Morgunblaðið - 16.02.2019, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019
Vantar þig
ráðleggingar
við sölu eignar
þinnar?
s 893 6001
Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is
Guðbergur
Guðbergsson
Löggiltur fasteignasali
og leigumiðlari
Mjólk
ergóð
Grusas segir hópinn ekki hafa
mikinn tíma til stefnu.
Nota sérstaka tækni
„Hér verða höggmyndir úr ís og
útskorin íslistaverk. Við notum mjög
flókna tækni. Við höfum gert drög
að listaverkunum og munum hefjast
handa um leið og við höfum ísinn og
nægan kulda í herberginu. Hver ís-
blokk vegur um 100 kíló en við
ætlum að vera með yfir 60 tonn af
ís,“ segir Grusas en notast verður
við ís sem er frystur með sérstakri
aðferð til að hann sé sem gagnsæj-
astur.
á ísgalleríinu þegar það var kynnt á
ferðakaupstefnunni Mid-Atlantic í
Reykjavík í byrjun mánaðarins.
„Þar voru ferðaskipuleggjendur
hvaðanæva úr heiminum. Þeir voru
afskaplega hrifnir af því að Ísland
væri að fá svona gallerí. Ferðaskipu-
leggjendur reyna að setja saman
góða dagskrá þannig að ferðamenn
geti upplifað margt. Það eru ekki
svo margir valkostir í miðborginni
fyrir upplifun,“ segir hún.
Íslistamaðurinn Marius Grusas
fer fyrir hópi átta sérþjálfaðra lista-
manna á vegum fyrirtækisins sem
munu skera listaverk í ísinn.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Áformað er að opna ísgalleríið
Magic Ice Reykjavík með vorinu.
Hópur sérþjálfaðra íslistamanna
mun á næstu vikum skera út verkin.
Galleríið verður í niðurkældu sýn-
ingarrými í kjallara nýbyggingar á
Laugavegi 4-6. Kælikerfið er komið
upp og er upplifunin af rýminu eins
og að vera í kæliklefa.
Christine Rae, framkvæmdastjóri
Magic Ice Reykjavík, segir fyrir-
tækið hafa auglýst eftir starfsfólki
fyrir um einum og hálfum mánuði.
Viðbrögðin hafi verið gífurleg og
borist milli 160 og 170 umsóknir.
Áhuginn yfirþyrmandi
„Slíkur var áhuginn að við þurft-
um að taka auglýsinguna niður. Það
barst umsókn á tveggja mínútna
fresti. Við erum að leita að fólki sem
er spennt fyrir starfinu og vill vera
hluti af einhverju nýju í miðbænum.
Við erum að leita að 8-10 starfs-
mönnum í fullt starf en það á eftir að
koma í ljós hversu margir þeir verða
yfir veturinn,“ segir Rae sem starf-
aði áður hjá Icelandair-hótelunum.
Hún er Kanadamaður og býr hér
á landi ásamt íslenskum eiginmanni.
Kirsten Holmen, forstjóri Magic
North, móðurfélags Magic Ice
Reykjavík, segir markmiðið að opna
fyrir páska, mögulega í lok mars.
Hún segir marga hafa sýnt áhuga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Undirbúningur Marius Grusas, Christine Rae og Kirsten Holmen í fyrirhuguðu sýningarrými í kjallaranum.
Ísgallerí á Laugavegi
opnað með vorinu
Magic Ice bárust 170 umsóknir um störf hjá galleríinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýbygging Galleríið verður í kjallara hússins. Rúllustigi tengir hæðirnar.
„Ég var frekar undrandi að sjá
þetta og kannaðist ekki við að hafa
verið þarna á ferðinni, eða bílar á
mínum vegum,“ segir Anders Han-
sen á Leirubakka í Landsveit á
Suðurlandi, sem rak augun í rukk-
un frá Vaðlaheiðargöngum í vik-
unni, þegar hann opnaði heima-
banka sinn í tölvunni. Anders hefur
ekki farið norður í langan tíma, en
til gamans má geta að frá Leiru-
bakka að Vaðlaheiðargöngum eru
tæpir 500 km landleiðina, ef ekið
væri eftir þjóðveginum til Reykja-
víkur og þaðan norður.
Anders hafði samband við þjón-
ustuver Vaðlaheiðarganga í tölvu-
pósti, með ósk um leiðréttingu, og
fékk strax til baka afsökunarbeiðni
og þá skýringu að búnaður tengd-
ur við myndavélar í göngunum
hefði lesið vitlaust á bílnúmer.
Anders segist ekki hafa komið
norður í nokkur ár en það sé aldrei
að vita nema að hann geri sér ferð
næsta sumar og heimsæki vini og
kunningja í Eyjafirði og Þingeyjar-
sýslum. Tími sé kominn á það.
Búnaður les númerin vitlaust
Skammt er síðan frétt birtist í
Morgunblaðinu um svipað tilvik.
Þá fengust þau svör hjá Valgeiri
Bergmann, framkvæmdastjóra
ganganna, að mistök hefðu átt sér
stað í tölvu sem les á númer
bílanna sem aka í gegnum göngin.
Sem kunnugt er þá eru engin
gjaldskýli við göngin heldur geta
vegfarendur greitt með rafrænum
hætti, annaðhvort fyrir fram eða
að rukkað er eftir á.
Valgeir sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að það mætti
búast við því að svona mistök ættu
sér stað. Erfitt væri að eiga við
þetta ef illa sæist í númeraplöt-
urnar eða þær skyggðar með ein-
hverjum hætti. Þetta væri þó að-
eins í 0,05% tilvika af þeirri umferð
sem hefði verið í göngunum síðan
farið var að rukka veggjöldin.
Valgeir sagði að því fleiri sem
myndu skrá sig inn á vefsíðuna
veggjald.is því minni hætta væri á
að fá rukkun fyrir ferð sem ekki
var farin um göngin.
Fékk rukkun fyrir
ferð um göngin
sem aldrei var farin
Mistök við lestur á bílnúmerum gerð
í 0,05% tilvika í Vaðlaheiðargöngum
Ljósmynd/Vaðlaheiðargöng
Vaðlaheiðargöng Vissara er að
hafa númeraplöturnar í lagi.