Morgunblaðið - 16.02.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 16.02.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019 Njóttu þess að hlakka til Sigling um Adría- og Miðjarðarhaf 10. til 24. september 2019 Ferðakynning hjá VITA Kynningarfundur umsiglinguna verður þriðjudaginn 19. febrúar kl. 17:30 á skrifstofuVITA, Skógarhlíð 12. Gengið inn neðan við húsið – gegnt Bústaðavegi. Fararstjóri: Kristinn R. Ólafsson ÍS L E N S K A / S IA .I S V IT 9 0 9 8 9 0 2 / 19 Veður víða um heim 15.2., kl. 18.00 Reykjavík 1 skýjað Hólar í Dýrafirði -1 skýjað Akureyri -3 skýjað Egilsstaðir -4 léttskýjað Vatnsskarðshólar -1 heiðskírt Nuuk -7 snjókoma Þórshöfn 4 rigning Ósló 2 þoka Kaupmannahöfn 6 heiðskírt Stokkhólmur 4 heiðskírt Helsinki 6 heiðskírt Lúxemborg 13 heiðskírt Brussel 16 heiðskírt Dublin 13 skýjað Glasgow 11 heiðskírt London 13 heiðskírt París 14 heiðskírt Amsterdam 13 heiðskírt Hamborg 14 heiðskírt Berlín 12 heiðskírt Vín 9 heiðskírt Moskva 2 léttskýjað Algarve 17 heiðskírt Madríd 16 heiðskírt Barcelona 14 heiðskírt Mallorca 16 léttskýjað Róm 16 heiðskírt Aþena 5 súld Winnipeg -25 heiðskírt Montreal 0 snjókoma New York 8 alskýjað Chicago -10 léttskýjað Orlando 21 heiðskírt  16. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:21 18:04 ÍSAFJÖRÐUR 9:35 17:59 SIGLUFJÖRÐUR 9:19 17:42 DJÚPIVOGUR 8:53 17:31 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á sunnudag Norðaustan og austan 13-18, en 18-23 m/s NV-til. Snjókoma norðan heiða, annars rigning. Á mánudag Allhvöss norðanátt með snjókomu eða éljum, en bjartviðri syðra. Frost 0 til 8 stig. Vaxandi norðaustanátt, þykknar upp og dregur úr frosti. Norðaustan 13-23 í kvöld, hvassast syðst, með snjókomu eða slyddu á SA- og A-landi. VIÐTAL Hjörtur J. Guðmundsson hjortur@mbl.is „Við munum ekki lengur taka vin- um okkar, raunverulegum banda- mönnum og samstarfsaðilum sem sjálfsögðum hlut. Við getum ein- faldlega ekki leyft okkur að van- rækja þá,“ sagði Mike Pompeo, ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, í ávarpi sem hann flutti í gær í tón- listar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu í Reykjavík eftir að hann hafði fundað með Guðlaugi Þór Þórðar- syni utanríkisráðherra. Vísaði Pom- peo til fyrri ríkisstjórna í Banda- ríkjunum og rifjaði upp að bandarískur utanríkisráðherra hefði ekki heimsótt Ísland frá því árið 2008, en þá heimsótti Condo- leezza Rice landið í forsetatíð Georges W. Bush. Löndin deila mikilvægri sögu Pompeo sagði Íslendinga og Bandaríkjamenn deila stórkostlegri og mikilvægri sögu sem mætti aldr- ei gleyma. Landkönnuðir frá Ís- landi hefðu ferðast til Ameríku mörgum öldum áður en Bandaríkin urðu til. Í dag ferðuðust tugir þús- unda Bandaríkjamanna til Íslands. Bandaríkin hefðu verið fyrsta ríkið sem viðurkenndi íslenska lýðveldið og bandarískir geimfarar hefðu æft sig hér á landi áður en þeir fóru út í geiminn. Þá hefði Ísland gegnt mikilvægu hlutverki í síðari heims- styrjöldinni fyrir stríðsrekstur bandamanna og gegndi í dag að sama skapi mikilvægu hlutverki í NATO. Traustari viðskiptabönd Ráðherrann minntist þannig á hlutverk Íslands sem tengingar á milli Bandaríkjanna og Evrópu. Ekki síst þegar kæmi að sam- göngum. Bandaríkjamenn hefðu ný- verið orðið stærsta einstaka við- skiptaland Íslands og markmiðið væri að styrkja viðskiptatengsl landanna enn frekar. Í því skyni hefði verið komið á fót vettvangi fyrir efnahagslegt samtal á milli ríkjanna með það að markmiði að halda áfram að byggja traustari viðskiptabönd á milli þeirra næstu áratugina. Með því yrðu tvíhliða tengsl Íslands og Bandaríkjanna styrkt sem og íslenskra og banda- rískra fyrirtækja og fjárfesta. Spurður nánar um þetta