Morgunblaðið - 07.02.2019, Side 55

Morgunblaðið - 07.02.2019, Side 55
arliðsins á Keflavíkurflugvelli frá 1967; deildarverkfræðingur þar frá 1971; yfirverkfræðingur frá 1981 og framkvæmdastjóri verkfræðideild- ar frá 1987 til 2000. „Við sáum um allt sem getur komið fyrir einu í bæjarfélagi, viðgerðir á húsum og rafmagni auk þess að sjá um við- gerðir um allt sem viðkom flugvell- inum. Þótt æðsta stjórn hafi verið Bandaríkjamenn þá voru þeir ekki margir í verkfræðideildinni, en þeg- ar Víetnamstríðið var í gangi voru strákar stundum sendir til okkar til þess að jafna sig.“ Eftir starfslok tók Björn punga- próf frá Sjómannaskólanum, þar sem hann átt hlut í bát og jörð á Kaldrananesi II á Ströndum. Björn sat í stjórn lífeyrissjóðs Verkfræðingafélags Íslands 1979- 85. Hann er frímúrari og var í árav- ís í stjórn Bridgefélags eldri borg- ara, bæði sem gjaldkeri og seinna formaður. Björn er slyngur laxveiðimaður og veiðir enn, veiddi síðasta sumar lax á flugu í Straumum við Hvítá í Borgarfirði. „Ég er lögblindur en gat nú veitt samt, en ég verð að píra aðeins augun þegar ég er að spila bridge.“ Hann hefur spilað bridge frá menntaskólaárunum og spilar enn þrisvar í viku. Þess má geta til gamans að Björn kynntist El- ísabetu eiginkonu sinni á bridge- móti á Bifröst í Borgarfirði. Björn hefur mikinn áhuga á þjóð- legum fræðum og sótti ásamt konu sinni fjölmörg námskeið hjá Jóni Böðvarssyni í Endurmenntun HÍ og fór í söguferðir bæði innan- og utanlands. Fjölskylda Eiginkona Björns er Elísabet Sigurðardóttir, f. 15.9. 1935, við- skiptafræðingur. Foreldrar hennar voru hjónin Sesselja K. Fjeldsted, f. 7.11. 1900, d. 3.4. 1983, húsmóðir í Borgarnesi. og Sigurður Guð- brandsson, f. 4.4. 1903, d. 25.4. 1984, mjólkurbússtjóri í Borgarnesi. Börn: 1) Kristín, f. 7.8. 1957, rekstr- arhagfræðingur í Reykjavík, eig- inmaður hennar er Hörður Olavson tölvunarfræðingur; 2) Sigurður, f. 2.11. 1960, barnaskurðlæknir í Reykjavík; 3) Daði, f. 11.10. 1966, MSc. landfræðingur í Reykjavík, eiginkona hans er Anna G. Gunn- arsdóttir hjúkrunar- og lýðheilsu- fræðingur. Barnabörn Björns og Elísabetar eru 10 talsins. Systkini: Jónína, f. 4.4. 1926, d. 10.3. 2015, ritari í Reykjavík, og Valdimar M., f. 23.2. 1933, tré- smíðameistari og stýrimaður í Reykjavík. Foreldrar: Hjónin Pétur Ey- vindsson, f. 18.11. 1884, d. 26.6. 1951, trésmiður í Reykjavík, og Guðrún Daðadóttir, f. 17.5. 1898, d. 1.4. 1994, húsmóðir og matráðskona í Reykjavík. Úr frændgarði Björns Eyvindar Péturssonar Björn Eyvindur Pétursson Guðrún Daðadóttir húsfreyja og matráðskona í Rvík Daði Daníelsson bóndi á Litla-Langadal í Snæfellshr.og Dröngum á Skógarströnd Ingibjörg Daðadóttir húsfreyja á Litla-Langadal Daníel Sigurðsson bóndi á Litla-Langadal Sveinbjörg Eyvindsdóttir húsfr. og verkakona á Akranesi Eyvindur Valdimarsson verkfræðingur í Rvík Valdimar M. Pétursson résmíðameistari og stýrimaður í Rvík tEinir Valdimarssonverkfræðingur í BNA Sesselja Jónsdóttir húsfreyja í Hólsbúð Andrés Andrésson bóndi og formaður í Hólsbúð í Flatey María M.Andrésdóttir húsfreyja á Litla-Langadal og Dröngum (varð 106 ára) Herdís Andrésdóttir skáldkona