Morgunblaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 52
52 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019 ✝ Steinunn Ingv-arsdóttir fædd- ist í Þrándarholti í Gnúpverjahreppi 13. október 1934. Hún lést á krabba- meinsdeild Land- spítalans 26. janúar 2019. Foreldrar Steinunnar voru Ingvar Jónsson bóndi í Þrándar- holti, f. 8.9. 1898 í Skarði, d. 25.8. 1980, og Anna Halldóra Margrét Hansdóttir frá Fitjakoti á Kjalarnesi, f. 14.8. 1905, d. 22.7. 1997. Hálf- bróðir Steinunnar er Sverrir Andrésson, f. 30.3. 1930, og al- systkini; Steinþór, f. 23.7. 1932, d. 16.2. 1995, Guðlaug, f. 20.10. 1933, d. 2.4. 1947, Esther, f. 31.10. 1935, d. 23.1. 1986, Rann- veig, f. 26.3. 1937, d. 23.3. 1975, Þrándur, f. 16.2. 1943, og Guð- laug, f. 19.12. 1946. Hinn 13.4. 1963 giftist Stein- unn Böðvari Guðmundssyni 1976. 4) Birkir, hagfræðingur, f. 31.7. 1973, kvæntur Guðrúnu Ei- ríksdóttur tölvunarfræðingi, f. 1974. Börn þeirra eru Kolfinna, f. 1998, í sambúð með Hauki Steini Helgasyni, f. 1994, og tví- burarnir Ingvar og Hafsteinn, f. 2000. Steinunn og Böðvar slitu samvistir. Steinunn fæddist í Þrándar- holti í Gnúpverjahreppi. Hún ólst upp við venjubundin land- búnaðarstörf á fjölmennu heim- ili og hlaut hefðbundna mennt- un í Ásaskóla. Nítján ára gömul fór hún í Húsmæðraskólann á Varmalandi og útskrifaðist það- an vorið 1954. Næstu árin sinnti hún ýmsum störfum, svo sem á hjúkrunarheimilinu Grund og Landspítalanum. Árið 1961 stofnuðu þau Böðvar nýbýlið Brúarholt í Grímsnesi og hófu þar búskap. Árið 1978 flutti Steinunn á Selfoss þar sem hún starfaði við ýmis umönnunar- störf. Árið 1990 útskrifaðist hún sem sjúkraliði og vann eftir það sem slíkur út starfsævina. Árið 2001 flutti Steinunn til Reykja- víkur og bjó þar síðustu 17 árin. Útför Steinunnar fer fram frá Seljakirkju í dag, 7. febrúar 2019, og hefst athöfnin klukkan 15. bónda frá Efri-Brú í Grímsnesi, f. 8.11. 1935, d. 4.12. 2008. Hans dóttir er Guð- rún, f. 10.10. 1955. Synir Steinunnar og Böðvars eru: 1) Guðmundur Örn, húsasmiður, f. 5.9. 1961, kvæntur Kristínu Fjólu Bergþórsdóttur kennara, f. 1965. Synir þeirra eru Bergþór Bjarki, f. 1993, Tómas Tjörvi, f. 1995, Böðvar Breki, f. 2001, og tvíburarnir Baldvin Barri og Snorri Sveinn, f. 2008. 2) Óli Fjalar, vélfræðingur og raf- virki, f. 15.12. 1962, kvæntur Margrethe Andreasen, félags- ráðgjafa, f. 1968. Dætur þeirra eru Sunna Kristín, f. 1988, maki hennar er Ragnar Sigurðarson f. 1988, sonur þeirra er Nóel Marri, f. 2018. Steinunn Eva, f. 1991, og Móeiður Kara, f. 1998. 3) Ingvar, f. 27.10. 1963, d. 10.9. Elsku mamma. Þú sagðir eitt sinn, kannski ekki í fullri alvöru, að ef eitthvað væri að marka minningargrein- arnar þá hefðu bara dýrlingar dáið á Íslandi. Að það væri meira vit í að leyfa fólkinu sjálfu sem verið er að syrgja að heyra allar þessar fallegu lýsingar frekar en að bíða þar til það er orðið of seint. Þess vegna hvarflaði að mér, þegar við fengum þær fréttir að þú værir alvarlega veik og ættir líklega ekki langt eftir, að skrifa lítið þakkarbréf og lesa fyrir þig. Þar myndi ég telja upp allt það sem ég er þér svo þakklátur fyr- ir. Fyrst og fremst allan kær- leikann og umhyggjuna sem við strákarnir þínir, tengdadæturn- ar, barnabörnin og barnabarna- barnið fengum stöðugt að njóta. Þú varst alltaf til staðar, vildir allt fyrir okkur gera og vaktir stöðugt yfir velferð okkar. Raunar endaði umhyggja þín ekki þar því systkini þín og þeirra börn áttu líka alltaf sér- stakan sess í hjarta þínu og marga