efna- hagslega samtal sagði Pompeo að það væri alltaf mikilvægt að vekja athygli aðila í einkageiranum á tækifærum sem væru fyrir hendi. Það yrði lykilatriði í þeirri vinnu. Ráðherrann var einnig spurður hvort hann teldi að þetta samtal gæti mögulega á endanum leitt til fríverslunarsamnings á milli Ís- lands og Bandaríkjanna og sagði hann að það yrði góð niðurstaða ef hægt yrði að semja um slíkan samning en það ætti einfaldlega eftir að koma í ljós hvort sú yrði niðurstaðan eða hvort samstarfið myndi einfaldlega snúast um að draga úr viðskiptahindrunum. Það yrði að sama skapi góð niðurstaða. Áskoranir á norðurslóðum Pompeo sagði Bandaríkjamenn einnig gjarnan vilja styrkja sam- starf sitt við Íslendinga í málefnum norðurslóða í ljósi vaxandi mikil- vægis svæðisins. Sagðist hann hlakka til þess samstarfs samhliða því að Ísland tæki við formennsku í Norðurskautsráðinu í maí. „Við vit- um að þegar Bandaríkin draga sig í hlé fylla ríki eins og Kína og Rúss- land tómarúmið sem skapast. Hjá því verður ekki komist ef við erum ekki til staðar,“ sagði hann. Sagði Pompeo aðspurður að Bandaríkin gerðu sér vel grein fyrir þeim áskorunum sem fyrir hendi væru á norðurslóðum og áherslu Kínverja og Rússa á að styrkja stöðu sína á svæðinu. Þar teldi hann samstarf Bandaríkjanna og Íslands skipta máli. Pompeo sagði aðspurður að besta leiðin til þess að bregðast við þess- ari þróun væri einfaldlega að styrkja tengslin við bandamenn Bandaríkjanna. Þá ekki síst innan Norðurskautsráðsins. Sagði hann Bandaríkjamenn reiðubúna að leggja sitt af mörkum til þess að stuðla að friðsamlegum samskiptum þjóða á norðurslóðum. Vill styrkja tengslin enn frekar  Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í heimsókn  Fundaði með forsætisráðherra og utanríkisráðherra  Vill styrkja viðskiptatengsl landanna Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í Hörpu Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Guðlaugur Þór Þórðarson á sviðinu í Hörpu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Í Ráðherrabústaðnum Mike Pompeo og Katrín Jakobsdóttir funduðu í gær. Ungliðahreyfingar fimm stjórnmálaflokka mótmæltu fyrir utan. „Fólk spyr mig stundum hvort Ísland sé Evrópuríki. Ég geri ráð fyrir að fræðilega svarið sé já. En þegar málið er hugsað betur þá tilheyrum við bókstaflega bæði Evrópu og Ameríku þar sem flekaskilin liggja beint í gegnum landið,“ sagði Guð- laugur Þór Þórðarson utanríkis- ráðherra meðal annars í ávarpi sínu sem hann flutti í gær í til- efni af heimsókn Mikes Pom- peo, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, til Íslands. Sagði hann Íslendinga meira ameríska en aðra Evrópumenn. Rifjaði Guðlaugur Þór enn- fremur upp söguleg tengsl Ís- lands og Bandaríkjanna. Banda- ríkjamenn og Íslendingar væru ekki aðeins tengdir í gegnum sameiginlega sögu heldur einn- ig í gegnum mörg sameiginleg gildi og arfleifð. Vera banda- rísks herliðs á Íslandi í áratugi á síðustu öld hefði haft varanleg áhrif á íslenska menningu. Sam- starf Íslands og Bandaríkjanna á sviði varnarmála væri sem fyrr mikilvægt og löndin væru mikil- vægir bandamenn þegar kæmi að málefnum norðurslóða. Guðlaugur benti á að Banda- ríkin væru í dag stærsta ein- staka viðskiptaland Íslands og mikill fjöldi bandarískra ferða- manna sækti landið heim á hverju ári. Hins vegar væru enn mörg tækifæri ónýtt í þeim efn- um. Markmiðið með fyrirhug- uðu auknu efnahagslegu sam- tali á milli ríkjanna sem fyrirhugað væri að koma á lagg- irnar hefði einmitt það að mark- miði að nýta þau. Amerískari en aðrir Evrópumenn GUÐLAUGUR ÞÓR Í pontu Guðlaugur Þór ávarpaði gesti í Hörpu ásamt Mike Pompeo.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.