Ólína Andrésdóttir skáldkona Margrét Jónsdóttir húsfreyja á Kalastöðum Jón Bjarnason bóndi á Kalastöðum í Hvalfjarðarstrandarhreppi Jónína M. Jónsdóttir húsfreyja í Akrakoti Björn Bjarnarson alþm., bóndi og hreppstjóri í Gröf og Grafarholti, Pétur Eyvindsson fór í fóstur til Björns og var Björn Pétursson (afmælisbarnið) skírður í höfuðið á honum Þórunn Ástríður Björnsdóttir ljósmóðir í Reykjavík Steinunn Björnsdóttir hjúkrunarkona og gerðist nunna, fyrst allra íslenskra kvenna eftir siðaskiptin, kölluð systir Hilda Eyvindur Björnsson bóndi í Akrakoti og á Stóru-Drageyri í Skorradal Sólveig Björnsdóttir húsfreyja á Vatnshorni Björn Eyvindsson bóndi og hreppstjóri á Vatnshorni í Skorradal Pétur Eyvindsson trésmiður í Reykjavík Veiðimaðurinn Björn á veiðistaðn- um Straumum síðasta sumar. ÍSLENDINGAR 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019 DRAUMAEIGN Á SPÁNI Nánar á www.spanareignir.is ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR Aðalheiður Karlsdóttir Löggiltur fasteignasali adalheidur@spanareignir.is Sími 893 2495 Ármúla 4-6, Reykjavík Karl Bernburg Viðskiptafræðingur karl@spanareignir.is Sími 777 4277 Ármúla 4-6, Reykjavík Tvö svefnherbergi Tvö baðherbergi Einkagarður með sundlaug Þakverönd Göngufæri í miðbæinn Ótal golfvellir í næsta nágrenni Stutt á strönd (15km) Verð frá 23.800.000 Ikr. (175.000 evrur, gengi 1evra/136Ikr.) Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001 DAYA NUEVA – FRÁBÆRT VERÐ Falleg raðhús í rólegum spænskum bæ Thyra Ingibjörg JensdóttirLoftsson fæddist 7. febrúar1901 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru hjónin Jens Severin Lange frá Randers á Jótlandi, f. 1872, d. 1931, málarameistari í Reykjavík, og Þuríður Jakobsdóttir Lange, f. 1872, d. 1961, handavinnu- kennari í Reykjavík. Foreldrar Þur- íðar voru hjónin Jakob Jósefsson, bóndi á Árbakka á Skagaströnd, og Björg Jónsdóttir. Thyra varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1920 og út- skrifaðist tannlæknir frá Tann- læknaskólanum í Kaupmannahöfn 1925. Hún var fyrsta íslenska konan sem lauk tannlæknaprófi. Hún fór í námsferðir til Norðurlandanna að kynna sér tannlækningar. Thyra var aðstoðartannlæknir við Dje Sjællandske Sygekassers Tandklinik í Holbæk í Danmörku 1926-27 og afleysingatannlæknir um tíma. Hún tók við forstöðu skólatann- lækningastofu Reykjavíkur í Mið- bæjarskólanum árið 1927 og gegndi því starfi til ársloka 1968. Hún var því skólatannlæknir í rúm 40 ár. Thyra var meðstofnandi Tann- læknafélags Íslands (TFÍ) 30.10. 1927 og var gjaldkeri félagsins 1928- 1951 og 1954-56. Hún sat í fræðslu- og útbreiðslunefnd TFÍ um tíma. sat í stjórn styrktarsjóðs TFÍ 1944-70 og formaður 1946-69 og sat í skemmtinefnd TFÍ 1952-59. Hún sat í stjórn Skandinavíska tannlækna- félagsins 1940-60 og var meðstofn- andi og sat um tíma í stjórn Félags íslenskra kvenstúdenta. Thyra var kjörin heiðursfélagi TFÍ á 40 ára af- mæli félagsins 1967 og sæmd heið- ursmerki félagsins úr gulli. Eiginmaður Thyru frá 3.7. 1932 var Pálmi Anton Loftsson, f. 17.9. 1894, d. 18.5. 1953, skipstjóri og for- stjóri Skipaútgerðar ríkisins. Kjör- dóttir þeirra er Björg Tryggvason, f. 18.12. 