trausta vini áttir þú sem þú deildir með sorgum og gleði. Ótrúlegur dugnaðurinn og kraft- urinn í þér var í engu samræmi við líkamsburðina en þú gast aldrei látið stund falla niður án þess að nýta hana til gagns. Og þrátt fyrir að hafa alla tíð unnið láglaunastörf þá varstu alltaf ör- lát en hafðir alltaf nóg, þökk sé dugnaði þínum, nægjusemi og nýtni. Þú varst mér og börn- unum mínum dýrmæt fyrirmynd sem ég verð þér ævinlega þakk- látur fyrir. Þetta og fleira langaði mig til að segja þér, en þegar til kom var tíminn of skammur og þú varst of veik til að geta hlustað á langan lestur. En ég veit það nú að það var í lagi, mér tókst að deila með þér örfáum innilegum orðum, löngu þéttu faðmlagi og fullt af tárum stuttu áður en þú fórst og engin orð til viðbótar hefðu tjáð tilfinningar mínar betur. Og núna stend ég mig að því að hripa þessi orð á blað eft- ir að þú ert farin, en það er bara svo allir hinir viti að þú varst sannur dýrlingur. Nú ert þú ekki lengur til stað- ar, elsku mamma mín. En minn- ing þín lifir, og ég ætla að láta hana verða mér hvatning til að verða betri. Verða meira eins og þú, hlýr og mildur, nýtinn og nægjusamur. Og kannski aðeins duglegri líka. Þinn Birkir. Ég sé fyrir mér mömmu hrökkva við um leið og ég opna svaladyrnar og segja hátt og snjallt: „Nei ertu kominn, ég var einmitt að fara að hella upp á könnuna.“ Hún stjanaði við mann. Hvergi var betra að setjast nið- ur og slaka á eða ræða lífsins gagn og nauðsynjar en hjá mömmu. Það var eitthvað sér- stakt við að koma til mömmu. Að koma til hennar úr skarkala hversdagsins og slaka á var eins og að verða litli strákurinn hennar aftur í augnablik. Þetta var hin fullkomna hvíld fyrir sál- ina. Hún umvafði mann með ást og hlýju. Engu að síður var það svo að maður kom ekki til henn- ar til að fá meðaumkun vegna þreytu eða vinnuálags. Hún hafði enga samúð með því. „Þú ert ungur og það hafa allir gott af því að vinna.“ Enda var hún þannig að hún gat ekki setið að- gerðarlaus. Sem dæmi um þetta þá rak hún sumardvalarheimili fyrir börn á Brúarholti þegar hún bjó þar og á veturna vann hún við Ljósafossskóla auk bú- starfanna. Glaðværðin, æðru- leysið og væntumþykjan kemur upp í hugann þegar ég hugsa til mömmu. Það að hún ætlaðist ekki til neins af öðrum en var alltaf tilbúin að rétta hjálpar- hönd hvort sem var í orði eða verki olli því að allir voru svo til- búnir að gera hvaðeina fyrir hana. Og það var svo gott að vera nálægt henni kannski þess vegna. Og aðrir virtust vera á sama máli. Hún átti fjölda vina sem hún hélt reglulegu sam- bandi við. Hún lifði fyrir fjöl- skylduna sína í þeim skilningi að hún var alltaf tilbúin að hlusta. Hún vakti yfir velferð allra, og enginn gladdist meir yfir hverj- um þeim árangri sem við bræð- urnir og börnin okkar náðu í leik og starfi. Mamma kunni illa við að láta hafa fyrir sér. Hún var lítillát og hógvær og kvartaði aldrei en sagði samt sína mein- ingu. Mamma hélt vel utan um fjöl- skylduna sína. Þorláksmessu- skata, veisla á jóladag og matur flestöll föstudagskvöld er nokk- uð sem við öll eigum eftir að minnast með gleði og söknuði. Mamma kunni að hafa það skemmtilegt og var driffjöður þegar kom að ættarmótum í Þrándarholti. Þar var hún í ess- inu sínu. Eftirminnilegt er líka afmælisveislan þegar hún varð 80 ára. Hún fékk eftirlætis- söngvara sinn Ragga Bjarna til að mæta og fullur salur af fjöl- skyldu og vinum skemmtu sér fram á morgun. Man ég að þar steig hún á svið og með sposkum svip sagði hún að erfitt