Morgunblaðið - 16.02.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019
ALVÖRUMATUR
Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sextíu ungmenni taka þátt í Norðurlandamótinu í
skólaskák, sem hófst á Hótel Borgarnesi í gær. Keppt
er í sex aldursflokkum og í hverjum flokki eru tveir
keppendur frá Íslandi, Danmörku, Finnlandi, Fær-
eyjum, Noregi og Svíþjóð. Íslensku keppendurnir fóru
vel af stað í gær, að sögn Björns Ívars Karlssonar, út-
sendingarstjóra mótsins, og fengu 6,5 vinninga af 10 í
fyrstu umferðinni. Mótinu lýkur á sunnudag. Hægt er
að fylgjast með taflmennskunni á heimasíðu Skák-
sambands Íslands, skak.is.
Norðurlandamót
Morgunblaðið/Theódór Kr. Þórðarson
Ungir skákmenn reyna með sér
Magnús Heimir Jónasson
Hjörtur J. Guðmundsson
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, segir ljóst að kjaraviðræðurnar
muni sigla í strand án aðkomu stjórn-
valda eftir að gagntilboði Eflingar,
VR, Verkalýðsfélags Grindavíkur og
Verkalýðsfélag Akraness var hafnað
af Samtökum atvinnulífsins (SA) í
gær.
„Valkostirnir eru skýrir fyrir
stjórnvöld, það er annaðhvort að vera
með vinnumarkaðinn í fanginu út
kjörtímabilið eða fá vinnufrið og
byggja upp betra, réttlátara og stöð-
ugra samfélag,“ segir Ragnar Þór.
„Það er óvenjulegt að þetta skuli
standa og falla með stjórnvöldum
beint. Það er alveg ljóst að þegar við
fórum í þessar viðræður voru kröfur
okkar að stórum hluta um ákveðnar
kerfisbreytingar sem snúa að stjórn-
völdum. Hvernig sem hefði farið okk-
ar á milli í viðræðum við SA þá hefði
alltaf þurft stjórnvöld til hvort sem
er. Ég leyfi mér að vera bjartsýnn
þangað til annað kemur í ljós en stað-
an er alvarleg, því er ekki að leyna,“
segir Ragnar.
Verða að sjá til lands fyrst
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA, telur hins
vegar býsna augljóst að aðkoma
stjórnvalda sé skilyrt við það að
samningar séu á lokametrunum.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra segir að stjórnvöld séu að und-
irbúa ýmsar tillögur sem gætu greitt
fyrir kjarasamningum. „En við höf-
um líka sagt að aðkoma stjórnvalda
hangir auðvitað á því að það sjái til
lands í kjaraviðræðum,“ segir Katr-
ín.
Krónutöluhækkun helsta málið
Á fréttavef RÚV var greint frá því
að tilboð SA hljóðaði upp á 20.000
króna hækkun á mánaðarlaun sem
eru lægri en 600.000 krónur. Mán-
aðarlaun yrði hækkuð um 20.000
krónur árlega í þrjú ár. Hækkun á
hærri laun á, samkvæmt tilboðinu, að
vera 2,5 prósent.
Spurður um þessa hækkun segir
Ragnar Þór krónutöluhækkun enn
vera helsta kröfumál VR. „Við höfum
ekki vikið frá þeim kröfum. Síðan er
það þannig að SA koma með ákveðið
útspil eins og í fréttum RÚV sem er
svona blönduð leið en við stöndum
föst á krónutöluhækkunum og að
þær séu hafðar í fyrirrúmi. Við mun-
um standa fast í lappirnar gagnvart
því og síðan ákveðnum kerfisbreyt-
ingum. Ég hugsa að það sé ekki það
sem strandar á í viðræðunum í raun-
inni. Við erum það nálægt markmið-
inu hvað varðar krónutöluhækk-
unina.“ Hann segir að tilboð SA hafi
verið það fyrsta sem hægt var að
taka til efnislegrar umræðu innan
samninganefndar þó það hafi verið
ljóst frá upphafi að það hefði aldrei
gengið.
„Ég held að það sé orðið alveg ljóst
miðað við afstöðu SA í dag [í gær] að
við munum ekki fara mikið lengra í
þessum viðræðum. En við höfum
ekki fengið neina afstöðu stjórnvalda
til þeirra krafna sem við höfum verið
að gera varðandi kerfisbreytingar.
Ég ætla ekki að gefa mér neitt í þeim
efnum annað en að það hlýtur að vera
öllum ljóst að ef ekkert mun gerast
hjá stjórnvöldum liggur alveg aug-
ljóst fyrir að við munum slíta og það
verða átök.“ Ragnar bætir við að
hann sé bjartsýnn á að stjórnvöld
taki stöðuna alvarlega.
