsagnir Á heimasíðu Alþingis má nálg- ast þau erindi sem borist hafa um umrætt frumvarp. Eru umsagnir þessar í stuttu máli afar jákvæðar. Ein umsögnin kemur frá Félagi um foreldrajafnrétti og segist for- maður félagsins fagna frumvarpinu. „Sjálfstæður réttur foreldra til fæðingarorlofs er líklega eitt stærsta skref sem stigið hefur verið í foreldrajafnrétti á Íslandi frá árinu 1992 þegar sameiginleg forsjá varð fyrst möguleg,“ segir í umsögn fé- lagsins. Umboðsmaður barna tekur í svipaðan streng í sinni umsögn. „Rannsóknir hafa sýnt að fyrstu mánuðir í lífi barna hafa mikil áhrif á þroska, velferð, sjálfsmynd og sam- skipti seinna meir. Á þessum tíma er mikilvægt að börn fái fullnægjandi tækifæri til þess að mynda tengsl við aðalumönnunaraðila sína, sem oftast eru foreldrar,“ segir þar. Býst við stuðningi þvert á alla flokka Morgunblaðið/Hari Á göngu Formaður Samfylkingarinnar býst við stuðningi þvert á flokka þegar þingið tekur fyrir frumvarp um breytingu á lengd fæðingarorlofs. Félagsráðgjafar á kvennadeild Landspítalans og Barnaspít- alanum segja lengingu fæðing- arorlofs úr níu mánuðum í tólf löngu tímabært skref og fagna því frumvarpinu. „Lengi hefur ekki verið sam- ræmi í lengd fæðingarorlofs foreldra og möguleika á öruggri dagvist fyrir barn þeg- ar foreldrar hafa þurft að mæta aftur til vinnu. Það er því mjög jákvætt að barni sé tryggður umönnunaraðili fyrsta æviárið sem er mikilvægt fyrir þroska og tengslamyndun barnsins,“ segir í umsögn þeirra. Embætti landlæknis segir frumvarpið mikilvæga aðgerð í þágu lýðheilsu. „Í ljósi mikil- vægis tilfinningatengsla for- eldra og barna fyrir þroska og geðheilsu barna telur embættið ennfremur rétt að fæðingar- orlof verði skilgreint sem rétt- ur barns til umönnunar.“ Trygging í tólf mánuði UMSAGNIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.