yrði að slá þessu við en ætlaði hún samt að gera það því öllum væri hér með boðið í 100 ára afmælis- partíið sitt. En áætlanir breytast og þó að þú mamma mín hafir sennilega verið að grínast með afmælisp- artíið er nú skyndilega komið að kveðjustund. Minningarnar eru óþrjótandi. Betri móður, tengda- móðir, ömmu og langömmu er ekki hægt að hugsa sér. Ég kveð þig með þessu broti úr kvæði Tómasar Guðmunds- sonar: Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævin- lega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir, sem ung á morgni lífsins staðar nemur, og eilíflega, óháð því, sem kemur, í æsku sinnar tignu fegurð lifir? Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki um lífsins perlu í gullnu augnabliki. Ég þakka þér allt það dýr- mæta sem þú varst okkur, mér Margréti og stelpunum. Þú verð- ur alltaf í hjarta okkar. Kveðja, Óli og Margret. „Skjótt skipast veður í lofti“ segir máltækið, og að þessu sinni eru það orð að sönnu. Eins og hendi væri veifað er hún farin frá okkur hún elsku Steina, tengdamóðir mín, og það er erf- itt að trúa því. Það er erfitt að trúa því, vegna þess að fyrir rúmum þremur vikum hefði ekk- ert okkar svo mikið sem rennt í grun að hún væri svo alvarlega veik. Frá því við fyrst vissum að eitthvað væri að, og þar til hún var látin, liðu sléttar tvær vikur upp á dag. Dómurinn var óvæg- inn og gaf ekki vonir nema um örfáar vikur, eða jafnvel einungis örfáa daga – og það reyndist rétt. Það er erfitt að sjá líf ást- vinar fjara svo hratt út, án þess að fá nokkru um það breytt – og ekkert verður aftur eins. Steina var traust kona og góð, trú sinni sannfæringu, sjálfstæð og einörð í því sem hún tók sér fyrir hendur. Lífið fór ekki alltaf mjúkum höndum um hana og hún fékk sannarlega sinn skerf af erfiðleikum. Þrátt fyrir það hélt hún alltaf áfram, beit á jaxl- inn og hélt áfram. Ég held að það hefði næstum því verið sama hvað hún Steina hefði ákveðið að taka sér fyrir hendur í lífinu; hún hefði klárað sig af því öllu – hversu ólíklegt sem manni hefði fundist það í upphafi. Kannski var það einmitt þess vegna sem maður hélt í þá von að hún myndi líka vinna þennan slag – eða a.m.k. ná yfirhöndinni um tíma. Þegar horft er yfir farinn veg, þau rúmu 30 ár sem ég hef þekkt hana Steinu, er óneitan- lega margs að minnast, margs að sakna, og margt eigum við henni að þakka. Það er dýrmætt hvað hún Steina hélt alltaf vel utan um hópinn sinn, strákana sína þrjá, okkur tengdadæturnar og barnabörnin sín öll – sem hún var svo þakklát fyrir og stolt af. Hún lagði mikið upp úr því að hittast og halda hópnum saman og skapaði til þess ýmis tækifæri og hefðir sem löngu eru orðnar ómissandi. Það er undarlegt til þess að hugsa, og fyllir mig söknuði og trega, að ekki verði fleiri slíkar stundir í Kambasel- inu. Steina tók fréttunum af veik- indum sínum og óvægnum dómnum eins og öðru mótlæti í lífinu, af aðdáunarverðri ró og yfirvegun. Það var einhvern veg- inn ekki hennar stíll að dvelja við það sem ekki var hægt að breyta, heldur taka því sem að höndum bar. Með það að leið- arljósi ætla ég ekki að hafa þessi orð um hana Steinu mína fleiri í dag – þrátt fyrir að margt fallegt sé enn ósagt. Elsku Steina mín. Með sorg í hjarta kveð ég þig að sinni. Takk fyrir allt og allt. Þín tengdadóttir, Kristín Fjóla. Elsku amma, ég sit hér í litlu, fallegu íbúðinni þinni og trúi ekki að ég sé að skrifa þessa grein svona snemma. Ég bjóst alltaf við því, tók því eiginlega sem gefnu, að þú myndir einn daginn halda á