Sigla í strand án aðkomu stjórnvalda
Efling, VR, VLFG og VLFA höfnuðu tilboði SA Gagntilboð verkalýðsfélaganna óaðgengilegt, seg-
ir framkvæmdastjóri SA Slitnar upp úr ef aðkoma stjórnvalda verður engin, segir formaður VR
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ríkissáttasemjari Aðilar kjara-
deilunnar hittust á fundi í gær.
Landsréttur staðfesti í gær sex
mánaða skilorðsbundinn fangelsis-
dóm yfir konu fyrir líkamsárás og
brot á barnaverndarlögum. Konan
var ákærð fyrir að hafa beitt stjúp-
son sinn ofbeldi, líkamlegum refs-
ingum, ógnunum og sýnt yfirgang
og ruddalegt athæfi.
Í ákærunni kemur fram að kon-
an hafi slegið stjúpsoninn ítrekað
með flötum lófa í andlitið og höfuð,
með þeim afleiðingum að hann
hlaut roða á báðum kinnum og
öðru eyra.
Fram kemur í dómi Landsréttar
að síðari ákærulið hafi verið breytt
undir rekstri málsins. Konunni sé
nú gefið að sök að hafa í eitt skipt-
ið slegið drenginn í tvö til þrjú
skipti með flötum lófa í andlit og
höfuð. Stjúpsonurinn hlaut sár og
bólgu á neðri vör, eymsli innan á
neðri vör og vinstri kinn, mar á
vinstri kinn, bólgu á nefi og mar
aftan við hægra eyra.
Kona beitti stjúpson
sinn ofbeldi
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Tvö norsk veiðiskip hafa bæst í hóp
skipa sem leita loðnu við landið og í
gær voru sex skip við loðnuleit.
Langt er síðan slíkur fjöldi skipa
hefur tekið þátt í verkefni sem
þessu ef þá nokkurn tímann. Þá
hafa Norðmenn ekki tekið þátt í leit
að loðnu við landið fyrr en nú, en
verði veiðikvóta úthlutað þá er í
gildi samningur um veiðar þeirra
við landið.
Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri
uppsjávarsviðs á Hafrannsókna-
stofnun, sagði í gær að staðan yrði
metin um leið og upplýsingar bær-
ust. „Við gerum okkur grein fyrir
því eins og aðrir að tíminn vinnur
ekki með okkur. Ef einhverjar vís-
bendingar koma um betra ástand
en áður hefur verið talið munum við
bregðast hratt við,“ sagði Þor-
steinn.
Til þessa hefur árgangurinn sem
ber uppi veiðistofn ársins ekki náð
viðmiði Hafrannsóknastofnunar og
Alþjóðahafrannsóknaráðsins til að
gefa út upphafskvóta.
Norður með Austfjörðum
Í gær var Ásgrímur Halldórsson
SF við leit grunnt með Suðaust-
urlandi og er leið hans merkt með
grænu á kortinu hér að ofan. Rann-
sóknaskipið Árni Friðriksson og
grænlenska skipið Polar Amaroq
leituðu utar og munu þessi þrjú
skip síðan skipta með sér leit norð-
ur með Austfjörðum eftir fjólubláu
línunum. Þau halda síðan áfram leit
á svæði milli rauðra og grænna lína.
Norsku skipin Åkerøy og Roald-
sen fara annars vegar grynnra upp
með Austfjörðum eftir rauðum lín-
um og hins vegar mun dýpra eftir
grænum línum. Gert er ráð fyrir að
norsku skipin verði við leit í 4-5
daga. Vísbendingar hafa borist um
loðnu frá skipum úti fyrir Austur-
landi eins og sjá má á kortinu.
Bjarni úti fyrir Vestfjörðum
Þá var rannsóknaskipið Bjarni
Sæmundsson við loðnuleit úti fyrir
Vestfjörðum í gær, en meginverk-
efni skipsins í hringferð um landið
eru þó ekki mælingar á loðnu.
Norsku skipin komu til landsins í
vikunni, annað með farm af kol-
munna, hitt til að vera tilbúið ef
loðnukvóti yrði gefinn út.
Sex skip voru
við loðnuleit
Kraftur í loðnuleit
Heimild: Hafrannsóknastofnun
Tvö norsk veiðiskip bættust við í gær
Hratt brugðist við berist jákvæðar fréttir
Við leit Árni Friðriksson á siglingu.