1945, húsmóðir í Danmörku. Dætur Pálma frá fyrra hjónabandi: Sigríður, f. 1923, húsmóðir í Reykja- vík, og Guðríður, f. 1925, d. 1928, húsmóðir í Reykjavík. Thyra lést 23.10. 1970. Merkir Íslendingar Thyra Loftsson 90 ára Björn E. Pétursson Jónína Ásgrímsdóttir Liesel Sigríður Malmquist Sigurbjörg Sigurðardóttir 85 ára Gunnar Ingvarsson Unnur Stefánsdóttir Þórunn Melsteð 80 ára Ásbjörg Forberg Birna Sigríður Ólafsdóttir Björn Jónsson Björn Magnús Egilsson Gunnar Þór Gunnarsson Ingibjörg Þórdís Sigurðard. Sigrún Dagmar Elíasdóttir 75 ára Margrét Guðlaugsdóttir Óskar M. Alfreðsson Páll Bragi Kristjónsson Sveinn Óskar Ólafsson 70 ára Bjarki Árnason Finnur Eyjólfur Eiríksson Haukur Margeirsson Hjalti Hjaltason Norbert Alfreðsson Piffl Sigríður Ágústsdóttir Sverrir Jensson Unnar Þór Jóh. Jensen Þórarinn Magnússon 60 ára Anna Ólafía Sigurðardóttir Ásbjörn Jónsson Emil Emilsson Guðfinnur Jón Birgisson Guðjón Bjarnason Guðmundur K. Einarsson Ingibjörg Eggertsdóttir Lovísa Sigurðardóttir Páll Gunnar Guðmundsson Sigurborg Rögnvaldsdóttir Sigurður Pálmi Ásbergsson Snorri Þórisson 50 ára Baldur Gylfason Einar Gunnar Þórisson Guðrún Árný Árnadóttir Guðrún Sigríður Þorgeirsd. Hafdís Sigurðardóttir Hildigunnur Smáradóttir Orri Ragnar Árnason Amin Slawomir Sitkowski Sólborg Jónsdóttir Viðar Sigurður Hjálmarsson Víðir Sveins Jónsson Örn Árnason Amin 40 ára Emil Kári Ólafsson Guðrún Unnarsdóttir Heiðrún Klara Johansen Hildur Ævarsdóttir Jan David Tysk Jónas Unnarsson Margret Elva Sigurðardóttir Ólafur Hjörtur Ólafsson Óskar Marinó Sigurðsson Sigurður Ingi Árnason Sonja Mannhardt Trausti Björgvinsson Zita Erdei Þyrí Thorberg Óskarsdóttir 30 ára Andri Már Johnsen Anna Maria Jasinska Elín Helga Jónsdóttir Gabriela A. Rajewska Gunnar Andrésson Ingunn Tryggvadóttir Jóhann Reynir Gunnlaugss. Jón Heiðar Sveinsson Kristófer Már Tryggvason Pathumrattana Svavarsson Sandra Dögg Vatnsdal Þórarinn Guðnason Til hamingju með daginn 40 ára Rúnar er frá Laug- arvatni en býr á Efri- Reykjum í Biskups- tungum. Hann er búfjár-, sumarbústaða- og hita- veitubóndi. Maki: Eva Hálfdanar- dóttir, f. 1979, gegnir sömu störfum og Rúnar. Börn: Ásta Rósa, f. 2005, Gunnar Geir, f. 2007, og Þórhildur Eva, f. 2016. Foreldrar: Gunnar Vil- mundarson, f. 1953, og Jóna Bryndís Gestsdóttir, f. 1954. Rúnar Gunnarsson 40 ára Helen er uppalin á Seltjarnarnesi en býr á Selfossi. Hún er með BA- próf í spænsku og er verkefnastjóri hjá Lands- virkjun á Sogssvæðinu. Maki: Jón Stefán Þórðarson, f. 1963, raf- virki hjá Raflagnaþjón- ustu Selfoss. Sonur: Eldar Elí, f. 2012. Foreldrar: Garðar Guð- mundsson, f. 1946, og Kristín Magnúsdóttir, f. 1947, bús. á Seltjarnar- nesi. Helen Garðarsdóttir 30 ára Fannar er Norð- firðingur og býr í Nes- kaupstað. Hann er smiður hjá Nípukolli og þrívídd- arlistamaður. Systkini: Júlía Dröfn, f. 1977, og Aðalheiður, f. 1980. Foreldrar: Árni Guð- jónsson, f. 1954, húsa- smíðameistari og eigandi Nípukolls, og Bryndís Þóra Jónsdóttir, f. 1959, stuðningsfulltrúi á Fjórð- ungssjúkrahúsinu í Nes- kaupstað. Fannar Árnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.