börnunum mín- um, mæta í brúðkaupið mitt og fylgjast með okkur öllum mikið lengur. Þú ert nefnilega, og hef- ur alltaf verið, ofurkona. Þú hef- ur alls ekki átt auðvelt líf, marg- ir hefðu auðveldlega bugast við að ganga í gegnum það sem þú hefur gengið í gegnum, en þú hefur aldrei leyft því að yfirtaka líf þitt. Ég held að ég hafi sjaldan hitt manneskju sem elskar jafn djúpt og þú gerir og ég veit að fólkið í kringum þig er sammála. Ég gat alltaf leitað til þín sama hvað og þú vissir alltaf hvað þú þurftir að gera og segja til að mér liði bet- ur. Kannski var það ekki einu sinni hvað þú gerðir heldur bara það eitt að vera hjá þér sem lét mér líða eins og allt væri orðið gott aftur. Ég trúi ekki að lífið geti verið svona ósanngjarnt. Ég trúi ekki að þú verðir ekki með okkur á jólunum og komir ekki með blóm og kort á afmælinu mínu eins og þú hefur alltaf gert. Ég trúi ekki að ég og Móeiður mun- um aldrei baka sörur með þér aftur. Þú varst alltaf svo stress- uð að við myndum gera eitthvað vitlaust, því sörurnar þurftu að vera fullkomnar, og við pirruð- um okkur á þessu vantrausti á meðan við inn á milli klúðruðum hinu og þessu. Svo að lokum sagðirðu að á næsta ári gætum við bara gert þær alveg sjálfar en þegar þar að kom gerðum við þær alltaf með þér. En þetta ár- ið munum við í alvöru gera þær alveg sjálfar, og við munum halda áfram að gera þær sjálfar um ókomna tíð. Elsku amma, ég vona að þú sért komin til hans Ingvars þíns og knúsir hann þarna hinum megin fyrir okkur öll. Ég elska þig af öllu hjarta og minning þín mun lifa með mér að eilífu. Þín Kolfinna. Í dag kveðjum við hana yndis- legu Steinu ömmu okkar. Við er- um ótrúlega þakklátar fyrir að hafa haft þessa mögnuðu konu í lífi okkar. Hún kenndi okkur svo margt mikilvægt og var fyrir- mynd okkar á svo margan hátt, var alltaf til staðar fyrir okkur og studdi okkur í einu og öllu. Það var alltaf gott að koma til ömmu í kaffi og spjall og maður gat verið viss um að fá hlýjar móttökur með stóru knúsi, enda hjartahlýrri manneskju erfitt að finna. Við systur áttum það til að „strjúka“ að heiman og oftar en ekki var áfangastaðurinn heima hjá ömmu. Maður var alltaf stikkfrí hjá henni. Þrátt fyrir að líf ömmu hafi ekki alltaf verið dans á rósum skein húmorinn, krafturinn og æðruleysið í gegn alla tíð. Hún gerði allt fyrir fólkið sitt án þess að búast við neinu til baka en var alltaf svo þakklát fyrir minnstu hluti sem gerðir voru fyrir hana. Minningarnar um pítsupartí- in, brúnkökurnar þínar, gleði- legu móttökurnar, prjónapeys- urnar, spilin, púslið, fallega brosið þitt og yndislega sönglið munu lifa áfram í hjörtum okk- ar, elsku amma. Sunna Kristín, Steinunn Eva og Móeiður Kara Óladætur. Elsku amma Steina! Með þessum fallegu línum kveðjum við þig og gerum þær að okkar. Við kveðjum þig kæra amma með kinnar votar af tárum á ást þinni enginn vafi til okkar, við gæfu þá bárum. Horfin er hönd þín sem leiddi á hamingju- og gleðifundum, ástúð er sorgunum eyddi athvarf á reynslustundum. Margt er í minninga heimi mun þar ljósið þitt skína, englar hjá guði þig geymi við geymum svo minningu þína. (Höf. ók.) Þínir sonarsynir, Bergþór, Tómas, Böðvar, Baldvin og Snorri. Það er með söknuði sem við kveðjum Steinu frænku í hinsta sinn. Þó að við syrgjum hana innilega rifjast upp minningar sem lauma brosi á okkur systur. Steina var okkur mjög kær og það var allt skemmtilegra þegar Steina var með. Fjölskyldan er okkur öllum svo dýrmæt og frændrækin var hún Steina. Á okkar reglulegu ættarmótum var Steina alltaf með þeim fyrstu og tók þátt í öllu, svo hress og kát. Brosið fór ekki af henni á mannamótum og hún sýndi öllum áhuga – vildi vita hver væri að læra, vinna, eignast barn eða byggja hús. Hún var alvörudugnaðar- forkur, svo drífandi og dugleg að hún gat ekki setið kyrr. Það er okkur mjög minnisstætt þegar búið var að skipuleggja vinnu- helgi í Þrándarholti og við syst- ur ákváðum að mæta degi fyrr til þess að hafa það huggulegt í sveitinni. Steina mætti líka á undan öllum en hún settist ekki hjá okkur þar sem við vorum að spjalla í stofunni. Hún dró upp sandpappír og sparsl, prílaði upp á stól við hliðina á okkur og byrjaði að undirbúa málningar- vinnuna sem átti að vinna dag- inn eftir. Eitt af öðru stóðum við upp úr sófunum og fundum okk- ur eitthvað að gera, ekki gátum við setið þarna og horft á aldr- aða frænku okkar púla eina. Hún var líka orðin áttræð þegar hún skrapaði, pússaði og málaði þakið á gamla fjósinu í sveitinni. Alveg ótrúlegt hörkutól hún Steina. Henni var ýmislegt til lista lagt, kleinurnar hennar voru t.d. bestar í heimi. Handavinna lék líka í höndunum á Steinu. Hún prjónaði lopapeysur á færibandi og allar bróderingar voru óað- finnanlegar, svo vandvirk var hún. Við systur vorum svo heppnar að fá skírnarkjól lán- aðan frá henni þegar börnin okkar voru skírð. Þennan dásamlega fallega kjól saumaði hún fyrir 60 árum í húsmæðra- skólanum á Varmalandi. Það er fátt betra en að leggja góðan kapal og kunni hún Steina þá nokkra. Keppnisskapið kom fram hjá Steinu þegar hún tók í spil, sérstaklega manna. Hún hló svo innilega þegar hún vann – og það var nú oftast þannig. Steina frænka var fyrirmynd í svo mörgu sem mun fylgja okk- ur um ókomna tíð. Hún kenndi okkur að láta skoðanir okkar í ljós, standa fastar með sjálfum okkur og vera kappsamar. Fyrir það erum við systur þakklátar. Mamma þakkar Steinu systur sinni samfylgdina og þær dýr- mætu minningar sem hún skilur eftir. Við allar sendum Guðmundi, Óla, Birki og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Inga Dóra, Heiða og Rannveig Hrólfsdætur. Nú er jarðvist Steinu á enda og það má með sanni segja að endinn hafi borið brátt að. Kær voru kynni mín af Steinu. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast henni Steinu, sem var gift föður mínum, og með okkur tókst vinskapur sem hélst alla tíð. Steina var mikil myndarkona, og allt sem hún tók sér fyrir hendur gerði hún með miklum myndarskap. Við Steina deildum því áhugamáli að hafa unun af handavinnu. Síðustu ár hennar vorum við svo nágrannakonur og vörðum dýrmætum tíma saman við þá iðju. Afköst Steinu voru slík að lopapeysuframleiðslan var stór hluti af iðju hennar síðustu ár, og óhætt er að segja að hún hafi verið í fremstu röð á því sviði. Hún yfirgaf þennan heim skjótt, og þurfti ekki að þola langa sjúkdómslegu, sem hefði örugglega ekki verið í hennar anda. Með þessum fáu orðum vil ég þakka Steinu fyrir allan þann hlýhug sem hún sýndi ávallt mér og fjölskyldu minni. Guðrún Böðvarsdóttir. og fjölskylda. Sólin skein í heiði þegar ég hitti hana Steinu í fyrsta sinn sumarið 1970. Hún bjó þá í Brú- Steinunn Ingvarsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNS LÁRUSAR SIGURÐSSONAR, fyrrverandi yfirlæknis. Sif Sigurvinsdóttir Jóhanna H. Jónsdóttir Halldór Páll Ragnarsson Ágústa Ragna Jónsdóttir Elín Margrét Hjelm Sigrún Edda Jónsdóttir Egill Þór Sigurðsson Sigurvin Lárus Jónsson Rakel Brynjólfsdóttir og barnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.